Skessuhorn - 07.07.2021, Blaðsíða 20
MIðVIKudAGuR 7. júlÍ 202120
Írskir dagar fóru fram á Akranesi um nýliðna helgi. Blaðamað-
ur Skessuhorns ræddi við Fríðu Kistínu Magnúsdóttur, við-
burðastjóra Akraneskaupstaðar, en hún var að klára lokafrá-
gang eftir hátíðina á mánudaginn. Að hennar sögn heppnað-
ist hátíðin vel og fóru þeir viðburðir sem kaupstaðurinn stóð
fyrir vel fram. „Veðrið hjálpaði okkur að sjálfsögðu mikið. Það
var rosalega margt fólk í bænum, mikið fjör, og allir viðburð-
irnir afar vel sóttir.“ Fríða Kristín segir að fjölskylduskemmt-
unin á laugardagskvöldinu standi upp úr. „Þetta er sennilega
stærsta og best sótta fjölskylduskemmtunin frá upphafi Írskra
daga og það var ánægjulegt að sjá hversu margt fjölskyldufólk
mætti á skemmtunina.“ frg/Ljósm. Kolla Ingvars.
Írskir dagar á Akranesi
Írskir dagar voru formlega settir á fimmtudaginn á Akratorgi. Hér er íþrótta-
álfurinn að skemmta.
Valgeir Pétur, Þórður Elías og Sif voru mætt með Möggu dagmömmu á setning-
arathöfnina.
Fríða Kristín Magnúsdóttir verkefnastjóri var kynnir á setningarhátíðinni.
Dansað í takt.
Íþróttaálfurinn að stýra léttum æfingum á Akratorgi.
Hér er Solla stirða að ræða við börnin.
Hálendaleikarnir voru hluti af dagskránni. Að þessu sinni voru þeir við Byggða-
safnið í Görðum.
Helgi Björns og Reiðmenn vindanna á brekkusöngnum á laugardaginn.
Vigdís Birna bar sigur úr býtum í
keppninni um rauðhærðasta Íslend-
inginn. Hlaut hún 50.000 kr. gjafabréf
frá Icelandair.
BMX Bros sýndu listir sínar á
Akratorgi.
Stemning í íssölunni við Frystihúsið á Akratorgi.