Skessuhorn


Skessuhorn - 07.07.2021, Side 24

Skessuhorn - 07.07.2021, Side 24
MIðVIKudAGuR 7. júlÍ 202124 Elísabet Ösp Pálsdóttir og vinkona hennar og vinnufélagi, Sigurbjörg Helga Sæmundsdóttir, skelltu sér í fjallgöngu á Akrafjall á mánu- dagskvöldi fyrir rúmlega viku síð- an. Ætlunin var að ganga hinn svo- kallaða Akrafjallshring. Þegar þær lögðu af stað um kl. 19 þetta kvöld var dásemdarveður, logn og sólskin og ætla mætti að þetta gæti orð- ið hin besta ferð. Þær byrjuðu að ganga upp á Geirmundartind og gekk vel upp á toppinn og síðan lá leið niður með fram brún fjallsins. dulítill drungi læddist þá að þeim. Á leiðinni niður villtust svo stöll- urnar aðeins af leið, það byrjaði að hellirigna og svartaþoka í ofaná- lag. Þær gengu rammvilltar um tíu kílómetra og vissu ekkert hvar þær voru staddar á fjallinu. Þeim leist alls ekki á blikuna, fóru þó varlega til að slasast ekki enda þaulvanar göngukonur og þó þær hugsuðu á leiðinni í verstu hremmingunum að hringja í 112 þá fannst þeim það hálf vandræðalegt að segja að þær væru týndar á Akrafjalli! Eftir um 2-3 klukkustunda gang, sem þær þurftu að fara mjög hægt því þær sáu ansi lítið í svartri þok- unni, þá römbuðu þær loks á Há- hnjúk og þvílík gleði og léttir. Þær örkuðu þá niður klettabeltið og ákváðu að fara mýkri leiðina niður í átt að Berjadalsá, þar yfir og svo niður Selbrekkuna. Það voru því tvær þreyttar en þakklátar meyj- ar sem skriðu inn í bíl á bílastæð- inu klukkan þrjú að nóttu til eftir að hafa gengið í átta klukkustundir og rúmlega 18 kílómetra á bæjar- fjallinu. Það má segja að það sé alltaf líf og fjör í kringum Elísabetu því 16. júní síðastliðinn var henni boðið í eftirminnilegt fertugsafmæli æsku- vinkonu sinnar þar sem tæplega 30 vinkonur toppuðu Snæfellsjökul í blindbyl og kulda. Þá voru þær oft að bugast á leiðinni í þessu válynda veðri eins og gefur að skilja og fæt- urnir og hugurinn að skiptast á um að sannfæra hver annan en á end- anum tókst þetta hjá vinkonunum og mikil gleði ríkti í hópnum að hafa náð þessu í þessum erfiðu að- stæðum. Það er því mjög líklegt að Elísa- bet og Sigurbjörg hafi slakað vel á á Írsku dögum um síðustu helgi eftir hremmingarnar en þó alls ekki víst því þeir sem þekkja Ellu og Sibbu eru þær hressar með endemum og aldrei lognmolla á þeim bæjum. vaks/ Ljósm. úr einkasafni. Góð aðsókn er í landbúnaðarháskóla Íslands næsta haust en alls sóttu yfir 200 væntanlegir nemendur um nám á háskólabrautum eða í búfræði. Ekki verður tekið inn í garðyrkjunám við skólann í ár. Flestar umsóknir bárust í BSc nám í búvísindum og næstflest- ar í landslagsarkitektúr. Allar náms- brautir landbúnaðarháskóla Íslands heyra undir þrjár fagdeildir sem eru Ræktun & Fæða, Náttúra & Skógur og Skipulag & Hönnun. Nemendafjöldi hefur tvöfaldast við skólann á undanförnum árum og á það við um öll námsstig; starfs- menntanám á framhaldsskólastigi, grunnnámið (BSc) og framhaldsnám- ið (MSc og Phd). Rannsóknatengt framhaldsnám hefur verið að eflast með nýjum samstarfsverkefnum og uppbyggingu innviða. Þá hafa meist- ara- og doktorsnemendur aldrei ver- ið fleiri í sögu skólans. loks eru öll fagsvið skólans nú í sókn. Þetta kem- ur fram í tilkynningu frá lbhÍ. Þar kemur einnig fram að haustið 2019 var áhugi nýrra nemenda mestur á skógfræði og náttúru- og umhverf- isfræði. Ári síðar, eða haustið 2020, féllu öll met í umsóknafjölda í lands- lagsarkitektúr og garðyrkju, nánar tiltekið í lífræna ræktun matjurta og ylrækt. Í ár eru það svo búvísindin sem heilla mest. mm Nemendum fjölgar við Landbúnaðarháskóla Íslands Nemendur í plöntugreiningu á engjunum neðan við gömlu byggingarnar á Hvanneyri. Ljósm. LbhÍ. Áætlað er að nemendur verði 617 við skólann í haust en þá eru ekki taldir þeir sem sækja nám í einingabærum námskeiðum eins og Reiðmanninum, Grænni skógum og á vegum Endurmenntunar LbhÍ. ÞINN STUÐNINGUR ER OKKAR ENDURHÆFING Ljósavinir hafa snert líf mitt án þess að vita það. Komdu í hópinn! www.ljosid.is Lentu í svartaþoku á Akrafjalli Það má ekki tapa gleðinni þó útlitið og þokan séu ansi svört.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.