Skessuhorn - 07.07.2021, Page 26
MIðVIKudAGuR 26. MAÍ 202126
Ólafsvík var undirlögð af bæjarhátíðinni Ólafsvíkurvöku á
laugardaginn. Óhætt að segja að veðrið hafi leikið við bæj-
arbúa og gesti þeirra því það var 20 stiga hiti og sól allan
tímann sem hátíðin fór fram. Margt var gert til skemmt-
unar frá morgni til kvölds, keppt í hinum ýmsu kappleikj-
um og skemmtiatriði voru haldin bæði í Sjómannagarðin-
um jafnt sem á íþróttasvæði bæjarins. Golfmót var haldið
á Fróðárvelli og Einar Mikael töframaður kenndi börnum
ýmsa galdra. Crossfit var á sparkvellinum þar sem foreldr-
ar tóku þátt ásamt börnum sínum. Einnig var þjálfun í vatni
sem var haldin í sundlauginni en hún var í umsjón Helgu
Eyjólfsdóttur.
Einnig var Ólafsvíkurdraumurinn haldinn, sem er
skemmtilegur leikur fyrir fjölskyldur og vinahópa. Markað-
ur var í Sjómannagarðinum þar sem heimamenn seldu ýms-
ar vörur. Hoppukastalar voru einnig í Sjómanngarðinum
og skemmtidagskrá þar sem Einar Mikael sýndi töfrabrögð
og Pæjumótastelpur sýndu danslist. davíð og Hjörtur tóku
nokkur rapplög og Magnús Kjartan hitaði upp fyrir brekku-
söng. Tónlistarmaðurinn Siggi Hösk var með stofutónleika
á heimili sínu þar sem hann ásamt Klakabandinu spiluðu í
tvo tíma og var talsvert streymi fólks til þess að hlýða á þessa
síungu tónlistarmenn sem engu hafa gleymt.
um kvöldið var dagskránni haldið áfram í Sjómannagarð-
inum þar sem hvert hverfi var með skrúðgöngu og safnast
saman í brekkusöng þar sem fyrrnefndur Magnús Kjartan
spilaði og söng fyrir gesti sem tóku vel undir með honum.
dagskránni lauk með stórdansleik í félagsheimilinu Klifi þar
sem Stuðbandið lék fram undir morgun og var dansleikurinn
fjölmennur. af
Ólafsvíkurvaka haldin í einmuna veðurblíðu
Skrúðganga í Sjómannagarðinn.
Kristinn Jónasson bæjarstjóri var
ánægður með daginn.
Sigurvegarar í Ólafsvíkurdrauminum verðlaunaðir. Þessir drengir á góðum stað.
Stofutónleikar hjá Sigga Hösk.
Kát systkini.
Skrautklæddir heimamenn á sviði.
Kampakát hjón í góðum söng gír;
Sigrún og Illugi.
Græna hverfið setti sinn svip á hátíðina.
Brosmildir gestir.
Pæjumótastelpurnar sýndu dans.
Veðrið lék við heimamenn og gesti þeirra.
Tryggvi Konráðsson vakti mikla athygli þegar hann
var á svæðinu með tvo bíla sem hann hefur gert upp.
Fjölmenni var í hoppukastölunum.