Skessuhorn - 07.07.2021, Side 31
MIðVIKudAGuR 7. júlÍ 2021 31
Knattspyrnudeild Víkings Ólafs-
vík samdi á sunnudaginn við Guð-
jón Þórðarson um að taka við þjálf-
un liðsins, en á föstudaginn sagði
Gunnar Einarsson þjálfari upp
störfum í ljósi slaks árangurs liðs-
ins á Íslandsmótinu. Guðjón, sem
er einn farsælasti þjálfari lands-
ins, þarf ekki að kynna fyrir Ólsur-
um enda þjálfaði hann liðið á síð-
ari hluta tímabilsins í fyrrasumar.
Samningur Guðjóns við Víking Ó.
gildir út leiktímabilið 2022.
„Stjórn Víkings Ó. lýsir yfir
mikilli ánægju með ráðninguna
og bjóðum við Guðjón innilega
velkominn aftur til starfa,“ sagði
í tilkynningu frá félaginu á sun-
nudaginn. Strax í kjölfarið hélt
Guðjón æfingu með sínum mön-
num og hafði Brynjar Kristmunds-
son aðstoðarþjálfara sér við hlið.
„Nú reyni ég að byggja liðið upp á
eins jákvæðan hátt og ég get,“ sagði
Guðjón í samtali við fréttaritara
Skessuhorns á sunnudaginn.
mm
Skagamenn léku gegn liði Vík-
ings úr Reykjavík í Pepsi Max deild
karla í knattspyrnu á Víkingsvelli á
mánudaginn. Víkingur sótti meira
á Skagamenn í fyrri hálfleik og
fengu dauðafæri á 25. mínútu þeg-
ar Nikolaj Hansen skallaði boltann
yfir nánast á marklínu eftir horn-
spyrnu. Fyrsta færi Skagamanna
kom eftir rúman hálftíma leik þeg-
ar Morten Beck komst í gott færi en
markvörður Víkings, Þórður Inga-
son, sá við honum og varði vel. Á
lokamínútu fyrri hálfleiks fengu
Skagamenn aftur gott færi þegar
Þórður missti boltann yfir sig en
boltinn lak fram hjá markinu og
staðan því markalaus í hálfleik.
Seinni hálfleikurinn var algjör-
lega eign heimamanna og það var
aðallega Árna Marinó Einarssyni,
markmanni Skagamanna, að þakka
að þeir skoruðu ekki nokkur mörk.
Hann var gjörsamlega frábær á milli
stanganna, varði oft vel og greip vel
inn í fyrirgjafir. Skagamenn fengu
þó dauðafæri á 77. mínútu þeg-
ar Guðmundur Tyrfingsson sendi
boltann á Eyþór Aron Wohler sem
var í hörkufæri en Þórður varði vel.
Víkingur hélt áfram að þjarma að
marki Skagamanna og þegar fjór-
ar mínútur voru komnar fram yfir
venjulegan leiktíma fékk Víking-
ur vafasama vítaspyrnu. úr henni
skoraði fyrrnefndur Nikolaj Han-
sen sigurmark heimamanna og
lokatölur leiksins 1-0 fyrir Víking.
jóhannes Karl Guðjónsson, þjálf-
ari Skagamanna, var afar ósáttur eft-
ir leik og þá sérstaklega með dóm-
arann varðandi vítaspyrnudóm-
inn: „Hann ákveður fyrst að dæma
ekki víti, veifar klárlega að það sé
ekki brot sem eigi sér stað þarna en
skiptir svo um skoðun. Ég skil ekki
svona vinnubrögð, hann sagðist
hafa séð eitthvað nýtt. Hugsaði sig
um og allt í einu sá hann eitthvað.
Þú getur ekki séð þetta tvisvar!“
Skagamenn sitja eftir þennan leik
í botnsætinu í Pepsi Max deildinni
og eru nú fimm stigum frá öruggu
sæti þegar mótið er nánast hálfnað.
Næsti leikur Skagamanna er
gegn liði leiknis úr Reykjavík
næsta mánudag og fer fram á do-
musnova vellinum í Breiðholti og
hefst klukkan 19.15.
vaks
Fyrsti leikur áttundu umferðar í
lengjudeild kvenna í knattspyrnu
fór fram á miðvikudaginn í Mos-
fellsbæ þar sem mættust lið Aft-
ureldingar og ÍA. Heimastúlkur
byrjuðu mun betur og á 18. mín-
útu leiksins kom Guðrún Elísa-
bet Björgvinsdóttir þeim yfir með
fyrsta marki leiksins og eftir níu
mínútna leik í þeim seinni var Guð-
rún aftur á ferðinni. lítið gekk hjá
Skagastúlkum að ógna marki Aft-
ureldingar í leiknum og svo fór að
títtnefnd Guðrún skoraði sitt þriðja
mark í leiknum og öruggur sig-
ur staðreynd, 3-0. Afturelding sit-
ur þessa stundina í toppsæti deild-
arinnar með 18 stig en ÍA er í því
sjötta með níu stig og er nú aðeins
fjórum stigum frá fallsæti.
Næsti leikur Skagastúlkna er
gegn liði Hauka á morgun, fimmtu-
daginn 8. júlí, á Akranesvelli og
hefst klukkan 19.15. vaks
Víkingur Ólafsvík lék sinn fyrsta
leik undir stjórn Guðjóns Þórðar-
sonar í sumar þegar þeir mættu liði
Gróttu á Seltjarnarnesi í lengu-
deild karla í knattspyrnu á mánu-
daginn. Í leik Víkings þar á und-
an þurfti liðið að sætta sig við stór-
tap gegn Þrótti; 7-0. Í kjölfar hans
tók þjálfarinn Gunnar Einarsson
poka sinn á föstudaginn og Guðjón
Þórðarson var ráðinn í hans stað á
sunnudag.
Í leiknum gegn Gróttu kom Pét-
ur Theodór Árnason heimamönn-
um á Seltjarnarnesi yfir eftir rúm-
lega hálftíma leik og skoraði ann-
að mark skömmu fyrir leikhlé og
staðan 2-0 í hálfleik. Anel Crnac
minnkaði muninn fyrir Víking
í byrjun seinni hálfleiks en Pét-
ur Theodór var sífellt ógnandi og
hann skoraði sitt þriðja mark á 57.
mínútu og kom Gróttu í 3-1. Guð-
finnur Þór leósson skoraði mark
í uppbótatíma fyrir Víking en það
var of seint og níunda tap liðsins í
sumar staðreynd.
Víkingur situr enn á botni
lengjudeildarinnar með eitt stig
eftir tíu umferðir og eru átta stig-
um frá öruggu sæti. Það er því
ljóst að ærið verkefni bíður Guð-
jóns Þórðarsonar að halda þeim
uppi en Guðjón sagði í viðtali eftir
leik að það verði mikil áskorun en
sé raunhæft með vinnu og aga og
meiri vinnu og smá útsjónarsemi.
Varðandi leikmannamálin sagð-
ist Guðjón eiga von á styrkingu á
næstu dögum: „Við eigum von á
styrkingu á næstu dögum, við erum
langt komnir með einn og vonandi
annan innan tíðar.“ Hópurinn hjá
Víkingi var frekar þunnskipaður í
leiknum í gær en núna um helgina
var Hlynur Sævar jónsson kallaður
úr láni frá ÍA en hann hafði leikið
átta leiki og skorað eitt mark í sum-
ar fyrir Víking.
Næsti leikur Víkings Ó verður
gegn liði Grindavíkur næsta föstu-
dag á Ólafsvíkurvelli og hefst hann
klukkan 19.15.
vaks
Guðjón snýr aftur til Ólafsvíkur
Jóhann Pétursson formaður Víkings og Guðjón Þórðarson handsala samninginn.
Ljósm. þa.
Guðjón Þórðarson og Brynjar Kristmundsson aðstoðarþjálfari á fyrstu æfingu á
sunnudaginn. Ljósm. af
Strax og búið var að skrifa undir samn-
ing var haldin æfing á sunnudaginn
Naumt tap Skaga-
manna gegn Víkingi
Jóhannes Karl, þjálfari Skagamanna, var ósáttur eftir leikinn.
Víkingur mátti sætta sig við 7-0 tap
gegn Þrótti á fimmtudaginn. Í fram-
haldinu voru gerð þjálfaraskipti hjá
liðinu. Ljósm. af.
Tap hjá Víkingi í fyrsta
leik Guðjóns
James Dale, fyrirliði Víkings, í leiknum
gegn Gróttu.
Ljósm. Eyjólfur Garðarsson/fotbolti.
net.
Skagastúlkur voru í veseni í Mosó. Hér sést Sigrún Eva Sigurðardóttir hreinsa
boltann í burtu frá marki Skagastúlkna í leiknum. Ljósm. sas.
Skagastúlkur töpuðu
fyrir Aftureldingu