Morgunblaðið - 05.01.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 05.01.2021, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 5. J A N Ú A R 2 0 2 1 Stofnað 1913  3. tölublað  109. árgangur  ÍÞRÓTT SEM BÝÐUR UPP Á MÖRG ÆVINTÝRI ÞÉTTUR, HLÝR OG LEIFTR- ANDI VAKUR RAKST Á GÆFAN HAFÖRN Í ÍSA- FJARÐARDJÚPI KONSERTMEISTARINN 28 ANDRI LJÓSMYNDARI 6VÆNGBRETTASPORT 11  Alls voru seldar tæplega 27 millj- ónir lítra af áfengi í Vínbúðunum í fyrra, meira en nokkru sinni fyrr. Árið áður var salan 23 milljónir lítra og aukningin nam því 18%. Þessi aukna sala skýrist að miklu leyti af kórónuveirufaraldrinum; minni sölu í Fríhöfninni og lokun bara og veitingastaða. Sala á rauðvíni jókst um tæp 32% milli ára og sala á gini og sénever um rúmlega 40%. Sala á lagerbjór jókst um 15% en sprenging varð í flokknum „aðrar bjórtegundir“, alls nam söluaukning þar 54%. »2 Seldu fjórum millj- ónum fleiri lítra 22,7 26,8 Allar áfengistegundir 2019-2020 2019 2020 Sala í Vínbúðunum H e im ild : V ín b ú ð in Milljónir lítra 18,3% aukning milli ára Kennsla hefst í mörgum framhaldsskólum í dag. Þótt sótt- varnareglur hafi verið rýmkaðar til þess að hægt sé að taka við nemendum í staðnám í stað fjarnáms vilja margir skóla- menn fara varlega af stað. Kennslan fyrstu vikuna verður því víða með svipuðu sniði og var fyrir áramót. Síðan verða tekn- ar ákvarðanir um frekari opnun skólanna þegar séð verður hvernig kórónuveirufaraldurinn þróast. Kennarar við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti voru í gær að undirbúa skóla- starfið með breytingum á námsvali nemenda fyrir komandi önn. Það er allt gert í samskiptaforritum. Fremstur er Ragn- ar Sveinn Magnússon, þá Hulda Hlín Ragnars og Sigursteinn Sigurðsson. »4 Morgunblaðið/Árni Sæberg Kennsla undirbúin í framhaldsskólum við breyttar aðstæður Oddur Þórðarson Veronika S. Magnúsdóttir Þrír einstaklingar sem bólusettir voru gegn kórónuveirunni hér á landi hafa nú látist. Alls hafa Lyfja- stofnun borist 16 tilkynningar um aukaverkanir af bólusetningu gegn veirunni, þar af fjórar um alvarleg tilfelli. Ekki hefur komið fram hvers eðlis aukaverkanirnar eru. Þá var einn lagður inn á gjörgæslu vegna aukaverkana. Þetta staðfesti Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, í samtali við mbl.is í gær. Hún segir að ekkert bendi til þess að orsakasamhengi sé milli bólusetninga og dauðsfallanna, samt sem áður verði málið rannsakað. „Við verðum að gera okkur grein fyrir því að í fyrstu bólusetningu er verið að bólusetja allra veikasta og elsta fólkið. Þetta eru háaldraðir ein- staklingar með undirliggjandi sjúk- dóma,“ segir Rúna. „Við höfum bólu- sett um eitt þúsund heilbrigðis- starfsmenn og enginn þeirra hefur greint frá alvarlegum aukaverkun- um af bólusetningunni, einungis eymsli á stungustað,“ bætti hún við. Gísli Páll Pálsson, forstjóri Hjúkr- unarheimilisins Markar, tekur í svip- aðan streng. Hann segist ekki eiga von á að nokkurt orsakasamhengi finnist milli bólusetninga og dauðs- falla á hjúkrunarheimilum. Einn þeirra sem létust eftir að hafa verið bólusettir var íbúi á Mörk. „Ég á ekki von á því að neitt or- sakasamhengi finnist þarna á milli en auðvitað verður þetta rannsakað. Þær rannsóknir geta tekið eitt til tvö ár og væntanlega verða sams konar tilfelli rannsökuð erlendis.“ Hann segir að bólusetning íbúa og starfsmanna hafi gengið ótrúlega vel og að allt því tengt hafi verið til fyrir- myndar. Spurður um líðan íbúa í kjölfar frétta af andlátum segir hann að þeir láti engan bilbug á sér finna: „Þetta er skynsamara fólk en svo.“ Ekki náðist í Þórólf Guðnason sóttvarnalækni vegna þessa í gær- kvöldi. »14 Þrjú andlát aldraðra til- kynnt eftir bólusetningu  Ekkert orsakasamhengi talið á milli en málið rannsakað Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tímamót Bólusetning við kórónu- veirunni hófst í síðustu viku.  Finnbogi Rafn Jónsson, forstöðu- maður viðskipta og viðskiptatengsla hjá Nasdaq Iceland, segir að tvöföld- un á þátttöku einstaklinga á hluta- bréfamarkaði sé að sínu mati það markverðasta sem gerðist á árinu 2020 í Kauphöllinni. „Síðustu sex til sjö ár hafa um það bil 8.000 manns verið með vörslu- reikning hjá Nasdaq verðbréfamið- stöð, og það hefur haldist nokkurn veginn óbreytt milli ára, þar til nú.“ Hann segir að ástæðurnar séu ann- ars vegar neikvæðir raunvextir og hins vegar velheppnað hlutafjár- útboð Icelandair. Íslendingar séu þó enn eftirbátar hinna norrænu land- anna með þátttökuna. »12 Morgunblaðið/Þórður Viðskipti Einstaklingar hafa tekið við sér í hlutabréfakaupum á markaði. Tvöföld þátttaka miðað við síðustu ár

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.