Morgunblaðið - 05.01.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2021
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Við höfum ekki séð svona sölutölur
í mörg ár,“ segir Kristján Berg Ás-
geirsson, betur þekktur sem Fiski-
kóngurinn, um sölu á fiski á fyrsta
mánudegi nýs árs í gær.
„Menn vilja fá sér ferskan fisk
núna og það eru allir Íslendingar á
landinu, útlendingar voru ekki mik-
ið að koma til okkar á mánudegi.
Þetta minnti mig bara á sölutölur í
kringum 1990, þegar það var vöru-
talningardagur í byrjun árs og allar
búðir lokaðar og brjálað að gera hjá
okkur. Þetta er í raun búið að vera
allt Covid-árið, rosa mikið að gera.
Þegar heilsan bregst eða það kemur
kreppa þá sækja menn mikið í fisk,
vilja fara að lifa heilbrigðara lífi,“
segir Kristján sem bætir við að
hrogn og lifur séu ætíð vinsælar
vörur í upphafi árs. „Við vorum með
hrogn og lifur, 300 kíló, og það klár-
aðist allt. Og síðan að sjálfsögðu
fersk ýsa sem var vinsæl í gær.“
Mikil fisksala á fyrsta mánudegi nýs árs
Hrogn og
lifur seld-
ust upp
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir
liljahrund@mbl.is
Íbúafundur var á Seyðisfirði í gær-
kvöldi vegna hættustigs almanna-
varna og rýmingaráætlunar sem þar
er í gildi eftir að aurskriður féllu í
bænum fyrir jól.
„Þetta var í raun upplýsingafund-
ur og við fengum að sjá tímalínu á
hreinsunarstarfinu, fórum yfir stöð-
una á þessu svæði, hverjar vænting-
arnar eru frekar en niðurstöður. Það
voru kannski vonbrigði fyrir marga
að það var engin afgerandi niður-
staða um þetta en það er bara of
snemmt að spá um það,“ segir Aðal-
heiður L. Borgþórsdóttir, fyrrver-
andi bæjarstjóri á Seyðisfirði og
fulltrúi sveitarstjóra Múlaþings.
Aðalheiður segir að verið sé að
safna saman gögnum og vinna úr
þeim áður en ákvarðanir verða tekn-
ar um framhaldið.
„Þeir gátu ekki sagt hvenær rým-
ingu yrði aflétt eða neitt slíkt. Þetta
var aðallega til að leyfa íbúum að
fylgjast með því sem er verið að
gera. Við stefnum á fund fljótlega
aftur þegar þetta er skýrara. Það er
alveg viðbúið að það verði ekki leyft
að búa aftur á ákveðnu svæði og fólk
vill þá vita hvernig verður með upp-
kaup og annað, það er enn óljóst
hvernig verður með það,“ segir Aðal-
heiður.
Íbúum á Seyðisfirði kynnt
tímalína á hreinsunarstarfi
Íbúafundur var haldinn í gærkvöldi Funda brátt aftur
Morgunblaðið/Eggert
Seyðisfjörður Langan tíma mun
taka að vinda ofan af hamförunum.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Aldrei hefur meira verið selt af
áfengi í Vínbúðunum heldur en árið
2020. Sala á áfengum drykkjum
jókst um rúmlega 18% í lítrum talið
á nýliðnu ári mið-
að við árið 2019.
Alls voru seldar
tæplega 27 millj-
ónir lítra, en hátt
í 23 milljónir árið
á undan.
Sigrún Ósk
Sigurðardóttir,
aðstoðarforstjóri
Vínbúðanna, seg-
ir að kórónu-
veirufaraldurinn
skýri þessa miklu aukningu að
verulegu leyti. Þannig hafi færri
farið um Fríhöfnina en í venjulegu
ári og barir og veitingastaðir hafi
sætt takmörkunum og lokunum
stóran hluta ársins. Ferðalög til út-
landa hafi að stórum hluta legið
niðri á árinu og Íslendingar ferðast
innanlands í auknum mæli, en á
móti komi að erlendum ferðamönn-
um hafi fækkað mjög. Fleiri þættir
eigi eflaust hlut að máli, segir Sig-
rún. Stærsti einstaki dagurinn í sölu
áfengra drykkja var 30. desember er
43.700 viðskiptavinir komu í Vínbúð-
irnar og seldir voru 286 þúsund lítr-
ar. Þorláksmessa var næststærsti
dagurinn með 256 þúsund lítra og
alls seldust 237 þúsund lítrar mið-
vikudaginn fyrir páska, sem var
þriðji stærsti dagur ársins. Vín-
búðirnar eru 51, þar af 14 á höfuð-
borgarsvæðinu og 37 á landsbyggð-
inni.
18,9 milljónir lítra
af lagerbjór
Svo litið sé á sölu einstakra teg-
unda þá jókst salan á lagerbjór um
14,7% í fyrra og nam salan 18,9 millj-
ónum lítra. 725 þúsund lítrar voru
seldir af því sem flokkað er undir
aðrar bjórtegundir og nam aukn-
ingin 54,4%. Tæplega 980 þúsund
lítrar seldust af öli, eins og það er
flokkað hjá Vínbúðunum, og þar var
aukningin rúmlega 28%.
Af rauðvíni seldust yfir 2,5 millj-
ónir lítra og nam aukningin 31,7%,
Af hvítvíni seldust tæplega 1,5 millj-
ónir lítra og jókst hvítvínssalan um
tæplega 23%. Loks má nefna að af
gini og sénever seldust 101 þúsund
lítrar og nam aukningin rúmlega
40%.
Met í sölu áfengra drykkja á liðnu ári
Aukning í Vínbúðunum um 18% á milli ára Mest selt 30. desember Aukin sala skýrist af minni
sölu í Fríhöfninni og lokun bara og veitingastaða 40% aukning í sölu á gini, 32% aukning á rauðvíni
Sala áfengis í Vínbúðunum árið 2020
Þúsundir lítra
Pilsner og lagerbjór:
2,4 milljón fl eiri lítrar seldust í Vínbúðunum
2020 en árið á undan
Rauðvín
og hvítvín:
885
þúsund fl eiri
lítrar seldust í
Vínbúðunum
2020 en árið
á undan
H
ei
m
ild
: V
ín
bú
ði
n
Flokkur Þús. lítra
Aukning
frá 2019
Pilsner og lagerbjór 18.880 15%
Rauðvín 2.548 32%
Hvítvín 1.473 23%
Öl 980 28%
Aðrar bjórtegundir 725 54%
Freyðivín 332 36%
Brennivín og vodka 259 6%
Viskí 147 32%
Rósavín 110 31%
Líkjör 109 19%
Gin og sénever 101 40%
Brandí 54 26%
Aðrir fl okkar 1.092
Samtals 26.810 18%
BJÓR
BJÓRBJÓRBJÓR
VÍN
2020
Sigrún Ósk
Sigurðardóttir
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Annir Mikið var að gera í Vínbúðum
í fyrra og oft mynduðust raðir.