Morgunblaðið - 05.01.2021, Side 4

Morgunblaðið - 05.01.2021, Side 4
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Hver framhaldsskóli hagar starfi fyrstu vikur nýs árs eftir aðstæðum í viðkomandi húsnæði. Nýjar og rýmri kröfur um skólastarf tóku gildi um áramót. Þær eru miðaðar við að nem- endur geti verið í staðnámi en eigi að síður treysta ekki allir skólar sér til að gefa út hvenær almennt staðnám bóklegra greina getur hafist. Það ræðst af þróun faraldursins næstu daga og vikur. Kennsla hefst í flestum framhalds- skólum landsins í dag en í sumum á morgun. Fyrsta vikan verður í mörg- um tilvikum með svipuðu sniði og var lengst af haustmisseri, mest í fjar- kennslu. Fara varlega af stað Skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti ákvað eftir ráðgjöf neyð- arstjórnar skólans að hafa eingöngu fjarnám fyrstu vikuna, á meðan menn væru að átta sig á þróun faraldursins. „Við stefnum að því núna að hafa staðkennslu í verklegum greinum á verk- og listnámsbrautum, hjá fyrsta árs nemum á bóknámsbrautum, hjá nemendum á framhaldsskólabraut og nemendum á starfsbraut,“ segir Guð- rún Hrefna Guðmundsdóttir skóla- meistari. Þannig verða bóklegar greinar almennt kenndar áfram í fjarnámi, þar til annað verður ákveð- ið. Guðrún Hrefna segir vandasamt að skipuleggja námið með tilliti til sótt- varnareglna í stórum áfangaskólum, eins og Fjölbraut í Breiðholti. Staðan verði metin í ljósi smita og hvort óhætt sé talið að opna skólann meira. Guðrún Hrefna gerir ráð fyrir að 500 til 600 nemendur mæti í skólann í næstu viku en nemendur í dagskóla eru alls ríflega 1.100. Í reglugerð heilbrigðisráðherra er kveðið á um 30 manns sem viðmið- unarfjölda nemenda og starfsmanna í hverju rými. Blöndun nemenda á milli hópa í kennslu er heimil. Það skapar möguleika fyrir kennslu í fjöl- brautaskólum. Þá er nemendum og kennurum skylt að nota andlitsgrím- ur ef ekki er unnt að halda tveggja metra fjarlægð. Verði sem mest í stofum Þótt þetta sé skýrt glíma skóla- menn við óvissu og áskoranir varð- andi ýmis önnur atriði. Dæmi um það er sameiginlegt rými kennara þegar allir nemendur eru komnir í staðnám. Á að hafa mötuneyti opið? Eru til stofur fyrir nemendur sem eru í bið? Verslunarskólinn stefnir að því að vera með fulla kennslu í staðnámi frá og með næstu viku. Þangað til verður fyrirkomulagið svipað og fyrir jól, um helmingur þúsund nemenda skólans verður í skólanum og helmingur heima. Ingi Ólafsson skólastjóri segir að huga þurfi að ýmsu, áður en allir nemendur verði samtímis í húsi. Hann segir að gæta þurfi þess að nemendahópar blandist ekki í frímín- útum. Því verði nemendur að vera sem allra mest í skólastofum sínum á skólatíma. Ekki sé fært að hafa mötuneytið opið þannig að nemendur geti fengið sér heitan mat. Þess í stað geti þeir pantað í gegnum símann vörur úr vef- verslun og fái þær afhentar inni í skólastofu. Þar verði þau að borða matinn eða nesti sitt. Skilgreind eru sóttvarnahólf og er eitt klósett í hverju hólfi. „Svo vonum við að það verði rýmk- að seinna og hóparnir megi vera að- eins stærri og nemendur geti hist í frímínútum,“ segir Ingi. Bæta viku aftan við önnina Eins og fyrr segir eru skólarnir með mismunandi útfærslur á reglun- um. Þannig hefst kennsla í Verk- menntaskólanum á Akureyri næst- komandi mánudag, tæpri viku seinna en venjulega. Í staðinn lengist önnin um viku og fá kennarar þá tækifæri til að vera með nemendum, vonandi við betri aðstæður en nú. Allir bókleg- ir áfangar verða kenndir í fjarnámi fyrstu vikuna en verk- og listnám í staðkennslu, með sama hætti og fyrir áramót. Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari segir að staðan í sam- félaginu ráði því hvað hægt verði að taka marga nemendur til viðbótar inn í annarri viku. Í Menntaskólanum við Hamrahlíð er stefnt að því að kenna staðnám fyr- ir hádegi mánudaga til fimmtudaga og rafræna tíma eftir hádegi þá daga og á föstudögum þar til fjöldatak- markanir verða rýmkaðar. Ekki staðnám í öllum skólum  Stjórnendur sumra framhaldsskóla bíða eftir þróun faraldursins með að opna skólana til fulls  Nemendum gert að halda sig í kennslustofum  Vefverslun Versló afhendir matinn í skólastofu Morgunblaðið/Árni Sæberg Undirbúningur Kennarar og stjórnendur Fjölbrautaskólans í Breiðholti fá skólastofu til afnota til að ræða við nemendur á samskiptaforriti í tölvu um breytingar á námsvali. Fremst er Berglind Halla Jónsdóttir áfangastjóri, þá Stefán Andrésson og fyrir miðju, aftast, situr Gabríel Daði Gunnarsson. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2021 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Passamyndir Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Tryggjum tveggja metra fjarlægð og gætum ítrustu ráðstafana Jónína Benediktsdóttir íþróttafræðingur var jarð- sungin frá Digraneskirkju í Kópavogi í gær. Athöfn- ina önnuðust prestarnir séra Pálmi og séra Gunnar Rúnar Matthíassynir, áður mágar Jónínu. Ávarp við útförina flutti Jóhanna Vilhjálmsdóttir, vinkona Jón- ínu. Óskar Einarsson og Gosepltónar sáu um tónlist- arflutning og einsöngvarar voru Friðrik Ómar Hjör- leifsson, Regína Ósk og Selma Björnsdóttir. Líkmenn voru, í röðinni fjær á þessari mynd, fremst Tómas Helgi Stefánsson, Helga Benediktsdóttir, Ásthildur Björt Pedersen og Bjarni Geir Guðbjartsson. Í röð- inni nær: Matthías Stefánsson, Inga Sara Benedikts- dóttir, Heiða Anita Hallsdóttir og aftast er Stefán Bjarnason. Morgunblaðið/Árni Sæberg Útför Jónínu Benediktsdóttur Karlmaður hlaut eins árs skilorðs- bundinn fangelsisdóm í Héraðs- dómi Reykjavíkur í síðasta mánuði fyrir vörslu á kvikmyndum og ljós- myndum sem sýndu börn á kyn- ferðislegan eða klámfenginn hátt auk fíkniefnalagabrots. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa aflað sér og haft í vörslum sínum 4.370 kvik- myndir og 9.236 ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Auk þess var maðurinn ákærður fyrir vörslu marijúana. Maðurinn játaði brot sín en hann hefur ekki áður gerst sek- ur um refsivert brot. Fram kemur að maðurinn hafi sótt tíma hjá sál- fræðingum og félagsráðgjafa og að endurhæfing gangi vel. Maðurinn hafi verið samstarfsfús og sýnt vilja til að bæta sig en um stórfellt brot sé að ræða. Því þyki eins árs skil- orðsbundið fangelsi hæfileg refs- ing. Dæmdur fyrir vörslu barnaníðsefnis

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.