Morgunblaðið - 05.01.2021, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2021
VIÐ LEITUM AÐ
LISTAVERKUM
Áhugasamir geta haft samband í
síma 551-0400
ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ
Skömmu fyrir áramót skrifaðiSigurður Már Jónsson blaða-
maður pistil á mbl.is undir fyrir-
sögninni Jafnlaunavottun leiðir til
aukins skrifræðis. Þar fjallaði hann
um niðurstöðu nýrr-
ar rannsóknar þar
sem skyggnst var
inn í upplifun
stjórnenda á áhrif-
um jafnlauna-
vottunar á kjara-
umhverfi. Hann
sagði engin gögn til
staðar sem sýndu
fram á að lögfesting jafnlauna-
vottunar bæri þann árangur sem
henni væri ætlað að ná. „Við úr-
vinnslu gagna á upplifun stjórn-
enda birtust þrjú þemu í tengslum
við jafnlaunavottun en þau eru
„aukið skrifræði og kerfisvæðing“,
„tilfærsla ákvörðunarvalds“ og
„tálsýn“. Niðurstöðurnar hljóta að
fá menn til að íhuga hvort þetta sé
rétt stefna,“ segir Sigurður Már.
Hann sagði einnig frá því aðjafnlaunavottunin væri stund-
um nýtt til að koma í veg fyrir að
fólk gæti samið um launahækkun.
Stjórnendur vísuðu í vottunina og
segðust vegna hennar ekki geta
samið um hærri laun við starfs-
manninn.
Sigurður Már benti á að með þvíað beita vottuninni á þennan
hátt, sem ekki er ólíklegt að gert
verði í æ ríkari mæli, væri verið að
„stuðla að því að fletja út launa-
mun, þeir sem skara framúr fá
þannig ekki umbun“.
Þetta eru slæmar fréttir fyrirlaunamenn sem standa sig vel
og gætu átt kost á launahækkun
vegna dugnaðarins en lenda á þess-
um vottunarvegg. Og þetta er ekki
síst slæmt þegar litlar líkur eru á að
þessi vottun skili þeim árangri sem
hún á að gera.
Sigurður Már
Jónsson
Mislukkuð
jafnlaunavottun
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Hugbúnaðarfyrirtækið Prógramm ehf. hefur ver-
ið valið til að hanna svokallaða þingmannagátt fyr-
ir Alþingi. Þingmannagátt er hluti af þróun staf-
rænnar þjónustu fyrir þingmenn þar sem öll gögn
sem tengjast þingstörfum þeirra eru á einum stað.
Alþingi samþykkti í fyrra sérstakt tímabundið
fjárfestingarátak til að vinna gegn samdrætti í
hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
Þar var m.a. tilgreind þingmannagáttin og átti að
verja 65 milljónum króna til verkefnisins.
Verkið var boðið út og tilboð opnuð í nóvember
sl. Tilboð bárust frá Advania, Deloitte ehf., Origo,
Parallel Ráðgjöf ehf. og Prógrammi ehf.
Ríkiskaup tilkynntu í lok síðasta árs að tilboð
Prógramms hefði verið endanlega samþykkt og
því kominn á bindandi samningur milli aðila.
Prógramm ehf. er til húsa í Urðarhvarfi 6 í
Kópavogi og hefur fyrirtækið sérhæft sig í hug-
búnaðargerð. Starfsmenn eru 24 talsins. Á heima-
síðu fyrirtækisins kemur fram að skrifstofa Al-
þingis hafi nýlega tekið í notkun tvö ný kerfi sem
Prógramm forritaði.
Um er að ræða endurskrift á málakerfi þingsins
þar sem haldið er utan um skráningar á flestum
málum er tengjast þingfundum. Einnig var kerfið
Stýra endurskrifað en það er notað m.a. til að
stýra þingfundum, ræðuskráningum, tímaúthlut-
unum og atkvæðagreiðslum. sisi@mbl.is
Hanna gátt fyrir þingmennina
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Öll gögn þingmanna verða í einni gátt.
David B. Tencer, biskup kaþólsku
kirkjunnar á Íslandi, hefur aflýst öll-
um opinberum sunnudagsmessum og
svonefndum vigilmessum á laugar-
dagskvöldum. Starfsfólk kirkjunnar
hefur verið beðið um að fylgja öllum
sóttvarnareglum við messur á virkum
dögum. Þetta kemur fram í yfirlýs-
ingu sem hann sendi frá sér í gær.
Of margir voru saman komnir við
messu í Landakotskirkju á sunnudag
en þetta var í annað skiptið á stuttum
tíma sem það gerðist.
„Ég lýsi yfir að þrátt fyrir góðan
vilja getum við ekki fylgt öllum gild-
andi sóttvarnareglum í sambandi við
messuhald í kirkjum okkar. Með
harm í hjarta hef ég tekið þá ákvörð-
un að aflýsa öllum opinberum sunnu-
dagsmessum og vigilmessum á laug-
ardagskvöldum. Ákvörðunin tekur
þegar gildi.
Ég bið allt starfsfólk í kirkjum okk-
ar að fara mjög varlega og fylgja öll-
um reglum í messum á virkum dögum
líka.
Á sama tíma bið ég alla sem bera
ábyrgð á sóttvarnareglum að breyta
þeim reglum þar sem jafnræðis virð-
ist ekki gætt. Kirkjur okkar eru ekki
litlar. Ef hægt er að halda jarðarför
eða jafnvel tónleika með 50 per-
sónum, hvernig stendur þá á því að
aðeins tíu manns geta verið í messu?
Hvernig á ég að útskýra það fyrir
sóknarbörnum okkar að margir mat-
sölustaðir mega taka á móti fleiri við-
skiptavinum?
Hvernig á að útskýra það að í
Landakotskirkju mega bara vera tíu
persónur en til dæmis mega vera
fleiri en tíu í gufubaði? Okkur finnst
öllum erfitt að lifa við þessar aðstæð-
ur en slíkar ákvarðanir gera það enn
erfiðara.
Ég bið fyrir öllum en sérstaklega
þeim sem ráða þessum reglum að
íhuga málin með visku og leiðrétta
þetta óþægilega misræmi,“ segir í yf-
irlýsingu sem Tencer sendi til fjöl-
miðla í gær.
Kirkja kaþólskra
aflýsir messum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Biskup Davíð Tencer hjá kaþólsku
kirkjunni er ósáttur við reglurnar.
Biskup ósáttur við sóttvarnareglur