Morgunblaðið - 05.01.2021, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2021
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Bresk stjórnvöld hófu í gær bólu-
setningar með bóluefni Oxford-há-
skóla og lyfjafyrirtækisins Astra-
Zeneca, en stefnt er að því að um
530.000 Bretar verði bólusettir gegn
kórónuveirunni í þessari lotu, en nú
þegar hafa um 1,4 milljónir fengið
bóluefni í Bretlandi.
Kórónuveirufaraldurinn er nú í
mikilli sókn í Bretlandi og ákvað
skoska heimastjórnin í gær að setja
útgöngubann á þær fimm milljónir
sem búa í Skotlandi, sem á að vara til
loka janúarmánaðar. Þurfa Skotar
frá og með deginum í dag að dvelja
heima við nema þeir eigi brýnt erindi
út fyrir hússins dyr. Boris Johnson,
forsætisráðherra Bretlands, til-
kynnti svo síðar um kvöldið um út-
göngubann á Englendinga, en að-
gerðirnar voru sagðar nauðsynlegar
til að varna frekari útbreiðslu.
Von fyrir fátækari ríki?
Heilbrigðisyfirvöld í Argentínu og
á Indlandi hafa einnig veitt bóluefni
Oxford/AstraZeneca leyfi, en það er
þróað eftir hefðbundnari leiðum en
mRNA-bóluefnin sem Pfizer/BioN-
Tech og Moderna hafa framleitt. Það
er því bæði ódýrara í framleiðslu og
auðveldara að flytja og geyma held-
ur en hin bóluefnin, og hafa því verið
bundnar vonir við að fátækari ríki
jarðar muni eiga auðveldara með að
nýta sér bóluefnið.
Evrópska lyfjastofnunin hefur
hins vegar lýst því yfir að ólíklegt sé
að hún muni veita breska bóluefninu
leyfi í þessum mánuði, en gert var
ráð fyrir að stofnunin myndi veita
bóluefni Moderna grænt ljós í vik-
unni.
Stofnunin hefur orðið fyrir gagn-
rýni að undanförnu, þar sem aðild-
arríki Evrópusambandsins hafa
kvartað undan seinagangi við bólu-
setningar innan sambandsins.
Þannig hafa stjórnvöld í Bret-
landi, Bandaríkjunum og Ísrael
hvert um sig náð að bólusetja rúm-
lega milljón manns, á sama tíma og
þýsk stjórnvöld hafa bólusett um
200.000 manns.
Reiði í Frakklandi
Þá hafa frönsk stjórnvöld fengið á
sig harða gagnrýni vegna hæga-
gangs í bólusetningarmálum, en
rúmlega 500 Frakkar höfðu fengið
bóluefni á nýársdag. Jean Rottner,
forseti héraðsþings Grand Est-hér-
aðs, sagði að hin hæga dreifing bólu-
efnis væri hneykslismál, en héraðið
hefur glímt við mikla fjölgun ný-
smita síðustu daga.
„Frakkar þurfa skýr og örugg
skilaboð frá ríkisstjórn sem veit
hvert hún stefnir. Ríkisstjórnin gef-
ur ekki þá mynd sem stendur,“ sagði
Rottner, en heimildir AFP-frétta-
stofunnar hermdu að Emmanuel
Macron Frakklandsforseti væri
verulega ósáttur við hversu illa hefði
gengið að dreifa bóluefninu.
Jordan Bardella, varaformaður
pópúlistaflokksins Þjóðfylkingarinn-
ar, sagði Frakka hafa orðið að að-
hlátursefni heimsbyggðarinnar. „Við
bólusettum á einni viku jafnmarga
og Þjóðverjarnir gerðu á hálftíma.
Þetta er skammarlegt.“
Dánartölur ekki ýktar
Anthony Fauci, yfirmaður
kórónuveiruteymis Hvíta hússins,
þvertók fyrir það í fyrrinótt að dán-
artölur í landinu hefðu verið blásnar
upp eða ýktar, en Donald Trump
Bandaríkjaforseti gaf til kynna að
bandaríska sóttvarnarstofnunin
CDC hefði ýkt tölurnar. „Þetta eru
raunverulegar tölur, raunverulegt
fólk og raunveruleg dauðsföll,“ sagði
Fauci, en rúmlega 351.000 manns
hafa nú látist í Bandaríkjunum af
völdum kórónuveirunnar.
Búið er að bólusetja um 4,2 millj-
ónir manna í Bandaríkjunum, en það
er nokkuð undir áætlunum stjórn-
valda. Sagði Fauci það eðlilegt að
byrjunarörðugleikar kæmu upp, þar
sem um flókið ferli væri að ræða.
Staða bólusetninga við Covid-19
Fjöldi bólusetninga á hverja 100 íbúa 0 til 1 1 til 2 2 til 4 4 til 8 8 til 16
Heimild: Our World in Data
Ísland 1,43
Bretland 1,39
Danmörk 0,70
Rússland 0,55
Þýskaland 0,29
Portúgal 0,26
Eistland 0,19
Ítalía 0,19
Króatía 0,19
Lúxemborg 0,19
Pólland 0,13
Litháen 0,08
Austurríki 0,07
Búlgaría 0,07
Rúmenía 0,07
Ungverjaland 0,05
Írland 0,04
Finnland 0,03
Grikkland 0,03
Lettland 0,03
Frakkland 0,00
Ísrael 12,59
Barein 3,57
Kína 0,31
Óman 0,14
Kúveit 0,06
Bandaríkin 1,28
Kanada 0,30
Kosta Ríka 0,05
Mexíkó 0,02
Argentína 0,07
Síle 0,05
EVRÓPA
MIÐ-AUSTURLÖND OG ASÍAS-AMERÍKA
N-AMERÍKA
Bretar herða á aðgerðum
Skotar setja á útgöngubann til loka janúar Byrjað að bólusetja með bóluefni
Oxford og AstraZeneca Hæg dreifing bóluefnis í Frakklandi gagnrýnd harðlega
Mikil umræða spannst í Washington
í gær eftir að bandarískir fjölmiðlar
birtu upptöku af símtali Donalds
Trump Bandaríkjaforseta við Brad
Raffensperger, innanríkisráðherra
Georgíu-ríkis, en á upptökunni mátti
heyra forsetann biðja Raffensperger
um að „finna“ nógu mörg atkvæði
handa sér til þess að snúa niðurstöðu
forsetakosninganna í ríkinu sér í vil.
Washington Post birti upptökuna í
heild sinni í fyrrinótt, og töldu þeir
lögspekingar sem blaðið ráðfærði sig
við að beiðni forsetans gæti varðað
við kosningalög, sér í lagi þar sem
Trump gaf einnig til kynna að Raf-
fensperger og lögmaður hans, Ryan
Germany, gætu átt yfir höfði sér
fangelsisvist ef þeir „leiðréttu“ ekki
úrslit kosninganna.
Birting upptökunnar þykir koma á
vondum tíma fyrir repúblikana, en
kosið verður í dag um tvö þingsæti í
öldungadeild Bandaríkjaþings í
Georgíu-ríki, en þau eru nú bæði í
höndum Repúblikanaflokksins.
Vinni demókratar þau bæði verða
flokkarnir með jafnan fjölda þing-
manna í deildinni og þá ræður odda-
atkvæði varaforsetans úrslitum.
Á miðvikudaginn verða svo niður-
stöður kjörmannasamkundunnar,
sem lágu fyrir 14. desember síðast-
liðinn, lesnar upp á Bandaríkjaþingi
og staðfestar. Venjulega væri um
táknrænan gjörning að ræða, en bar-
átta Trumps við að snúa við úrslitum
kosninganna hefur hins vegar orðið
til þess að nokkur fjöldi þingmanna
repúblikana, þar af tólf í öldunga-
deildinni, ætlar sér að gera athuga-
semd við úrslitin.
Áform þingmannanna hafa leitt til
innanflokksátaka í Repúblikana-
flokknum, þar sem ýmsir öldunga-
deildarþingmenn flokksins hafa þeg-
ar viðurkennt sigur Joes Biden,
verðandi forseta, og segja þeir að-
gerðirnar einungis fallnar til þess að
vega að lýðræðislegum hefðum
Bandaríkjanna.
Vildi „finna“
fleiri atkvæði
Spennuþrungin vika í Washington
AFP
Þing Nýkjörnir þingmenn repúblik-
ana standa á tröppum þinghússins.
Leitarmenn í Noregi sögðu í gær að
þeir vonuðust enn til þess að hægt
væri að finna fólk á lífi í bænum Ask,
og var stefnt að því að leit yrði hald-
ið áfram fram á nótt. Þriggja er enn
saknað eftir jarðfall 30. desember
síðastliðinn þegar jarðvegur gaf sig
undan þunga nokkurra íbúðarhúsa.
Morten Thoresen, yfirmaður
slökkviliðsins á staðnum, sagði að
fólk gæti lifað í mjög langan tíma ef
það væri undir byggingu sem hefði
hrunið, svo fremi sem það hefði
nægt loft og aðgang að vökva, auk
einangrunar frá kulda. Hins vegar
væru aðstæður erfiðar, en tíu stiga
frost er nú í Ask.
NOREGUR
AFP
Leitarstarf Björgunarmenn halda enn í
vonina um að finna fólk á lífi í Ask.
Vonast enn til að
finna fólk á lífi
Breskur dómstóll
komst að þeirri
niðurstöðu í gær
að ekki væri
heimilt að fram-
selja Julian Ass-
ange, stofnanda
Wikileaks, til
Bandaríkjanna,
þar sem hans
bíða réttarhöld
vegna meintra
njósna. Hafnaði Vanessa Bareitser,
héraðsdómari í Lundúnaborg,
beiðninni á þeirri forsendu að lík-
legt væri að Assange myndi fremja
sjálfsvíg í bandarískri refsivist, og
vísaði meðal annars í mál Jeffreys
Epstein máli sínu til stuðnings.
Bandarísk stjórnvöld lýstu því yf-
ir að þau myndu áfrýja málinu, og
lýsti bandaríska dómsmálaráðu-
neytið í yfirlýsingu sinni miklum
vonbrigðum með niðurstöðuna.
BRETLAND
Hafnaði beiðni um
framsal Assange
Julian
Assange