Morgunblaðið - 05.01.2021, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 05.01.2021, Qupperneq 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2021 ✝ Rakel Guð-mundsdóttir fæddist 8. mars 1930 í Eyðisandvík í Sandvíkurhreppi. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urlands 29. desem- ber 2020. Foreldrar henn- ar voru hjónin Guðmundur Sæ- mundsson, f. 14.2. 1891 í Nikulásarhúsum í Fljóts- hlíð, d. 15.3. 1966, og Guðbjörg Sveinsdóttir, f. 12.9. 1889 á Grjótá í Fljótshlíð, d. 21.3. 1937. Rakel missti ung móður sína en faðir hennar kvæntist aftur. Seinni kona hans var Margrét Garðari Þorsteinssyni, f. 16. ágúst 1918, d. 25. janúar 1991. Foreldrar hans voru Þorsteinn Þorvaldsson, f. 28.8. 1880, d. 19.7. 1964, og Anna Vigfúsína Þorvaldsdóttir, f. 11.7. 1885, d. 12.12. 1948. Börn Rakelar og Garðars eru: Anna, Guðmundur, Þor- valdur Þór og Vilhjálmur Þor- steinn. Anna er gift Eyvindi Sigurfinnssyni og eiga þau þrjú börn og fimm barnabörn; Guð- mundur er giftur Guðlaugu Pál- ínu Sigurbjörnsdóttur, fyrri kona hans er Ingibjörg Georgs- dóttir og eiga þau þrjú börn og sex barnabörn; Þorvaldur Þór er giftur Guðbjörgu Maríu Kristjánsdóttur og eiga þau þrjú börn og tíu barnabörn; Vil- hjálmur Þorsteinn er giftur Hafdísi Sigurðardóttur og eiga þau tvö börn og tvö barnabörn. Útför Rakelar fer fram frá Þorlákskirkju í dag, 5. janúar 2021, klukkan 13. Kristjánsdóttir frá Hnífsdal. Systkini Rakel- ar: Sæmundur, f. 1914, d. 1985, Þóra, f. 1916, d. 1988, Trausti, f. 1919, d. 2002, Fjóla, f. 1920, d. 2000, Víglundur, f. 1922 d. 2010, Gunnar Níels, f. 1924, d. 2010, Sól- veig, f. 1927, d. 1974, Teitur, f. 1931, d. 2016, Ásta, f. 1934, d. 2013, Guðbjörg, f. 1942, Anna Hlín, f. 1944, d. 2011, Kristín Guðmunda, f. 1946, og Olga, f. 1953. Árið 1948 giftist Rakel Hinn 29. desember síðastliðinn lést elskuleg móðir mín Rakel Guðmundsdóttir á sjúkrahúsinu á Selfossi. Þótt heilsunni hafi hrakað hjá henni síðustu vikurnar var höggið þungt þegar Villi bróðir minn hringdi í mig um morguninn og færði mér tíðindin. Mamma var yndisleg mann- eskja og móðir og ég get ekki hugsað yfir farinn veg án þess að tár læðist niður vangann, ég man fyrst eftir mér sem barn á Orms- stöðum í Grímsnesi þar sem mamma og pabbi bjuggu okkur systkinum svo gott heimili við erfiðar aðstæður, barnabörnin mín eiga erfitt með að trúa því en þá var ekkert net, engin tölva, enginn gemsi, ekkert sjónvarp, ekkert rafmagn, enginn bíll, ekk- ert klósett, bara útikamar, og húsið okkar var að hluta til hlaðið úr torfi og grjóti. En húsið var fullt af kærleik og ást og mamma og pabbi byggðu jörðina upp af miklum dugnaði. Árið 1971 fluttum við til Þor- lákshafnar og mamma fór að vinna í frystihúsinu, þar kynntist hún ungri stúlku sem hún vann með í fiskinum. Einn daginn sát- um við í eldhúsinu á Heinabergi 6 og þá fór hún að segja mér frá þessari stelpu sem henni fannst svo yndisleg og hún sagði að hana hefði dreymt að hún yrði konan mín, en mamma var berdreymin. Ég, 17 ára unglingurinn, skellihló að vitleysunni í „kerlingunni“ og svo var það ekki rætt meira. Nokkru síðar kynntist ég stelpu á balli og ástin kviknaði, við vorum búin að vera saman talsverðan tíma þegar ég kom heim með kærustuna eins og gengur, þá kom í ljós að þær þekktust og þetta var stelpan sem hana hafði dreymt! Þessi stelpa var sem sé hún Gugga mín sem ég hef verið giftur í 45 ár. Gugga missti móður sína barn að aldri og missti líka föður sinn fljótlega eftir að við kynntumst. Mamma og Gugga urðu strax miklar vinkonur þótt aldursmun- urinn væri mikill og það má segja að mamma hafi gengið henni í móðurstað og var henni sem móð- ir á fyrstu búskaparárum okkar og reyndar alla tíð síðan. Þegar fór að halla undan fæti hjá gömlu konunni og ellin kvaddi dyra stóð Gugga eins og klettur við hlið mömmu og studdi hana af öllum mætti til að geta haldið eig- ið heimili, svo sannarlega endur- galt hún allan kærleikann sem mamma hafði gefið henni. Ef Gugga þurfti að bregða sér af bæ fór ég stundum til mömmu til að fara í búðina fyrir hana og þess háttar, en þá átti sú gamla til að snúa aðeins upp á sig og sagði: „Hún Gugga gerir þetta bara þegar hún kemur,“ og svo lét hún sig bara hafa það að vera mat- arlaus í einn eða tvo daga. Samband þeirra mömmu og Guggu var svo fallegt dæmi um þessa hreinu vináttu og kærleika sem endist allt til æviloka. Mamma bjó síðustu 20 árin eða svo á Egilsbraut 9 í Þorlákshöfn þar sem hún naut aðstoðar og umönnunar þess yndislega fólks sem þar hefur starfað og ég færi öllu því fólki mínar bestu þakkir, þið eruð yndisleg. Pabbi lést hinn 25. janúar 1991, fyrir réttum 30 árum, og eftir það fetaði mamma ein lífsins veg af dugnaði og þrautseigju og bjó alla tíð í sinni eigin íbúð. Við hjónin kveðjum mömmu með trega og tárum og þökkum henni alla þessa ást og hlýju sem hún gaf okkur og börnunum okk- ar og barnabörnum, kannski sjáumst við síðar, hver veit. Þorvaldur Þór Garðarsson. Elsku amma, það er erfitt að hugsa til þess að þú sért farin frá okkur. Þegar ég var barn þá stakk ég reglulega af til þín með tösku á bakinu og ætlaði að flytja til þín ef ég var eitthvað ósátt við mömmu og pabba. Ég man eftir mörgum skiptum sem ég kom við hjá þér heim úr skólanum og við lögðumst hvor í sinn sófann inni í stofu og spjöll- uðum saman. Danmerkurferðin sem við fjöl- skyldan fórum í þegar ég var sex ára var mikið ævintýri og öll ferðalögin sem við fórum í eru svo skemmtilegar minningar núna. Þú varst alveg með húmorinn í lagi, ekki löngu eftir að ég og Siggi kynntumst gafstu honum kýl, og rifjar hann það reglulega upp með bros á vör. Jón Valur tengdist þér mjög mikið og ein áramótin uppi í sum- arbústað hjá mömmu og pabba fór hann ekki út til að sjá flugeld- ana, hann vildi vera inni að passa langömmu sína, og þykir honum ofurvænt um bangsann og stytt- una sem þú gafst honum. Þú fékkst að lifa löngu og góðu lífi, vantaði ekki marga daga upp í 91 árs afmælið. Ég veit að þú varst orðin sátt með þitt og tilbúin að fara, hvíldu í friði elsku amma. Kveðja, Jónína Guðrún. Elsku amma. Það er skrýtið að vera að kveðja þig en á sama tíma veit ég að þú varst sátt með þitt og tilbúin að kveðja þennan heim. Samverustundirnar á Heinaberg- inu eru mér ofarlega í minni og er ég afar þakklát fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum sam- an. Takk fyrir allar sundferðirn- ar, sögurnar og sönginn í gegn um tíðina og minna Guttavísur mig alltaf á þig. Í seinni tíð var ljúft að koma til þín á Egilsbraut- ina og fannst Kolbrúnu og Tóm- asi alltaf gott að koma í heimsókn til þín og fengu þau alltaf að kíkja í nammiskálina góðu. Það var alltaf stutt í hláturinn og gleðina og varst þú mikill húm- oristi alveg fram á síðustu stund. Þú stóðst alltaf föst á þínu og er ég nokkuð viss um að ég hafi fengið þrjóskuna frá þér í skírn- argjöf. Ég hlæ ennþá að því þeg- ar þú áttir að fara í sjónpróf á gamals aldri til að athuga hvort þú gætir ennþá keyrt. Þú ætlaðir aldeilis ekki að láta eitthvert sjónpróf stoppa þig svo þú pant- aðir þér sjónprófsspjald hjá Blindrafélaginu og lærðir það ut- an bókar og að sjálfsögðu stóðstu sjónprófið. Þú hættir nú að keyra á þessum tíma en þú vildir að það yrði þín ákvörðun. Þar sem ég er alnafna þín hef- ur nú stundum skapast ruglingur á okkur þrátt fyrir stórt aldurs- bil. Eitt skipti er mér ofarlega í minni en það er þegar ég fór til tannlæknis frekar ung að aldri og tannlæknirinn var að fara yfir gamlar tannlæknaskýrslur, verð- ur frekar skrýtinn í framan og horfir á mig og svo á mömmu og segir síðan: „Af hverju í ósköp- unum er barnið með falskar tenn- ur?“ Takk fyrir allt elsku amma. Við munum sakna þín mikið en hugg- um okkur við yndislegar minn- ingar. Þín Rakel Guðmundsdóttir. Elsku amma mín, þá er komið að þér. Þú sagðir alltaf undanfar- in ár, ef einhver fór: „Ekki vildu þeir mig núna.“ Þú fékkst langt og gott líf. Þú sagðist ætla að ná að halda gott partí á 90 ára af- mælinu þínu og þá færir þú sko sátt inn í blómalandið. Það tókst svo sannarlega og héldum við upp á þennan merkisáfanga með þér síðastliðinn júní. Það var alltaf gott að koma til þín og ég man alltaf eftir því hversu mikil spenna það var á laugardögum þegar við vorum börn, því þá fengum við barnabörnin alltaf 50 krónur – gullkrabbapening, sem okkur fannst svo mikill peningur. Þetta var sko æðislegt. Svo strunsaði allur skarinn í sjoppuna og keypti sér húbbabúbba-tyggjó og bland í poka fyrir afganginn. Svo var það sko best í heimi að fara í heitt bað hjá ömmu eftir að hafa verið úti að leika og kannski rennandi blautur, ískaldur og of langt að labba heim, að manni fannst. En þá tók amma sko fagn- andi á móti manni með sínum mjúka og hlýja faðmi. Ég fer yfir farinn veg og margt rifjast upp, alls konar minningar sem ég er svo þakklát fyrir að eiga og mun varðveita vel, elsku amma mín. Þú varst mjög heima- kær en þér þótti samt svo gaman þegar ég dró þig með mér í bíltúr á Selfoss og Hveragerði til að kaupa okkur föt og fá okkur eitt- hvað gott í gogginn. En á seinni árum fækkaði þeim ferðum mikið því að fætur þínir voru farnir að gefa sig og þú áttir orðið svo erf- itt með gang. Þú varst mikill húmoristi og blótaðir ansi oft. Ég hafði svo gaman af þessum húm- or þínum og hlógum við svo oft saman að hinu og þessu, því við vorum mjög líkar að þessu leyti. Mér þykir afskaplega vænt um síðustu ferðina okkar sem við fór- um í saman. Þá héldum við saman upp á það að afi hefði orðið 100 ára. Við fórum svo að leiðinu hjá afa og út að borða. Æ elsku amma mín, þrátt fyrir háan aldur þinn er svo erfitt að kveðja þig, en ég veit að þetta var það sem þú varst farin að þrá og það huggar brotið hjartað mitt. Ég vona að afi hafi tekið vel á móti þér og ég trúi því að núna hlaupir þú frjáls, án göngugrind- arinnar, og sért kvalalaus. Þín verður sko sárt saknað, elsku amma mín. Takk fyrir allt, góða ferð og sjáumst aftur seinna. Farinn ert á friðarströnd frjáls af lífsins þrautum. Styrkir Drottins helga hönd hal á ljóssins brautum. Englar allir lýsi leið lúnum ferðalangi. Hefst nú eilíft æviskeið ofar sólargangi. (Jóna Rúna Kvaran) Innilegar kveðjur frá Sigga, Elísabetu og Anítu. Þín Svanhildur. Mig langar að minnast Rakel- ar, elskulegrar tengdamóður minnar, með nokkrum orðum. Hún var mikil sveitastelpa. Hún sagði mér oft frá því þegar hún var barn hvað hún naut þess að búa í sveitinni en hún var fædd og alin upp fyrstu árin í Eyði- Sandvík í hinum gamla Sandvík- urhreppi. Rakel missti ung móð- ur sína en pabbi hennar giftist aftur Margréti Kristjánsdóttur sem gekk henni í móðurstað. Eft- ir að hún fluttist með pabba sín- um og stjúpu til Reykjavíkur fór hún um leið og skóla lauk á vorin út á land sem kaupakona eitthvað í sveit. Eitt sumarið fór hún sem kaupakona að Mosfelli í Gríms- nesi og þar kynnist hún verðandi eiginmanni sínum, Garðari Þor- steinssyni, og þau giftust árið 1948 eftir að lýst hafði verið með þeim að fornum sið. Vorið 1948 fluttust þau að Setbergi í Hafn- arfirði og voru þar í kaupa- mennsku yfir sumarið. Haustið 1948 fluttu þau á Korpúlfsstaði og bjuggu þar í 10 ár. Árið 1958 keyptu þau Ormsstaði í Gríms- nesi í félagsbúi við Gunnlaug bróður Garðars og Ester konu hans og bjuggu hjónin saman þar til ársins 1962 þegar Gunnlaugur og Ester fluttu. Rakel og Garðar bjuggu á Ormsstöðum til 1971 en þá fluttust þau til Þorlákshafnar. Það þurfti meira að hafa fyrir lífinu í þá daga. Rakel fór t.a.m. í vinnu með elstu börnin þrjú til bróður síns, Gunnars Níels, sem átti og rak hótelið Fornahvamm í Borgarfirði. Þau Garðar fóru þó nokkrar ferðir utan og höfðu mjög gaman af að ferðast. Rakel hélt áfram að skreppa í utanlandsreisur á með- an heilsan leyfði. Margar minningar fljúga í gegnum hugann, sérstaklega minnisstæð er ferð í Silla og Valda-bústaðinn í Grímsnesinu með fjölskyldunni, draugasög- urnar, fjörið, veiðin. Fjölskylduútilegurnar á sumr- in. Dagsferðirnar með nesti eitt- hvað út í náttúruna, alltaf var fjöl- skyldan með. Besta berjalandið var á ákveðnum stað í Grímsnes- inu og ég fer ennþá þangað í berjamó. Hvíl í friði mín kæra tengda- mamma. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Hafdís. Rakel Guðmundsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, VILHELMÍNA ÞORVALDSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Eir/Eirarholti 19. desember. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 7. janúar klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Eirarholts fyrir frábæra umönnun. Streymi frá athöfn er á https://youtu.be/TAdQYrHJm7w Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Skjólið á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar eða bergid.is/styrkir Elísabet Vernharðsdóttir Hans Erlandsson Sunna Hansdóttir Joakim Ojanen Kristján Erlandsson Sólveig Hansdóttir Sigríður S. Vernharðsdóttir Vernharður Reinhardsson Tinna Björk Hilmarsdóttir Elísabet S. Reinharðsdóttir Tómas Helgi Stefánsson Kær bróðir og mágur, VALUR GUÐMUNDSSON, lést á Fellsenda, Dalasýslu, þriðjudaginn 29. desember. Örn Guðmundsson Hulda Guðmundsdóttir Sólveig Guðmundsdóttir Sævar Guðmundsson Elín Ólafsdóttir og aðrir aðstandendur Okkar ástkæri SVERRIR GUNNARSSON skipasmíðameistari, Herjólfsgötu 38, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn 1. janúar. Kristrún Stefánsdóttir Inga María Sverrisdóttir Guðfinnur Einarsson Svanhildur Kr. Sverrisdóttir Bjarni Bjarnason Marteinn Sverrisson Margrét Halldórsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur Elsku eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA GUÐLAUG ÞORSTEINSDÓTTIR frá Reykholti, Fáskrúðsfirði, til heimilis að Frostafold 14, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu fimmtudaginn 31. desember. Útförin verður auglýst síðar. Ólafur Kristinsson Kristinn Ólafsson Cecilie B. Björgvinsdóttir Þorsteinn Ólafsson Lise M. Kaspersen Aðalbjörg Íris Ólafsdóttir Eiríkur Ingvarsson Brynjar Ólafsson Melanie Davíðsdóttir Örvar Omrí Ólafsson Kolbrún Kjartansdóttir Ástkær faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, HELGI ÓLAFSSON, lést á gjörgæsludeild Landspítalans eftir erfiða baráttu við Covid-19 mánudaginn 28. desember, umvafinn sínum nánustu. Útförin fer fram í Garðakirkju föstudaginn 8. janúar klukkan 15. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða eingöngu nánustu aðstandendur viðstaddir. Streymi frá athöfn verður á https://www.facebook.com/groups/424218875595333/ Heiðbjört J. Helgadóttir Willem van Beek Gunnar Örn Helgason Rannveig Hrönn Brink Guðrún Ólafsdóttir Elsa Ólafsdóttir Jóhanna Ólafsdóttir Hulda Ólafsdóttir Ólafía Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.