Morgunblaðið - 05.01.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 05.01.2021, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2021 ✝ Friðrik Haf-steinn Guð- jónsson fæddist í Reykjavík 8. febr- úar 1927. Hann andaðist á hjúkr- unarheimili Hrafn- istu við Sléttuveg 20. desember 2020. Foreldrar hans voru Guðjón Guð- mundsson frá Arn- kötludal í Kirkju- bólshreppi, f. 11. maí 1873, d. 13. júní 1951, verkstjóri hjá Reykjavíkurbæ, og Sigríður Hákonía Bjarnadóttir frá Reykhólum í Reykhólasveit, f. 26. júní 1888, d. 27. ágúst 1953. Þau eignuðust sex börn; Bjarndísi er lést í æsku, Jó- hönnu Sigríði, Sigurdísi, Þor- björgu, Jóhönnu Kristínu og Friðrik Hafstein. Börn Guðjóns frá fyrra hjónabandi voru Hall- dóra, Haflína og Guðmundur. Hafsteinn kvæntist 16. júlí 1949 Halldóru Ólöfu Jens- ur Guðríðar er Óskar Daði Pét- ursson, f. 24. desember 1975. Hafsteinn kvæntist 9. febr- úar 1974 Guðmundu Sig- urveigu Kristjánsdóttur, f. 12. mars 1930, d. 7. júní 1974. Hinn 5. desember 1975 gekk Hafsteinn síðan í hjónaband með Ingibjörgu Jónu Jóns- dóttur, f. í Reykjavík 5. desem- ber 1927, d. 20. nóvember 1999. Sambýliskona Hafsteins er Guðbjörg Sigríður Kristjóns- dóttir. Hafsteinn ólst upp á Lauga- veginum í Reykjavík. Hann fór ungur að vinna eins og tíðk- aðist þá um krakka en hóf síð- an nám í skipasmíði og vél- virkjun og lauk meistaraprófi í þeim iðngreinum. Hafsteinn vann í Vélsmiðju Jens Árnason- ar við Spítalastíg 6 hjá tengda- föður sínum og tók seinna við rekstri smiðjunnar. Þegar verkefnum fjölgaði byggði Haf- steinn nýja vélsmiðju í Súðar- vogi 14 og Dugguvogi 1b. Rekstur vélsmiðjunnar varð ævistarf hans. Útför Hafsteins fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 5. janúar 2021, klukkan 11. Vegna að- stæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. dóttur, f. á Pat- reksfirði 3. sept- ember 1929, d. 19. apríl 1979, þau skildu. Börn þeirra: 1) Sjöfn, f. 3. júní 1949, maki Ólafur Snorri Sig- urðsson, f. 26. nóv- ember 1947. Dóttir þeirra er Sigrún, f. 24. desember 1977, maki Ólafur Fáfnir Sigurgeirsson, f. 2. apríl 1972, þau skildu. Börn þeirra: Snorri Már, f. 27. október 2006, og Brynja Sjöfn, f. 11. október 2011. 2) Jens Gunnar, f. 26. október 1950, d. 26. apríl 2000. Maki Guðríður Óskarsdóttir, f. 25. febrúar 1948. Dóttir þeirra er Hafdís Björk, f. 27. mars 1982. Sambýlismaður hennar er Ívar Freyr Hafsteinsson, f. 7. maí 1985. Börn þeirra eru Gunnar Daði, f. 9. mars 2018, og Vigdís Edda, f. 19. júní 2020. Fóstursonur Jens og son- Mig langar að minnast tengda- föður míns í nokkrum orðum. Einn af okkar fyrstu fundum var uppi í Breiðholti þegar hann var að bjástra við útidyrahurðina hjá sér, en hún hafði orðið fyrir smá skemmdum. Þetta var kannski það sem einkenndi hann, að hafa alltaf allt í lagi hjá sér og í sínu fyrirtæki. Hafsteinn var vélsmið- ur og rak fyrirtækið Jens Árna- son ehf. en fyrirtækið hafði hann keypt af fjölskyldu fyrri konu sinnar Halldóru. Hann fékk lóð undir fyrirtækið í Súðarvogi í Reykjavík og byggði tvö stór hús, annað undir smiðjuna og hitt und- ir lager og geymslu. Hafsteinn átti marga trygga viðskiptavini og naut virðingar innan sinnar starfsstéttar. Hann var harðdug- legur maður bæði í vinnu og öðru sem hann tók sér fyrir hendur og tók virkan þátt í starfi Kiwanis- hreyfingarinnar allt til dauða- dags. Hafsteinn var hjálpsamur og eigum við hjónin honum þakkir fyrir aðstoðina við að byggja hús- ið okkar, hann aðstoðaði okkur meðal annars við flísalögn og fleira. Við vorum við það að flytja inn í húsið þegar Hafsteinn heim- sótti okkur. Hann leit inn og sá að engar innihurðir voru komnar í húsið. Þá sagði hann: „Nei, þið flytjið ekki inn í húsið hurðalaust, það vil ég ekki.“ Hann tók mál af öllum hurðargötum og sagði: „Við förum og pöntum hurðir.“ Síðan kom hann og setti allar hurðirnar í með mér og þá var hægt að flytja inn. Ekki vorum við neitt mjög nán- ir vinir, en vináttan jókst mikið með árunum og áttum við margar góðar stundir inni í smiðju t.d. við að byggja stóra húsið, eins og það var kallað. Eftir að byggingar- vinnunni var lokið vildi Hafsteinn hafa snyrtilegt í kringum smiðj- una og gróðursetti aspir og steypti plan á milli húsanna. Hann rak vélsmiðjuna allt þar til hann hætti rekstri, en það var nokkuð skyndilega í kjölfar andláts Jens sonar síns. Í tómstundum sínum hafði Hafsteinn gaman af að renna fyr- ir lax, ferðast og róa til fiskjar. Margar ánægjustundir átti hann á Hrólfi sínum hér í Faxaflóanum að renna fyrir fisk og skjóta svart- fugl. Ekki var nú amalegt að fá nýja ýsu eftir róður hjá honum. Einnig hafði hann unun af því að skreppa í sólina og slappa af og fór hann ásamt Guðbjörgu sam- býliskonu sinni nokkrar sólar- landaferðir. Þegar kom að þeirri stund að hann hafði ekki þrek til að ferðast hafði hann mjög gaman af því að fara í bíltúr um bæinn og næsta nágrenni. Allir bíltúrarnir enduðu inni í smiðju en hann vildi fylgjast með öllu og spurði hvort ekki væri allt í lagi og sagði við mig að ég yrði að sjá um þetta því hann gæti það ekki lengur. Nú hefur Hafsteinn fengið hvíldina og þakka ég fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Fjölskyldu Guðbjargar og Sjafnar minnar votta ég mína dýpstu samúð. Snorri Sigurðsson. „Elskan mín, ég ætla að kveðja þig … góða nótt“. Svo hljóðuðu lokaorðin þegar ég kvaddi ást- kæran afa minn eitt kvöldið í að- draganda andláts hans. Ekki vissi ég þá að þetta yrði hinsta kveðjan en falleg var hún. Afi minn lést fá- einum dögum síðar. Afi hafði alla tíð verið mjög vinnusamur og lagði ríka áherslu á það. Honum vegnaði vel í sínum störfum og þekkti marga. Hann og pabbi voru mjög nánir enda unnu þeir saman í smiðjunni alla daga ásamt Sjöfn frænku. Árið 2000 reið mikið áfall yfir fjöl- skylduna þegar pabbi varð bráð- kvaddur, þá 49 ára gamall. Nokkrum mánuðum áður höfðum við einnig séð á eftir Ingibjörgu ömmu þannig að þetta var ein- staklega erfiður tími. Ég leitaði mikið til afa í kjölfarið, áföllin styrktu samband okkar því hann var það næsta sem ég átti sem föðurímynd. Við höfum verið náin alla tíð síðan. Ég gladdist þegar afi og Gígí hófu sambúð. Afi talaði alltaf svo fallega um hana og sagði mér margoft hversu þakklátur hann væri fyrir hana. Gígí er líka umvafin góðu fólki og hefur fjöl- skylda hennar einnig reynst afa vel og fyrir það er ég þakklát. Afi var svo hnyttinn og með svo skemmtilegan húmor. Hann hafði dillandi hlátur og sló sér oft á lær þegar hann flissaði yfir einhverju skemmtilegu. Í gamla daga stundaði hann böllin af fullum krafti og rifjaði oft upp söguna af því þegar þeir strákarnir voru fengnir til að starta böllunum í Gúttó. Það kostaði tíu krónur inn en þeir drengirnir fengu frítt enda biðu stúlkurnar í röðum eftir að vera boðið upp í dans. Afi elsk- aði að dansa og honum fannst hann ekkert geta gert ef hann gæti það ekki. Honum var oft um- hugað um tilhugalíf mitt og í nán- ast hvert sinn sem við hittumst tók hann í hönd mína og leitaði að hring, sagði svo ákveðið: „Hva, ætlarðu ekkert að fara að gifta þig?“ og flissaði svo. Þetta þótti mér alltaf jafn fyndið en hann var jú af gamla skólanum og sagði bara hlutina hreint út. Ég fann að hann var mjög sáttur þegar hann kynntist Ívari manninum mínum og sá að þarna var kominn inn í líf mitt góður maður. Mér þótti svo vænt um það þegar ég sat hjá afa núna í desember að hann sagði við mig: „Hann er svolítið líkur mér, maðurinn þinn, hann er hörku- duglegur.“ Þessi setning er mjög lýsandi fyrir afa. Þrátt fyrir að hann hafi einungis þekkt Ívar í tæp sex ár þá fannst honum strax mikið til hans koma. Það var sumarið 2015 þegar ég var að „passa“ afa eina helgina, eins og hann sjálfur sagði og hló, að ég kynnti honum Spotify. Ég tók upp símann og spurði hann hvaða lög hann vildi heyra. Fyrir valinu urðu „Þú komst í hlaðið, Í dag skein sól, Sestu hérna hjá mér ástin mín og Tondeleyó. Þetta var eftirminnileg stund og mér þykir vænt um öll þessi lög. Minningarnar eru óteljandi og það væri hægt að halda endalaust áfram en ég læt þetta gott heita. Ég er þakklát fyrir að afi hafi fengið að kynnast börnunum okk- ar, Gunnari Daða og Vigdísi Eddu. Hann spurði mikið um þau og sýndi þeim alla tíð ást og hlýju. Við eigum fagra minningu um ljúfan og góðan afa. Hvíldu í friði, elsku afi minn. Þín Hafdís Björk. Í dag langar okkur að minnast Friðriks Hafsteins Guðjónssonar eða Hafsteins eins og hann var ávallt nefndur. Það var fyrir rúmlega 20 árum sem tengdamamma og hann fóru að fóru að líta hvort annað hýru auga. Þau misstu maka sína með frekar stuttu millibili, voru bæði einmana og svo fór að þau ákváðu að stíga danssporið saman. Það má segja að það sé nokkuð rétt samlíking því bæði höfðu yndi af því að dansa. Tengdamamma var feimin eins og skólastelpa þegar hún sagði okkur að þau væru orðin par. Við fögnuðum því innilega að hún væri komin með sálufélaga því fátt er verra en að vera einmana. Við skemmtum okkur yfir þessu nýja sambandi og krakkarnir kölluðu Hafstein gæjann hennar ömmu. Gígí fór fljótlega að venja kom- ur sínar í Miðleitið og svo fór á endanum að hún flutti sig yfir til hans. Hafsteinn átti á þessum tíma lítinn bát sem hann sigldi á út Faxaflóa og veiddi fisk í soðið. Gígí var eins og hver önnur sjó- mannsfrú, beið heima og gerði svo að þegar hann kom í land. Þau áttu mjög góðar stundir Gígí og Hafsteinn og gerðu margt skemmtilegt saman. Þau fóru til Kanaríeyja á hverju ári og slöppuðu af í sólinni og brugðu sér í minigolf o.fl. Oft fóru þau á Hótel Örk og voru þar yfir helgi með eldri borgurum en hótelið bauð upp á þetta yfir vetr- artímann. Þau kunnu svo sannar- lega að njóta lífsins. Það kom að því að Hafsteinn treysti sér ekki lengur í fiskitúra og að endingu seldi hann bátinn með trega. Hann var ekki maður sem naut þess að sitja auðum höndum. Bræðurnir, synir Gígíar, voru oft að segja honum svona í samræðutón hvað þeir væru að framkvæma. Hafsteinn gekk eftir þessu og þótti þeir oft vera frekar seinir til verks. Hann sagði þeim gjarnan hvað hann hefði byggt mörg hús um dagana og hvað hann hefði afrekað í vinnu. Svo kom að elli kerling fór að herja á gamla manninn, hann fór að vera gleyminn og átti erfitt með athafnir sem voru honum auðveldar áður. Hafsteinn gat samt oft komið okkur á óvart og munað einhvern atburð sem allir voru búnir að steingleyma. Hann fór í hvíldarinnlögn á Hrafnistu í byrjun mars af því við hjónin tókum Gígí með til Te- nerife. Á meðan hann var á Hrafnistu bauðst honum svo pláss á Sléttuveginum og nú var ekki annað í boði en taka því. Hann fór svo þangað rétt fyrir páska. Hann meðtók að það var ástand í landinu og var ekki mjög ósáttur að fara á Sléttuveginn. Það var auðvitað mjög erfitt fyrir aðstandendurna að hafa þessar hömlur á heimsóknum en þetta var bara staðan. Alltaf var hann jafn glaður að sjá Gígí sína þegar hún kom og kallaði hana elskuna sína. En fljótt skipast veður í lofti, hann varð fyrir því óláni að detta og beinbrotna og náði sér ekki eft- ir það. Hafsteinn lést aðfaranótt 21. desember sl. Hann náði þó að vera meðvitaður í nokkra daga og fólkið hans fékk að koma og vera hjá honum síðustu stundirnar og kveðja hann. Það er mikils virði. Við kveðjum þig, Hafsteinn minn, og þökkum þér samfylgd- ina í þessi ár sem þú varst einn af fjölskyldunni. Brynhildur Geirsdóttir. Hafsteinn, eins og hann var ætíð kallaður, var fæddur í Reykjavík, sonur hjónanna Guð- jóns Guðmundssonar, bónda í Arnkötludal í Tungusveit síðar verkstjóra hjá Reykjavíkurborg, og Sigríðar Bjarnadóttur hús- móður. Þau bjuggu á Laugavegi 165 í Reykjavík. Hafsteinn var yngstur fjögurra systra og þriggja hálfsystkina samfeðra. Á hans uppvaxtarárum var eftir- sóknarvert að komast í iðnnám. Hann hóf nám í skipasmíði hjá Slippnum í Reykjavík. Snemma bar á dugnaði hans og vandvirkni. Í náminu fékk hann oft að heyra sem ungur lærlingur, þegar farið var í kvöld- og næturverk: Takið Hafstein með ykkur. Á námsár- unum kynntist hann konu sinni Halldóru Jensdóttur. Þau byggðu sér stórt og myndarlegt hús á Melabraut 2 á Seltjarnarnesi og eignuðust tvö börn, Sjöfn og Jens. Stórfjölskyldan var samhent, minnisstæð eru jólaboðin sem þau héldu til skiptis heima hjá sér. Sem smiður smíðaði Hafsteinn hús og innréttaði íbúð fyrir systur sínar, allt í launalausri samhjálp. Hafsteinn var glaðsinna maður, nærgætinn með mjög hlýja nær- veru, dugnaðarforkur og vand- virkur og stóð við sitt í hvívetna. Halldóra var dóttir Jens Árna- sonar járnsmiðs, sem átti Vél- smiðju Jens Árnasonar hf. Jens bauð Hafsteini að koma til sín í rennismíðanám með það fyrir augum að taka við smiðjunni síð- ar. Að þessu gekk Hafsteinn og lærði rennismíði og rak fyrir- tækið með mikilli prýði á meðan hann gat. Á eftirstríðsárunum var mikill uppgangur járniðnaðar í landinu, nánar er vikið að þessum þætti í aðalgreininni á internet- inu. Í einkalífinu varð Hafsteinn að bergja þung áföll lífsins. Hann kvæntist þremur konum sem hann missti allar, Halldóru, Guð- munda dó úr berklum eftir aðeins fjóra mánuði í hjónabandi, Ingi- björg dó úr hjartaáfalli 1999 eftir 25 ára hjónaband. Sonurinn, Jens Gunnar, andaðist ári síðar úr hjartaáfalli, um það leyti sem hann átti að taka við rekstri smiðjunnar. Aldamótaárið varð Hafsteini þungbært vegna mikill- ar sorgar, á einni nóttu var samn- ingurinn sem hann hafði gert við tengdaföður sinn Jens Árnason rofinn, mynd hans sem hangið hafði á vegg á skrifstofu Haf- steins tekin niður, nú get ég ekki meir. Voru hans orð. Starfsemi smiðjunnar var sjálfhætt og hann orðinn 73 ára og einn. Síðar hóf hann sambúð með Guðbjörgu Kristjónsdóttur, Gígí, sem var orðin ekkja úr vinahópi þeirra. Hún flutti til hans í Miðleiti 7. Sambúð þeirra varð báðum mikill léttir, þar áttu þau sameiginlega góða daga, þar til heilsan gaf sig. Niðjum Guðbjargar féll sambúð þeirra vel og naut hann fljótlega virðingar og vináttu þeirra. Hafsteinn skilur eftir sig ljúfa minningu, hann er maður mikillar persónu sem kemur og er, en aldrei fer úr hugum samferða- fólks síns. Þeim öllum votta ég innilegustu samúð. Gígi votta ég dýpstu virðingu og samúð með þakklæti fyrir allar ljúfu sam- verustundirnar og samveru við Hafstein. Sjöfn dóttir Hafsteins og Snorri maður hennar, Guðríð- ur og Hafdís, kona og dóttir Jens Gunnars, innilega samúð og guðs blessun til ykkar allra. Meira: mbl.is/andlat Ólafur Jóhannsson, systursonur Hafsteins. Friðrik Hafsteinn Guðjónsson  Fleiri minningargreinar um Friðrik Hafstein Guð- jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, DÓRA LYDÍA HARALDSDÓTTIR, Geitlandi 3, Reykjavík, varð bráðkvödd á heimili sínu sunnudaginn 20. desember. Útförin fer fram frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu fimmtudaginn 7. janúar klukkan 15. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á vefslóðinni: www.filadelfia.is/live Arinbjörn Árnason Joanne Árnason Pálína Árnadóttir Margrét Árnadóttir Þórður Mar Sigurðsson Haraldur Haraldsson Páll Haraldsson Aron James og Joshua Ben Ástkær móðir okkar, tengdamamma, amma og langamma, SÍMONÍA ELLEN ÞÓRARINSDÓTTIR, lést á aðfangadagskvöld. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju 5. janúar. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir útförina en athöfninni verður streymt á https:// www.youtube.com/watch?v=_K4iTX7iSA&feature;=youtu.be Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á að styrkja slysavarnadeildina Líf á Akranesi eða Einstök börn. Kristín Helga Ármannsdóttir Brynjólfur Ottesen Stefán Gunnar Ármannsson Guðfinna Indriðadóttir Indriði Björn Ármannsson Sif Eir Magnúsdóttir Ármann Rúnar Ármannsson Ólafur Bjarni Ármannsson Kristín Helga Ragnarsdóttir ömmubörn og langömmubörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐBJÖRG SVAVA EYSTEINSDÓTTIR frá Broddadalsá, sem lést á Hrafnistu Hafnarfirði þriðjudaginn 22. desember, verður jarðsungin frá Hólmavíkurkirkju fimmtudaginn 7. janúar klukkan 14. Vegna samkomutakmarkana verða aðeins nánustu ættingjar viðstaddir en útförinni verður streymt á Facebook í hópnum Útför Guðbjargar Svövu Eysteinsdóttur. Slóðin er: www.facebook.com/groups/3768958526481442 Gunnhildur Halldórsdóttir Sigurkarl Ásmundsson Ásdís Halldórsdóttir Guðrún Halldórsdóttir Már Sveinbjörnsson Torfi Halldórsson Unnur Þorgrímsdóttir Jón Halldórsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR A. ÞORMAR tannlæknir, lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut sunnudaginn 3. janúar. Kristín Þormar Andrea Þormar Atli Már Jósafatsson Ólafur Þormar Sveinbjörn Þormar Kristín Þórsdóttir og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.