Morgunblaðið - 05.01.2021, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2021
✝ HallgrímurSigurðsson
fæddist í Reykja-
vík 11. apríl 1944.
Hann lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 23.
desember 2020.
Foreldrar hans
voru Sigurður
Einar Einarsson, f.
13. febrúar 1899,
d. 23. maí 1984,
bóndi á Hólavatni í Austur-
Landeyjum, og kona hans Elín
Mið-Dal, Vestur-Eyjafjalla-
hreppi, f. 18.4. 1896, d. 1.2.
1969, og kona hans Anný Sofie
Kristófersson, f. 12.4. 1918, d.
25.11. 1965.
Börn Hallgríms og Mar-
grétar eru: 1) Elín Sigríður, f.
1968, maki Sigurjón Eyþór
Einarsson, f. 1965, börn þeirra
eru a) Hrafnhildur Elínardótt-
ir, f. 1987, maki Emilian Jas-
inski, f. 1990, börn þeirra eru
Alexandra Barbara, f. 2011,
Sigurður Einar, f. 2016, og
Natalía Rós f. 2017. b) Íris, f.
1991, barn hennar er Emilía
Elín, f. 2016. c) Einar Vignir,
f. 1996. 2) Anna Helga, f. 1970,
börn hennar eru a) Guðjón
Arnar Kristinsson, f. 1989,
maki Sigríður Jóhannsdóttir,
f. 1990, börn þeirra eru Jó-
hann Jakob, f. 2013, og
stúlka óskírð, f. 2020. b)
Bjarni Þór Guðmundsson, f.
1991. c) Eydís Ósk Guð-
mundsdóttir, f. 1993, maki
Dagur Egilsson, f. 1988, börn
þeirra eru Valtýr Nökkvi, f.
2011, og Ísold Nótt, f. 2015.
3) Hafdís Björk, f. 1972, d.
2019, eftirlifandi maki Sæ-
mundur Ólafsson, f. 1978,
barn þeirra er Margrét Alda,
f. 2006.
Hallgrímur var lengst af
bóndi á Hólavatni og eftir að
þau hjón brugðu búi vann
hann við ýmis störf, aðallega
sem vörubílstjóri og véla-
viðgerðamaður.
Útför Hallgríms fer fram
frá Áskirkju í dag, 5. janúar
2021, klukkan 13.
Jónína Ingv-
arsdóttir, f. 1.
mars 1906, d. 17.
mars 1991. Systir
hans er Guðbjörg
Gunnlaugsdóttir, f.
1950.
Hallgrímur
kvæntist 11. jan-
úar 1969 Margréti
Helenu Högnadótt-
ur, f. 19. október
1939, d. 27. maí
2020. Foreldrar hennar voru
Högni Kristófersson, bóndi í
Nú ertu horfinn í himnanna borg
og hlýðir á englanna tal.
Burtu er kvíði, sjúkdómur, sorg
í sólbjörtum himnanna sal.
Þeim öllum sem trúa og treysta á
Krist
þar tilbúið föðurland er.
Þar ástvinir mætast í unaðarvist
um eilífð, ó, Jesú, hjá þér.
(Ingibjörg Jónsdóttir)
Elsku pabbi minn, ég þakka
samfylgdina í gegnum lífið.
Þín dóttir,
Elín Sigríður
Hallgrímsdóttir.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Ekki datt mér í hug að þú
færir svona fljótt, Halli minn, en
eftir að Stúlla þín kvaddi hrak-
aði þér mikið. Það er sárt að
geta ekki hringt í þig bara til að
spjalla. Þú varst duglegur að
koma og sitja hjá henni Mar-
gréti Öldu afabarni þínu og mað-
ur gat oft leitað til þín ef maður
þurfti einhverja aðstoð. Þér
fannst gaman að koma í Hjalta-
bakkann til að spjalla eða bara
til þess að fá þér kaffibolla. Þú
varst alltaf svo opinn og ég er
svo þakklátur að hafa kynnst
þér en núna ertu kominn til
hennar Stúllu þinnar og Hafdís-
ar dóttur þinnar.
Sæmundur
Ólafsson.
Hallgrímur
Sigurðsson
✝ Elsa ÞórdísÓskarsdóttir
fæddist í Tuma-
brekku í Óslands-
hlíð Skagaf. 8. maí
1937. Hún lést 23.
des. 2020. Elsa var
dóttir hjónanna
Ástu Pálínu Hart-
mannsdóttur, f. 10.
ág. 1911, d. 25. ág.
1981, og Óskars
Stefáns Gíslasonar,
f. 24. jan 1907, d. 27. maí 2001.
Bræður hennar: Gísli Hólm, f.
18. maí 1932, d. 25. mars 2013,
og Hartmann Halldór, f. 17.
feb. 1947.
Elsa giftist í Grafarkirkju í
Skagafirði 30. maí 1963 Ingi-
mar Kr. Skjóldal lögreglu-
manni, f. 29. mars 1937, frá
Ytra-Gili í Hrafnagilshr. Eyja-
firði. Börn þeirra eru:
1) Eygló Jensdóttir, f. 1. okt.
1957, gift Birni Austfjörð. Börn
þeirra eru: 1a) Heiðar Aust-
fjörð, kvæntur Guðbjörgu Eyj-
ólfsdóttur. Börn þeirra eru
Auður Eva, Atli Rúnar og
nóv. 1969, kvæntur Nönnu
Björgu Hafliðadóttur. Börn
þeirra eru: 4a) Steinunn Lauf-
ey, gift Jóni Kjartanssyni. Börn
þeirra eru Bjartur Ingi og Guð-
björg Jana. 4b) Sandra Karen, í
sambúð með Andreasi P.W.
Gunnarssyni og synir þeirra
eru Leon Manuel og Kristofer
Jaki. 4c) Kristófer Levi. 4d)
Ingimar Skjóldal.
Elsa ólst upp hjá foreldrum
sínum í Þúfum í Óslandshlíð.
Hún gekk í farskóla í Hlíðar-
húsinu og var síðar í Kvenna-
skólanum á Löngumýri. Til Ak-
ureyrar kom hún í vist en gerð-
ist svo starfsstúlka á Berkla-
hælinu í Kristnesi og síðar á
FSA. Þegar börnin voru komin
á legg vann hún hálfan daginn
á veturna á ÚA. Síðar vann
hún hjá Hrímni og í Kjarna-
fæði.
Þau hjón ferðuðust bæði inn-
anlands og utan og gerðu mik-
ið af því alla tíð.
Útför er frá Akureyr-
arkirkju í dag, 5. janúar 2021,
klukkan 13.30.
Steymt verður á facebook-
síðu Akureyrarkirkju. Stytt
slóð á streymi:
https://tinyurl.com/y9bd4tnb/.
Virkan hlekk á tengil má
finna á:
https://www.mbl.is/andlat/.
Björn Elvar. 1b)
Elsa Austfjörð, gift
Snæþóri Vernharð-
ssyni. Börn þeirra
eru: Anton Breki,
Vernharður Ingi,
Snædís Lind og
Óskar Karel.
2) Dýrleif Skjól-
dal, f. 10. apr.
1963, gift Rúnari
Arasyni. Synir
þeirra eru: 2a)
Sævar Ingi, kvæntur Chomphu
Nuatnao. Börn þeirra eru: Rún-
ar Siththichai, Ragnar Kittichai
og Rósa Chayani. 2b) Steinar
Logi, í sambúð með Elínu Rós
Jónasdóttur og dóttir þeirra er
Sunna Berglind. 2c) Sindri
Snær, í sambúð með Kristínu
Guðmundsdóttur.
3) Hafdís Skjóldal, f. 9. des.
1964. Börn hennar eru: 3a)
Ingimar Skjóldal, á dæturnar
Ester Evu og Emilíu Björt. 3b)
Páll, á soninn Adrian Tandra.
3c) Guðný Halla, á dótturina
Ólöfu Diljá. 3d) Elsa Björg.
4) Kristján Skjóldal, f. 8.
Þá er komin kveðjustund og
þú að eigin sögn að dansa við
pabba. Þú hafðir beðið lengi en
loks fékkstu ósk þína uppfyllta og
fékkst að fara. Eftir standa minn-
ingar um litríka, aðallega bleika,
konu sem dansaði og söng í eld-
húsinu í Hlíðargötu. Mömmu sem
eldaði, bakaði, saumaði, prjónaði,
reifst og skammaðist, hló og
dansaði, talaði og söng og lagaði
stundum til. Mömmu sem átti
fullt af skrítnum og skemmtileg-
um hlutum. Mömmu sem fannst
ekkert mál að hafa gæludýr,
hvort sem það voru kettir,
hundar, kanínur, naggrísir,
hamstrar eða mús. Mömmu sem
átti margar vinkonur sem hún
hélt góðu sambandi við. Mömmu
sem las allt sem hún náði í og
púslaði fram á morgun ef því var
að skipta. En fyrst og fremst
mömmu sem elskaði sinn mann
heitt og innilega. Vinnan á Krist-
neshæli varð til þess að þið
kynntust og urðuð ástfangin.
Jafnvel þótt þú hafir talið hann
vera Móra sjálfan þegar þú sást
hann fyrst.
„Þá var hann klæddur í mó-
rauða peysu með mórauða húfu
og mórauður í framan,“ varstu
vön að segja og um leið færðist
heitt blik í augu þín. Bæði höfð-
uð þið áhuga á ferðalögum og
ferðuðust víða, bæði innanlands
og utan. Alls staðar unduð þið
ykkur vel og höfðuð frá mörgu
að segja og sýna þegar heim var
komið.
Elsku mamma, njóttu þess að
dansa, hlæja, syngja og gleðjast,
þú átt það svo sannarlega skilið.
Farðu í friði, friður guðs þig
blessi.
Dýrleif (Dilla), Kristján
(Stjáni), Eygló og
fjölskyldur.
Elsku mamma, nú ertu komin
til pabba eins og þú hefur þráð
lengi. Þegar ég var lítil varst þú
alltaf heima. Saumaðir og prjón-
aðir á okkur fötin, bakaðir og eld-
aðir sem var ein af þínum
ástríðum, áttir fulla skúffu af
uppskriftum og alltaf að prufa
eitthvað nýtt. Þú söngst og dans-
aðir alltaf með útvarpinu og
kunnir flesta íslenska texta og
hafðir gaman af vísum og ljóðum.
Þú elskaðir dýr og kenndir okkur
að umgangast þau. Ófáa ketti
höfðum við eignast ásamt hund-
um, hömstrum, naggrísum, kan-
ínum og mús sem þú komst einu
sinni með heim og pabbi smíðaði
búr handa henni, í eldhúsglugg-
anum lifði hún í nokkur ár, og
hún Trýna sem eignaðist fullt af
kettlingum um ævina sem þú ólst
upp á koddanum hjá þér.
Alltaf fannst þér gaman að
ferðast og á sumrin var staflað í
bílinn, útilegudóti og stóru eld-
hústöskunni sem þú áttir með
diskum, glösum, hnífapörum og
alls konar döllum sem þú fylltir á
krydd, smjör og annað nytsam-
legt. Á áfangastað varst það þú
sem sást um að koma öllu fyrir í
tjaldinu og eldaðir svo mat á
prímus meðan pabbi fór með okk-
ur krakkana í skoðunarferð um
svæðið. Þetta eru ógleymanlegir
tímar. Seinna ferðuðust þið pabbi
bæði innanlands og utan, ófáar
myndir eru til úr þeim ferðum.
Alltaf var Hlíðargatan eins og
félagsmiðstöð; aukabörn í matar-
og kaffitímum. Þegar þú svo fórst
að vinna úti keyptirðu þér fallega
hluti og litskrúðug föt, varst allt-
af svo fín og elskaðir glingur.
Hafðir gaman af að dansa og
skemmta þér í góðra vina hópi.
Þegar svo pabbi féll skyndilega
frá var eins og allur lífsvilji þinn
færi líka; brosið þitt og hlátur-
rokurnar hættu næstum alveg og
þegar svo þú fékkst blóðtappa
tvisvar með stuttu millibili þá
vildir þú bara fá að fara, en löng
var biðin. Það eru ótal minningar
sem ég geymi í hjartanu. Ég veit
að nú eruð þið pabbi saman á ný
og þér líður miklu betur, dans-
andi og syngjandi, því trúi ég.
Hvíl í friði og hafðu þökk fyrir
allt, elsku mamma mín.
Þín
Hafdís (Haddý).
Elsa Þórdís
Óskarsdóttir
Raðauglýsingar
Tilboð/útboð
Óskað er eftir tilboðum í viðgerðir og
viðhaldsaðgerðir á tveimur af fjórum
árlokum (yfirfallslokum) í straumgáttum
lokumannvirkis við Ísakot sem staðsett
er austan við Bjarnalón, inntakslón
Búrfellsstöðvar.
Verktími
15.4.2021 – 15.10.2022
Vettvangsskoðun
12. janúar 2021, kl. 10
Útboðsgögn og skil á tilboðum
eru í gegnum útboðsvef Landsvirkjunar
utbod.landsvirkjun.is
Skilafrestur á tilboðum
2.2.2021, kl. 14
Nöfn bjóðenda og heildarfjárhæðir verða birtar
eftir kl. 14 sama dag á útboðsvefnum.
Útboð nr. 20340
Viðgerð á árlokum við
Ísakot Búrfellsstöð
Félagsstarf eldri borgara
Seltjarnarnes Starfsfólk félags- og tómstundastarfs óskar ykkur
öllum gleðilegs árs og þakkar liðnar stundir. Nú höldum við áfram
þar sem frá var horfið fyrir jólin og byrjum dagskrána í þessari viku.
Námskeiðin verða í samráði við leiðbeinendur. Krókurinn er opinn
fyrir íbúa á Skólabraut og jóga byrjar nk. fimmtudag með sama fyrir-
komulagi og verið hefur. Minnum á opnun sundstaða, hreyfingu og
almennar sóttvarnir.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Húsviðhald
Borðað of mikið yfir
hátíðarnar ?, og er
erfitt að gera það
sem þarf að gera ?
Tek að mér ýmisskonar húsaviðhald ofl.,ofl.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju
við andlát og útför ástkærs föður,
tengdaföður, afa og bróður,
BJARNA KRISTJÁNSSONAR,
fyrrverandi bónda,
Þorláksstöðum í Kjós.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hrafnistu við Sléttuveg
og starfsfólki Landspítalans fyrir alúð og hlýju við umönnun
Bjarna.
Kristján Bjarnason
Jón Bjarnason
Runólfur Bjarnason Þórunn Björk Jónsdóttir
Guðrún Bjarnadóttir
Ágúst Bjarnason Christina Miller
Inga Rún og Runólfur
Kristófer Logi og Kolbrún Lind
systkini og fjölskyldur
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar