Morgunblaðið - 05.01.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 05.01.2021, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2021 Netverslun www.skornir.is ÚTSALAN ER HAFIN! 30-60%AFSLÁTTUR SMÁRALIND www.skornir.is Útsöluverð 10.797 Verð áður 17.995 Stærðir 36-42 Sky 24 kuldaskór Mjúkt leður að utan – Ullarfóður að innan – Grófur stamur gúmmísóli „MÆTTI ÉG FARA INN Á UNDAN? ÞETTA ER ALGERT NEYÐARTILVIK.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að uppgötva að hún elskar líka ítalskan mat. FYRSTI KAFFIBOLLI MORGUNSINS GEFUR TÓNINN FYRIR DAGINN HVERNIG ER KOFFÍNLAUSA KAFFIÐ? ÉG HEF ÁKVEÐIÐ AÐ ÉG ÆTLA AÐ VERÐA BÓKAGAGNRÝNANDI AÐ ATVINNU ÞEGAR ÉG VERÐ STÓR! DÝRI ER EITTHVAÐ UPP ÚR ÞVÍ AÐ HAFA? ÞVÍ ÉG HEF SAGT ÞAÐ ÁRUM SAMAN AÐ BÆKUR ERU TÍMASÓUN! „SKO, ÞETTA ER ÞAÐ SEM VIÐ VITUM Á ÞESSUM TÍMAPUNKTI …” valinu varð borgin Leipzig í Þýskalandi. Við hjónin ákváðum að nýta þetta tækifæri til fulls og tók- um tvö yngri börnin með okkur út og fóru þau í skóla þar.“ Áhugamál Þorkels eru golf og ferðalög. „Sjálfum finnst mér ég aldrei spila nógu oft golf, en það eru ekki allir á heimilinu á sama máli. Ég byrjaði að gutla í þessu um tvítugt en hef aldrei litið á mig sem keppnismann heldur fyrst og fremst til að hafa gaman af þessu og vera með vinum mínum,“ en Þorkell er með 11 í forgjöf og bú- inn að fara holu í höggi. Þorkell hefur einnig gaman af að ferðast erlendis bæði með fjöl- skyldu og vinum, en eins og marg- ir Íslendingar ferðaðist hann inn- anlands í fyrra og enduruppgötvaði landið. „Við fór- um á Vestfirði og leigðum svo hús með vinum í Svarfaðardal og end- uðum svo á hinni ómissandi árlegu ferð í Flatey með vinafólki okkar. Þetta var bara alveg yndislegt sumar.“ Fjölskylda Eiginkona Þorkels er Sigríður Jóhanna Sigurðardóttir, f. 24.9. 1972, deildarstjóri hjá Hrafnistu í Boðaþingi. Foreldrar Sigríðar eru hjónin Sigurður Kjartan Lúðvíks- son, f. 18.8. 1948 í Keflavík, og Anna Hulda Óskarsdóttir, f. 26.8. 1949 í Reykjavík. Þau eru búsett í Kópavogi. Börn Þorkels og Sigríðar eru: 1) Þórunn, f. 25.3. 1998, starfsmaður á leikskóla; 2) Hjálmar Tumi, f. 10.1. 2002, nemi; 3) Hulda María, f. 12.4. 2006, nemi. Systkini Þorkels eru Bjarki H. Diego, f. 19.3. 1968, lögmaður, bú- settur í Reykjavík, og Dagbjört Ágústa H. Diego, f. 19.8. 1979, viðskiptafræðingur, búsett í Kópa- vogi. Foreldrar Þorkels eru hjónin Hjálmar Þorkelsson Diego, f. 2.8. 1943, skipstjóri, og Dagbjört Hilm- arsdóttir Bergmann, f. 14.12. 1947, verslunarmaður. Þau eru búsett í Kópavogi. Þorkell Hjálmarsson Diego Dagbjört Ágústa Jónsdóttir Bergmann húsfreyja í Keflavík Eyvindur Magnússon Bergmann formaður í Keflavík Gísllaug Bergmann framreiðslustúlka í Reykjavík Hilmar Sigurjón Reynir Karlsson sjómaður og verktaki í Reykjavík Dagbjört Bergmann Hilmarsdóttir verslunarmaður í Kópavogi Þuríður Jónasdóttir húsfreyja í Reykjavík Karl Stefán Daníelsson prentari í Reykjavík Arnheiður Björnsdóttir húsfreyja í Reykjavík Sveinn Einarsson steinsmiður í Reykjavík Jóna Sveinsdóttir húsfreyja í Reykjavík Þorkell Guðmunds Hjálmarsson Diego forstjóri í Reykjavík Halldóra Friðgerður Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík Hjálmar Diego Jónsson bókari í Reykjavík Úr frændgarði Þorkels Hjálmarssonar Diego Hjálmar Þorkelsson Diego skipstjóri í Kópavogi Þórarinn Eldjárn yrkir „Efstef“:Þéttan ljóða vef ég vef vel bið forláts ef ég gef ykkur svona stef og stef sem stolið hef. Hjálmar Jónsson sendi nýárs- kveðjur: Fram á veg flestu miðar, fárið mun hníga til viðar. Vinur minn góður, hér vitja þín, hljóður og óska þér árs og friðar. Á nýársdag sendi Guðmundur Arnfinnsson Breiðfirðingum sem og landsmönnum öllum til sjávar og sveita nýársósk: Víkur senn burt veirufár, vorið strýkur milt um brár. Gleðilegt og gott nýtt ár gefi öllum Drottinn hár. Dagbjartur Dagbjartsson sendi Breiðfirðingum til glaðnings eina eftir Eggert Stefánsson frá Kleifum og sagði, að hún gæti verið ort um snemmsumarsnótt: Kvölda tekur dagur dvín dögg er sveipuð jörðin. Aldrei fegri sólarsýn sást við Breiðafjörðinn. Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson sendir þessa kveðju: Verjum þessum vetri til varnar öllum fárum. Höfum ennþá handar bil, hlífum sorg og tárum. Helgi R. Einarsson segir, að mörgum reyndist gamla árið erfitt og að árið 2020 sé kvatt án trega: Enn nú eitt er runnið út að fullu brunnið. Ei til fjár, feigðarár. Fátt var í það spunnið. Enn segir Helgi að oft sé gott að hófstilla áramótaheitin; „Gömul saga og ný“: Mikils vísir er mjór með markmiðin göfug og stór. Samt baslinu í oft endar á því annarra’ að moka flór. Helgi slær svo botninn í kveð- skapinn með því að segja: „Verum bjartsýn á nýju ári!“ Bjarni Stefán Konráðsson yrkir í „Stöku-vísum“ Að vera að spá, það virðist mér vera ljóta glíman, sérstaklega ef það er eitthvað fram í tímann. Alltaf kastað út í horn ef annað var á sveimi. Svona er að vera sannleikskorn í síljúgandi heimi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Verum bjartsýn á nýju ári!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.