Morgunblaðið - 05.01.2021, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2021
Annað kvöld fer fram fyrsti
leikurinn í mjög sérstöku þriggja
leikja einvígi gegn Portúgal þegar
liðin mætast í undankeppni Evr-
ópumóts karla í handbolta í
portúgölsku borginni Matosinhos.
Á aðeins níu dögum mætast
Ísland og Portúgal þrisvar, fyrst
heima og heiman í undankeppni
EM og síðan í fyrsta leiknum á
heimsmeistaramótinu í Egypta-
landi.
Annað kvöld verður afar fróð-
legt að sjá hvar íslenska liðið
stendur í dag. Það fór á kostum í
nóvember þegar það valtaði yfir
Litháen í undankeppni EM í Laug-
ardalshöll og vann þar fyrsta leik
keppninnar með sextán marka
mun.
Nú er staðan hins vegar talsvert
breytt því Aron Pálmarsson verð-
ur ekki með, hvorki í þessum leikj-
um né á HM.
Ekki þarf að fjölyrða um
hversu mikil áhrif það hefur á liðið
að leika án síns besta sóknar-
manns en nú þurfa Guðmundur
þjálfari og leikmennirnir að bregð-
ast rétt við.
Þegar lykilmaður heltist úr
lestinni er besta leiðin til að fylla
skarðið að allir hinir bæti leik sinn
um fimm prósent og liðsheildin
verði þéttari.
Þetta er líka tækifæri fyrir
menn á borð við Ólaf Guðmunds-
son og Elvar Örn Jónsson til að
taka meiri ábyrgð á sínar herðar
og láta ljós sitt skína svo um
munar í sóknarleik Íslands.
Ólafur hefur reynsluna af
fjölda stórmóta og á annað
hundrað landsleikja, ásamt því að
vera með gríðarlega reynslu úr
Meistaradeild Evrópu og Elvar
hefur komið upp hratt sem einn
af bestu sóknarmönnum liðsins.
Boltinn er hjá ykkur, strákar.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslenska karlalandsliðið í hand-
knattleik hélt í gær til Portúgal en
þar mætast Portúgal og Ísland í
undankeppni EM 2022. Leikurinn
fer fram í Porto og markar upphafið
á mikilli törn hjá íslenska landslið-
inu. Þjóðirnar mætast aftur á Ás-
völlum í Hafnarfirði á sunnudaginn í
sömu keppni. Í framhaldinu hefst
svo HM í Egyptalandi og þar er
Portúgal fyrsti andstæðingurinn en í
riðli Íslands á HM leika einnig Alsír
og Marokkó.
Ísland fór létt með fyrsta and-
stæðinginn í undankeppni EM þeg-
ar liðið burstaði Litháen í Laug-
ardalshöll í nóvember, 36:20.
Portúgal hefur unnið fyrstu tvo leik-
ina gegn Litháen og Ísrael en leik
Íslands og Ísrael var frestað með
fremur skömmum fyrirvara.
Sextán leikmenn héldu utan í gær
en Björgvin Páll Gústavsson, Elliði
Snær Viðarsson, Kristján Örn
Kristjánsson og Magnús Óli Magn-
ússon, sem eru í hópnum sem valinn
var seint á síðasta ári, urðu eftir
heima. Björgvin Páll og Magnús Óli
leika með íslenskum liðum og hafa
því ekki spilað með félagsliði í marg-
ar vikur.
Slæmt á margan hátt
Aron Pálmarsson er ekki leikfær
eins og greint var frá um helgina.
Læknar landsliðsins skoðuðu hann
vegna þeirra hnémeiðsla sem Aron
varð fyrir og varð það niðurstaðan að
hann verður ekki með. Þegar Aron lék
nokkuð óvænt með Barcelona í úrslit-
um undanúrslitum og úrslitaleik
Meistaradeildar Evrópu þá kviknaði
sú von að hægt yrði að tefla honum
fram að einhverju leyti á HM en ekki
er útlit fyrir að svo verði. Þegar menn
eru á fjölmenna nafnalistanum sem
sendur var mótshöldurum í nóvember
þá er hægt að kippa þeim inn eftir að
mótið hefst. Manni heyrist þó ekki að
því sé haldið opnu í þessu tilfelli.
Fjarvera Arons er vitaskuld blóð-
taka enda leikmaður sem er reglulega
í undanúrslitum Meistaradeildarinnar
með félagsliðum sínum og nú fyrirliði
íslenska landsliðsins eftir að Guðjón
Valur Sigurðsson hætti keppni. Á EM
í Svíþjóð snerist sóknarleikur íslenska
liðsins mikið í kringum Aron sem er
ósköp skiljanlegt. Nú þarf þjálf-
arateymið að bregðast við og finna
aðrar útfærslur. Nú fækkar þeim sem
geta ógnað marki andstæðinganna
með skotum utan af velli. Er það eitt af
því augljósasta sem má lesa út úr fjar-
veru Arons en einnig kemur ýmislegt
annað til því hann á iðulega margar
stoðsendingar í leikjum. Aron þarf
ekki heldur að skipta um stöður á milli
sóknar og varnar eins og einhverjir
leikmenn þurfa að gera. Fjarvera hans
er því slæm á svo margan hátt.
Var ekki með á HM 2017
Ólánið hefur nánast elt Aron þegar
HM er annars vegar. Hann lék með á
HM í Svíþjóð 2011 og á Spáni 2013. Á
HM 2015 í Katar fékk hann höfuðhögg
í leik í riðlakeppninni gegn Tékkum og
hafði einnig fengið höfuðhögg skömmu
fyrir mótið. Var Aron ekki meira með
á HM í Katar enda hafði hann fengið
heilahristing. Aron missti af HM 2017 í
Frakklandi vegna meiðsla en gat verið
með á HM í Þýskalandi fyrir tveimur
árum. Hann meiddist hins vegar þegar
leið á mótið og var ekki með í síðustu
tveimur leikjunum.
Aron hefur því verið seinheppnari
varðandi HM en EM. Hann var fyrst
með á EM 2010 þegar Ísland vann til
bronsverðlauna og hefur ávallt verið
með á EM allar götur síðan. Í Serbíu
2012, í Danmörku 2014, í Póllandi
2016, í Króatíu 2018 og í Svíþjóð í
fyrra.
Flott frammistaða
Ísland vann góðan sigur á Portúgal
á EM í Svíþjóð í fyrra. Mættust liðin
þá í milliriðlinum í Malmö og hafði Ís-
land betur, 28:25. Portúgal náði hins
vegar betri árangri á EM og hafnaði í
6. sæti en Ísland í 11. sæti. Lið Portú-
gals hefur verið á uppleið á síðustu
árum og hefur tekist betur en oft áð-
ur að nýta efniviðinn úr yngri lands-
liðum og setja saman sterkt A-
landslið. Í gegnum tíðina hafa Portú-
galir af og til átt öflug yngri landslið í
handboltanum. 1990-árgangurinn var
til að mynda mjög sterkur.
Portúgal beitti óspart því útspili að
taka markvörðinn út af þegar liðið
fékk boltann á EM í fyrra og sótti því
á sjö leikmönnum. Nokkuð sem mörg
lið hafa nýtt sér við og við en lið
Portúgals keyrði á þessu og gekk
sumum andstæðingum þeirra á
mótinu mjög illa að mæta því. Portú-
gal vann til dæmis stórsigur á Svíþjóð
sem lék á heimavelli. Íslenska liðinu
gekk hins vegar mjög vel að verjast
þessu sóknarafbrigði Portúgala og
frammistaðan gegn Portúgal var lík-
lega sú besta hjá íslensku vörninni á
EM 2020.
Margt gekk vel hjá íslenska liðinu í
leiknum. Janus Daði Smárason
sprakk út í sókninni og skoraði 8
mörk. Aron lék mjög vel í síðari hálf-
leik en hann og Alexander Petersson
léku þá vel með Janusi fyrir utan.
Guðjón Valur nýtti allar skottilraunir
sínar í horninu og Björgvin Páll var
með 34% markvörslu.
Íslenska liðið lék mjög vel gegn
Portúgal í fyrra og þarf einnig á góðri
frammistöðu að halda á morgun til að
eiga möguleika á sigri.
Upphafið á mikilli törn
hjá handboltalandsliðinu
Fyrsti leikurinn af þremur gegn Portúgal á morgun Portúgal hafnaði í 6.
sæti á EM í fyrra Aron er mun seinheppnari þegar kemur að HM en EM
Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson
EM 2020 Guðjón Valur og Aron í leiknum gegn Portúgal á EM í fyrra. Leikmenn Portúgals þurfa ekki að hafa áhyggjur af þeim á morgun.
Þegar deildin er hálfnuð er PSG
með 31 stig, Lyon 30 og Bordeaux
23 í þremur efstu sætunum en einu
ósigrar Bordeaux á tímabilinu eru
gegn hinum tveimur, 1:2 í bæði
skiptin. Fyrsti leikur Svövu verður
væntanlega gegn PSG 17. janúar.
Bordeaux er þriðja lið Svövu á
ferlinum í atvinnumennsku. Hún
lék fyrst með Röa í Noregi og síð-
an tvö tímabil með Kristianstad í
Svíþjóð. Svava, sem áður lék með
Breiðabliki og Val, er 25 ára og
hefur leikið 23 A-landsleiki fyrir
Íslands hönd.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Svava Rós Guðmundsdóttir bættist
í gær í hóp íslenskra landsliðs-
kvenna í knattspyrnu sem taka
stór skref á ferlinum fyrir loka-
keppni Evrópumótsins.
Hún skrifaði þá undir átján mán-
aða samning við franska stórliðið
Bordeaux, eða fram að lokakeppni
EM sem fer fram sumarið 2022.
Landsliðskonurnar Sara Björk
Gunnarsdóttir (Lyon), Berglind
Björg Þorvaldsdóttir (Le Havre),
Anna Björk Kristjánsdóttir (Le
Havre), Hlín Eiríksdóttir (Piteå),
Hallbera Guðný Gísladóttir (AIK)
og Sveindís Jane Jónsdóttir (Wolfs-
burg og Kristianstad) hafa allar
farið í sterkari lið og deildir á síð-
asta hálfa árinu og þær Dagný
Brynjarsdóttir og Karólína Lea
Vilhjálmsdóttir eru líklegar til að
feta í fótspor þeirra, ásamt fleir-
um.
Svava fer í lið sem er það eina
sem veitir stórveldunum París SG
og Lyon einhverja keppni í frönsku
1. deildinni um þessar mundir.
Stórt skref hjá Svövu Rós
Ljósmynd/Bordeaux
Bordeaux Svava Rós Guðmunds-
dóttir með treyju liðsins.
Brynjar Björn
Gunnarsson hef-
ur gert nýjan
samning við HK
um að halda
áfram þjálfun
meistaraflokks-
liðs karla hjá fé-
laginu í knatt-
spyrnu til næstu
þriggja ára. Frá
þessu er greint á
heimasíðu HK.
Brynjar hefur stýrt liði HK
undanfarin þrjú ár. Fyrst vann það
sér sæti í úrvalsdeildinni og hefur
síðan endað þar í níunda sæti und-
anfarin tvö ár og jafnað sinn besta
árangur frá upphafi en áður hafði
liðið endað í níunda sætinu árið
2007.
„Ég er mjög ánægður með að
semja við HK í þriðja sinn. Það hefur
gengið vel hjá okkur á undanförnum
árum en enn er tækifæri til frekari
uppbyggingar og bætingar,“ segir
Brynjar Björn m.a. á heimasíðu HK.
Brynjar er 45 ára gamall og lék á
sínum tíma 74 landsleiki fyrir Ís-
lands hönd en hann var atvinnumað-
ur í fimmtán ár, fyrst í Noregi og
Svíþjóð en síðan í tólf ár á Englandi.
Hann er uppalinn KR-ingur og lék
með Vesturbæjarliðinu 1995 til 1997
og lauk ferlinum þar 2013.
Samnings-
bundinn HK
til 2023
Brynjar Björn
Gunnarsson