Morgunblaðið - 05.01.2021, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2021
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
MEÐFÆRILEG
HÁGÆÐA SKÓLABORÐ
Sico skólaborðin spara pláss og eru þægileg í uppsetningu. Auðvelt er að fella borðin saman
og rúlla þeim í burtu þegar þau eru ekki í notkun. Nemendur sitja hver á móti öðrum þannig
að hópastarf og samskipti verða auðveld. Hægt er að fá borðin í mismunandi stærðum
og í hentugri hæð eftir aldri nemanda.
Hafðu samband við söluráðgjafa okkar í síma 580 3900
og þeir aðstoða þig við að finna réttu lausnina fyrir þína nemendur.
Björn Ólafsson fiðluleikari(1917-84), konsertmeistariSinfóníuhljómsveitar Ís-lands á fyrstu áratugum
hennar 1950-72 og aðalfiðlukennari
Tónlistarskólans í Reykjavík 1940-
75, markaði djúp og gjöful spor í
ungri tónlistarmenningu landsins.
Svo ungri, að við stofnun SÍ 1950 var
sú menning enn 1-2 öldum á eftir
löndunum sunnar í álfu, hvort
tveggja að hljóðfærakunnáttu og al-
mennri þekkingu hlustenda.
En það átti eftir að færast í fram-
ara horf – og á undraskömmum
tíma. Ekki sízt fyrir atbeina frum-
kvöðla eins og Björns, er, ef svo má
segja, „ungaði út“ okkar fyrstu kyn-
slóð í fiðluleik á atvinnustigi. Mætti
jafnvel efast um hvort tilkoma SÍ
hefði verið möguleg jafnsnemma og
raun bar vitni hefði hans ekki notið
við, enda skipa 1. og 2. fiðlarar sem
kunnugt er hátt í helming heildar-
fjölda hljómsveitarmanna.
Um það uppeldissvið getur undir-
ritaður trútt um talað, þar eð hann
naut sem kontrabassisti í Hljómsveit
Tónlistarskólans snemma á 8. ára-
tug góðs af örvandi stjórn Björns, er
mótaðist af jafnt innsærri fagþekk-
ingu sem glaðværri ljúfmennsku, án
þess að slaka í neinu á gæðakröfum.
Með tilliti til þess hversu lítið
hafði áður verið gefið út af leik
Björns, að undanskilinnni plötu frá
um 1960, var því löngu orðið tíma-
bært að minnast hljómandi framlags
hans til íslenzkrar tónlistarsögu.
Það birtist loks fyrir fáeinum mán-
uðum á hérumræddum geisladiski;
sótt úr hljóðritasafni Ríkisútvarps-
ins og eftir öllu að dæma aðallega
fyrir frumkvæði Hlífar Sigurjóns-
dóttur, fyrrverandi nemanda
Björns; að líkindum í kjölfar út-
varpsþátta hennar 2017 um meist-
arann í tilefni aldarafmælis hans.
Þar gat gömul geymsla hæglega
reynzt þrándur í götu. Að reiða
klassískan hljómflutning fram til nú-
tímahlustunar af allt frá 80 ára
gömlum 78 snúninga lakkplötum og
litlu yngri segulbandsupptökum er
eiga til að dofna með aldri á hátíðni-
sviði hefur ugglaust reynzt tækni-
mönnum RÚV áskorun. En að minni
hyggju hefur það tekizt ótrúlega vel,
og má eiginlega undrast hvað virðist
núorðið kleift í þeim efnum.
Verkefnavalið er saga út af fyrir
sig – nefnilega myndarlegt sýnis-
horn af íslenzkri listmúsíksköpun
frá áratugunum þegar fyrstu mennt-
uðu tónskáld þjóðarinnar létu að sér
kveða. Fremst á diski tvö æskuverk
Jóns Nordal, hið spræka Systur í
Garðshorni og hin framsæknari
Fiðlusónata hans, en þar á milli ein-
leiksverkið Forleikur og tvöföld fúga
eftir Þórarin Jónsson. Á eftir kemur
Prelúdía og fúghetta Jóns Leifs f.
einleiksfiðlu, síðan Húmoreska Þór-
arins f. fiðlu & píanó, og loks þættir
úr tveim þjóðlagasyrpum f. fiðlu og
píanó; annars vegar nr. 12 og 13 úr
Sex þjóðlögum Op. 6 eftir Helga
Pálsson og nr. 14-16 úr Þjóðlífs-
þáttum Jórunnar Viðar.
Píanóleikur Lanzky-Ottos, Jóns
Nordal, Jórunnar Viðar og ekki sízt
Árna Kristjánssonar fellur gizka vel
að fiðlunni á þessum gömlu upp-
tökum og skyldi engan undra. Hitt
er skrýtnara hvernig glutraðist nið-
ur í grámósku minninga hvað fiðlu-
tónn Björns var skemmtilega þéttur,
hlýr – og leiftrandi vakur á hraðari
köflum. Eða þar til þessi diskur brú-
aði hálfrar aldar tímagjá með glæsi-
brag við hæfi.
Konsertmeistarinn „… fiðlutónn Björns var skemmtilega þéttur, hlýr – og
leiftrandi vakur á hraðari köflum,“ segir um leik Björns Ólafssonar fiðlu-
leikara í upptökunum á geisladiskinum „Sagan í tónum“.
Geisladiskur
Minningardiskur um Björn Ólafsson
fiðluleikara bbbbn
„Sagan í tónum“. Minningardiskur um
Björn Ólafsson fiðluleikara. Jón Nordal:
Systur í Garðshorni (1944; BÓ & Wil-
helm Lanzky-Otto pnó.); Fiðlusónata
(1952; BÓ & JN pnó). Þórarinn Jónsson:
Forleikur og tvöföld fúga yfir BACH f.
einleiksfiðlu (1925); Húmoreska f. fiðlu
og píanó (1927; BÓ & Árni Kristjánsson
pnó.). Jón Leifs: Prelúdía og fúghetta f.
einleiksfiðlu. Helgi Pálsson: úr Sex
þjóðlögum Op. 6 fyrir fiðlu og píanó
(1962; BÓ & Árni Kristjánsson pnó.).
Jórunn Viðar: Þjóðlífshættir úr svítu í 5
þáttum f. fiðlu og píanó (1974; BÓ & JV
pnó.). Upptökur úr hljóðritasafni Ríkis-
útvarpsins í vinnslu og meistrun Hreins
Valdimarssonar og Bjarna Rúnars
Bjarnasonar. Útgáfa: 4Tay Inc., CD4063,
sept. 2020.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Fiðlufaðir ÍslandsDjassbassaleikarinn Eugene
Wright, sem lék með hinum rómaða
kvartett Daves Brubecks, er látinn,
97 ára að aldri. Wright, sem var
kallaður „senatorinn“, var síðasti
eftirlifandi meðlimur þessa eins
vinsælasta kvartetts djasssög-
unnar.
Wright lék með mörgum öðrum
kunnum djassleikurum en er þekkt-
astur fyrir leikinn í kvartett Bru-
becks á árunum 1958 til 1968 en
auk þeirra Brubecks voru í honum
Paul Desmond á altsaxófón og Joe
Morello á trommur. Kvartettinn
hljóðritaði um 30 plötur á þessum
áratug og meðal annars hin klass-
ísku lög „Take Five“ og „Blue
Rondo à la Turk“. Wright var eini
svarti meðlimurinn og er frægt að
Brubeck neitaði ítrekað að leika án
Wrights í suðurríkjum Bandaríkj-
anna þegar tónleikahaldarar þar
vildu ekki sjá svartan mann leika
með hvítum.
Wright fæddist í Chicago og lék
fyrst á kornett, en hann skipti yfir í
bassann og lék meðal annars í
hljómsveitum Counts Basies og
Errolls Garners, og með Billie Holi-
day og Charlie Parker áður en
hann gekk í kvartett Brubecks.
Wright bassaleikari Brubecks allur
Félagar Eugene Wright og Dave Brubeck
bera saman bækur sínar við flygilinn.
Bandaríska kvikmyndagerðar-
konan Joan Micklin Silver er látin,
85 ára að aldri. Silver ruddi braut-
ina fyrir konur í kvikmyndagerð í
Bandaríkjunum með kvikmynd
sinni Hester Street frá árinu 1975
en í henni segir af fjölskyldu inn-
flytjenda af gyðingaættum á Man-
hattan á tíunda áratug 19. aldar.
Höfnuðu mörg kvikmyndaver
myndinni þar sem hún þótti of
„þjóðfræðileg“ og einnig vegna
kyns hins væntanlega leikstjóra.
Fór svo að Silver gerði myndina
með fjármögnun eiginmanns síns.
Þrátt fyrir óskarstilnefningu aðal-
leikkonunnar og
meira en tífaldan
gróða miðað við
framleiðslukostn-
að vildu fram-
leiðendur ekki
heldur fjár-
magna næstu
mynd Silver,
Crossing De-
lancey, en þó
kom Steven
Spielberg henni til aðstoðar og
Warner framleiddi á endanum.
Skilaði sú mynd margföldum
tekjum umfram kostnað.
Joan Micklin Silver látin
Joan Micklin
Silver
Bandaríski rapparinn og plötu-
útgefandinn Daniel Dumile, þekkt-
ur undir listamannsnafni sínu MF
Doom, er látinn, 49 ára að aldri.
Dumile lést 31. október en ekki var
greint frá andlátinu fyrr en nú um
áramót. Ekki hefur verið greint
frá dánarorsök en eiginkona Dumi-
les, Jasmine, greindi frá andláti
hans á Instagram. Dumile var
breskur að uppruna en flutti á
barnsaldri með fjölskyldu sinni til
Long Island í Bandaríkjunum.
Hann hóf að koma fram með and-
litið hulið á tíunda áratugnum í
Nuyorican Poets’
Cafe á Manhatt-
an og árið 1999
kom út fyrsta
plata hliðarsjálfs
hans MF Doom.
Upp frá því kom
Dumile alltaf
fram með grímu
sem líktist þeirri
sem Doctor
Doom, eitt ill-
menna Marvel, ber á andlitinu.
Naut hann mikillar virðingar og
vinsælda í heimi hipphopptónlistar.
Rapparinn MF Doom, Daniel Dumile, allur
MF Doom/ Daniel
Dumile
Gerry Marsden, leiðtogi Liverpool-
hljómsveitarinnar Gerry and the
Pacemakers, er látinn, 78 ára að
aldri. Marsden var samstiga sveit-
ungum sínum og félögum í Bítlunum
út á frægðarbrautina en þekktustu
lög Gerry and the Pacemakers eru
„Ferry Cross the Mersey“ og „You’ll
Never Walk Alone“, hinn víðfrægi
einkennissöngur Liverpool-
knattspyrnuliðsins.
Um og upp úr 1960 komu Gerry
and the Pacemakers oft fram með
Bítlunum en Brian Epstein var um-
boðsmaður beggja hljómsveita.
Sveitirnar léku til að mynda sam-
tímis í fjóra mánuði í Hamborg síðla
árs 1960. Marsden átti eftir að rifja
upp í viðtölum að meðlimir hljóm-
sveitanna tveggja hefðu þá skemmt
sér vel saman.
The Pacemakers komu fyrstu
þremur smáskífunum sem sveitin
sendi frá sér, árið 1963, öllum á topp
breska vinsældalistans: „How Do
You Do It?“ – sem Bítlarnir hljóðrit-
uðu fyrst árið 1962 en ákváðu að
gefa ekki út, „I Like It“ og „You’ll
Never Walk Alone“. Það síðast-
nefnda er lag eftir Rodgers &
Hammerstein úr söngleiknum
Carousel. Lagið var einkennis-
söngur Liverpool-liðsins, er sungið
fyrir alla heimaleiki þess og félagið
tísti að söngur Gerrys myndi lifa að
eilífu með aðdáendum fótbolta-
liðsins.
Sir Paul McCartney minntist síns
gamla félaga með twitter-færslu og
sagði þá hafa verið vini í Liverpool í
gamla daga en hljómsveit Gerrys
hafi líka veitt þeim í Bítlunum mestu
samkeppnina í heimabænum. Segir
McCartney flutning Gerrys á hans
vinsælustu lögum lifa í hjarta fólks
sem minning um gleðitíma í breskri
tónlist. Og Ringo Starr minntist
Marsdens líka og bað honum Guðs
blessunar.
Gerry í The
Pacemakers látinn
Leiddi afar vinsæla Liverpool-sveit
AFP
Liverpool-hetja Gerry Marsden
hampaði OBE-orðu árið 2003.