Morgunblaðið - 05.01.2021, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2021
Á árunum 1962 til 1974 reis í ind-
versku borginni Ahmedabad í Guj-
arat-ríki umfangsmikill nýr bygg-
ingakjarni viðskiptaháskólans
Indian Institute of Management
(IIMA), hannaður af bandaríska
stjörnuarkitektinum Louis Kahn
(1901-1974). Kahn var einn kunnasti
þeirra arkitekta sem á 20. öldinni
voru kenndir við brútalisma og
byggingarnar í Ahmedabad eru
meðal hans þekktustu; margir
áhugamenn um byggingarlist leggja
leið sína sérstaklega þangað að
skoða frægar opinberar byggingar
eftir Kahn og Le Corbusier.
Í síðasta mánuði fréttist að stjórn
IIMA-háskólans hygðist brjóta nið-
ur 14 af 18 þeim byggingum Kahns
sem mynda stúdentagarða skólans
og reisa nýjar. Ástæðan væri eink-
um sú að byggingarnar hefðu
skemmst í hinum kröftuga og mann-
skæða jarðskjálfta sem reið yfir Guj-
arat árið 2001. Auk þess hefðu þær
ekki verið byggðar úr nógu góðum
efnum og væru farnar að molna
bæði niður og leka.
Áætlunum skólastjórnenda var
mótmælt harðlega. Margir virtustu
arkitektar samtímans undirrituðu
áskorun þess efnis að hætt yrði við
niðurrif merkra bygginganna; um
600 arkitektar frá 30 löndum rituðu
undir eitt mótmælaskjalið. Þá tóku
börn arkitektsins undir mótmælin.
Um helgina tilkynntu yfirvöld
skólans að þau tækju mark á mót-
mælunum og myndu skoða aðrar
leiðir og reyna að gera við bygging-
arnar, en ástand þeirra væri nú
þannig að erfitt væri að bjóða nem-
endum upp á að dvelja í þeim.
„Þetta eru einhverjar best hönn-
uðu byggingar síns tíma, og í raun
allra tíma,“ skrifaði byggingarlistar-
fræðingurinn William Curtis í tíma-
ritið Architectural Review eftir að
hann heyrði af fyrirhugaðri eyði-
leggingu bygginganna.
„Byggingarnar eru minnisvarði
sem tilheyrir Indlandi og heiminum
öllum,“ skrifaði hann og sagði um að
ræða listrænt sköpunarverk í hæsta
gæðaflokki.
Meðal annarra frægra bygginga
Kahns eru þinghúsið í Bangladess,
Kimbell-listasafnið í Texas, Lista-
safn Yale-háskóla, Phillips Exeter-
bókasafnið í New Hampshire og
First Unitarian Church í Rochester.
Ljósmynd/Wikimedia Commons
Skólabyggingarnar Í mótmælaskjali sem um 600 arkitektar skrifuðu undir var fyrirhugað niðurrif 14 bygginga
hannaðra af Louis Kahn sagt vera „menningarlegt skemmdarverk“. Hætt hefur verið við niðurrifið.
louiskahn.org/Arne Maasik
Formleikur Bogadregin form og hringir einkenna byggingar Kahns.
Hugðust brjóta niður hús Kahns
Nýtt útilistarverk sem brasilísk
myndlistarkona, Juliana Notari, hef-
ur mótað í grösugri brekku í skúlp-
túrgarði úti í sveit þar í landi hefur
vakið umtal og deilur. Verkið kallar
Notari „Diva“ og er það 33 metra
löng kvenmannssköp, gerð úr stein-
steypu klæddri vínylefni, og tók
gerð verksins ellefu mánuði.
Samkvæmt frétt The Guardian
var verk Notari frumsýnt á laugar-
daginn var í skúlptúrgarðinum sem
er á landareign fyrrum sykurverk-
smiðju í héraðinu Pernambuco þar
sem mikill áhugi er á menningu og
listum. Verkið hefur þegar vakið
miklar deilur í fjölmiðlum og sam-
félagsmiðlum þar sem annars vegar
hægrisinnaðir stuðningmenn Bol-
sonaros forseta og hins vegar stuðn-
ingsmenn menningar og lista takast
á en fyrrnefndu eru sagðir finna
verkinu allt til foráttu.
Í Facebook-pósti útskýrir lista-
konan Juliana Notari verkið og segir
markmiðið með þessari píku í fjalls-
hlíðinni að velta vöngum yfir sam-
bandi náttúru og menningar í mann-
hverfu og karllægu vestrænu
samfélagi og taka þátt í umræðunni
um kynjamyndir í nútímanum. Bæt-
ir hún við að umræðuefnið sé sér-
staklega mikilvægt nú og virðist þar,
samkvæmt The Guardian, vísa í
minnkandi umburðarlyndi í Brasilíu
undir stjórn Bolsonaros.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa
og munu þúsundir harðorðra, og
margra orðljótra, umsagna hafa ver-
ið skráðar á Facebook-síðu Notaris.
Ljósmynd/Juliana Notari
Náttúrulegt „Díva“ listakonunnar Juliönu Notaris er 33 metra langt verk.
Deilt um skapaverk
í brasilískri brekku
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
FRÁBÆR NÝ JÓLA TEIKNIMYND
JÓLAMYNDIN 2020