Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021
Í Viðskiptamogganum í gær varathyglisverð umfjöllun um
Hafnartorg og aukna sölu þar árið
2020 frá fyrra ári.
Sagt var frá 75%
söluaukningu á milli
ára í desember hjá
verslun Collections
en einnig var mjög
athyglisvert að lesa
um reynslu Franks
Michelsen úr-
smíðameistara, sem flutti sig frá
Laugavegi á Hafnartorg og segir
þá ákvörðun þá bestu sem tekin
hafi verið í 110 ára sögu fyrir-
tækisins.
Hann segir að eftir að versluninflutti hafi allt gjörbreyst.
„Það er svo mikilvægt að hafa óheft
aðgengi að versluninni og að þar sé
bílakjallari. Það er mjög auðvelt að
aka að versluninni. Íslendingar eru
okkar markhópur og okkar við-
skiptavinir og þeir voru hættir að
koma á Laugaveginn. Voru búnir
að gefast upp. Síðasti naglinn í lík-
kistu Laugavegar var þegar þeir
sneru umferðinni við frá Klapp-
arstíg upp að Frakkastíg,“ segir
Frank.
Fyrir borgaryfirvöld hlýturþetta að vera mjög umhugs-
unarvert. Það er auðvitað gott að
verslunareigendur séu ánægðir á
Hafnartorgi en það er afleitt að
þeir þurfi að flýja af Laugaveginum
vegna þess að búið er að flæma Ís-
lendinga þaðan með lokunum, með
því að snúa við umferð og með því
að fækka bílastæðum stórlega.
Þó að borgaryfirvöldum sé í nöpvið bíla er landsmönnum og
borgarbúum það ekki. Bíllinn er sá
fararskjóti sem langflestir nýta,
ekki síst þegar þeir fara í verslanir.
Verslanir gætu þrifist á Laugaveg-
inum eins og víða annars staðar, en
þær gera það ekki ef aðgengi að
þeim er hindrað með skipulegum
hætti.
Frank Michelsen
Síðasti naglinn
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Mörkin 6 - 108 Rvk.
s:781-5100
Opið: 11-18 virka daga
og 11-15 laugardaga.
www.spennandi-fashion.is
ÚTSALA!
30-40% AFSLÁTTUR
Jakob Magnússon,
fyrrverandi aðstoð-
arforstjóri Hafrann-
sóknastofnunar, lést á
Hrafnistu í Hafnar-
firði á nýársdag, 94
ára að aldri.
Jakob var fæddur á
Tálknafirði 26. júlí
1926 og voru for-
eldrar hans hjónin
Björg Guðmunds-
dóttir (1885-1962) og
Magnús Pétursson,
bóndi og sjómaður
(1884-1970). Jakob
lauk stúdentsprófi frá
Verzlunarskóla Íslands árið 1948.
Eftir það nam hann dýrafræði við
Óslóarháskóla, fór svo til frekara
náms í fiskifræði við háskólann í
Kiel í Þýskalandi og lauk dokt-
orsprófi þaðan árið 1955. Síðar átti
Jakob svo eftir að taka þátt í ýms-
um námskeiðum og rannsóknum
víða um lönd, einkum á karfastofn-
inum.
Á árunum 1955-1965 var Jakob
fiskifræðingur hjá Atvinnudeild
Háskóla Íslands. Var svo um fjög-
urra ára skeið starfandi á Fillips-
eyjum hjá FAO, Matvælastofnun
Sameinuðu þjóðanna, það er frá
1965-1969. Eftir það og til ársins
1971 var hann yfir-
fiskifræðingur hjá
FAO í Mið-Ameríku.
Talsvert löngu síðar
fór Jakob svo tíma-
bundið til starfa við
þróunarhjálp á veg-
um Íslendinga á
Grænhöfðaeyjum og
síðar í Gíneu-Bissaú.
Árið 1971 kom Jak-
ob til starfa hjá Haf-
rannsóknastofnun;
var deildastjóri þar
til 1978 og aðstoð-
arforstjóri eftir það
til starfsloka árið
1996. Auk þessa gegndi Jakob
margvíslegum félags- og trún-
aðarstörfum á sviði hafrannsókna
og sjávarútvegsmála og skrifaði
fjölda greina í blöð og tímarit um
málefni á vísindasviði sínu. Ridd-
arakross hinnar íslensku fálkaorðu
fékk Jakob árið 1980.
Eftirlifandi eiginkona Jakobs er
Vilhelmína Vilhelmsdóttir frá
Þýskalandi, fædd árið 1929. Þau
eiga þrjú börn; Vilhjálm, Sigríði og
Klöru Björg. Barnabörnin eru sex
talsins.
Útför Jakobs verður gerð frá
Kópavogskirkju næstkomandi mið-
vikudag, 13. janúar, kl. 15.
Andlát
Jakob Magnússon
fiskifræðingur
Baldvin Már Hermannsson, for-
stjóri flugfélagsins Atlanta, segir í
samtali við ViðskiptaMoggann að
allt stefni í að fyrirtækið skili já-
kvæðri afkomu fyrir árið 2020. „Það
stefnir í að við munum loka árinu
réttum megin við núllið, sem í okkar
starfsumhverfi er ekkert annað en
stórkostlegt afrek,“ segir Baldvin
Már, og vísar þar
í hinar afar krefj-
andi aðstæður
sem flugfélög um
allan heim lentu í
eftir að kórónu-
veirufaraldurinn
brast á snemma
á síðasta ári.
Hann segir
niðurstöðuna
sýna að flugfélagið sé ekki bara
flugvélar, heldur líka starfsfólkið.
„Fólkið okkar sýndi gífurlegan
dugnað, útsjónarsemi og sveigjan-
leika og okkur tókst á mettíma að
laga okkur að gjörbreyttum veru-
leika.“
Náðu metnýtingu í fraktinni
Baldvin Már segir að farþega-
tekjur flugfélagins á síðasta ári séu
um 75% undir því sem gert var ráð
fyrir fyrirfram, en fyrirtækið hefur
síðustu tvo áratugi sinnt pílagríma-
flugi með bækistöðvar í Sádi-Arab-
íu. „Þetta tókst okkur að vinna upp
með endurskipulagningu og veru-
legum aðhaldsaðgerðum. Við náðum
að bæta tveimur fraktvélum við flot-
ann og tókst á örskömmum tíma að
breyta félaginu í fraktflugfélag. Þá
náðum við metnýtingu á þær vélar
frá og með september sl.“
Varðandi árið framundan segir
Baldvin Már aðspurður að ekkert
farþegaflug sé í vændum, allir við-
skiptavinir bíði og sjái hver þróunin
verður með bóluefni við Covid-19.
Stórkostlegt af-
rek segir forstjórinn
Baldvin Már
Hermannsson
Hagnaður hjá Atlanta 2020