Morgunblaðið - 12.01.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.01.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 2021 Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is „Veist þúað skilgreining áhitabreytist eftir aldri? ThermoScan7eyrnahita- mælirinnminnveit það.“ BraunThermoScan eyrnahitamælar fást í öllum lyfjaverslunum ThermoScan® 7 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta er örlítil fjölgun en það eru alltaf sveiflur í þessum tölum,“ segir Anna Sigríður Vernharðsdóttir, yfir- ljósmóðir á fæðingarvakt Landspít- alans. Á liðnu ári fjölgaði fæðingum á Landspítalanum um 2,7% frá 2019. Fæðingar á Landspítala voru alls 3.292 árið 2020 en fædd börn voru 3.341. Á síðasta ári voru fram- kvæmdir 593 keisaraskurðir á spít- alanum. Anna Sigríður segir að kórónu- veiran hafi vitanlega sett strik í reikninginn við starfsemi á fæðing- arvaktinni. „Það var aðallega erfitt fyrir konurnar að geta ekki haft stuðningsaðila hjá sér í eins langan tíma og venjulega. Þetta var þó ásættanlegt fyrir langflesta.“ Hún segir að tilvonandi mæður hafi farið sérstaklega varlega þegar leið að fæðingum og margar farið í sjálfskipaða sóttkví. „Hins vegar hafa ófrískar konur alveg fengið Covid og það hafa nokkrar veikar konur komið inn til að fæða hjá okkur. Við vorum undir það búnar og viðhöfðum þær varúðarráðstafanir sem til þurfti. Það gekk allt saman ágætlega.“ Fæðingum fjölgaði á Landspítala á erfiðu ári  Fjölgun um 2,7% milli ára  Covid-smitaðar ólu börn Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Nýburi Fleiri börn fæddust í fyrra. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Síðasta ár var erfitt í rekstri Slipps- ins á Akureyri og háði verkefna- skortur starfseminni seinustu þrjá mánuði ársins. Heldur hefur ræst úr og nú eru frystitogarinn Blængur frá Neskaupstað og Masilik, 52 metra togari frá Royal Greenland, í slipp á Akureyri. Eiríkur S. Jó- hannsson, framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri, segir að verk- efnastaðan sé þokkaleg á næstunni, en fyrirtækið geti þó bætt við sig fleiri verkefnum. Alls starfa um 160 manns hjá fyrirtækinu. Endurnýjun skipa og fækkun Eiríkur segir að stóra myndin sé sú að skipaflotinn við Norður-Atl- antshaf hafi á undanförnum árum gengið í gegnum mikla endurnýjun samhliða mikilli fækkun, en hagræð- ing og hagkvæmni felist m.a. í því að gera út nýrri og færri skip. „Með nýrri og færri skipum fækkar hefð- bundnum viðhaldsverkefnum og við og aðrir sem erum í þessari grein þurfum að finna önnur verkefni eða nýjar stoðir undir reksturinn. Hér var verkefnaskortur í lok síð- asta árs og ekkert skip tekið upp í flotkví í um þrjá mánuði, en slíkt hefur ekki gerst hér í mjög langan tíma. Miðað við fækkun skipa má búast við að svona staða komi oftar upp meðan viðhaldsstöðvar í landinu eru eins margar og raun ber vitni,“ segir Eiríkur. Hann segir að auk innlendra verkefna hafi mörg skip frá Kanada, Grænlandi og Rússlandi fengið við- hald í Slippnum á Akureyri. Þegar krónan sé veik fjölgi þessum verk- efnum, en fækki þegar hún styrkist. Þá hafi mikill kostnaðarauki hér innanlands haft í för með sér að samkeppnishæfni íslenskra við- haldsstöðva versni gagnvart erlend- um keppinautum. Einnig hafi kórónuveirufaraldurinn haft aukin neikvæð áhrif á komur erlendra skipa til viðhalds hér þar sem er- lendir jafnt sem innlendir útgerð- armenn hafi frestað viðhaldsverk- efnum og lagt meiri áherslu á að halda skipum á sjó. Eiríkur fór yfir þessa stöðu og stöðu innlends skipasmíðaiðnaðar á fundi með bæjarráði Akureyrar í síðustu viku. Bæjarráð vildi fá upp- lýsingar um stöðu mála á þessum stóra vinnustað á Akureyri og nán- ari upplýsingar í framhaldi af grein sem Eiríkur skrifaði ásamt þeim Bjarna Thoroddsen, framkvæmda- stjóra Stálsmiðjunnar-Framtaks ehf., og Eiríki Ormi Víglundssyni, framkvæmdastjóra Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf., og birtist á visir.is um miðjan desember. Óska eftir fundi með ráðherra Í upphafi greinarinnar segir: „Við aðra umræðu fjárlagafrumvarpsins var samþykkt breyting á frumvarp- inu sem felur í sér 350 milljóna króna fjárframlag til uppbyggingar varnargarða í Njarðvíkurhöfn. Um er að ræða óþarfan og lítt dulbúinn ríkisstyrk til eins fyrirtækis, Skipa- smíðastöðvar Njarðvíkur, sem skap- ar hættulegt fordæmi. Þingmenn virðast ekki gera sér grein fyrir hvaða áhrif svona inngrip ríkisvalds- ins getur haft fyrir samkeppni á markaði fyrir skipaþjónustu í land- inu.“ Í samtali segir Eiríkur að í ljósi þess að verkefnum muni fækka í greininni sé eðlilegt að spurt sé hvernig það gangi upp að fjölga við- haldsstöðvum og það með beinni að- komu ríkisvaldsins. Fram kemur í fundargerð bæjarráðs Akureyrar að ráðið fól bæjarstjóra að óska eftir fundi með samgöngu- og sveitar- stjórnarráðherra um málið. Hefðbundnum verkefnum fækkar  Erfitt ár að baki í Slippnum á Akureyri  Verkefnastaðan nú þokkaleg  Þörf á nýjum stoðum Morgunblaðið/Margrét Þóra Slippurinn á Akureyri Blængur NK í flotkvínni, en auk íslenskra skipa hafa skip frá Grænlandi, Kanada og Rússlandi verið tíðir gestir þar. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra vill hvetja ungt fólk til að láta til sín taka í þjóðfélag- inu, en í því skyni hefur hún sett af stað viðtalaröðina Fimmtán mínútur með framúrskarandi fólki á Insta- gram. Fyrsta viðtalið verður við Ernu Solberg, forsætisráðherra Norðmanna, og verður þessi fyrsta útsending á fimmtudag kl. 14.00. „Erna Solberg byrjaði sjálf í póli- tík aðeins 18 ára og var kjörin á þing 28 ára,“ segir Áslaug Arna. „Það verður gaman að heyra frá henni af hverju hún einhenti sér í stjórn- málin, hvaða ráð hún gæfi ungu fólki í dag og hvernig hún sér fyrir sér líf- ið og áskoranirnar eftir Covid.“ Sjálf þekkir Áslaug Arna vel hvernig ungt fólk getur beitt sér, en hún varð nýlega þrítug. „Þegar ég bauð mig fyrst fram ítrekaði ég mik- ilvægi þess að ungt fólk væri óhrætt við áskor- anir. Hugmyndin með þessum út- sendingum á Instagram er að læra af reynslu þessa fólks og hvetja ungt fólk til dáða.“ Áslaug Arna kveðst ekki aðeins ætla að tala við stjórnmálafólk í útsendingunum. „Ég ætla að tala við alls konar fólk sem hefur náð árangri eða tekist á við stórar áskoranir.“ Meðal annarra fyrirhugaðra viðmælenda nefnir hún crossfitstjörnuna Katrínu Tönju en útsendingar verða aðra hverja viku. Áslaugu Örnu má finna á Instagram undir notandanafninu @aslaugarna. Áslaug Arna með Solberg í viðtali  Með framúrskarandi fólk á Instagram Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Andrés Magnússon Viðar Guðjónsson Lilja Alfreðsdóttir menningarmála- ráðherra segir brotthvarf fréttastofu Stöðvar 2 úr opinni dagskrá slæmt fyrir samkeppni á ljósvakamarkaði. Skynsamlegast sé að taka Rúv. af auglýsingamarkaði, en ráðherra tel- ur að fyrst þurfi að samþykkja fjöl- miðlafrumvarp sitt um styrki til einkarekinna miðla. Í gær greindi Þórhallur Gunnars- son, framkvæmdastjóri miðla hjá Sýn, frá því að frá og með 18. janúar yrði öll dagskrá Stöðvar 2 læst og að- eins aðgengileg áskrifendum, fréttir og fréttatengt efni þar með talið. Lilja segir ljóst að rekstrar- umhverfið þurfi að vera einkareknum miðlum hagfelldara. „Það þarf að ná pólitískri sátt um stöðu Rúv. á aug- lýsingamarkaði. Ég hef sagt að ég vilji hafa fjölmiðlaumhverfið og aug- lýsingaumhverfið eins og það er ann- ars staðar á Norðurlöndum,“ segir Lilja. Vill klára fjölmiðlafrumvarpið „Við þurfum að klára fjölmiðla- frumvarpið og ég hef sagt að ég vilji ganga lengra gagnvart stöðu Rúv. á markaði þótt það sé ekki tilgreint í þessu frumvarpi. Ég tel það styrkja stöðu Rúv. að ekki sé verið að deila um stöðu þess á auglýsingamarkaði.“ Í flestum norrænu landanna er jafnan einn ríkisrekinn miðill sem ekki er á auglýsingamarkaði, einka- reknir fjölmiðlar fá einnig ríkisstyrki. Með því móti, að eftirláta frjálsu miðlunum auglýsingamarkaðinn og veita þeim jafnframt styrki, væri rekstrargrundvöllur þeirra að líkind- um mun styrkari. Lilja segir þá afstöðu sína hafa leg- ið ljósa fyrir. „Það hefur hins vegar verið vilji þingsins að hafa hlutina með þessum hætti. Ég tel að nú séu breyttir tímar og að við eigum að klára þetta fjölmiðlafrumvarp.“ Það sé gott fyrsta skref að ganga frá styrkjum til einkamiðlanna, en hún telur að ef fjölmiðlafrumvarp hennar hefði fengið brautargengi í þinginu væri Stöð 2 ekki í þessari stöðu. Lilja vill fá styrkina fyrst  Fréttir Stöðvar 2 í læsta dagskrá  Samkeppni minnkar  Segir skynsamlegast að Rúv. fari af auglýsingamarkaði Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjölmiðlar Lilja vill styrkina áður en Rúv. fer af auglýsingamarkaði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.