Morgunblaðið - 12.01.2021, Side 6

Morgunblaðið - 12.01.2021, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 2021 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Kirkjugarðasamband Íslands (KGSÍ) og kirkjugarðaráð segja í umsögnum um frumvarp Bryndísar Haraldsdóttur o.fl. um aukið frelsi í varðveislu eða dreifingu ösku látinna að í undirbúningi sé að breyta lögum um kirkjugarða, greftrun og lík- brennslu. Rétt sé að ljúka heildar- endurskoðun á þeim lögum og ræða í því sambandi hvort rýmka eigi heim- ildir um dreifingu ösku látinna. Engar kvartanir hafa borist Kirkjugarðaráð, sem hefur yfir- umsjón með kirkjugörðum landsins, bendir m.a. á það að frumvarpið virðist ekki gera ráð fyrir því að slík dreifing ösku geti stangast á við önnur lög, t.d. um hollustuhætti. Ekki verði annað ráðið af frumvarp- inu en að hægt verði að geyma ösku látinna og/eða dreifa henni hvar sem er án takmarkana. Þá bendir kirkjugarðaráð á að öskudreifing hafi verið samykkt á Alþingi 8. apríl 2002. Kirkjugarðaráði hafi ekki bor- ist kvartanir vegna núverandi fyrir- komulags öskudreifingar og því telji ráðið ekki brýna nauðsyn á að rýmka heimildir um dreifingu ösku að svo stöddu. Ófyrirséðar afleiðingar Kirkjugarðasamband Íslands tel- ur „breytingarnar sem frumvarpið boðar varhugaverðar og að þær geti falið í sér ófyrirséðar og óæskilegar afleiðingar“. Það bendir m.a. á varð- andi tillögu um breytingar á varð- veislu eða dreifingu ösku látinna að ekki virðist gert ráð fyrir því að nöfn hinna látnu verði færð í legstaðaskrá eða að skráð verði grafarnúmer eða staðfesting sem hægt verði að vísa til vilji síðari kynslóðir kynna sér hvar jarðneskum leifum tiltekins einstaklings var fyrir komið. KGSÍ segir að forsvarsmenn kirkjugarða í Danmörku nefni það sem eitt helsta umkvörtunarefnið við dreifingu ösku látinna þar í landi að aðstandendur séu ekki allir sáttir og iðrist þess að ösku ástvina hafi verið dreift og þannig ekki hægt að vitja þeirra á ákveðnum stað. KGSÍ segir að svo virðist sem al- menn sátt ríki um núverandi lög og framkvæmd þessara mála. Hvorki hafi borist bréf, tölvupóstar né sím- töl um nauðsyn þess að rýmka heim- ildir um dreifingu ösku eða gera breytingar á skipulagi jarðsetninga í kirkjugarði. KGSÍ sendi fyrirspurn til systurstofnana á Norðurlöndum og í ljós kom að „hvergi hefur verið gengið eins langt í að slaka á reglu- verkinu og þetta frumvarp leggur til að gert verði hér á landi“. KGSÍ segir að á rúmum sautján árum frá því að öskudreifing var samþykkt hafi um 133 skráningar um öskudreifingu borist eða 7,4 beiðnir á ári. Á tímabilinu létust 35.956 og var öskudreifing 0,37% af heild. Frá síðustu aldamótum hefur hlutfall bálfara aukist mikið. Þær voru um 43,7% allra útfara árið 2019. Kirkjugarðar á móti öskufrumvarpi  Engar kvartanir hafa borist vegna reglna um dreifingu ösku látinna  Hvergi á Norðurlöndum hefur verið gengið jafn langt í að slaka á regluverkinu og lagt er til í frumvarpi að verði gert hér á landi Morgunblaðið/Þórður Aska Eina bálstofa landsins er í Fossvogi. Þar bíða oft duftker greftrunar. Straumar norðurljósa svifu með til- þrifum á næturhimni um helgina. Myndasmiðir fóru á stjá, margir til dæmis á Suðurnesin, þar sem skyggni var ágætt. Óðinn Yngvason ljósmynd- ari í Hafnarfirði var þar syðra aðfara- nótt mánudags við annan mann og á leið í bæinn stoppuðu þeir hjá Straumi og náðu myndum þar. „Norðurljósamyndatökur eru áskor- un, en útkoman getur þegar best tekst til verið mikillar vinnu virði,“ segir Óð- inn sem hefur fengist við myndatökur frá barnsaldri. Ljósmyndin af Straumi var tekin með 20 mm linsu á löngum tíma og ljósnæmi myndavélarinnar, sem var Nikon D810, var 800 ISO. Lítil virkni verður á norðurljósum himinsins allra næstu daga. Lang- tímaspár gera hins vegar ráð fyrir að fjör færist í leikinn næsta sunnudag en þá og fram í vikuna verði sólgos og kórónuskvettur í öllu sínu veldi svo eft- irtekt veki um veröld víða. sbs@mbl.is Straumar á næturhimni Ljósmynd/Óðinn Ingvason Norðurljós Græn ljósblika á himinhvolfinu þegar horft var frá Straumsvík til suðvesturs þar sem hið svipsterka og fallega hús í Straumi var í forgrunni. Settur umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir því að heilbrigðisráðu- neytið hlutist til um að Landspítali láti honum í té almennar upplýsingar um atvik sem varð á réttargeðdeild á jóladag, þar sem ungur maður á sjálfsvígsgát svipti sig lífi. Þetta kemur fram í bréfi sem um- boðsmaður skrifaði heilbrigðisráð- herra, dómsmálaráðherra og félags- og barnamálaráðherra 6. janúar m.a. vegna frétta af sjálfsvígum frelsis- svipts fólks svo sem fanga sem af- plána dóma í fangelsum landsins. Hann óskar eftir því að ráðuneytin sjái til þess, hvert um sig, að stofn- anir sem heyra undir þau og hýsa frelsissvipta einstaklinga „tilkynni umboðsmanni að eigin frumkvæði um alvarleg atvik sem þar eiga sér stað. með alvarlegum atvikum er þá sem fyrr átt við dauðsföll, sjálfsvíg, sjálfsvígstilraunir og alvarlega sjálfsskaðandi hegðun.“ Þess er ósk- að að alvarleg atvik af þessum toga verði tilkynnt umboðsmanni eins fljótt og auðið er, óháð því hvort rannsókn eða athugun viðkomandi stjórnvalds telst lokið. Umboðsmaður Alþingis hefur frá árinu 2018 haft með höndum svo- nefnd OPCAT-eftirlit með stöðum þar sem dvelja einstaklingar er eru eða kunna að vera sviptir frelsi sínu. Eftirlitið miðar að því að koma í veg fyrir að pyndingar eða önnur grimmileg eða vanvirðandi meðferð viðgangist. Þeir staðir sem eftirlitið nær til gætu verið um 200 talsins hér miðað við viðmið í nágrannalöndum. Þ.á m. eru fangelsi, lögreglustöðvar, vistunarúrræði á vegum barna- verndaryfirvalda og fyrir fólk með geðraskanir eða geðfatlanir, dvalar- og hjúkrunarheimili, sambýli og önnur búsetuúrræði. Umboðsmaður hefur þegar farið í nokkrar eftirlits- heimsóknir. gudni@mbl.is Vill upplýsingar um alvarleg atvik  Eftirlit með frelsissviptingu fólks Morgunblaðið/Eggert Eftirlit Umboðsmaður hefur m.a. farið í eftirlitsheimsóknir í fangelsi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.