Morgunblaðið - 12.01.2021, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 2021
Það er skrýtið hve ofstækið gegnÍsraelsríki og ofurástin á Evr-
ópusambandinu geta blindað mönn-
um sýn. Hannes Hólmsteinn
Gissurarson svarar á
blog.is Guðmundi
Andra Thorssyni,
þingmanni Samfylk-
ingarinnar, sem skrif-
aði á Facebook: „Víða
sér maður fólk
dásama Ísraelsríki
fyrir góða frammi-
stöðu við að bólusetja
sitt fólk. Sitt fólk.
Bara sitt fólk.
Palestínuþjóðin á
herteknu svæðunum
fær ekkert. Sjaldan
hefur maður séð jafn
svart á hvítu það
ranglæti sem þetta ríki er reist á.“
Svar Hannesar var þetta: „Þessi færsla lýsir miklum
misskilningi. Það er hlutverk ríkis að
láta borgara sína hafa forgang um
þau gæði, sem það getur úthlutað.
Annars væri það tilgangslaust. Og
Palestínumenn hafa sína stjórn, sem
flýtur í gjafafé frá útlöndum, en því
miður fer það mestallt í spillta stjórn-
málamenn þar. Sú stjórn hefði átt að
útvega Palestínumönnum bóluefni.
Þetta er mælskubrella hjá þér til að
leiða athyglina frá því, að heilbrigð-
isráðherra (gamall samherji þinn í
Icesave-málinu) gætti hagsmuna Ís-
lendinga ekki nógu vel og að í ljós er
komið, að ESB, sem þú hefur ofurtrú
á, hefur ekki ráð undir hverju rifi.“
Flestum er orðið ljóst að Evrópu-sambandið klúðraði pöntunum
á bóluefni sem það tók að sér fyrir
aðildarríkin og Ísland, sem hengdi
sig, að því er virðist hugsunarlaust
og án annarra ráðstafana, aftan í
þessa misheppnuðu aðgerð.
Það hlýtur að fara að líða að því aðráðherrann viðurkenni mistök-
in. Oftast er það fyrsta skrefið í þá
átt að bæta ráð sitt.
Hannes H.
Gissurarson
Þingmaður snýr
hlutum á haus
STAKSTEINAR
Guðmundur
Andri Thorsson
Ríkissjóður hefur gengið frá kaupum
á fasteigninni Hótel Gíg á Skútustöð-
um í Mývatnssveit. Með því er fengin
niðurstaða um framtíðaraðstöðu fyrir
meginstarfsstöð Vatnajökulsþjóð-
garðs á norðausturlandi og starfsað-
stöðu annarra stofnana umhverfis- og
auðlindaráðuneytisins í Mývatns-
sveit, sem eru Umhverfisstofnun,
Landgræðslan og Rannsóknastöðin
við Mývatn, að því er fram kemur á
vef ráðuneytisins.
Undirbúningur kaupanna hefur
staðið um hríð, meðal annars í nánu
samstarfi við Skútustaðahrepp. Það
var niðurstaðan að kaup á eldra hús-
næði og endurbætur þess væru hag-
stæður kostur fyrir ríkissjóð og sköp-
uðu fjölmörg tækifæri í Mývatnssveit,
segir á heimasíðunni. Sveitarfélagið
er með áform um að nýta hluta af hús-
næðinu undir atvinnuskapandi ný-
sköpun og þekkingarsetur.
Í lögum um Vatnajökulsþjóðgarð
er kveðið á um lögbundin áform rík-
isins um að halda úti sex meginstarfs-
stöðvum þjóðgarðsins sem mynda
þjónustunet. Þegar hafa starfsstöðv-
ar í Ásbyrgi, Skaftafelli, á Skriðu-
klaustri og Hornafirði verið settar á
laggirnar, bygging starfsstöðvar á
Kirkjubæjarklaustri er hafin og
sjötta meginstarfsstöðin verður á
Skútustöðum.
Sjötta starfsstöðin á Skútustöðum
Ríkissjóður
kaupir Hótel Gíg
Hótel Gígur Margvísleg starfsemi verður þar á sviði umhverfismála.
Réttur helmingur þeirra fyrirtækja
sem eru með 150 til 249 starfsmenn
hefur nú öðlast jafnlaunavottun.
Samkvæmt lögunum um innleiðingu
jafnlaunavottunar áttu fyrirtæki og
stofnanir þar sem 150-249 manns
starfa að jafnaði á ársgrundvelli að
hafa fengið jafnlaunavottun í síðasta
lagi 31. desember síðastliðinn. Sam-
kvæmt upplýsingum Katrínar
Bjargar Ríkharðsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Jafnréttisstofu, var
staðan um nýliðin áramót sú að af 64
starfandi fyrirtækjum á viðmiðunar-
lista Jafnréttisstofu hafa 32 fengið
vottun.
„Þau fyrirtæki í þessum stærðar-
flokki sem ekki hafa hlotið vottun
munu fá bréf frá Jafnréttisstofu
næstu daga þar sem óskað verður
upplýsinga um stöðu mála. Þegar
svör hafa borist verða ákvarðanir
teknar um framhaldið,“ segir hún í
svari við fyrirspurn Morgunblaðs-
ins.
Jafnlaunavottun var lögfest í júní
árið 2017 og hefur verið innleidd í
áföngum. Opinberar stofnanir voru í
fyrsta hópi þeirra sem áttu að inn-
leiða jafnlaunavottunina og hafa
fengið vottun fyrir 31. desember
2019. Langstærstur hluti þeirra er
kominn með vottun en þær sem út af
standa eru allar í vottunarferli að
sögn Katrínar.
Samkvæmt yfirliti Jafnréttisstofu
um seinustu áramót yfir allar vott-
anir frá því innleiðing þeirra hófst
kemur í ljós að alls hafa 274 fyrir-
tæki og stofnanir lokið innleiðing-
unni og fengið jafnlaunavottun. Alls
starfa 87.803 hjá þessum fyrir-
tækjum.
Fyrirtæki með 90-149 starfsmenn
eiga að hafa öðlast vottun um næstu
áramót og fyrirtæki með 25-89
starfsmenn hafa frest til 31. desem-
ber 2022 til að ljúka innleiðingunni.
omfr@mbl.is
Helmingur fyrirtækj-
anna fengið vottun
274 fyrirtæki og
stofnanir hafa lokið
innleiðingunni
Morgunblaðið/Eggert
Á kvennafrídegi Markmiðið er að
draga úr kynbundnum launamun.
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/