Morgunblaðið - 12.01.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 2021
FASTEIGNASALA
Nóatún 17 | 105 Reykjavík | valborg@valborgfs.is | Sími 419 7900
valborgfs.is
Glæsilegar nýjar íbúðir í Fossvogsdal ogHraunbæ
Óskumað ráða
löggilta fasteignasala
VERÐMETUM SAMDÆGURS
ÓSKUMEFTIRÖLLUMGERÐUMEIGNAÁ SKRÁ
FOSSVOGSDALUR HRAUNBÆR
Tilbúnar til afhendingar!
Örfáar íbúðir óseldar!
Elvar Guðjónsson
Viðskiptafræðingur
Lögg. fasteignasali
Sími 895 4000
elvar@valborgfs.is
Þórður Heimir
Sveinsson
Lögmaður og
lögg. fasteignasali
Jónas Ólafsson
Viðskiptafræðingur
Sími 824 4320
jonas@valborgfs.is
Gunnar Biering
Agnarsson
Nemi til löggildingar
Sími 823 3300
gunnar@valborgfs.is
María Sigurðardóttir
Viðskiptafræðingur
Lögg. fasteignasali
Sími 820 1780
maria@valborgfs.is
Allar upplýsingar veita:
Skattfrjáls
söluhagnaður
SUMARHÚSAEIGENDUR
Frá 1. janúar 2021 er hagnaður af sölu sumarhúsa skattfrjáls.*
Hafðu samband við okkur og fáðu frekari upplýsingar.
Skógarvegur 6-8
Íbúðakjarni með 69 íbúðum á 4 hæðum
auk bílakjallara.
Hraunbær 103 A, B og C
Nýjar íbúðir fyrir 60+
Valborg óskar eftir að ráða löggilta
fasteignasala. Frábær vinnuaðstaða og
góður vinnuandi.
Nánari upplýsingar veitir Elvar
Guðjónsson, elvar@valborgfs.is
*að ákveðnum skilyrðum uppfylltum
Morgunblaðið/Eggert
Atvinnulíf Alls voru 2.800 laus störf
á fjórða ársfjórðungi seinasta árs.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Alls voru um 2.800 laus störf á
vinnumarkaðinum á seinasta árs-
fjórðungi nýliðins árs samkvæmt
starfaskráningu Hagstofu Íslands.
Fram kemur í frétt Hagstofunnar
að á sama tíma voru um 203.900
störf á íslenskum vinnumarkaði og
hlutfall lausra starfa því 1,3%.
Til samanburðar má geta þess
að 14.900 einstaklingar voru at-
vinnulausir í nóvember sl. skv.
mælingum Hagstofunnar og hjá
Vinnumálastofnun voru í nóv-
ember tæplega 21 þúsund ein-
staklingar án atvinnu í almenna
bótakerfinu.
Seinasta könnun meðal stjórn-
enda 400 stærstu fyrirtækja lands-
ins í fyrra benti ekki til þess að
aukinn skortur væri á starfsfólki.
Ein skýring á þessum fjölda lausra
starfa á tímum mikils atvinnuleysis
gæti verið sú að þeir sem hafa
misst störf sín í óvissunni vegna
veirufaraldursins haldi í vonina
um að fá þau aftur. Vilji frekar
bíða eftir því og síður taka áhætt-
una af því að ráða sig í eitthvert
annað starf í millitíðinni, að sögn
Önnu Hrefnu Ingimundardóttur,
forstöðumanns efnahagssviðs Sam-
taka atvinnulífsins.
Hún bendir á að ekki sé um
marktæka breytingu að ræða frá
því árið á undan. Í samantekt Hag-
stofu kemur fram að laus störf
voru 300 fleiri á fjórða ársfjórð-
ungi 2020 en á sama tímabili 2019.
Störf voru 12.900 færri en hlutfall
lausra starfa hækkaði um 0,1 pró-
sentustig.
Flestir í framleiðslutengdum
greinum og byggingarstarfsemi
Laus störf nú virðast einkum
vera í framleiðslutengdum grein-
um og í byggingarstarfsemi að
sögn Önnu. Á sama tíma árið 2019
var meirihluti lausra starfa í op-
inbera geiranum eða um 1.300 laus
störf á þeim tíma en þeim hefur
fækkað í um 100 á síðasta ársfjórð-
ungi nýliðins árs.
Mörg laus störf á vinnumarkaðinum
Mögulega bíða margir eftir að fá aftur sitt fyrra starf og ráða sig ekki annað
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Um 900 manns hafa skráð sig í und-
irskriftasöfnun þar sem mótmælt er
breytingum á skipulagi í Úlfarsárdal
í Reykjavík. Eins og greint var frá í
Morgunblaðinu á dögunum stendur
til að á reit milli verslunar Bauhaus
og efstu íbúðarhúsa í Úlfarsárdal
verði þrifaleg atvinnustarfsemi. Þar
er átt við rýmisfrekar verslanir, létt-
an iðnað og verkstæði; alls 200 þús-
und fermetra. Tekið er fyrir íbúðar-
húsnæði, gistiþjónustu og
matvöruverslanir. Skv. gildandi
deiliskipulagi frá 2013 er hins vegar
gert ráð fyrir íbúðabyggð á svæðinu.
„Byggðin á þessu svæði öðlast allt
annan svip verði aðalskipulagi þessa
svæðis breytt,“ segir Björn Ingi
Björnsson, formaður Íbúasamtaka
Úlfarsárdals, í samtali við Morgun-
blaðið. Hann bendir á að umrætt
svæði snúi mót suðri og sól og sé síð-
asti óbyggði reiturinn í Reykjavík
þar sem staðhættir séu slíkir.
„Síðustu ár hefur verið mikil upp-
bygging í Úlfarsárdal. Dalskóli er
tilbúinn, verið er að byggja menn-
ingarmiðstöð og sundlaug auk þess
sem uppbygging fyrir aðstöðu Fram
er langt komin. Mikilvægt er að
þessir innviðir nýtist,“ segir formað-
urinn.
Svæðið sem nú stendur til að
breyta heitir M22, skv. skipulags-
gögnum og sú er einnig slóðin á vef
með upplýsingum um málið.
Á umræddum reit í Úlfarsárdal er
flugbraut sem fisvéla- og mótor-
drekamenn hafa mikið nýtt. Fisfélag
Reykjavíkur hefur nú skilað borg-
inni svæðinu og rifið byggingar þar.
„Að fá í dalinn til dæmis þá óþrifa-
legu verkstæðisstarfsemi sem nú er
á Bíldshöfða finnst mér lítt aðlað-
andi. Okkar krafa er því að núver-
andi aðalskipulag standi óbreytt,“
segir Björn Ingi sem telur nær að
skipulag í Úlfarsárdal miðist við
stærri íbúðabyggð og fleira fólk en
nú er. Þegar hverfið var skipulagt og
uppbygging þar hófst fyrir 15 árum
hafi verið gert ráð fyrir 20 þúsund
íbúa byggð. Síðan hafi verið klipið af
og nú sé skv. skipulagi gert ráð fyrir
3.000 íbúum. Slíkt skerði mögu-
leikana á því að þjónustustarfsemi á
svæðinu þrífist, sem þó sé mikilvægt.
Skipulag í
Úlfarsárdal
verði óbreytt
Skora á borgaryfirvöld Safna und-
irskriftum Ekki iðnað og verkstæði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Úlfarsárdalur Horft yfir skipulagssvæðið, en reiturinn sem á að breyta er
M22 eins og aðstandendur undirskriftasöfnunar hafa hér merkt inn.
Atvinna