Morgunblaðið - 12.01.2021, Page 12
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fyrirtækin Hringrás og HP gámar
voru sameinuð í ársbyrjun.
Alexander G. Edvardsson, fram-
kvæmdastjóri Hringrásar, segir að
þessu fylgi mikil hagræðing.
Fjölskyldufyrirtækið Hópsnes
átti fyrirtækin tvö fyrir samein-
inguna en systkinin Alexander G.
Edvardsson, sem varð fram-
kvæmdastjóri Hringrásar 1. janúar
2020, og Kristín Þórey Edvardsdótt-
ir eiga samanlagt 63,6% hlut.
Spá mikilli veltuaukningu
Að sögn Alexanders var velta HP
gáma um 290 milljónir árið 2019 og
velta Hringrásar 1.429 milljónir.
Árið 2020 hafi velta HP gáma ver-
ið orðin 500-600 milljónir og velta
Hringrásar um 1.950 milljónir.
Því hafi velta hinna sameinuðu fé-
laga verið um 2,5 milljarðar í fyrra.
Samkvæmt áætlun hans verði
veltan um 3 milljarðar í ár, sem yrði
um 20% vöxtur á aðeins einu ári.
Félögin verða áfram rekin undir
eigin merkjum. HP gámar hafa
starfsstöðvar í Grindavík, Hafnar-
firði, Reykjavík, Akureyri og á
Reyðarfirði. Hringrás er aftur á móti
með starfsstöðvar í Reykjavík, á
Akureyri og Reyðarfirði.
Á síðari hluta síðasta árs var fjár-
fest í nýju athafnasvæði við Álhellu 1
í Hafnarfirði, gegnt álverinu í
Straumsvík, á 27 þús. fermetra lóð
og stendur þar til að taka í notkun
þúsund fermetra iðnaðarhúsnæði.
Að sögn Alexanders er fyrirhugað
að byggja þar upp aðstöðu til að taka
á móti og vinna margvíslegan úr-
gang sem fellur til hjá einstaklingum
og fyrirtækjum. M.a. verði tekinn í
notkun tætari sem geti til dæmis
tætt í sundur heilu bílflökin, flokkað
málmana og þannig aukið verðmæti
hráefnisins. Ekki sé áformað að
fjölga starfsstöðvum meira.
Varðandi athafnasvæði Hringrás-
ar í Klettagörðum segir Alexander
leigusamning renna út í árslok 2022.
Með þetta í huga hafi félagið tryggt
sér athafnasvæðið á Álhellu.
Til skoðunar sé að hætta geymslu
hjólbarða í Klettagörðum en hafa
þar móttöku- og flokkunarstöð. Öll
vinnsla muni fara fram á Álhellu.
Stærsti viðskiptavinurinn
„Hringrás er stærsti viðskiptavin-
ur HP gáma og Hringrás notar mik-
ið þjónustu HP gáma við efnisöflun,
flutninga og annað slíkt. Það lá beint
við að sameina þennan rekstur í einu
félagi, minnka þannig flækjustig og
auka hagkvæmni í rekstri,“ segir
Alexander um sameininguna.
Samstarfið hafi að megninu til haf-
ist strax eftir kaupin á Hringrás.
Spurður hvernig eigi að auka velt-
una um 20% á þessu ári vísar Alex-
ander meðal annars til þess að HP
gámar hafi fjárfest mikið í gámum
og fjölgað viðskiptavinum. „Það hef-
ur staðið yfir markviss markaðssókn
sem hefur skilað árangri í gámaþjón-
ustu og losun,“ segir Alexander.
Tekjur HP gáma komi fyrst og
fremst frá leigu og losun gáma.
40 þúsund tonn
Hringrás flutti í fyrra út 40 þús-
und tonn af brotajárni og yfir 300
gáma, 40 feta, af öðru efni. Mestur
hlutinn hjólbarðar. Sjö til átta þús-
und tonnum var skipað beint frá
Akureyri og Reyðarfirði en stærstur
hlutinn frá Reykjavíkurhöfn.
Alexander segir aðspurður að ef
Hringrás flytji hluta aðstöðu sinnar
frá Klettagörðum muni félagið skipa
út frá Hafnarfjarðarhöfn eða jafnvel
Straumsvík, ef leyfi fæst.
Jörgen Þór Þráinsson, frkvstj. HP
gáma, áætlar að starfsmenn hins
sameinaða félags verði um 60 í árs-
lok, eða tíu fleiri en í byrjun ársins.
Spurður um strauma á markaðn-
um segir Jörgen stöðugt verið að
auka framleiðendaábyrgð, sem feli
m.a. í sér kröfu um að auðvelt sé að
endurvinna vörur. HP gámar séu
með ferla sem miði að því að beina
þessu í réttan farveg hér heima og
erlendis hjá viðurkenndum aðilum.
Sameina Hringrás og HP
gáma og spá örum vexti í ár
Stjórnendurnir reikna með 3 milljarða veltu í ár sem yrði 20% vöxtur milli ára
Morgunblaðið/Eggert
Við húsið á Álhellu Jörgen Þór Þráinsson og Alexander G. Edvardsson.
Ný útlán lífeyris-
sjóða jan.-nóv. 2020
Ma.kr.*
-18,2
14,8
Verðtryggð lán
Óverðtryggð lán
*Að frádregnum upp- og
umframgreiðslum. Heimild: Seðlabankinn.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Sjóðfélagar lífeyrissjóðanna héldu
uppteknum hætti í nóvembermán-
uði og námu upp- og umfram-
greiðslur sjóðfélagalána ríflega 9
milljörðum umfram ný lán í mán-
uðinum. Hefur þróunin verið á
þennan veg allt frá því í júní síðast-
liðnum þegar upp- og umfram-
greiðslur urðu í fyrsta sinn meiri en
nýjar lántökur í einum mánuði.
Hafa greiðslurnar fyrst og fremst
lotið að verðtryggðum lánum sjóð-
anna en fólk þyrpist í æ ríkari mæli
í óverðtryggð húsnæðislán sem við-
skiptabankarnir veita. Þannig námu
upp- og umframgreiðslur verð-
tryggðra lána 9,5 milljörðum í nóv-
ember og ný óverðtryggð lán jukust
aðeins um 338 milljónir króna.
Sífellt meira borgað upp
Að meðtöldum upp- og umfram-
greiðslunum í nóvember eru þær nú
orðnar hærri en ný útlán sjóðanna á
árinu 2020. Enn á Seðlabankinn þó
eftir að birta tölur fyrir desember-
mánuð en fátt bendir til þess að
þróunin í þeim mánuði hafi verið á
annan veg en frá júní og út nóv-
ember.
Staða lífeyrissjóðanna á lána-
markaði hefur gjörbreyst á örfáum
misserum. Meðan ný útlán hafa
dregist verulega saman leita sífellt
fleiri sjóðfélagar í aðra lánamögu-
leika á markaði. Á árinu 2019 voru
ný sjóðfélagalán hins vegar ríflega
100 milljarðar króna, að teknu tilliti
til upp- og umframgreiðslna.
Sjóðfélagar greiða meira upp
Upp- og umframgreiðslur hærri en ný lán fyrstu ellefu mánuði síðasta árs
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 2021
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“
STUTT
● Innflutningur á neysluvörum jókst
gríðarlega í nóvembermánuði frá sama
mánuði 2019. Með neysluvörum er
vísað til heimilistækja, fatnaðar og
lyfja, svo dæmi sé tekið. Nam aukn-
ingin 43%. Þetta kemur fram í ný-
birtum tölum Hagstofu Íslands. Verð-
mæti vöruinnflutnings nam hins
vegar aðeins 4% í mánuðinum miðað
við sama tíma 2019. Nam það 61,5
milljörðum króna, en var 59,2 millj-
arðar í nóvember 2019. Mestur sam-
dráttur varð í innflutningi á elds-
neyti og smurolíum sem dróst saman
um 48%.
Á fyrstu ellefu mánuðum síðasta
árs nam verðmæti vöruinnflutnings
657,2 milljörðum króna og lækkaði
um tæpa 48 milljarða frá sama tíma-
bili ári fyrr eða 6,8% á gengi hvors
árs fyrir sig. Samdráttur varð í nær
öllum flokkum nema neysluvörum.
Mun meira flutt inn af
neysluvöru í nóvember
12. janúar 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 126.94
Sterlingspund 172.57
Kanadadalur 100.02
Dönsk króna 20.909
Norsk króna 15.116
Sænsk króna 15.471
Svissn. franki 143.63
Japanskt jen 1.2219
SDR 183.43
Evra 155.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 186.4635
Hrávöruverð
Gull 1891.3 ($/únsa)
Ál 2029.5 ($/tonn) LME
Hráolía 54.56 ($/fatið) Brent
● Engin viðskipti voru með bréf fjög-
urra félaga á aðallista Kauphallar Ís-
lands í gærdag. Það voru félögin Brim,
fasteignafélagið Eik, Eimskipafélagið og
Festi. Þá voru afar takmörkuð viðskipti
með bréf Origo, eða 2 milljónir króna og
eins námu viðskipti með bréf Reita að-
eins 2 milljónum. Viðskipti með bréf
Símans, Sjóvár, Skeljungs, Sýnar, TM og
VÍS voru öll innan við 30 milljónir. Hins
vegar voru viðskipti með bréf Arion
banka 939 milljónir, Marels 549 millj-
ónir og Haga 582 milljónir. Þá voru við-
skipti með bréf Icelandair 332 milljónir.
Mest lækkuðu bréf flugfélagsins eða
um 4,65%. Bréf Arion banka lækkuðu
um 1,65%. Mest hækkuðu bréf TM um
2,58%.
Í viðskiptum gærdagsins lækkaði úr-
valsvísitala Kauphallarinnar um 0,92%.
Það sem af er ári hefur hún hins vegar
hækkað um 2,17%.
Engin viðskipti með
fjögur félög í Kauphöll