Morgunblaðið - 12.01.2021, Side 13

Morgunblaðið - 12.01.2021, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 2021 Hringdu í síma 580 7000 eða farðu áwww.heimavorn.is HVARSEMÞÚERT Öryggiskerfi SAMSTARFSAÐILI 15:04 100% Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Demókratar í fulltrúadeild Banda- ríkjaþings lögðu í gær fram ákæru- skjal gegn Donald Trump Banda- ríkjaforseta um sviptingu embættis hans vegna árásar stuðningsmanna forsetans á Bandaríkjaþing í síðustu viku, sem kostaði fimm manns lífið. Þá lögðu demókratar einnig fram þingsályktunartillögu, þar sem skor- að var á Mike Pence varaforseta og ríkisstjórnina að beita 25. viðauka stjórnarskrárinnar til þess að lýsa Trump vanhæfan til að gegna emb- ætti. Slíkar tillögur eru fyrst bornar fram með þeim hætti að spurt er hvort hún njóti einróma stuðnings deildarinnar, og þarf bara einn þing- mann til að knýja fram umræðu. Varð sú raunin og fer hún því fram í dag ásamt atkvæðagreiðslu. Er talið mjög líklegt að tillagan verði sam- þykkt. Hafa demókratar sagt að Pence fái þá sólarhringsfrest til þess að setja Trump af, ellegar verði hald- ið áfram með ákæruferlið. Nær allir með á málinu David Cicilline, demókratinn sem samdi ákæruskjalið, sagði við fjöl- miðla í gær að árásin á þingið hefði verið tilraun til valdaráns, og að þinginu bæri skylda til þess að láta alla sem að henni stóðu sæta ábyrgð, jafnt forsetann sem aðra. Nær allir þingmenn demókrata, eða 210 af 222, eru meðflutnings- menn að ákærunni, en Cicilline gerði ráð fyrir að hún myndi einnig njóta stuðnings meðal nokkurra þing- manna repúblikana. Þar er Trump sérstaklega sakaður um að hafa hvatt til uppreisnar með endurtekn- um og ítrekuðum ósannindum um niðurstöðu forsetakosninganna í nóvember síðastliðnum. Verði ákæran samþykkt verður Trump eini forsetinn í sögu Banda- ríkjanna til þessa sem sætir slíkri þingkæru tvisvar sinnum á kjörtíma- bili sínu. Óvíst er þó hvort öldungadeildin, sem dæmir í málinu gegn Trump, muni sakfella, þar sem 67 þingmenn af 100 þarf til þess. Þá er einnig óvíst hvort hægt verði að taka ákæruna fyrir fyrr en eftir að Trump hefur látið af embætti, þar sem öldunga- deildin er nú í þinghléi, og á að óbreyttu ekki að koma saman fyrr en daginn fyrir innsetningarathöfn Joes Biden, verðandi Bandaríkjafor- seta, en hún fer fram 20. janúar nk. Áhöld eru um hvort tilefni sé til eða lagaheimild til að halda málinu áfram eftir 20. janúar, en helsta ástæðan til þess að samþykkja ákær- una eftir að valdatíð Trumps lýkur er að þá hefði öldungadeildin einnig kost á því að meina Trump alfarið að sækjast eftir endurkjöri eða emb- ætti á ný, og þyrfti einungis einfald- an meirihluta til þess. Toomey kallar eftir afsögn Enginn þingmaður repúblikana í öldungadeildinni hefur hins vegar lýst yfir beinum stuðningi sínum við málshöfðun fulltrúadeildarinnar. Tveir þeirra, Pat Toomey frá Penn- sylvaníu og Lisa Murkowski frá Alaska, hvöttu hins vegar um helgina Trump til þess að segja af sér embætti hið fyrsta. Hvorugt þeirra hefur þó verið tal- ið til helstu bandamanna forsetans á þingi, og hafa repúblikanar, einkum í fulltrúadeildinni, lýst yfir áhyggjum sínum af því að ákæruferlið gæti leitt til enn frekari sundrungar. 22 fyrrverandi þingmenn repú- blikana úr báðum deildum hafa hins vegar undirritað yfirlýsingu, þar sem lýst er yfir stuðningi við að þing- ið fjarlægi forsetann úr embætti. Segir þar að forsetinn eigi sér engar málsbætur fyrir að hafa stýrt upp- reisn gegn löggjafarvaldinu, og að þingmönnum beri skylda til þess að fjarlægja hann frá völdum. „Þingið verður að senda sterk og skýr skila- boð, ekki bara til þessa forseta held- ur forseta framtíðarinnar, um að hegðun af þessu tagi verði hvorki lið- in né samþykkt.“ Handtökur hafnar Lögregluyfirvöld í ýmsum ríkjum Bandaríkjanna eru þegar farin að handtaka fólk sem tók þátt í óeirð- unum í síðustu viku. Þannig voru tveir menn, sem sáust ganga um sal öldungadeildarinnar með handjárn úr plasti, handteknir um helgina. Vöktu myndirnar af þeim vangavelt- ur um að ætlunin hefði verið að halda þingmönnum og Pence varaforseta sem gíslum. Þá var Adam Johnson, sem náðist á mynd að bera ræðupúlt Nancy Pel- osi, forseta fulltrúadeildarinnar, handtekinn um helgina. Hefur dóms- málaráðuneytið lýst því yfir að enn megi eiga von á frekari handtökum og ákærum vegna árásarinnar. AFP Sorg Félagar Brians Sicknick í lögregluliði þinghússins stóðu heiðursvörð í fyrradag meðan líkfylgd hans keyrði hann til hinstu hvílu í Arlington. Sicknick lést eftir að hafa tekist á við mótmælendur í áhlaupinu í síðustu viku. Demókratar hefja sókn  Demókratar á Bandaríkjaþingi hefja ákæruferli til embættissviptingar Trumps  Skora á Pence að virkja 25. greinina í vikunni  Fjöldi óeirðaseggja handtekinn Ekkert neyðarkall barst frá áhöfn vélar Sriwijaya Air-flugfélagsins áð- ur en hún hrapaði í sjóinn á laugar- daginn skammt undan ströndum Jakarta, höfuðborgar Indónesíu, og ekki var tilkynnt nein tæknileg bilun áður en flugslysið varð. 62 voru um borð. Flugmálayfirvöld í Indónesíu greindu frá því í gær að þau hefðu fundið staðsetningu flugrita vélar- innar, og leituðu kafarar þeirra beggja í sjónum. Nurcahyo Utomo, rannsóknar- maður samgönguslysanefndar Indónesíu, sagði í gær að upptaka úr flugturni sýndi að samskipti flug- mannanna við turninn hefðu verið með hefðbundnum hætti, en vélin, sem var af gerðinni Boeing 737-500, hrapaði skyndilega úr 3.000 metra hæð, einungis fjórum mínútum eftir flugtak. „Þetta er eins og venjulegt samtal og ekkert grunsamlegt,“ sagði Ut- omo við AFP-fréttastofuna. „Það er ekkert talað um neyðarástand eða nokkuð þvíumlíkt.“ Þá sagði Utomo að frumrannsókn benti til að vélin hefði verið í heilu lagi þegar hún lenti í sjónum. Af farþegunum 62 voru tíu á barnsaldri. 2.600 manns sinna nú leitarstörfum, en sjórinn er um 23 metra djúpur þar sem vélin lenti. Flugmaður vélarinnar, hinn 54 ára gamli Afwan, var áður í flugher Indónesíu og var með nokkurra ára- tuga reynslu af flugi. Liðið gætu nokkrir mánuðir áður en fyllilega verður ljóst hvað varð til þess að vélin hrapaði, en sérfræðing- ar í samgöngumálum sögðu við AFP að slæmar veðuraðstæður, tæknibil- un eða mistök flugmanns gætu hafa verið þar að verki. Kafarar leita að flugritunum  Ekkert neyðarkall barst frá vélinni AFP Flugslys Leitarmenn telja sig vita hvar flugrita vélarinnar er að finna. Soumya Swaminathan, yfirmaður vísindarannsókna hjá Alþjóðaheil- brigðisstofnuninni WHO, varaði við því gær að hjarðónæmi gegn kór- ónuveirunni myndi ekki nást á þessu ári, þrátt fyrir að byrjað væri að bólusetja fyrir henni. Sagði Swaminathan að áfram yrði nauðsynlegt að halda fjarlægð, þvo hendur og ganga með grímu til þess að koma böndum á farald- urinn, þar sem ekki yrði framleitt nógu mikið af hinum ýmsu bóluefn- um til þess að ná upp slíku ónæmi. Gerði hún ráð fyrir að halda yrði uppi sóttvörnum það sem eftir lifir árs, en sagði að á endanum myndi takast að vinna bug á veirunni með aðstoð bóluefnanna. BÓLUSETNINGAR AFP Bólusetning Joe Biden, verðandi Bandaríkjaforseti, fékk seinni skammtinn af bóluefninu í gær. Ekki gert ráð fyrir hjarðónæmi 2021 Forsvarsmenn samskiptamiðils- ins Parler kærðu í gær netrisann Amazon eftir að hann hafði lokað fyrir netaðgang Parler, með vísan til urmuls hótana um framkvæmd ofbeldis. Parler hefur stært sig af því að vera vettvangur þar sem hægt sé að skiptast á skoðunum án ritskoðunar, en miðillinn hefur á undanförnum misserum notið vaxandi vinsælda meðal bandarískra íhaldsmanna. Bæði Google og Apple lokuðu um helgina fyrir að fólk gæti fengið sér Parler-forritið á síma með Android- eða iOs-stýrikerfi og blasir gjaldþrot við miðlinum að óbreyttu að sögn stofnanda Parler. BANDARÍKIN Bolað af netinu og kærir Amazon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.