Morgunblaðið - 12.01.2021, Síða 16

Morgunblaðið - 12.01.2021, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 2021 Með allt á hreinu 2021 Jakkaföt og skyrtur Gluggatjöld og áklæði Úlpur, kápur og frakkar Rúmföt og heimilisþvottur Kjólar og blússur Servíettu- og dúkaþvottur STOFNAÐ 1953 Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími: 553 1380 Eftir nokkra daga stendur til að endur- meta stöðu Covid- faraldursins og þeirra aðgerða sem þörf er á til að stemma stigu við útbreiðslu hans. Nú þegar þetta er skrifað hafa líkamsræktar- stöðvar verið lokaðar í sex mánuði af síðustu tíu. Öllum má vera ljóst að kvaðir um lokun á fyrirtæki eru mjög íþyngjandi fyrir reksturinn, svo ekki sé meira sagt. Slíkar aðgerðir og kvaðir í þágu almannahagsmuna þurfa og verða að standast ýtrustu skoðun og þurfa að byggja á hald- föstum rökum, sérstaklega þegar lokunin teygir sig yfir margra mán- aða tímabil. Það er viðbúið að rekstr- araðilar muni leita réttar síns fyrir dómstólum til að fá úr því skorið hvort aðgerðirnar hafi í raun verið réttmætar og reistar á rökum í ljósi annarra tilslakana í öðrum atvinnu- geirum á sama tíma. Við áframhald- andi óbreytt ástand má búast við al- gjöru hruni í greininni, svo ekki sé talað um í lýðheilsu almennings. Nýlega voru birtar opinberar tölur frá OECD yfir þjóðir í ofþyngd. Þar trónir Ísland á toppnum, vel yfir meðallagi Evrópu, með 27% þjóðar- innar í ofþyngd. Meðaltal Evrópu- landa er 17% þjóðar í ofþyngd, þetta eru tölur frá 2018. Nú er alveg ljóst að engin ein starfsstétt eða eitt atriði hefur úrslitaáhrif um hvort heil þjóð sé með ríflega fjórðung íbúa í of- þyngd. Þá er samt ljóst að ásamt öðru gegna líkams- og heilsurækt- arstöðvar mikilvægu hlutverki við að halda uppi góðri lýðheilsu. Það er ekki nóg fyrir alla að fara bara út að labba, eins og landlæknir hefur hald- ið fram í fjölmiðlum. Það er frábær byrjun fyrir einhvern sem er í of- þyngd, en ef það væri nóg fyrir alla væru engar líkams- og heilsurækt- arstöðvar til. Að nota þetta sem eina af ástæðunum fyrir því að það sé í lagi að loka líkamsræktarstöðvum er eins og að segja að það hafi ekkert þurft að opna bíó eða leikhús, því það er hægt að horfa á slíka afþrey- ingu í sjónvarpinu; að það þurfi ekkert að opna veitingastaði, því það sé hægt að panta matinn heim og borða hann þar; að það þurfi ekki að opna matvöru- búðir, því nú er hægt að panta á netinu og fá vörur heimsendar án vandræða – og að það þurfi ekkert að opna sundlaugar, því það sé hægt að fara í bað heima. Ef fyrri kosturinn væri „nóg“ fyrir alla væri seinni kosturinn ekki til. Það lítur út fyrir að hugmyndir þríeykisins um heilsu- og líkams- ræktarstöðvar séu ansi takmark- aðar. Haft hefur verið eftir sóttvarnalækni að hann sjái fyrir sér að fólk „hlaupi á milli tækja“ á æfing- um sínum. Eðlilega er erfitt að sjá fyrir sér góðar sóttvarnir þegar þessi mynd er dregin upp. Mig langar að bjóða sóttvarnalækni á æfingu til mín við fyrsta tækifæri, en þá sæi hann (kannski í fyrsta skipti) nýtt umhverfi fyrir þjálfun. Í stöð eins og þeirri sem ég rek hef ég 400 fm gólf- pláss, sem er opið og ekki afmarkað af neinum föstum tækjum á gólfinu, er auðvelt að afmarka sóttvarnahólf fyrir iðkendur. Ég get með einföld- um hætti tekið á móti litlum hópi, til dæmis 10 manns, þar sem tveggja metra regla er mjög vel virt og sam- eiginlegir snertifletir eru fáir eða engir. Allir sem koma í tíma bóka fyrst pláss í bókunarkerfinu okkar, þannig er með einföldum hætti hægt að tak- marka iðkendafjölda í hverjum tíma. Hægt er að ganga inn um stórar dyr, þar sem ekki þarf að taka í húna, hver iðkandi fær sitt sóttvarnahólf á gólfinu, með eigin lóðum sem búið er að sækja og setja inn í hólfið. Þjálfari stjórnar tímanum, stýrir hópnum í gegnum upphitun, æfinguna og nið- urlag. Hver og einn iðkandi fer ekki út úr sínu hólfi meðan á æfingunni stendur. Iðkendur þurfa með þessu verklagi því aldrei að koma við húna, eða vera nálægt nokkrum ein- staklingi. Ég væri tilbúin til að sam- þykkja svona strangar takmarkanir langt inn í árið 2021, jafnvel út árið, ef það þýddi að ég fengi bara að hafa opið. Það að opna og loka til skiptis er eitthvað sem drepur hvaða rekstr- armódel sem er. Það er nefnilega ekkert að því að fylgja ströngum sóttvarnareglum, það versta er að fá ekki að njóta þeirra forréttinda að búa við sama takmarkaða, þó miss- skipta, frelsi og allir aðrir. Við, eigendur heilsu- og líkams- æktarstöðva, höfum axlað ábyrgð sem á herðar okkar hefur verið lögð á árinu 2020. Við höfum mátt þola gagnrýni fyrir það eitt að vilja halda rekstri og lífsviðurværi okkar réttu megin við núllið. Við höfum búið við ströng skilyrði og verið undir smásjá lögreglu, m.a. eru dæmi um að eig- andi líkamsræktarstöðvar hafi verið rekinn út úr sínum eigin sal á grund- velli þess að „líkamsræktarstöðvar eigi að vera lokaðar“. Á sama tíma eru tíu vinir að æfa saman í sveittum litlum bílskúr. Þetta er veira í sam- félaginu okkar sem getur smitast hvar og nánast hvenær sem er, jafn- vel þótt öllum leiðbeiningum sé fylgt, eins og yfirlögregluþjónn almanna- varna þekkir. Samt hefur bara verið ákveðið að banna sumt en ekki ann- að. Opnum nú heilsu- og líkamsrækt- arstöðvar með takmörkunum. Það er erfitt að sjá af hverju það má ekki, þegar á sama tíma engum virðist finnast óeðlilegt að 30 þúsund manns fari í Kringluna á fimm klukkustund- um. Eftir Eygló Egilsdóttur » Opnum nú heilsu- og líkamsræktarstöðv- ar með takmörkunum. Af hverju ekki, þegar eðlilegt þykir að komi 30 þúsund manns í Kringl- una á einum degi? Eygló Egilsdóttir Höfundur er eigandi Metabolic Reykjavík við Gullinbrú. Opið bréf til ráðherra og embætismanna Árið 2007 voru lög um Vatna- jökulsþjóðgarð sett og árið 2016 komu viðbætur við þessi lög. Með viðbótunum er almenningi heimil för um þjóðgarðinn og dvöl í lög- mætum tilgangi. Jafnframt var bætt við að afla þurfi leyfis þjóð- garðsvarðar til lend- ingar loftfars innan Vatnajökulsþjóðgarðs en frekar er mælt fyrir um þetta atriði í reglugerð nr. 300/ 2020. Þar segir í 38. gr.: „Þá skal afla leyfis þjóðgarð- svarðar til lendingar loftfars og notkunar fjarstýrðra loftfara innan Vatnajök- ulsþjóðgarðs.“ Í frumvarpi til laga um hálendisþjóðgarð eru svipaðar kröfur en þar þarf að afla leyfis fyrir lendingum flug- véla og þyrlna fyrir utan skilgreinda flug- velli og vitnað í Flug- málahandbók ISAVIA varðandi skilgreinda flugvelli. Þetta skerðir veru- lega réttindi hóps manna en hljómar ef- laust sem eðlileg krafa í eyrum margra, loftför hljóta að þurfa langar brautir og eru stór- hættuleg ekki satt? Skoðum fyrst hvað loftfar er. Samkvæmt lögum nr. 60/1998 telst loftfar vera „…sérhvert tæki sem haldist get- ur á flugi vegna verkana lofts- ins…“ Loftfar nær því til: flug- véla, fisflugvéla, þyrlna, þyril- vængja, loftbelgja, loftskipa, svifflugvéla, svifdreka, svifvængja, mótordreka, mótorsvifvængja, dróna o.s.frv. Svifvængir eru í vinsælir í dag og margir njóta þess að ganga á fjöll og nýta sér svifvænginn til að svífa aftur niður. Í lögunum í dag þarf að sækja um leyfi fyrir lend- ingunni og ekki bara það heldur þarf að útskýra tilgang lending- arinnar. Öllum er ljóst að svif- vængur veldur ekki neinum há- vaða né spjöllum á náttúrunni. Sama gildir um loftbelg nema ekki er hægt að ákveða nákvæma staðsetning á lendingu loftbelgs. En hvað með flugvélar? Á Ís- landi er talsvert um flugvélar sem þurfa í raun ekki sérstaka flug- velli heldur aðeins vegi eða tún og aðeins 50-150 metra. Líklega eru um 100 flugvélar sem falla í þenn- an flokk og þar af eru um 60 fis- flugvélar. Ég held ég geti sagt að nær því allar þessar vélar eru ætlaðar fyrir svokallað almanna- flug eða skemmtiflug einstaklinga. Þessu flugi má líkja við ferðir á jeppum upp á hálendið. Helsti munurinn er sá að sækja þarf um leyfi til að lenda innan þjóðgarðs- ins en jeppi þarf þess ekki. Flug- vélar mega fljúga um garðinn en ef ætlunin er að lenda þarf leyfi. Það væri sambærilegt við það að segja að keyra megi um garðinn á jeppa en ef þú ætlar að stoppa þarftu að fá leyfi og útskýra hvers vegna skal stoppa! Ef þetta væri svona fyrir ökutæki þá þætti ef- laust hörðustu náttúruunnendum fulllangt gengið. Ekki hafa verið færð nein rök fyrir því að taka flug loftfara, einn samgöngumáta, út eins og gert er í þessum lögum. Ekki er heldur ljóst hvers vegna flugmenn eru eini hluti almennings sem þarf að gera grein fyrir för sinni um þjóð- garðinn. Teljast flugmenn ekki til almennings? Hver er munurinn á ökumanni og flugmanni? Af hverju þarf flugmaður svifvængs að fá leyfi fyrir lendingu og út- skýra hana? Það eru svo margar spurningar. Líklega hafa þau sem skrifuðu lögin ekki verið búin að hugsa þessar takmarkanir til enda. Það væri t.d. hægt að gera greinar- mun á verkflugi og almannaflugi. Þannig gætu flugmenn sem langar að skreppa inn í þjóðgarðinn á flug- vél í stað jeppa farið án þess að þurfa sér- stakt leyfi til að lenda. Hafa þarf í huga að enginn flug- maður lendir á stað þar sem óljóst er hvort hann komist í loftið aftur, t.d. þar sem undirlendi er gljúpt. Allar þær flug- vélar sem geta lent utan skilgreindra flugvalla eru annað- hvort mjög léttar (undir 300 kg) eða með mjög stór dekk eða skíði. Enginn flugmaður mun stefna fólki á jörðu niðri í hættu né sjáfum sér. Við gerð laga um Vatnajökulsþjóðgarð var ekki haft samráð við Samgöngustofu, ISAVIA, fagráð um flugmál, Flugmála- félag Íslands, Fisfélag Reykjavíkur eða aðra slíka hagsmunaaðila þrátt fyrir takmark- anir á allt flug. Sama „samvinna“ við hags- munaaðila var viðhöfð við gerð frumvarps til laga um hálendis- þjóðgarð. Þó er vert að benda á að umhverfis- og samgöngunefnd sendi út beiðni um umsögn þann 11.12. 2020 til ýmissa aðila þar á meðal Flugmálastjórnar Íslands en hún hefur ekki verið til í nokk- ur ár. Ekki ætti að búast við svari þaðan á næstunni en nefndin fær plús fyrir að reyna. Nefndin ósk- aði ekki eftir umsögn Flugmála- félags Íslands, flugráðs né ann- arra hagsmunaaðila í flugi. Eftir situr því sú stóra spurn- ing hvers vegna flug er tekið svona sérstaklega fyrir? Ég trúi að það hafi einfaldlega verið vegna þekkingarleysis og vönt- unar á samráði frekar en að ein- hverjum sé í nöp við flug almennt. Þessu verður vonandi kippt í lið- inn og núverandi lög um Vatna- jökulsþjóðgarð og frumvarpið um hálendisgarðinn lagfærð. En bíddu, það er meira… það eru ekki bara lög um Vatnajök- ulsþjóðgarð eða væntanlegan há- lendisþjóðgarð heldur er Um- hverfisstofnun með þjóðgarða og verndarsvæði á ýmsum stöðum. Þeim fylgir öllum bann við lend- ingum mannaðra loftfara nema með leyfi Umhverfisstofnunar, í raun svipaðar kröfur og í lögunum nema hvað skilgreindir lending- arstaðir teljast ekki einu sinni með. Það er því ekki um að ræða 30% landsins sem verður bann- svæði heldur líklega nær 40% landsins sem flugmenn einir al- mennings þurfa að sækja um leyfi til að heimsækja á sínum farar- tækjum. Krafa flugmanna sem fljúga sér til skemmtunar er að alþingis- menn beiti sér fyrir því að í lög- um sé ekki, að óþörfu, komið í veg fyrir einn eða fleiri samgöngu- máta innan svæða á Íslandi. Sama krafa á líka við þau svæði sem Umhverfisstofnun hefur umsjón með. Flug, ferðafrelsi og þjóðgarðar Eftir Jónas Sturlu Sverrisson Jónas Sturla Sverrisson » Flug sem samgöngu- máti er einn samgöngumáta leyfisskyldur í Vatnajökuls- þjóðgarði. Að- eins flugmenn þurfa að gera grein fyrir því hvers vegna þeir ætli að stoppa í þjóð- garðinum. Höfundur er einka- og fisflugmaður og formaður Fisfélags Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.