Morgunblaðið - 14.01.2021, Síða 2

Morgunblaðið - 14.01.2021, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2021 Dolorin Hita- og verkjastillandi paracetamól Á HAGSTÆÐUVERÐI! Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is Lesiðvandlegaupplýsingarnaráumbúðumogfylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til lækniseða lyfjafræðingsséþörfá frekari upplýsingumumáhættuogaukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Dolorin500mg paracetamól töflur - 20stkog30stk Fæst í verslunum okkar á Selfossi og í Ármúla 42 BANVÆN MISTÖK í íslenska heilbrigðiskerfinu MorgunblaðiðHádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Umtalsvert minna mældist af loðnu í leiðangri fimm skipa í síðustu viku en í desember og er ljóst að ekki verður gefin út ráðgjöf um auknar veiðar sem byggist á niðurstöðum þessa leiðangurs, en endanlegt stofnmat liggur ekki fyrir. Í loðnu- leiðangri í byrjun desember mæld- ust um 487,4 þúsund tonn af hrygn- ingarloðnu og gaf Hafrannsókna- stofnun í kjölfarið út ráðgjöf upp á 22 þúsund tonn. Ráðgjöf um aflamark byggist á því að 95% líkur séu á að hrygning- arstofninn í mars verði yfir 150 þús- und tonnum að teknu tilliti til afráns. Birkir Bárðarson fiskifræðingur segir að í leiðangri fimm skipa í síð- ustu viku hafi hafís komið í veg fyrir mælingar á loðnu úti af Vestfjörðum. Rannsóknaskipin hafi komist yfir minna svæði nú en í desember, en þá var loðna við ísröndina fyrir vestan. Hann segir að vel verði fylgst með því hvort hafísinn gefi eftir á næst- unni og eins hvort veður verði til mælinga. Þegar færi gefist fari rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson til mælinga, hugsanlega strax eftir helgi. Þá segir hann að þátttaka veiðiskipa sé einnig möguleg, en það verði skoðað í fram- haldinu. Vel verði fylgst með því sem kemur undan ísnum og eins göng- unni sem nú fer austur með Norður- landi. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar- innar í Vestmannaeyjum, kveðst vera sannfærður um að loðnuna sé að finna í hafinu enda hafi mæling á ungloðnu haustið 2019 lofað góðu. Mikið í húfi Hann segir mikið í húfi og hætta sé á að loðna detti út af mörkuðum þar sem hæst verð fáist fyrir slíkar afurðir. Sérhæfðir matvælaframleið- endur erlendis finni einfaldlega aðra vöru í stað loðnunnar eða leggi upp laupana. »30 Til loðnumælinga þegar hafís og veður leyfa  Umtalsvert minna mældist í leiðangri í síðustu viku Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Hoffell SU Á loðnuveiðum 2016, en loðnubrestur hefur verið tvö síðustu ár. Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær karlmann á sextugsaldri í 14 ára fangelsi fyrir manndráp. Þetta staðfesti Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari við mbl.is eftir að dómurinn var kveðinn upp í gær. Maðurinn varð konu sinni að bana á heimili þeirra í Sandgerði í mars í fyrra. Maðurinn neitaði sök við þingfestingu málsins og féllst dómari á að hafa þinghald í málinu lokað. Hann sat í gæsluvarðhaldi frá apríl á seinasta ári og þar til Landsréttur felldi það úr gildi í október. Málið tafðist Þá var maðurinn látinn laus vegna nýrrar matsgerðar um til- drög andláts konunnar. Fleiri ástæður andlátsins voru þar settar fram, auk þess sem áverkar á hálsi konunnar voru sagðir geta verið eldri en áður var talið. Aðalmeðferð í máli mannsins átti að hefjast í ágúst í fyrra en tafðist meðal annars vegna þess að einn dómara í málinu var skipaður dóm- ari við Landsrétt. Morgunblaðið/Ómar 14 ár Héraðsdómur Reykjaness. Dæmdur í 14 ára fangelsi  Varð konu sinni að bana í Sandgerði Ragnhildur Þrastardóttir Hallur Már Oddur Þórðarson Sex voru fluttir á slysadeild eftir að árás var gerð á nemendur Borgar- holtsskóla skömmu eftir hádegi í gær. Til átaka kom milli nemenda og brutust út eins konar hópslagsmál. Á myndböndum af árásinni sem fóru í dreifingu á samfélagsmiðlum mátti sjá ungan mann berja frá sér í allar áttir með hafnaboltakylfu. Einnig greindu nemendur frá því að maður- inn hefði verið vopnaður hnífi og hann hefði notað hann gegn þremur nemendum, en það fékkst ekki stað- fest hjá lögreglu. Á einu myndbandi af árásinni má heyra fólk æpa: „Hníf- ur, hnífur!“ Ársæll Gunnarsson, skólameistari Borgarholtsskóla, staðfesti í samtali við mbl.is að hnífar hefðu verið not- aðir í árásinni. Hann lýsir atburðum gærdagsins sem einum þeim alvar- legustu sem upp hafi komið í íslensku skólakerfi. Töluverður viðbúnaður var við skólann í gær og mættu lög- regla og sjúkrabílar á vettvang ásamt sérsveit ríkislögreglustjóra eftir að tilkynning um árásina barst lögreglu klukkan 12.57. Í tilkynningu frá lögreglu segir að rannsókn máls- ins sé nú þegar hafin og hún sé enn á frumstigi. Ekki fengust upplýsingar um líðan þeirra sem fluttir voru á slysadeild. Lögregla var nokkuð fljót að ná stjórn á vettvangi í gær. Ekki nemendur skólans Ársæll Gunnarsson, skólameistari Borgarholtsskóla, sagði að starfsfólk og nemendur væru í áfalli eftir árás- ina. Hann segir þetta árás á íslenska skóla- og lýðræðishefð. Þannig sé árásin ekki bara árás á Borgarholts- skóla. Hann segir að árásarmaðurinn hafi verið einhver utanaðkomandi og þegar atburðarásin hófst hafi verið hringt í lögreglu. Eftir að búið var að tryggja öryggi nemenda var þeim hleypt heim og skólanum lokað. Hann verður þó opnaður í dag sam- kvæmt stundaskrá svo skólahald megi halda áfram. „Já, ég hef verið hátt í 30 ár í fram- haldsskólum og ég held að þetta sé það alvarlegasta sem hefur komið upp gagnvart þessari íslensku lýð- ræðishefð og bara ungu fólki al- mennt. Svona gróft opið ofbeldi fyrir opnum tjöldum algerlega og hér í ís- lenskum skóla,“ sagði Ársæll í sam- tali við mbl.is í gær. Hann segir jafn- framt að áfallahjálp verði boðin öllum þeim sem hana þurfa. Hræðsla greip um sig Ebba Magnúsdóttir, nemi við Borgarholtsskóla, ræddi við mbl.is í gær og lýsti aðstæðum á vettvangi. Hún segir að nemendur hafi verið hræddir en forvitnir. Margir nem- endur sendu skilaboð sín á milli og spurðu hver annan hvort allt væri í lagi með þá. „Nemendum var gert að sitja inni í stofum og það var verið að rýma alla ganga. Okkur var svo hleypt út í holl- um og gert að fara heim þar sem allir tímar falla niður eftir hádegi. Þá voru lögreglur með skjöld og sérsveitin var þarna og mikið af lögreglum, sjukrabílum og slökkviliðsbílum,“ sagði hún og bætti við: „Það voru náttúrlega allir mjög forvitnir um það sem var að gerast en svo voru líka allir mjög hræddir, sendu vinum sínum skilaboð og spurðu hvort það væri allt í lagi.“ Sex á slysadeild eftir árás  Sérsveit lögreglu kölluð út að Borgarholtsskóla  Maður vopnaður hafnabolta- kylfu og hnífi réðst að nemendum og kennurum  Málið til rannsóknar lögreglu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Borgarholtsskóli Mikill viðbúnaður lögreglu var á vettvangi í gær og var lögregla fljót að ná stjórn á aðstæðum. Skjáskot Árásin var tekin upp og myndefni dreift á félagsmiðlum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.