Morgunblaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 59
MENNING 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2021 helstu klisjur um hvað það feli í sér að vera miðaldra. „Tónlist úr smiðju leikhópsins er fyrirferðarmikil í sýn- ingunni og leikararnir bregða sér hlutverk tuga persóna þess á milli sem þeir syngja og dansa.“ Spurð hvað fram undan sé hjá Leikfélagi Akureyrar upplýsir Marta og æfingar séu hafnar á Bene- dikt búálfi eftir Ólaf Gunnar Guð- laugsson í leikstjórn Völu Fannell. „Þetta er viðamesta sýning leikárs- ins sem við hlökkum mikið til að sýna,“ segir Marta og tekur fram að frumsýningu hafi verið frestað um mánuð vegna kófsins, en nýr frum- sýningardagur er í byrjun mars. „Við erum með mjög flottan leik- hóp,“ segir Marta, en auk Árna Bein- teins sem leikur titilhlutverkið taka meðal annars þátt Þórdís Björk Þor- finnsdóttir, Björgvin Franz Gíslason, Hildur Guðnadóttir og Kristinn Óli Haraldsson, sem er betur þekktur sem Króli. „Við erum ótrúlega heppin að hafa skipulagt barna- og fjölskyldusýn- ingu á þessum tíma, því miðað við núverandi samkomutakmarkanir er auðveldara að sýna fyrir barna- fjölskyldur þar sem fjarlægðar- takmarkanir gilda ekki fyrir yngstu áhorfendurna,“ segir Marta sem bindur vonir við að hægt verði að sýna Benedikt búálf fram á vor. „Þá erum við að láta okkur dreyma um að fara í leikferð með Fullorðin.“ Kynið skiptir sjaldnast máli Ekki er hægt að sleppa Mörtu án þess að forvitnast nánar um nálgun hennar á Skugga-Svein sem hún mun sjálf leikstýra, en komið hefur fram að Ólafía Hrönn Jónsdóttir muni leika titilhlutverkið. „Í gamla daga léku karlmenn öll hlutverkin í Skugga-Sveini þannig að það hefði hæglega verið hægt að snúa þessu við og láta bara konur leika öll hlut- verkin í dag. Það hefur verið gert t.d. með verk Shakespeare. Í mínum huga snýst þetta um að finna rétta leikarann í titilhlutverkið og þar er ég ekki að horfa til kynsins heldur fremur persónugerðar. Skugga- Sveinn er bara manneskja, þannig þarf Ólafía hvorki að leika karl eða konu, bara manneskju. Ólafía Hrönn býr yfir ákveðnum elementum sem þjóna þessari persónu vel. Hún er mikill húmoristi á sama tíma og hef- ur sterka jarðtengingu. Hún er mjög tilfinningarík og á auðvelt með að fylla allt sviðið með nærveru sinni auk þess sem hún er hörkusöngvari, en Skugga-Sveinn syngur nokkur lög. Ólafía Hrönn er í einu orði sagt bara stórkostlegur listamaður,“ seg- ir Marta og bætir við að sér finnist gaman að geta boðið leikkonu sem komin er yfir miðjan aldur gott hlut- verk. „Skugga-Sveinn er stórt og flott hlutverk sem nokkrar af okkar bestu leikkonum á miðjum aldri geta auðveldlega leikið,“ segir Marta og tekur fram að það sé ekkert leyndarmál að þegar horft sé til leik- bókmenntanna sé tilfinnanlegur skortur á flottum hlutverkum fyrir leikkonur sem komnar eru á miðjan aldur. Með því að festa sig ekki um of við kyn hlutverkanna megi aftur á móti fjölga hlutverkum fyrir leik- konur á besta aldri. „Í fæstum hlut- verkum skiptir kynið málið. Þegar öllu er á botninn hvolft eru þetta bara manneskjur.“ Getur þjóðin enn speglað sig í Skugga-Sveini? Aðspurð segir Marta að sig hafi lengi langað að leikstýra Skugga- Sveini. „Þetta er eitt þekktasta leik- ritið sem við eigum og mest leikna í gegnum tíðina. Þetta verk á stóra hlutdeild í okkar þjóðarvitund. Mér fannst því áhugavert að skoða verkið með tilliti til þeirra breytinga sem samfélagið hefur gengið í gegnum. Er þetta verk enn að tala til okkar í dag eða er mögulega ekkert eftir af þeirri þjóð sem gat speglað sig í þessu verki fyrr á tímum? Mig lang- ar þannig að finna þessu verki farveg sem talar til samtímans,“ segir Marta sem í leikstjórnarverkefnum sínum á síðustu árum hefur reglu- lega tekið þjóðararfinn til skoðunar. Má í því samhengi nefna uppfærslu leikhópsins Aldrei óstelandi á Fjalla- Eyvindi eftir Jóhann Sigurjónsson og Ofsa sem byggist á Sturlungabók Einars Kárasonar. Að lokum má nefna að yfirstand- andi leikári Leikfélags Akureyrar lýkur í vor með frumsýningu á Krufningu á sjálfsmorði eftir Alice Birch í þýðingu Sölku Guðmunds- dóttur og leikstjórn Mörtu, en um er að ræða samstarfsverkefni Leik- félags Akureyrar við Þjóðleikhúsið og Listaháskóla Íslands þar sem út- skriftarnemar af leikarabraut skól- ans leika. Eldheitt breskt leikrit „Við ákváðum að fara í sambæri- legt samstarf og fyrir tveimur ár- um,“ segir Marta sem leikstýrði út- skriftarnemum LHÍ vorið 2019 í Mutter Courage eftir Bertolt Brecht. Aðspurð segist Marta mjög spennt fyrir verki Birch, sem hún segir „eldheitt“ og skemmtilega ólíkt síðasta útskriftarverkefni LHÍ. „Við Steinunn Knútsdóttir [þáver- andi forseti sviðslistadeildar LHÍ], Hrafnhildur Hagalín og Halldóra Geirharðsdóttir lásum fjölda verka áður en við fundum þetta breska leikrit sem er æðislegt. Það er mjög spennandi að Listaháskólinn sé að takast á við svona nýtt og ferskt verk sem er bæði mjög vel skrifað og talar með sterkum hætti inn í samtímann. Á sama tíma er þetta mjög krefjandi verk fyrir hópinn þar sem það er tæknilega mjög krefj- andi,“ segir Marta. Líkt og fyrir tveimur árum verður uppfærslan frumsýnd í Samkomuhúsinu á Ak- ureyri og í framhaldinu sýnd í Reykjavík á sviði Þjóðleikhússins. Aðspurð segist Marta þegar farin að leggja drög að næsta leikári Leikfélags Akureyrar. „Við stefnum að því að Skugga-Sveinn verði fyrsta frumsýning leikársins í haust. Ég er með ýmsar hugmyndir fyrir næsta leikár, en auðvitað verður að spila hlutina eftir því hvernig gengur með heimsfaraldurinn,“ segir Marta og tekur fram að kófið kalli á ákveðið æðruleysi. „Maður verður að vera bæði lausnamiðaður og tilbúinn að sleppa tökum af fyrri áætlunum og laga sig að nýjum aðstæðum,“ segir Marta að lokum. Allar nánari upp- lýsingar um næstu sýningar á Full- orðin og miðasala er á mak.is. Ljósmynd/Auðunn Níelsson Gleði Leikararnir og höfundarnir Vilhjálmur B. Bragason, Birna Pétursdóttir og og Árni Beinteinn Árnason í nútímarevíunni Fullorðin. Þau bregða sér í fjölmörg hlutverk í sýningunni sem byggist á sketsum og uppistandi. Gjöf sem barst á réttum tíma  Leikfélag Akureyrar sýnir gamanleikinn Fullorðin  Verkið kom í stað Skugga-Sveins sem frestast um ár vegna heimsfaraldursins  Marta Nordal segir að kófið kalli á ákveðið æðruleysi VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ætli það sé ekki best að lýsa þess- ari sýningu sem hálfgerðri nútíma- revíu um það að vera fullorðinn. Þetta er sketsasýning í anda ára- mótaskaupsins þar sem söngur og dans er fyrirferðarmikill og margar skemmtilegar persónur koma fyrir,“ segir Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar og annar tveggja leikstjóra gamanleiksins Fullorðin sem Leikfélag Akureyrar hefur tekið til sýninga. Höfundar verks- ins eru Árni Beinteinn Árna- son, Birna Pét- ursdóttir og Vil- hjálmur B. Bragason, en þau fara jafnframt með öll hlutverkin í sýningunni. Marta leikstýrði í samvinnu við Heklu Elísabetu Aðalsteinsdóttur. Ávallt haft mikla trú á því sem er sjálfsprottið Aðspurð segir Marta ekkert laun- ungarmál að samkomutakmarkanir síðustu mánaða hafa reynst töluverð áskorun. „Það munar öllu fyrir okk- ur hvort við megum vera með 50 eða 100 áhorfendur í sal á sýningum og tveggja metra reglan er stærsta áskorunin,“ segir Marta og jánkar því að yfirstandandi leikár hafi tekið töluverðum breytingum út af heims- faraldrinum. „Þannig var ætlunin að frumsýna Skugga-Svein eftir Matthías Jochumsson í nóvember, en 18. nóvember 2020 voru liðin 100 ár frá því að skáldið lést. Sú sýning átti að vera það fjölmenn að við treystum okkur ekki til að æfa og sýna hana meðan kófið ríkir og frestuðum henni því um ár,“ segir Marta og rifjar upp að um svipað leyti og sú ákvörðun hafi verið tekin hafi Vilhjálmur og Birna komið að máli við hana og viðrað hugmyndina að sýningunni Fullorðin. „Mér leist strax vel á þessa hug- mynd þeirra sem þau voru byrjuð að vinna handritið að,“ segir Marta og bendir á að þannig megi segja að Fullorðin hafi í raun leyst Skugga- Svein af hólmi þetta árið. „Mér fannst mikill kostur að geta á tímum heimsfaraldurs boðið áhorfendum upp á sýningu sem léttir lundina,“ segir Marta og tekur fram að hún hafi ávallt mikla trú á öllu því sem sé sjálfsprottið. „Þegar listamenn koma með hugmynd sem þeim ligg- ur á hjarta þá er það alltaf góðs viti, því þá kemur þetta frá réttum stað,“ segir Marta og tekur fram að Full- orðin hafi þannig verið mikilvæg gjöf sem barst á hárréttum tíma. Spurð um valið á Heklu sem leik- stjóra uppfærslunnar segir Marta: „Hekla lauk námi af sviðshöfunda- braut Listaháskóla Íslands og hefur starfað með Improv Ísland og verið í uppistandi. Fullorðin byggist að miklu leyti á spuna og því langaði mig að fá inn í sýninguna ungan og ferskan leikstjóra,“ segir Marta og tekur fram að upphaflega hafi staðið til að frumsýna Fullorðin í október. „Vegna samkomutakmarkana þurft- um við að fresta frumsýningunni og þá var Hekla upptekin í annarri vinnu og hafði ekki tök á að klára vinnuferlið þannig að ég tók við leik- stjórakeflinu,“ segir Marta og legg- ur áherslu á að Hekla hafi unnið mestalla grunnvinnuna. Dreymir um leikferð í vor „Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og mikið hlegið, enda þekkir allt miðaldra fólk sig mjög vel í að- stæðum verksins,“ segir Marta og tekur fram að unnið sé með allar Marta Nordal Rúmteppi 140x250 cm 9.890,- Rúmteppi 240x250 cm 14.990,- Rúmteppi 260x250 cm 15.990,- Púði 40x60 cm 7.790,- Púði 50x65 cm 8.990,- RÚMTEPPI & PÚÐAR Margir litir KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.