Morgunblaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 14.01.2021, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2021 FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS | SIGN.IS 50 ára Þórunn er Hafnfirðingur en býr í Vogum á Vatnsleysu- strönd. Hún er heil- brigðisgagnafræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og vinnur hjá verkjamiðstöðinni Corpus Medica í Holtasmára í Kópa- vogi. Dætur: Guðrún Eva Þorsteinsdóttir, f. 2009, og Margrét Þorsteinsdóttir, f. 2011. Foreldrar: Guðrún Leifsdóttir, f. 1947, kennari, og Sigurður Óskarsson, f. 1947, vélvirki. Þau eru búsett í Hafn- arfirði. Þórunn Sigurðardóttir kenndi Guðrún Birna við Skála- túnsheimilið í Mosfellssveit. Að námi loknu fór Guðrún Birna að kenna við Höfðaskóla sem nú heitir Klettaskóli og starfaði þar í fjögur ár. Síðan tók við Hóla- brekkuskóli, Fjölbraut í Breiðholti (1980-1990), Nýi Tónlistarskólinn og seinna Píanóskóli Þorsteins Gauta. Auk þess kenndi hún í einkatímum á píanó. Hún hætti störfum fyrir sjö árum. „Þetta eru svo mörg störf af því ég þurfti svo oft að stökkva úr og í vinnu vegna þess að ég var með börnin heima og þurfti einhvern veginn að láta þetta passa allt saman. Þau fóru stundum í sveit og þá fór ég að vinna úti.“ Enn fremur var Guðrún Birna kórstjóri Selkórsins 1977-1979, kenndi einn vetur tónfræði í Leik- listarskólanum og einn vetur á pí- anó í Söngskólanum í Reykjavík og kenndi tónfræði og á flautu einn vetur í Tónskóla Sigursveins. G uðrún Birna Hannes- dóttir fæddist 14. jan- úar 1936 á Landspít- alanum og ólst upp í miðbæ Reykjavíkur. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar og stundaði píanónám frá 8 til 18 ára aldurs hjá þeim Gunnari Sigur- geirssyni og Rögnvaldi Sigurjóns- syni. Eftir gagnfræðapróf fór hún á Húsmæðraskóla árið 1952 til Silkiborgar í Danmörku. Eftir það fór hún eitt ár í leiklistarskóla Lárusar Pálssonar. Guðrún Birna giftist Sigurði Sigurðssyni 1954 og bjuggu þau á Hamraendum í Stafholtstungum í Borgarfirði. Á þeim árum var hún organisti í Stafholtskirkju í þrjú ár. Þau skildu eftir sjö ára búskap og fluttist hún þá ásamt fjórum börnum þeirra til Reykjavíkur. Hún vann ýmis störf svo sem í Útvegsbankanum, hjá Flugmála- stjórn, Ferðaskrifstofunni Sunnu og Ferðaskrifstofu ríkisins. Hún starfaði einn vetur sem aðstoðar- kennari við Húsmæðraskólann á Löngumýri í Skagafirði 1965-66 og spilaði jafnframt með Karlakórn- um Heimi þann vetur. Einnig starfaði hún sem undirleikari í Þjóðleikhúsballettinum frá 1966-69 og einn vetur hjá Þjóðdansa- félaginu. Árið 1969 hóf hún þriggja ára nám í Tónlistarskólanum í Reykja- vík í tónmenntakennaradeild með píanókennslu sem valgrein. Píanó- kennari var Martin Hunger, en áður hafði hún verið í píanótímum hjá Róbert A. Ottóssyni. Þótti það undrum sæta að einstæð fjögurra barna móðir hæfi framhalds- skólanám á þessum tímum. „Ég þorði ekki að segja nema örfáum frá því. En eftir þetta fóru vel giftar vinkonur mínar í framhalds- skóla og ein sagði: „Úr því að hún getur þetta þá ég get það líka.““ Á þriðja og síðasta ári námsins Jafnframt kennslu var hún laus- ráðinn dagskrárgerðarmaður í Út- varpinu og var t.d. með tónlistar- þætti sem hétu Tónhornið auk upplesturs á ýmsum barnabókum. Hún þýddi og las í útvarpið „Det förkrymta kvinnoidealet“ eftir Barbro Backberger og bjó til nokkra útvarpsþætti sem fjölluðu um fyrstu konuna til að játast bahá’í-trú í heiminum en hún nefndist Tahirih. „Hún var kölluð Hin hreina og var einn fyrsti písl- arvottur kvennabaráttunnar, en hún var drepin. Ég er sjálf bahá’í, en ég tók upp trúna 1967.“ Guðrún Birna var einn af stofn- endum Félags einstæðra foreldra 1969. „Þetta var ekki sambærilegt að vera einstæð móðir og er núna. Þá var ég konan með börnin, við vorum ekki álitin vera fjölskylda.“ Áhugamál Guðrúnar Birnu eru handavinna, tónlist, leiklist, lestur ferðalög og tungumál. Hún söng um tíma í Pólýfónkórnum og fór í Guðrún Birna Hannesdóttir, tónlistar- og píanókennari – 85 ára Fjölskyldan F.v.: Ólöf, Guðrún Birna, Jóhann, Sigrún og Þorsteinn Gauti. Skellti sér í framhaldsnám ein með fjögur börn Kennarinn Guðrún Birna og Anna Róshildur Benediktsdóttir Bøving. Afmælisbarnið Guðrún Birna. 30 ára Margrét er Kópavogsbúi og ólst þar upp. Hún er tómstunda- og fé- lagsmálafræðingur frá HÍ og vinnur á leikskólanum Arnarsmára og í félagsmiðstöðinni Þebu. Margrét er markvörður hjá Aftureldingu í hand- bolta. Maki: Brynja Arnardóttir, f. 1995, mastersnemi í jarðfræði. Foreldrar: Hulda Alfreðsdóttir, f. 1966, vinnur hjá Eimskip, og Björn Steinar Stefánsson, f. 1964, vinnur hjá Sam- skipum. Þau eru búsett í Kópavogi. Margrét Ýr Björnsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Andleg óþreyja verður líkamleg með tímanum ef ekkert er að gert. Segðu ná- kvæmlega hvað þú ert til í og ekki til í að gera. 20. apríl - 20. maí  Naut Samkeppnin laðar ávallt fram þína bestu eiginleika og það er eins og þú vaknir upp af dvala. Láttu ekki fljótfærnina ná tök- um á þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það skiptir öllu máli að hafa hlut- ina í jafnvægi svo gætið þess að forgangs- raða rétt til þess að ná árangri. Haltu þínu striki og vertu viss um að allt gangi að ósk- um. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Einhver setur sig upp á móti áætl- unum þínum um ferðalög eða framhalds- nám. Búðu þig undir erfiða tíma sem munu standa stutt yfir en taka sinn toll. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Sumir leita til þín með mál sín í fullri al- vöru, en svo eru þeir, sem eru bara að tékka á skoðunum þínum. Menn kunna að meta hreinskilni þína. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Eitthvað verður til þess að setja allt á annan endann hjá þér í dag. Sýndu þol- inmæði þó að þetta raski fyrirætlunum þín- um. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur náð töluverðum árangri í starfi en þú þarft að leggja enn harðar að þér til að ná enn lengra. Leyfðu öðrum að deila ánægjunni með þér. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þótt þú takir magn framyfir gæði í vinnunni nærðu samt sem áður hvoru tveggja. Vertu staðfastur og þá fer allt vel að lokum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Leggðu hart að þér í vinnunni í dag, því þér getur orðið vel ágengt. Vinir sem gengur vel geta verið ansi hvetjandi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert hávær og stoltur en það eru ekki allir sammála þér. Leitaðu að and- legri rót vandamálanna og notaðu orkuna þína til að lækna. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ef þú heldur rétt á spilunum mun þér ganga allt í haginn jafnt á vinnustað sem heima fyrir. Nýttu þér sköpunargáfu þína. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þegar margs er spurt má alltaf reikna með að fá einhver þau svör sem falla manni misjafnlega í geð. Friðrik Friðriksson lögfræðingur fagn- ar 70 ára afmæli sínu í dag. Friðrik á fimm börn og fimm barnabörn með eiginkonu sinni, Laufeyju Elsu Sól- veigardóttur. Hann ætlar að njóta dagsins í faðmi fjölskyldunnar. Árnað heilla 70 ára Til hamingju með daginn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.