Morgunblaðið - 14.01.2021, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2021
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
2012
2020
HJÁ OKKUR FÁST
VARAHLUTIR
Í AMERÍSKA BÍLA
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Veruleg vonbrigði eru meðal loðnu-
útgerða yfir að ekki hafi fundist næg
loðna til að Hafrannsóknastofnun
sjái ástæðu til að auka útgefna ráð-
gjöf fyrir loðnu í kjölfar loðnuleið-
angurs fimm skipa sem lauk á mánu-
dag. Ráðgjöf stofnunarinnar
stendur því óbreytt í 22 þúsund
tonnum og bendir allt til þess að
aflamark í loðnu verði veitt erlend-
um skipum þar sem myndast hefur
skuld við erlend ríki vegna al-
þjóðlegra skuldbindinga við önnur
strandríki, svo sem með Smugu-
samningnum við Norðmenn.
„Það þarf ekkert að velta því fyrir
sér, það er búið að eyðileggja þenn-
an markað,“ segir Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson, eða Binni, fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í
Vestmannaeyjum, spurður um áhrif-
in á markaðina fyrir loðnu og loðnu-
hrogn ef fer sem horfir. Hann segir
markaðina algjörlega tóma eins og
stendur. „Þetta er ekki bara tjón í
ár. Þetta er risatjón inn í framtíð-
ina.“
Varanleg áhrif
Hann segir stöðuna sérstaklega
slæma ef loðnan dettur alfarið af
markaði því þá munu framleiðendur
aðlaga sig breyttum aðstæðum og
með því að fjárfesta í annarri mat-
vælaframleiðslu. „Verksmiðjur með
sérhæfingu og þekkingu á að áfram-
vinna loðnu – þessu verður öllu lokað
á endanum og menn fara í eitthvað
annað.“
Ef loðna kemur aftur á markað
síðar telur Binni ekki líklegt að
framleiðendur grípi til kostn-
aðarsamra fjárfestinga í þeim til-
gangi að nýta loðnu á ný. „Stóra
málið er að það er engin önnur vara í
staðinn. Það er engin loðna frá öðr-
um heimshluta í boði, frá Noregi eða
Kanada. Loðnan fer bara út. Ég
hugsa að við á Íslandi séum með um
90% af heimsframleiðslu á loðnu,
loðnuhrognum og loðnuafurðum,“
útskýrir hann og segir gríðarlega
erfitt að koma vörunni á markað aft-
ur. Í húfi séu miklar tekjur fyrir ís-
lenskt þjóðarbú.
Þá hefur markaðsstöðu loðnu-
afurða verið bjargað af kórónu-
veirufaraldrinum þar sem lokun
veitingahúsa og hótela hefur dregið
úr eftirspurn. Þetta hefur gert selj-
endum kleift að varðveita tveggja
ára gamlar birgðir sem seljast hægt
og á háu verði. Birgðastaðan er samt
sífellt að versna og bendir flest til
þess að birgðirnar klárist á þessu
ári.
Binni kveðst sannfærður um að
loðnu sé að finna í sjónum umhverfis
Ísland. „Það ungviði sem þeir
mældu er ekki týnt. Það er ekki allt
saman dautt,“ segir hann og vísar til
þess að töluvert af ungloðnu fannst
við stofnmælingu loðnu haustið 2019
og voru síðast í haust vísbendingar
um að á vertíðinni yrði ráðgjöf 170
þúsund tonn. „Loðnan finnst, hún er
þarna.“
Segir ungloðnuna
ekki hafa horfið
Loðnuleysið hefur langtímaáhrif
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Áhyggjur Það stefnir í tjón segir
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson.
Afurðaverð á markaði
12. janúar 2021, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 271,97
Þorskur, slægður 350,49
Ýsa, óslægð 271,06
Ýsa, slægð 244,78
Ufsi, óslægður 145,76
Ufsi, slægður 146,64
Gullkarfi 182,72
Blálanga, óslægð 254,69
Blálanga, slægð 238,30
Langa, óslægð 190,13
Langa, slægð 232,06
Keila, óslægð 51,42
Keila, slægð 87,49
Steinbítur, óslægður 251,98
Steinbítur, slægður 319,43
Skötuselur, slægður 718,88
Grálúða, slægð 337,17
Skarkoli, slægður 406,34
Þykkvalúra, slægð 574,16
Langlúra, óslægð 155,00
Langlúra, slægð 159,00
Sandkoli, óslægður 62,00
Bleikja 1.455,00
Gellur 1.187,54
Grásleppa, óslægð 1,81
Hlýri, óslægður 12,00
Hlýri, slægður 343,53
Hrogn/þorskur 330,22
Hvítaskata, slægð 30,00
Lúða, slægð 480,24
Lýsa, óslægð 40,96
Lýsa, slægð 15,00
Rauðmagi, óslægður 258,10
Skata, slægð 134,40
Stórkjafta, slægð 140,00
Undirmálsýsa, óslægð 122,83
Undirmálsýsa, slægð 166,00
Undirmálsþorskur, óslægður 136,75
Undirmálsþorskur, slægður 137,55
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Fiskmarkaðir fara vel af stað á fyrstu
tólf dögum ársins miðað við sama
tíma í fyrra. Hafa um 3.860 tonn farið
um markaðina á tímabilinu og nemur
verðmæti þeirra 1.125 milljónum
króna. Hefur magnið aukist um 219%
og veltan um 131% milli ára, en um
1.208 tonn fóru um markaðina á
fyrstu tólf dögum ársins 2020 og nam
veltan 487 milljónum króna, segir í
gögnum Reiknistofu fiskmarkaða.
Líklega hafa veðurskilyrði veiða
mikið að segja en það var stöðug ótíð
í desember 2019 og vel fram á vetur
2020. Varð þetta til þess að skortur
myndaðist á mörkuðum sem um sinn
ýtti undir hagstætt verð.
Þannig nam meðalverð á kíló af
þorski sem seldur var á fiskmörkuð-
um fyrstu tólf daga síðasta árs 527,24
krónum en meðalverð á sama tíma-
bili í ár var 353,06 krónur á kíló og
dróst þannig saman um 33%. Sala á
þorski jókst hins vegar um 336% milli
ára.
Verð fylgir framboði
Þá jókst framboð af ýsu um 198%,
skarkola um 39%, ufsa um 63% og
gullkarfa um 453%. Á sama tíma
lækkaði verð á hvert kíló á ýsu um
39%, ufsa um 19% og gullkarfa um
41%. Verð hækkaði hins vegar á skar-
kola um 7%.
Talið er að árin 2018 og 2019 hafi
magn af útfluttum óunnum fiski í
gámum verið helmingur þess magns
sem fór í gegnum fiskmarkaði. Ekki
er vitað hvort það sé einnig tilfellið nú.
Staðan á fiskmörkuðum 1. til 12. janúar 2020 og 2021
2020 2021
2020 2021
Heimild: Reiknistofa
fiskmarkaða
Tegund Tonn
Velta,
m.kr.
Þorskur 1.634 577
Ýsa 912 226
Gullkarfi 287 61
Skarkoli 216 92
Ufsi 161 24
Þorsklifur 159 19
Steinbítur 139 51
Undirmálsþorskur 90 14
Tegund Tonn
Velta,
m.kr.
Langa 75 16
Keila 43 3
Þorskhrogn 23 7
Hlýri 18 7
Þykkvalúra 13 9
Ufsalifur 12 1
Undirmálsýsa 11 1
Annað 69 17
Samtals 3.861 1.126
Tegund Tonn
Velta,
m.kr.
Þorskur 375 198
Ýsa 306 124
Skarkoli 156 61
Ufsi 99 18
Þorsklifur 62 6
Gullkarfi 52 19
Undirmálsþorskur 31 8
Tegund Tonn
Velta,
m.kr.
Steinbítur 29 14
Langa 24 7
Undirmálsýsa 11 3
Hlýri 10 6
Keila 10 1
Annað 45 21
Samtals 1.209 487
Þorskur Ýsa Skarkoli Ufsi Gullkarfi
2020 2021 2020 2021 2020 2021 2020 2021 2020 2021
Verð, kr./kg. 527 353 406 248 395 423 182 148 359 213
Breyting milli ára:
Kr./kg (%) -174 kr./kg (-33%) -158 kr./kg (-39%) 28 kr./kg (7%) -34 kr./kg (-19%) -146 kr./kg (-41%)
Tonn (%) 1.259 (336%) 606 (198%) 61 (39%) 62 (63%) 235 (453%)
353
527
248
406 423395
148182
213
359
Verðþróun
stærstu
tegunda milli
ára (kr./kg)
Breyting frá 2020 219% 131%
Öflug byrjun á árinu
á fiskmörkuðunum
Sala jókst um 640 milljónir króna á fyrstu dögum ársins