Morgunblaðið - 14.01.2021, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 14.01.2021, Qupperneq 37
37 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2021 Rúður Þessir iðnaðarmenn létu leiðindaveðrið í gær ekki á sig fá og skiptu um rúður í blokk á Geirsgötu í miðbæ Reykjavíkur. Útlit er fyrir svipað veður í dag en það styttir upp á föstudag. Eggert Þau tímamót eru fram undan í sögu Kópavogs að það hillir undir að miðbærinn, Hamraborg og næsta nágrenni, fái loks þann sess sem honum var ætlaður. Lagðar hafa verið fram til- lögur að breyttu skipulagi hans þar sem áherslan er á mannlíf, verslun og þjónustu. Fyrirhugað er að byggja um 550 íbúðir á svæðinu. Þessi þétting byggðar skapar forsendu fyrir ið- andi mannlíf en skipulagstillögur gera meðal annars ráð fyrir göngugötu, mannlífsás, sem liggur frá Menningarhúsunum í Kópavogi að Kópavogsskóla og verslunar- og þjónusturými á jarðhæðum við göngugötuna. Bílastæði taka mikið til sín eins og skipulagið er í dag. Í breyttu skipulagi er ásýnd svæðisins allt önnur þar sem bíllinn færist neð- anjarðar. Gert er ráð fyrir að fjölgun nýrra bílastæða verði í nýj- um bílakjallara sem einnig nýtist íbúum og gestum á svæðinu. Þegar bílastæði eru komin neðanjarðar skapast skilyrði til þess að nýta núver- andi bílastæði fyrir torg og mannlíf. Borgarlína og bíllaus lífstíll Áhersla verður á smærri íbúðir á þessum nýja uppbyggingarreit og stefnt er að því að fólk geti keypt íbúðir án bílastæðis. Þar með skapast möguleiki fyrir þá sem kjósa bíllausan lífsstíl að festa kaup á húsnæði á hagstæðara verði í hverfi sem er afar mið- svæðis á höfuðborgarsvæðinu og ótrúlega vel tengt við stærstu vinnustaði landsins. Tilkoma borg- arlínunnar mun bæta tengingar Hamraborgarinnar enn frekar þar sem tvær línur hennar munu liggja um Hamraborgina. Sem dæmi má nefna að leiðin frá Hamraborg í Háskólann í Reykja- vík verður sex mínútur og styttist um 11 mínútur þegar borgarlína yfir Fossvog verður tekin í notkun. Að sama skapi styttist ferðatími í Háskóla Íslands og Landspítalann en þessir vinnustaðir tilheyra fjöl- mennustu vinnustöðum landsins. Þá batna tengingar við miðbæ Reykjavíkur með öllum þeim stofnunum og þjónustu sem þar er að finna. Nú þegar eru Menningarhús Kópavogs á þessu svæði, stjórn- sýsla, verslanir og þjónusta ýmiss konar. Það er óhætt að fullyrða að með fjölgun íbúða verður fram- boðið af þjónustu enn meira og munu allir íbúar bæjarins njóta góðs af breytingunni. Skipulagstillögurnar hafa vakið verðskuldaða athygli. Áhugi íbúa í Kópavogi þýðir að fólki er annt um Hamraborgina og hvet ég áhuga- sama til þess að fylgjast með kynningarfundi um skipulagstil- lögurnar sem streymt verður í dag, fimmtudaginn 14. janúar, á vef Kópavogs. Á vefnum eru einnig ítarleg og vönduð gögn skipulags- ins og þrívíddargögn sem gott er að skoða. Í þróunarferli miðbæjarins hef- ur átt sér stað mikið samráð og hugmyndavinna. Lagðar voru fram tvær vinnslutillögur sem er eins- dæmi eftir því sem ég best veit. Nú eru tillögurnar í kynningarferli deiliskipulags og því enn hægt að senda inn ábendingar. Eftir Ármann Kr. Ólafsson » Þétt byggð, mikil þjónusta, góðar samgöngur og mannlíf verða einkenni endur- nýjaðrar Hamraborgar Ármann Kr. Ólafsson Höfundur er bæjarstjóri Kópavogs. Iðandi mannlíf í nýrri Hamraborg Teikning/ONNO/PK arkitektar Í byrjun árs voru breytingar gerðar á framkvæmd skimana fyrir krabbameinum í kjölfar ákvörðunar heilbrigðisráðherra þess efnis. Fréttirnar komu mörgum á óvart. Landspítala hefur nú verið falin framkvæmd skimana fyrir krabba- meinum í brjóstum í samvinnu við Sjúkra- húsið á Akureyri og heilsugæslunni hefur verið falin framkvæmd skimana fyrir krabbameini í leghálsi. Samhliða því að þetta samfélagslega mikilvæga verkefni flyst nú alfarið yfir til hins op- inbera voru gerðar breytingar á fram- kvæmdinni. Aldursviðmiðum var breytt fyrir skimun brjóstakrabba- meins og tíðni skimana fyrir legháls- krabbameini minnkuð. Skimun fyrir krabbameini í brjóstum og leghálsi er mikilvæg forvörn sem býðst ein- kennalausum konum og ég held að það sé óhætt að segja að konur og aðstand- endur þeirra séu þakklát fyrir hana. Algengasta krabbamein kvenna Viðbrögðin bera með sér að frétt- irnar veki kvíða og ugg. Eðlilega, vil ég leyfa mér að segja, enda eru miklir hagsmunir í húfi og röksemdirnar að baki hafa ekki verið kynntar almenningi nema að takmörkuðu leyti. Heilbrigðisstarfs- fólk hefur á síðustu dög- um líka lýst yfir efa- semdum. Ég viðurkenni að mér fundust þessar fréttir óþægilegar. Brjóstakrabbamein er algengasta krabbamein sem konur greinast með. Þær tölur þekkjum við öll. Að jafnaði greinast rúmlega 200 konur á ári. Öll gleðjumst við og get- um verið stolt af því að 90% kvenna eru á lífi 5 árum eftir greiningu. Hina hliðina þekkjum við líka því miður öll, að margar konur hafa látist vegna brjóstakrabbameins. Mæður, systur og dætur, vinkonur, ömmur, vinnufélagar og grannar. Konur sem greinst hafa með brjóstakrabbamein eru allt um kring. Þess vegna stend- ur okkur ekki heldur á sama þegar breytingar eru gerðar á aðgengi að skimunum og fyrirkomulagi þeirra. Málið stendur mörgum svo nærri. Það er þess vegna sem svo miklu skiptir að forsendur og röksemdir fylgi og að samtal fái að eiga sér stað um hvort við viljum yfirleitt fara í breytingar á borð við þær að hækka aldursviðmið brjóstaskimunar um heil 10 ár. Og ég viðurkenni að ég er í hópi þeirra sem eru smeyk við þá breytingu. Tugir yngri kvenna á hverju ári Hingað til hefur konum á aldrinum 40-69 ára verið boðið í skimun fyrir krabbameini í brjóstum en nú verður konum á aldrinum 50-74 ára boðið í skimun. Konum stendur því til boða að fara í þessa skimun lengur en ver- ið hefur en skimun hefst hins vegar 10 árum seinna. Þá verður skimun fyrir leghálskrabbameini á 5 ára fresti í stað 3 ára, án þess að almenn- ingur heyri rökin að baki. Mér sýnist sem sú breyting að hefja brjóstas- kimun ekki fyrr en við 50 ára aldur sé ekki í samræmi við evrópsk tilmæli og fram hefur komið að fagráð um brjóstaskimun hafi mælst til þess að aldursviðmiðið yrði 45 ár. Það eitt vekur spurningar. Hingað til hafa stjórnvöld talið ástæðu til þess að miða við 40 ár og í ljósi þeirra hags- muna sem eru í húfi þarf þetta sam- tal að fá að eiga sér stað. Á vef Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstand- endur, segir að á árunum 2015-2019 hafi að meðaltali 31 kona á aldrinum 40-49 ára greinst árlega með brjósta- krabbamein. Þar til viðbótar eru þær konur sem greinast með brjósta- krabbamein undir 40 ára aldri. Að jafnaði greinast því einhverjir tugir ungra kvenna með brjósta- krabbamein á ári hverju. Það er því ekki alveg svo að brjóstakrabbamein hjá konum undir 50 ára aldri sé að- ferðafræðilegur útlagi eða veruleiki sem við könnumst ekki við. Forsendur og upplýsingar skortir Eftir stendur hversu mikilvægt það er fyrir öryggi kvenna og já- kvæða upplifun af eftirliti að skimun hefjist fyrr frekar en seinna. Strax af þessari ástæðu er það grundvallar- skylda stjórnvalda að útskýra for- sendur að baki þessum breytingum en verulega hefur skort á upplýs- ingar um forsendur og röksemdir, annars vegar hvað varðar breytingar um aldursviðmið og tíðni skimana og hins vegar um flutning þessa verk- efnis yfir til heilsugæslunnar og Landspítala. Eðlileg spurning í þessu sambandi er til dæmis hvort heilsugæslan hafi bolmagn til þess að bæta þessum verkefnum við sig? Heilsugæslan er þegar mjög verk- efnum hlaðin. Hvað verður um þá fagþekkingu sem byggst hefur upp? Og hvers vegna er þessi leið betri en sú að Sjúkratryggingar semji við fagaðila sem geta veitt viðurkennda þjónustu? Hvers vegna er betra að bæta þessum verkefnum á heilsu- gæsluna og auka álag á Landspít- alann? Markmiðið hlýtur að vera að eft- irlit sé eins og best verður á kosið og að fólk upplifi að svo sé. Forsendur og röksemdir þarf að kynna rækilega þegar svona veigamiklar breytingar eru gerðar. Samtal við almenning verður líka að fá að eiga sér stað og á að snúast um hvernig við getum tryggt skimun, eftirlit og meðferð þannig að við náum besta mögulega árangri. Þetta mál stendur okkur öll- um nærri, snertir víða sára taug og getur ekki átt sér stað með þessum hætti að breyting sé kynnt án nokk- urs samtals. Eftir Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur » Þetta mál stendur okkur öllum nærri, snertir víða sára taug og getur ekki átt sér stað með þessum hætti að breyting sé kynnt án nokkurs samtals. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Höfundur er þingmaður Viðreisnar. Móðir, systir, dóttir, amma og vinkona
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.