Morgunblaðið - 22.01.2021, Síða 1

Morgunblaðið - 22.01.2021, Síða 1
Mældu orkuna í snarlinu „Við byrjuðum aftur með verklega tíma í þessari viku. Þessir nem- endur fengu aldrei að fara í til- raunastofuna á haustönninni,“ sagði Selma Þórunn Káradóttir, fagstjóri raungreina í Verzl- unarskóla Íslands. Hún segir að verði samkomutakmarkanir ekki hertar og ef smit haldast lág verði vonandi hægt að halda uppi verk- legri kennslu til vors. „Krökkunum finnst mjög gaman að fá að koma í skólann og að hitt- ast. Félagslegi þátturinn er svo mikilvægur. Svo er gott að geta lát- ið þau gera verklegar tilraunir,“ sagði Selma. Nemendurnir sem voru í tilraunastofunni í gær eru á lokaári og voru að læra um orku í efnahvörfum. Tilraun gærdagsins fólst í að brenna hnetur, poppkorn og sykurpúða og mæla orkuna sem losnaði. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Verzló Hneta var brennd undir dós með vatni og fylgst með hita vatnsins.  Verkleg kennsla í Verzlunarskólanum eftir langt hlé F Ö S T U D A G U R 2 2. J A N Ú A R 2 0 2 1 Stofnað 1913  18. tölublað  109. árgangur  EKKI GAMAN AÐ VERA Á VARA- MANNABEKKNUM SETUR FRAM ÞJÓÐARSTEFNU GEGN VEIRUNNI GALDRAR GÓÐRAR LJÓÐLISTAR BANDARÍKIN 14 LJÓÐSTAFUR AFHENTUR 36RAGNAR TIL ÚKRAÍNU 34 Flestar byggingar Háskóla Íslands voru á floti í gær eftir að kaldavatnsæð við Suðurgötu rofnaði um nóttina. Jón Atli Benediktsson háskólarektor segir ógerning að reyna að meta tjónið að svo stöddu, en við blasi að það sé gríðarlegt. „Það er mikil rafræn kennsla í skólanum, svo áhrifin eru minni en ella,“ segir rektor. „Samt sem áður verða ýmsar byggingar Háskólans úr leik í nokkra mánuði og komast jafnvel ekki í notkun fyrr en í haust.“ Talið er að um 2.250 tonn af vatni hafi flætt um há- skólasvæðið áður en komist var fyrir lekann, sem lætur nærri að vera sama vatnsmagn og er í Laugardalslaug. Auk að- albyggingar Háskólans flæddi vatn m.a. inn í Gimli, Árnagarð og Háskólatorg og lá nær öll starfsemi Háskólans niðri í gær meðan vatni var dælt út. Handritasafnið í Árnagarði, þjóðar- gersemar Íslendinga, var hins vegar öruggt. »2 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Starfsemi Háskólans truflast svo mánuðum skiptir  Stórskemmdir í HÍ vegna vatnsflaums  Ógerningur að meta tjónið að svo stöddu  Handritin heil Andrés Magnússon andres@mbl.is Grænlensk stjórnvöld hafa tekið vel í Grænlandsskýrslu utanríkisráð- herra og þær tillögur, sem þar koma fram um aukin samskipti landanna. „Ég kynnti skýrsluna í fyrradag fyrir Steen Lynge, utanríkisráð- herra Grænlands. Viðbrögð hans voru einstaklega jákvæð og hann lagði það til, sem ég samþykkti fús- lega, að við myndum kynna þetta sameiginlega í Hringborði norðurs- ins (Arctic Circle) í haust,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, í sam- talið við Morgunblaðið. Sömuleiðis hefðu þeir verið ásáttir um að gera rammasamning sem fyrst, sem yrði umgjörð um framkvæmdina. Guðlaugur Þór kynnti Grænlands- skýrsluna opinberlega á blaða- mannafundi í gær, en hún var unnin af nefnd undir forystu Össurar Skarphéðinssonar, fyrrverandi utan- ríkisráðherra. „Ég finn aldrei neitt nema algeran samhljóm milli Íslendinga og Græn- lendinga um að efla og styrkja sam- skiptin, en það hefur vantað fastmót- aðan grunn til að byggja á og vinna skipulega eftir,“ segir Guðlaugur Þór. „Þess vegna fól ég Össuri þetta verkefni og treysti engum manni betur til þess. Það sjá enda allir sem lesa skýrsluna hvað hún er vönduð og yfirgripsmikil.“ »11 Grænlendingar taka vel í tillögur  Stefnumótun um tengsl við Grænland

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.