Morgunblaðið - 22.01.2021, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 22.01.2021, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2021 Þvottur Eftir úrkomutíð hefur gefist gott færi til að þrífa glugga og aðra fleti utandyra, líkt og þessi starfsmaður skartgripaverslunar í miðbænum nýtti sér í gær. Eggert Við embættistöku sína miðvikudaginn 20. janúar 2021 tók Joe Bi- den, 46. forseti Banda- ríkjanna, við erfiðum úrlausnarefnum: Co- vid-19-faraldrinum, efnahagsóvissu, kyn- þáttaspennu og eft- irleik þinghúsárás- arinnar 6. janúar 2021 sem breytti athöfninni við embættistökuna í mest víggirta viðburð jarðarkringlunnar. Í ræðu sinni kynnti Biden ásetn- ing sinn um að sameina bandarísku þjóðina til einhuga átaks gegn mikla vandanum sem að henni steðjar. Bi- den beindi athygli að heimavelli og margáréttaði nauðsyn þjóð- arsamstöðu. Hann sagði: „Undanfarnar vikur og mánuðir hafa kennt okkur sára lexíu. Sumt er satt og sumt eru lygar. Lygar sagðar í þágu valds og gróða. Og á hverju okkar hvílir skylda og ábyrgð sem bandarískum ríkisborgurum og einkum sem forystumönnum. For- ystumönnum sem er skylt að virða stjórnarskrá okkar og vernda þjóð okkar. Til að verja sannleikann og sigrast á lyginni.“ Þessi orð má túlka sem kalda kveðju til fráfarandi forseta, Do- nalds Trumps. Gífurleg örygg- isgæslan í kringum Capitol og í Washington á miðvikudaginn var vitnisburður um uppnámið á loka- dögum forsetatíðar Trumps sem sýndi eftirmanni sínum óvirðingu með fjarveru frá athöfninni. Donalds Trumps verður minnst sem friðarspillis á heimavelli en einnig sem forsetans sem stofnaði ekki til hernaðarátaka við neina þjóð. Honum tókst að koma hreyf- ingu á staðnað ástand í Mið- Austurlöndum. Fyrir tilstilli stjórnar hans bötnuðu samskipti Ísr- aela og nágrannaþjóða þeirra. Valdahlutföllin breyttust í þessum við- kvæma heimshluta. Ut- anríkisráðherra Araba- ríkis sem samdi við Ísraelsstjórn sagði samninginn sýna að stjórn sín sætti sig ekki lengur við að vera eins konar gísl Palest- ínumanna án svigrúms til eigin ákvarðana í utanríkismálum. Guðlaugur Þór Þórðarson varð ut- anríkisráðherra 30. nóvember 2017 þegar Trump-stjórnin hafði setið í rúma 10 mánuði. Hann sagðist í sam- tali við Morgunblaðið 16. janúar 2021 hafa einsett sér sem ráðherra að efla stjórnmálatengslin við Bandaríkja- menn, mikilvægustu viðskiptaþjóð okkar, ábyrgðarmenn ytra öryggis Íslendinga á grundvelli varnarsamn- ings í 70 ár, fyrstu þjóðina sem við- urkenndi sjálfstæði Íslendinga við stofnun lýðveldisins 1944. Hann væri „mjög ánægður með hvað það gekk hratt og vel fyrir sig að efla og treysta samskiptin vest- ur,“ þau væru reist á gömlum og góðum grunni en „ekki á einstaka stjórnmálamönnum eða flokkum“. Tengslin styrkt Í tíð stjórnar Trumps sýndu bandarísk stjórnvöld Íslendingum, málefnum Norður-Atlantshafs og norðurslóða mikinn áhuga. Hann birtist til dæmis í tvíhliða sam- skiptum við íslensk stjórnvöld. Hingað komu Mike Pompeo utan- ríkisráðherra, Mike Pence varafor- seti og hópur öldungadeildarþing- manna á árinu 2019. Bandaríska sendiráðið flutti í nýtt húsnæði. Þeg- ar sendiherra Trumps tók af skarið um lokaskref byggingarfram- kvæmdanna batt hann enda á ára- langt ferli. Jafnframt var keypt veg- leg húseign í Reykjavík fyrir framtíðarbústað sendiherra Banda- ríkjanna. Við valdatöku Trumps 20. janúar 2017 hvarf þáverandi sendiherra Bandaríkjanna, Robert C. Barber, úr embætti hér á landi. Trump til- nefndi í ágúst 2018 Jeffrey Ross Gunter lækni sem sendiherra á Ís- landi. Öldungadeild Bandaríkja- þings samþykkti ekki tilnefninguna fyrr en í maí 2019 og afhenti Gunter forseta Íslands trúnaðarbréf sitt 2. júlí 2019. Gunter sendiherra lét af störfum nú við forsetaskiptin. Óvíst er hve fljótt Joe Biden skipar eftirmann hans en Michelle Yerkin, staðgengill sendiherra, veitir sendiráðinu nú forstöðu. Í fyrrgreindu viðtali við Morg- unblaðið segir Guðlaugur Þór Þórð- arson að hann hafi „engar áhyggjur af því að það verði einhver veruleg breyting á þessum samskiptum okk- ar [við Bandaríkjamenn], þó að nýr forseti og ríkisstjórn taki þar við völdum“. Undir þessi orð skal tekið. Áherslur breytast að sjálfsögðu í ut- anríkisstefnu Bandaríkjanna með nýrri stjórn en grundvallarhags- munir eru áfram sömu og áður. Norðurslóðir Eitt af því fyrsta sem Biden ákvað var að játast að nýju undir Par- ísarsamkomulagið um loftslagsmál. Þrátt fyrir andstöðu Trumps við samkomulagið mótaði stjórn hans norðurslóðastefnu þar sem rann- sóknir á áhrifum hlýnunar jarðar á ís í Norður-Íshafi skipta miklu. Lagt var á ráðin um að bandaríska strand- gæslan og flotinn stórefldu viðveru sína í norðri meðal annars með sex nýjum ísbrjótum í stað þess gamla og eina sjófæra sem Bandaríkja- menn eiga nú. Varla leggur Biden- stjórnin þessi áform til hliðar? Árið 2018, í tíð Trumps, var annar floti Bandaríkjanna, Atlantshafsflot- inn, endurvakinn, hann var afskrif- aður árið 2011. Stig af stigi eflist flot- inn og fyrir skömmu var kynnt norðurslóðastefna þar sem eitt af hlutverkum flotans er að tryggja siglingafrelsi á norðurleiðinni, það er milli Atlantshafs og Kyrrahafs fyrir norðan Rússland, og útiloka að þar verði hrundið í framkvæmd yf- irráðastefnu í anda Kínverja á Suð- ur-Kínahafi. NATO lítur nú meira til norðurs en áður. Hvarvetna á Norðurlönd- unum, innan ESB og í Bretlandi ræða menn norðurslóðastefnu af auknum þunga. Fulltrúar allra flokka á Alþingi sitja í nefnd utanrík- isráðherra undir formennsku Bryn- dísar Haraldsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, og „uppfæra“ 10 ára gamla norðurslóðastefnu Ís- lands. Þetta er mikilvægt verkefni til að tryggja að íslensk stjórnvöld séu á sömu bylgjulengd og norrænu ná- grannaþjóðirnar, Bretar, Banda- ríkjamenn og Kanadamenn. Í þessu tilliti er nauðsynlegt að fylgjast náið með öllum ákvörðunum Biden- stjórnarinnar. Í Morgunblaðsviðtalinu segir ut- anríkisráðherra að auðvitað komi nýjar áherslur með nýjum mönnum við stjórnvölinn í Bandaríkjunum. Á vettvangi norrænna utanrík- isráðherra hafi verið rætt að nálgast ný stjórnvöld í Washington sameig- inlega. Alþjóðastofnanir Jens Stoltenberg, framkvæmda- stjóri NATO, hefur nú forystu um undirbúning ríkisoddvitafundar NATO í Brussel síðar á þessu ári, 2021. Þar vill hann að teknar séu ákvarðanir með vísan til framtíð- arskýrslunnar NATO2030 sem birt var undir lok 2020. Aðdragandi þessa fundar verður með allt öðrum blæ en sambærilegir fundir í stjórnartíð Donalds Trumps þegar athygli beindist helst að því sem hann hafði neikvætt að segja um NATO eða einstakar bandalags- þjóðir og stjórnendur þeirra. Við blasti að Trump gaf minna fyrir NATO-samstarfið og þátttöku í því en forverar hans höfðu gert. Trump sýndi öðrum alþjóðastofn- unum sem urðu til að frumkvæði Bandaríkjamanna eftir síðari heims- styrjöldina enn minni áhuga en NATO. Skapaðist þannig tómarúm innan mikilvægra stofnana sem Kín- verjum þótti ljúft að fylla. Ofan af þessari þróun verður ekki undið nema lýðræðisríki taki hönd- um saman og haldi eigin gildum á loft og vinni þeim fylgi. Í ræðunni á Capitol sagði Joe Bi- den: „Þetta vil ég svo segja við þá sem búa utan landamæra okkar. Banda- ríkin hafa gengið í gegnum prófraun, eftir hana erum við sterkari en áður. Við munum koma lagi á bandalög okkar og verða enn á ný virk með umheiminum. Ekki til að takast á við áskoranir fortíðar heldur samtíðar og framtíðar. Og forysta okkar verð- ur ekki aðeins reist á fordæmi mátt- ar okkar heldur mætti fordæmis okkar.“ Eftir Björn Bjarnason » Ofan af þessari þró- un verður ekki undið nema lýðræðisríki taki höndum saman og haldi eigin gildum á loft og vinni þeim fylgi. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra Forseti sátta og alþjóðasamstarfs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.