Morgunblaðið - 22.01.2021, Side 17
17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2021
Þvottur Eftir úrkomutíð hefur gefist gott færi til að þrífa glugga og aðra fleti utandyra, líkt og þessi starfsmaður skartgripaverslunar í miðbænum nýtti sér í gær.
Eggert
Við embættistöku
sína miðvikudaginn 20.
janúar 2021 tók Joe Bi-
den, 46. forseti Banda-
ríkjanna, við erfiðum
úrlausnarefnum: Co-
vid-19-faraldrinum,
efnahagsóvissu, kyn-
þáttaspennu og eft-
irleik þinghúsárás-
arinnar 6. janúar 2021
sem breytti athöfninni
við embættistökuna í mest víggirta
viðburð jarðarkringlunnar.
Í ræðu sinni kynnti Biden ásetn-
ing sinn um að sameina bandarísku
þjóðina til einhuga átaks gegn mikla
vandanum sem að henni steðjar. Bi-
den beindi athygli að heimavelli og
margáréttaði nauðsyn þjóð-
arsamstöðu. Hann sagði:
„Undanfarnar vikur og mánuðir
hafa kennt okkur sára lexíu. Sumt er
satt og sumt eru lygar. Lygar sagðar
í þágu valds og gróða. Og á hverju
okkar hvílir skylda og ábyrgð sem
bandarískum ríkisborgurum og
einkum sem forystumönnum. For-
ystumönnum sem er skylt að virða
stjórnarskrá okkar og vernda þjóð
okkar. Til að verja sannleikann og
sigrast á lyginni.“
Þessi orð má túlka sem kalda
kveðju til fráfarandi forseta, Do-
nalds Trumps. Gífurleg örygg-
isgæslan í kringum Capitol og í
Washington á miðvikudaginn var
vitnisburður um uppnámið á loka-
dögum forsetatíðar Trumps sem
sýndi eftirmanni sínum óvirðingu
með fjarveru frá athöfninni.
Donalds Trumps verður minnst
sem friðarspillis á heimavelli en
einnig sem forsetans sem stofnaði
ekki til hernaðarátaka við neina
þjóð. Honum tókst að koma hreyf-
ingu á staðnað ástand í Mið-
Austurlöndum. Fyrir
tilstilli stjórnar hans
bötnuðu samskipti Ísr-
aela og nágrannaþjóða
þeirra. Valdahlutföllin
breyttust í þessum við-
kvæma heimshluta. Ut-
anríkisráðherra Araba-
ríkis sem samdi við
Ísraelsstjórn sagði
samninginn sýna að
stjórn sín sætti sig ekki
lengur við að vera eins
konar gísl Palest-
ínumanna án svigrúms
til eigin ákvarðana í utanríkismálum.
Guðlaugur Þór Þórðarson varð ut-
anríkisráðherra 30. nóvember 2017
þegar Trump-stjórnin hafði setið í
rúma 10 mánuði. Hann sagðist í sam-
tali við Morgunblaðið 16. janúar 2021
hafa einsett sér sem ráðherra að efla
stjórnmálatengslin við Bandaríkja-
menn, mikilvægustu viðskiptaþjóð
okkar, ábyrgðarmenn ytra öryggis
Íslendinga á grundvelli varnarsamn-
ings í 70 ár, fyrstu þjóðina sem við-
urkenndi sjálfstæði Íslendinga við
stofnun lýðveldisins 1944.
Hann væri „mjög ánægður með
hvað það gekk hratt og vel fyrir sig
að efla og treysta samskiptin vest-
ur,“ þau væru reist á gömlum og
góðum grunni en „ekki á einstaka
stjórnmálamönnum eða flokkum“.
Tengslin styrkt
Í tíð stjórnar Trumps sýndu
bandarísk stjórnvöld Íslendingum,
málefnum Norður-Atlantshafs og
norðurslóða mikinn áhuga. Hann
birtist til dæmis í tvíhliða sam-
skiptum við íslensk stjórnvöld.
Hingað komu Mike Pompeo utan-
ríkisráðherra, Mike Pence varafor-
seti og hópur öldungadeildarþing-
manna á árinu 2019. Bandaríska
sendiráðið flutti í nýtt húsnæði. Þeg-
ar sendiherra Trumps tók af skarið
um lokaskref byggingarfram-
kvæmdanna batt hann enda á ára-
langt ferli. Jafnframt var keypt veg-
leg húseign í Reykjavík fyrir
framtíðarbústað sendiherra Banda-
ríkjanna.
Við valdatöku Trumps 20. janúar
2017 hvarf þáverandi sendiherra
Bandaríkjanna, Robert C. Barber,
úr embætti hér á landi. Trump til-
nefndi í ágúst 2018 Jeffrey Ross
Gunter lækni sem sendiherra á Ís-
landi. Öldungadeild Bandaríkja-
þings samþykkti ekki tilnefninguna
fyrr en í maí 2019 og afhenti Gunter
forseta Íslands trúnaðarbréf sitt 2.
júlí 2019.
Gunter sendiherra lét af störfum
nú við forsetaskiptin. Óvíst er hve
fljótt Joe Biden skipar eftirmann
hans en Michelle Yerkin, staðgengill
sendiherra, veitir sendiráðinu nú
forstöðu.
Í fyrrgreindu viðtali við Morg-
unblaðið segir Guðlaugur Þór Þórð-
arson að hann hafi „engar áhyggjur
af því að það verði einhver veruleg
breyting á þessum samskiptum okk-
ar [við Bandaríkjamenn], þó að nýr
forseti og ríkisstjórn taki þar við
völdum“.
Undir þessi orð skal tekið.
Áherslur breytast að sjálfsögðu í ut-
anríkisstefnu Bandaríkjanna með
nýrri stjórn en grundvallarhags-
munir eru áfram sömu og áður.
Norðurslóðir
Eitt af því fyrsta sem Biden ákvað
var að játast að nýju undir Par-
ísarsamkomulagið um loftslagsmál.
Þrátt fyrir andstöðu Trumps við
samkomulagið mótaði stjórn hans
norðurslóðastefnu þar sem rann-
sóknir á áhrifum hlýnunar jarðar á ís
í Norður-Íshafi skipta miklu. Lagt
var á ráðin um að bandaríska strand-
gæslan og flotinn stórefldu viðveru
sína í norðri meðal annars með sex
nýjum ísbrjótum í stað þess gamla
og eina sjófæra sem Bandaríkja-
menn eiga nú. Varla leggur Biden-
stjórnin þessi áform til hliðar?
Árið 2018, í tíð Trumps, var annar
floti Bandaríkjanna, Atlantshafsflot-
inn, endurvakinn, hann var afskrif-
aður árið 2011. Stig af stigi eflist flot-
inn og fyrir skömmu var kynnt
norðurslóðastefna þar sem eitt af
hlutverkum flotans er að tryggja
siglingafrelsi á norðurleiðinni, það er
milli Atlantshafs og Kyrrahafs fyrir
norðan Rússland, og útiloka að þar
verði hrundið í framkvæmd yf-
irráðastefnu í anda Kínverja á Suð-
ur-Kínahafi.
NATO lítur nú meira til norðurs
en áður. Hvarvetna á Norðurlönd-
unum, innan ESB og í Bretlandi
ræða menn norðurslóðastefnu af
auknum þunga. Fulltrúar allra
flokka á Alþingi sitja í nefnd utanrík-
isráðherra undir formennsku Bryn-
dísar Haraldsdóttur, þingmanns
Sjálfstæðisflokksins, og „uppfæra“
10 ára gamla norðurslóðastefnu Ís-
lands.
Þetta er mikilvægt verkefni til að
tryggja að íslensk stjórnvöld séu á
sömu bylgjulengd og norrænu ná-
grannaþjóðirnar, Bretar, Banda-
ríkjamenn og Kanadamenn. Í þessu
tilliti er nauðsynlegt að fylgjast náið
með öllum ákvörðunum Biden-
stjórnarinnar.
Í Morgunblaðsviðtalinu segir ut-
anríkisráðherra að auðvitað komi
nýjar áherslur með nýjum mönnum
við stjórnvölinn í Bandaríkjunum. Á
vettvangi norrænna utanrík-
isráðherra hafi verið rætt að nálgast
ný stjórnvöld í Washington sameig-
inlega.
Alþjóðastofnanir
Jens Stoltenberg, framkvæmda-
stjóri NATO, hefur nú forystu um
undirbúning ríkisoddvitafundar
NATO í Brussel síðar á þessu ári,
2021. Þar vill hann að teknar séu
ákvarðanir með vísan til framtíð-
arskýrslunnar NATO2030 sem birt
var undir lok 2020.
Aðdragandi þessa fundar verður
með allt öðrum blæ en sambærilegir
fundir í stjórnartíð Donalds Trumps
þegar athygli beindist helst að því
sem hann hafði neikvætt að segja um
NATO eða einstakar bandalags-
þjóðir og stjórnendur þeirra. Við
blasti að Trump gaf minna fyrir
NATO-samstarfið og þátttöku í því
en forverar hans höfðu gert.
Trump sýndi öðrum alþjóðastofn-
unum sem urðu til að frumkvæði
Bandaríkjamanna eftir síðari heims-
styrjöldina enn minni áhuga en
NATO. Skapaðist þannig tómarúm
innan mikilvægra stofnana sem Kín-
verjum þótti ljúft að fylla.
Ofan af þessari þróun verður ekki
undið nema lýðræðisríki taki hönd-
um saman og haldi eigin gildum á
loft og vinni þeim fylgi.
Í ræðunni á Capitol sagði Joe Bi-
den:
„Þetta vil ég svo segja við þá sem
búa utan landamæra okkar. Banda-
ríkin hafa gengið í gegnum prófraun,
eftir hana erum við sterkari en áður.
Við munum koma lagi á bandalög
okkar og verða enn á ný virk með
umheiminum. Ekki til að takast á við
áskoranir fortíðar heldur samtíðar
og framtíðar. Og forysta okkar verð-
ur ekki aðeins reist á fordæmi mátt-
ar okkar heldur mætti fordæmis
okkar.“
Eftir Björn
Bjarnason » Ofan af þessari þró-
un verður ekki undið
nema lýðræðisríki taki
höndum saman og haldi
eigin gildum á loft og
vinni þeim fylgi.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra
Forseti sátta og alþjóðasamstarfs