Morgunblaðið - 22.01.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.01.2021, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2021 60 ára Laufey er Akur- eyringur, en býr á Sel- tjarnarnesi. Hún er snyrtifræðingur, nudd- ari og förðunarfræð- ingur að mennt. Laufey er eigandi snyrtistof- unnar og netverslunar- innar Leilu. Maki: Friðrik Karlsson, f. 1960, tónlistar- maður. Börn: Birkir Thor Björnsson, f. 1999, og María Elísabet Björnsdóttir, f. 2000. Stjúpdóttir er María Von Friðriksdóttir, f. 2002. Foreldrar: Birkir Skarphéðinsson, f. 1938, d. 2019, kaupmaður í Amaro, og María Einarsdóttir, f. 1940, kaupkona. Hún er búsett á Seltjarnarnesi. Laufey Birkisdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ættir að vera heima og slaka á í dag. Samskipti við nýjan vinnufélaga færa þér nýjar upplýsingar og hafa spennandi breytingar í för með sér. 20. apríl - 20. maí  Naut Öðrum kann að virðast erfitt að fylgja þér eftir og finnst þú segja eitt í dag og ann- að á morgun. Sýndu öðrum samkennd. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft að kosta miklu til þess að ná sáttum við þína nánustu. Hugleiddu þá staðreynd að þú getur allt sem þú ætlar þér og drífðu þig svo af stað. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Gamlir góðir mannasiðir eru van- metnir af mörgum, en ekki þér. Stattu fast á rétti þínum. Þú bjargar þér fyrir horn í vissu máli. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú átt það til að reisa loftkastala, sem hrynja svo. Þú ert eins og lurkum lamin/n eftir gærdaginn. Vinur þinn dettur í lukku- pottinn. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Nú er rétti tíminn til að huga að eign- um sem þú átt í félagi við aðra. Reyndu að forðast að falla í þá gryfju að vorkenna þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Heilinn í þér þarfnast þjálfunar, rétt eins og líkaminn. Mundu að þú ert ekki alvit- ur og á öðrum stað og tíma kann dæmið að snúast við. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það vantar ekki mikið upp á að þér takist að ljúka því verkefni sem þér hef- ur verið falið. Taktu smá frí frá hversdags- leikanum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er eitthvað að angra þig í peningamálunum. Njóttu meðbyrs meðan hann varir og vertu viðbúin/n mótbyrnum ef hann kemur. 22. des. - 19. janúar Steingeit Notaðu þennan mánuð til þess að fara vandlega yfir fjármáin. Ekki taka neinu sem gefnu. Vertu opin/n fyrir nýj- ungum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ástandið í vinnunni er ein- staklega ruglingslegt núna. Láttu fundahöld ekki taka of mikinn tíma frá þér. Ekki ætla þér of mikið í ræktinni. 19. feb. - 20. mars Fiskar Athyglin beinist mjög að þér um þessar mundir. Gakktu óhrædd/ur til móts við verkefnin, því þú hefur allt til að bera til þess að leysa þau sómasamlega af hendi. lýsinga og tónlistarmyndbanda, m.a. með Auði, Hjaltalín og goðsagna- kenndu hljómsveitinni Joy Division. „Í tilefni af 40 ára afmæli plötu Joy Division, Unknown Pleasures, voru gerð ný myndbönd við öll lög plöt- unnar. Við Helgi gerðum myndband við eitt laganna og það var tekið upp hér á landi.“ Hörður er núna að hann hefur einnig tekið myndir af mörgu erlendu tónlistarfólki, t.a.m. Yoko Ono og John Grant. Árið 2013 byrjaði Hörður einnig að starfa sem leikstjóri og hefur mikið unnið í samstarfi við Helga Jó- hannsson í leikstjórateyminu Helgi & Hörður. Hörður hefur leikstýrt fjölda aug- H örður Sveinsson fædd- ist 22. janúar 1981 í Reykjavík. Hann flutti í Breiðholt ung- ur að árum og bjó þar til 22ja ára aldurs. „Ég er algjört borgarbarn, en fór aðra hverja helgi í Reykholt þegar faðir minn bjó þar um tíma. Ljós- myndaáhuginn kviknaði upp úr 18 ára aldri og þá fór ég aðeins að taka myndir. Ég fór á námskeið hjá Hinu húsinu, sem Brian Sweeney, skosk- ur ljósmyndari, sá um og eftir nám- skeiðið varð ég alveg heltekinn af ljósmyndun.“ Hörður gekk í Seljaskóla í Breið- holti, útskrifaðist úr rafeindavirkjun frá Iðnskóla Reykjavíkur 2002 og varð stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 2004. Hann lærði ljósmyndun við Medieskolerne í Vi- borg í Danmörku og útskrifaðist úr grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands 2013. Hörður hefur starfað við ljós- myndun síðan 2004. Hann fór fyrst að mynda fyrir Reykjavík Grape- vine og hefur starfað sem fastráðinn ljósmyndari fyrir Reykjavík Grape- vine, Fréttablaðið, DV og Monitor og unnið sjálfstætt fyrir enn fleiri innlend og erlend tímarit og dag- blöð. Hörður hefur starfað sem sjálf- stæður ljósmyndari síðan 2008 og vinnur aðallega sem auglýsinga- ljósmyndari í dag. Hann hefur einn- ig mikið unnið með tónlistarfólki. „Þegar ég byrjaði í ljósmyndun var ég mikið að taka myndir á tónleikum sem vakti einhverja eftirtekt og veitti mér í kjölfarið tækifæri til að vinna meira með tónlistarfólki og taka af þeim portrett. Ég reyndi að komast í öll listatengd verkefni þeg- ar ég var að vinna á blöðunum, þetta var það sem ég var spenntastur fyrir þegar ég var að byrja í ljósmyndun.“ Hörður hefur tekið myndir af þorra íslenskra tónlistarmanna allt frá Sigur Rós til Víkings Heiðars og leggja lokahönd á fyrstu sjónvarps- þáttaseríuna með góðum vinum og samstarfsfélögum hjá framleiðslu- fyrirtækinu Snark. Þættirnir heita Hver drap Friðrik Dór og verða sýndir í Sjónvarpi Símans í lok febrúar. Hann hefur haldið ljósmyndasýn- ingar hér á Íslandi og erlendis og unnið verðlaun meðal annars á Ís- lensku blaðaljósmyndaverðlaun- unum. „Ég er heppinn að mín helstu áhugamál eru líka atvinna mín, ljós- myndun og leikstjórn, en auk þess elska ég tónlist og matargerð,“ segir Hörður aðspurður. „Ég hlusta á allskonar tónlist, en mest hlusta ég á indítónlist og raftónlist.“ Þrátt fyrir mikinn áhuga á tónlist hefur hann sjálfur lítið verið að spila. „Ég kann ekki á neitt einasta hljóðfæri, glamra aðeins á úkúlele, en get ekki sagt að ég sé góður á það. Ég les líka mikið og stóð við áramótaheit í fyrra um að lesa fleiri bækur. Takmarkið var 30 bækur og það tókst. Ég las allt frá Guðrúnu Evu Mínervudóttur til Brandon Sanderson, en hann Hörður Sveinsson, ljósmyndari og leikstjóri – 40 ára Fjölskyldan Hugrún, Högni, Vigdís Elfur, Hekla og Hörður um jólin 2019. Lætur öll afmælisplön í dag í hendur eiginkonunnar Við leikstjórastörf Hörður og Helgi Jóhannsson, samstarfsfélagi hans. Feðgin Hörður og Hekla 2018. 50 ára Ósk er Sand- gerðingur en býr í Reykjanesbæ. Hún er stuðningsfulltrúi á unglingastigi í Akur- skóla. Maki: Rúnar Helga- son, f. 1973, pípulagn- ingameistari og eigandi Lagnaþjónustu Suðurnesja. Dætur: Jóhanna, f. 1991, Guðbjörg, f. 1994, og Bryndís Sigurveig, f. 1996, Jó- hannesdætur, og Lovísa Rut Rúnars- dóttir, f. 2003. Barnabörnin eru Adrían Snær, Viktoría Ólöf og Helena Ósk. Foreldrar: Benedikt Gunnarsson, f. 1948, vann hjá Varnarliðinu, og Guðbjörg Bjarnadóttir, f. 1951, fv. fiskvinnslukona. Þau eru búsett í Sandgerði. Ósk Benediktsdóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.