Morgunblaðið - 22.01.2021, Síða 11

Morgunblaðið - 22.01.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2021 Notaðir bílar Meira úrval á notadir.benni.is Bílabúð Benna | Krókhálsi 9 | Reykjavík | 590 2035 Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl. * Tökum aðeins 1 bíl uppí hvern nýlegan notaðan bíl. **Forsendur: 5 ára lán hjá Lykli. Útborgun 600.000 kr. Við tökum gamla bílinn uppí á 600.000 Gamli bíllinn þinn gildir að lágmarki sem 600.000 króna innborgun* í nýlegan og öruggan bíl (sérmerktur á plani). Þinn gamli þarf aðeins að vera með gilda skoðun og í ökufæru ástandi. Ef þú ert ekki með bíl uppí má alltaf ræða aðra díla. Not að ur up pí ný le ga n Afborgun á mánuði ........... 47.191 kr.** Opel GrandlandXEnjoy ‘19, sjálfskiptur, ekinn 60þús. km. Verð: 2.990.000 kr. Chevrolet Cruze LTZ ‘16, sjálfskiptur, ekinn 99 þús. km. Verð: 1.390.000 kr. SsangYong Tivoli Dlx ‘18, sjálfskiptur, ekinn34 þús. km. Verð: 2.990.000 kr. Toyota CorollaHybrid ‘19, sjálfskiptur, ekinn 34þús. km. Verð: 3.390.000 kr. 590758 446579 446470 SE LD UR 445297 Andrés Magnússon andres@mbl.is Skýrsla Grænlandsnefndar utanrík- isráðherra var kynnt í gær, en í henni má finna greiningu á sam- skiptum Íslands og Grænlands ásamt fjölþættum tillögum um hvernig megi efla tengsl grannríkj- anna á ótal sviðum. Össur Skarp- héðinsson, fyrrverandi utanríkis- ráðherra, var fenginn til for- mennsku í nefndinni, en auk hans voru í henni þau Unnur Brá Kon- ráðsdóttir og Óttarr Guðlaugsson. Í skýrslu Grænlandsnefndar er að finna ítarlega greiningu á stöðu tví- hliða samskipta landanna og nær 100 tillögur um aukna samvinnu á fjölmörgum sviðum. Hér skulu þær helstu reifaðar. Stjórnsýsla Sérstaklega er fundið að því hve afskipt Grænland hefur verið í ís- lenskri stjórnsýslu, frá því séu for- setaembættið og Fiskistofa nær einu undantekningarnar. Lagt er til að teknir verði upp árvissir fundir forsætisráðherra landanna, tekið verði upp formlegt tvíhliða samráð, fundir og vinnuheimsóknir milli ráðuneyta sem fara með sameig- inlega hagsmuni landanna og önnur ráðuneyti hugi einnig að samstarfi við grænlensk stjórnvöld á sama sviði, en einnig verði tekin upp skipuleg starfsmannaskipti ráðu- neyta. Sömuleiðis taki stofnanir upp vinnusamband við systurstofnanir á Grænlandi. Landkynning Þá er lagt til að gagnkvæm land- kynning verði aukin, með græn- lenskum dögum á Íslandi annað hvert ár og íslenskum dögum á Grænlandi hitt árið. Menning- artengsl verði aukin og komið á styrk til náms í málum þjóðanna með það að markmiði að koma upp hæfum þýðendum milli málanna. Þá verði útbúið námsefni fyrir grunn- skóla um Ísland, þjóð og menningu. Sjávarútvegur Gerður verði heildstæður fisk- veiðisamningur milli landanna og samstarf stofnana eflt, m.a. með sameiginlegum rannsóknum á þorskstofnum. Ýtt verði undir sam- starf sjávarútvegsfyrirtækja m.a. með aðkomu SFS, Fisktækniskólinn í Grindavík skipuleggi námskeið fyrir Grænlendinga, og drög lögð að grænlenskum sjávarklasa. Ferðaþjónusta Samvinna verði höfð um sameig- inlega ímyndar- og markaðsvinnu landanna tveggja sem ævintýra- áfangastaða á norðurslóðum. Yfir- stjórn ferðamála í löndunum taki upp skiplegt samráð, komið verði á reglulegu stefnumóti stofnana og fyrirtækja í ferðageira, og greitt fyrir starfsnámi. Námavinnsla Í rammasamningi um samstarf Grænlands og Íslands verði stefnu- ákvæði um samvinnu grænlenskra og íslenskra fyrirtækja um stoð- þjónustu við námuvinnslu, birgða- geymslu, umskipun og hugsanlega fullvinnslu hráefnis á Íslandi. Eins verði komið á skipulegri upplýsinga- miðlun til námafélaga um stoðþjón- ustu á Íslandi. Félagsmál Ríkisstjórnin styrki margháttuð stuðningsverkefni íslenska Rauða krossins á Grænlandi með sérstakri áherslu á forvarnir og sálræna lið- veislu við berskjaldaða, ungt fólk og aldraða. Frumkvæði verði haft um að koma íslenska forvarnalíkaninu á í Grænlandi til þess að sporna við vímuefnaneyslu ungmenna þar. Eins verði íþróttasamstarf landanna aukið í samráði við ÍSÍ. Íslendingar bjóði aðstoð við að koma á fót sjálf- boðaliðasamtökum á Grænlandi með Landsbjörg að fyrirmynd. Menntamál Ríkisstjórnir Grænlands og Ís- lands geri samkomulag um samstarf á menntasviði, m.a. um innleiðingu fjarnáms á Grænlandi og ráðgjöf Grænlandsháskóla við innleiðingu doktorsnáms við Háskólann á Ak- ureyri. Stjórnvöld bjóði fram ís- lenska reynslu við gerð fjarnáms á verkmennta- og framhalds- skólastigi, en löndin leiti sameig- inlega til norrænna sjóða um inn- leiðingu fjarnáms á Grænlandi. Heilbrigðismál Landspítalinn og Sjúkrahúsið á Akureyri ráði grænlenskan hjúkr- unarfræðing eða sjúkraliða til að auðvelda móttöku grænlenskra sjúklinga og Grænlendingum bjóðist læknisfræðinám við HÍ. Kortlagt verði á hvaða sviðum íslenska heil- brigðiskerfið getur þjónað þörfum þess grænlenska og lausnir í geð- heilbrigðismálum sérstaklega kynntar Grænlendingum. Utanrík- isráðherra hafi frumkvæði að end- urnýjun samstarfssamnings á heil- brigðissviði við Grænland. Orka og mannvirki Tekin verði upp samvinna á markaðslegum forsendum um vatnsaflsvirkjanir í Grænlandi, sem greiði fyrir markmiðum um orku- skipti og loftslagsvernd. Samvinna á orkusviði verði hluti af rammasamn- ingi um samstarf landanna. Íslensk stjórnvöld taki upp viðræður um aukið samstarf á sviði mann- virkjagerðar með því að fjarlægja tæknilegar hindranir, s.s. með út- boðum á húsnæði fyrir opinber fé- lög, varðandi atvinnuleyfi og tungu- mál útboðsgagna. Flugumferð Teknar verði upp viðræður um gerð nýs og sveigjanlegs loftferða- samnings landanna, sem byggi á lík- ani „Open Skies“. Íslensk flugmála- yfirvöld skilgreini í samráði við Grænlendinga framtíðarhlutverk dótturfélags Isavia í flugumsjón yfir Grænlandi, semji um skiptingu eignarhalds á félaginu og sam- komulags leitað um áframhaldandi stjórnun Isavia á núverandi flugstjórnarsvæði. Komið verði á samráðsvettvangi landanna um flugumferð, m.a. vegna nýrra al- þjóðaflugvalla í Grænlandi, og leiti leiða til að lækka flugfargjöld milli landanna. Verslun og viðskipti Ríkisstjórn Íslands hefji undir- búning að tvíhliða viðskiptasamn- ingi við Grænland. Viðskiptaráð geri tillögur um afnám tæknilegra hindr- ana til að greiða fyrir verslun við Grænland. Stjórnvöld landanna kanni sameiginlega aðrar leiðir til að íslenskar lágvörukeðjur fjárfesti í verslunum í stóru bæjunum í Grænlandi. Athugað verði hvort beita megi tímabundnum ívilnunum til að ýta undir fiskflutning frá Grænlandi um íslenskar hafnir og flugvelli. Markaðstækifæri á Græn- landi í kjölfar vikulegra siglinga til Nuuk verði kynnt íslenskum birgj- um og framleiðendum. Austur-Grænland Gerðar eru sérstakar tillögur um samskiptin við Austur-Grænland. Þær byggðir eru í senn næstar Ís- landi og landfræðilega einangraðar frá öðrum byggðum Grænlands, þar er töluð önnur tunga og ýmsar sér- stakar aðstæður, fátækt meiri og fé- lagslegur vandi mikill. Þær tillögur taka til ótal sviða um sérstakt átak til úrbóta og eflingar samfélags og atvinnulífs, en þar er byggt á fyrri tengslum við Ísland. Til framtíðar Grænlandssjóði verði árlega veitt fjárveiting af fjárlögum til að stuðla að framkvæmd tillagna skýrsl- unnar. Óskað verði samvinnu við Hringborð norðurslóða (Arctic Circle) um að setja á fót alþjóðlega hugveitu um „Grænland og norð- urslóðir“, til dæmis í samvinnu við Wilson stofnunina og Norð- urslóðasetur Harvard-háskóla. Rík- isstjórn undirbúi stofnun Norð- urslóðaseturs í Reykjavík, sem þá verði framtíðarheimili Hringborðs norðurslóða (Arctic Circle) með að- stöðu fyrir erlenda vísindamenn og doktorsnema auk safns um norð- urslóðir. Stóraukin samskipti við Grænland  Grænlandsnefnd með nær 100 tillögur  Vill tvíhliða viðskiptasamning  Stjórnsýslan taki við sér Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Grænlandsskýrsla Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra kynnti skýrsluna á blaðamannafundi í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.