Morgunblaðið - 22.01.2021, Síða 28

Morgunblaðið - 22.01.2021, Síða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. JANÚAR 2021 ✝ Fjóla H. Guð-jónsdóttir var fædd á Akranesi 7. september 1926. Hún lést á Líknardeild Land- spítalans 12. jan- úar 2021. Foreldrar Fjólu voru Anna Björnsdóttir, hús- móðir og áhugaleikkona á Akranesi, f. 19.10. 1899, d. 30.11. 1979 og Guðjón Júlíus Jónsson skipamálari á Akra- nesi, f. 22.7. 1896, d. 4.7. 1968. Systkini: Guðbjörn, f. 21.6. 1925, d. 6.6. 2000, Sigrún Anna, f. 12.8. 1928, d. 14.1. 1970. Maki: Agnar Guðnason, fæddur 13. febrúar 1927, fv. landbúnaðarráðunautur hjá Bændasamtökunum og stofn- andi ferðaskrifstofunnar Bændaferðir. Börn: 1) Anna Lillian Björgvins- dóttir, f. 18. janúar 1948, gift Halldóri Þorsteinssyni, f. 5.3. 1946. Dóttir þeirra var Hug- rún, f. 2.2. 1995, d. 12.10. 1996. 2) Guðjón Sverrir Agn- arsson, f. 3.1. 1954, giftur Ey- Synir Hilmars og Hólmfríðar Bjarnadóttur frá fyrra hjóna- bandi eru Georg Kári, f. 8.1. 1982, Andri Freyr, f. 14.7. 1987, Gabríel Daði, f. 30.6. 1997. Fjóla var húsmóðir og handavinnukennari. Hún stofn- aði og rak Bændaferðir með Agnari manni sínum og ferðað- ist með honum í yfir 40 ár með Íslendinga til margra landa. Hún stundaði handavinnukenn- aranám í Myndlista- og hand- íðaskólanum í Reykjavík og hlaut síðar víðtækari kennslu- réttindi frá KHÍ. Þá sótti hún alla tíð fjölda námskeiða til við- bótar- og símenntunar, m.a. til Noregs og Englands svo og innanlands. Hún starfaði sem handavinnukennari við Hrafn- istu, Breiðagerðisskóla og Hagaskóla í Reykjavík og Víg- hólaskóla í Kópavogi, hélt saumanámskeið víða í sveitum landsins og leiðbeindi síðar í eldriborgarastarfi, m.a. í Bú- staðakirkju og Langholtskirkju. Þá var hún ein af stofnendum kvennakórsins Glæðurnar við Bústaðakirkju og söng með þeim til fjölda ára. Útför Fjólu verður gerð frá Grafarvogskirkju 22. janúar 2021 kl. 13. Slóð á streymi: https://youtu.be/w937oGPHchQ Virkan hlekk á streymi má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat rúnu Antonsdóttur, f. 24.3. 1954. Synir Sverris og Sigríðar Hermannsdóttur frá fyrra hjónabandi eru Agnar, f. 13.9. 1974, Pétur Rúnar, f. 12.10. 1977, Kári Óskar, f. 3.12. 1981, Valþór Örn, f. 17.12. 1982, Sverrir Birgir, f. 1.2. 1987. 3) Guðni Rúnar, f. 17.2. 1956, giftur Sofie Wräng- hede, f. 13.1. 1972. Börn: Dóttir Guðna Rúnars og Vivan Óttarsdóttur frá fyrra hjónabandi er Urður Úa, f. 19.7. 1980. Dætur Guðna Rún- ars og Sigríðar Völu Haralds- dóttur frá fyrra hjónabandi eru Síta Björk, f. 1.2. 1987 og Una, f. 10.9. 1988. Börn Guðna Rún- ars og Sofie eru Sóley María, f. 1.12. 1998, Nadja Rós, f. 5.1. 2001, Guðjón Sebastian, f. 17.5. 2003, d. 16.6. 2003, Davíð Sindri, f. 13.9. 2006, Tindur Mikael, f. 19.10. 2010, Viljar Eldur, f. 13.3. 2014, Sofia Náð, f. 27.1. 2019. 4) Hilmar Örn, f. 9.5. 1960, giftur Björgu Þórhallsdóttur, f. 27.11. 1964. Mig langar að minnast hér í fáum orðum elskulegrar tengda- móður minnar. Við áttum sam- leið í tíu ár eða frá því ég kom inn í fjölskylduna. Ég fann hvernig hún virti mig fyrir sér meðan hún var að taka mig að hjarta sér og brátt tókst með okkur djúpur trúnaður með gagnkvæmri virðingu. Fjóla var einstök manneskja og mér mikil fyrirmynd á svo margan hátt. Hún var t.d. stór- kostlegur kokkur og langt á und- an sinni samtíð í gerð hollustu- og grænmetisrétta. Hún fylgdist vel með nýjungum og var ein- staklega frumleg. Nánast fram á síðasta dag blandaði hún alls- kyns græna heilsudrykki fyrir Agnar sinn með spínati, avókadói og engiferi og Guð má vita hverju, enda voru þau ungleg og slétt og ávallt hress í anda. Þar var henni lifandi lýst þegar hún óskaði t.d. eftir að fara á ind- verskan veitingastað á 93 ára af- mælisdaginn! Ég hef aldrei kynnst jafn lif- andi og skýrri konu, kominni hátt á tíræðisaldur, með svo mik- inn lífsneista, viljastyrk, andleg- an styrk og þrautseigju, vakandi hugsun, óbrigðult minni og eft- irtekt og síðast en ekki síst opna framtíð, hún hafði alltaf eitthvað að stefna að. Hún gafst aldrei upp þrátt fyrir mikinn heilsu- brest. „Ég verð að ná mér upp“ sagði hún einatt og það gerði hún svo sannarlega og mjög oft þegar við því var varla og jafnvel alls ekki hægt að búast. Hún bjó nefnilega líka að því að gera sína morgunleikfimi á hverjum degi og hélt þannig liðleika og frá- bærri hreyfigetu og snerpu. Maður átti stundum fullt í fangi með að halda í við hana í búð- arferðunum. Og þótt hún væri orðin lög- blind hélt hún sínu striki, eldaði fyrir Agnar sinn, sem var orðinn svo góðu vanur að erfitt var fyrir hana að hætta því. Þegar þau fluttu í íbúð við Hrafnistu á Brúnavegi fyrir tæpum þremur árum hlakkaði hún til að draga úr eldamennskunni og nýta sér mötuneytið á Hrafnistu. En það var sko ekki í boði fyrir herra Agnar því allt var bragðdauft og seigt sem hún ekki eldaði! Hannyrðakonan lét heldur ekki sjóndepruna halda aftur af sér við hannyrðir því lengi vel sat hún og heklaði eða prjónaði, að manni fannst næstum bara eftir minni, og hlustaði á sögur frá Blindrabókasafninu. Og hún, nær blind konan, stýrði Agnari í umferðinni, rataði allt, bjó yfir náðargáfu ratvísinnar sem hún var fræg fyrir á ferðalögum er- lendis. Síðustu árin átti hún við erfið veikindi að stríða. Við tengdumst mjög náið í gegnum allt hennar veikindaferli og það er mér mjög dýrmætt að hafa fengið tækifæri til að styðja hana í því ferli, bæði sem tengdadóttir og hjúkrunar- fræðingur. Oftar en ekki þegar ég fylgdi henni á spítala til inn- lagnar sagði hún við mig: „Æ, biddu þau að líta ekki á kennitöl- una mína!“ Hún vildi ekki eiga á hættu að vera dæmd úr leik fyrir aldurs sakir. Fjóla var djúpvitur og næm og fullnýtti sína miklu lífsreynslu. Hún gaf mér innsýn í sinn víð- tæka styrk og þó að okkar sam- leið væri ekki löng var hún okkur báðum dýrmæt gjöf. Ég kveð hana með miklu og kæru þakk- læti og bið Guð að varðveita hana og okkur sem lifum hana allar góðu minningarnar. Björg Þórhallsdóttir. Amma mín og mamma mín. Að kveðja þig er svo erfitt, þú varst best í að hvetja og styðja. Þú vildir alltaf öllum það besta og þínar síðustu óskir voru að vera mjög náin öllum í fjölskyld- unni, sem segir svo mikið um hjartað þitt. Þú ert stór partur af því hver ég er í dag og verður alltaf partur af því hver ég verð. Ég er svo þakklátur fyrir allar þær stundir sem við áttum sam- an, ég mun geyma þær í hjarta mínu um ókomna tíð. Þú munt alltaf eiga stóran hlut í hjarta okkar bræðra. Við vitum að þú ert á betri stað í dag og erum all- ir þakklátir fyrir allt sem þú kenndir okkur. Takk fyrir allt elsku amma/mamma. Takk fyrir að gera mig að betri manni. Góða ferð. Kári. Síðasta amma mín er farin, elsku amma Fjóla. Ég er gífur- lega lánsamur og þakklátur að hafa fengið að njóta nærveru og vináttu ömmu minnar jafn lengi og ég hef fengið. Amma var full af mjúkri og sannri umhyggju, kærleika, hlýju, fórnfýsi, örlæti, hógværð, auðmýkt, forvitni, lífs- vilja, lífsgleði og æðruleysi. Hún veitti mér skilyrðislausa ást og stuðning á öllum stigum lífsins. Hún var með fallegustu hend- ur sem ég hef séð. Hendur svo hlýjar og mjúkar, þær gáfu bestu strokurnar, þær héldu best í hendurnar á mér og umvöfðu mig djúpu faðmlagi þegar ég þurfti. Hlátur hennar var ein- stakur og brosið hennar tært. Hennar heimili, faðmur og hjarta stóðu mér alltaf opin. Þrátt fyrir allar fallegu minningarnar og þakklætið sem mun lifa áfram í hjarta mínu er sorgin stór. En það er gífurlega dýrmætt að eiga sér slíka fallega fyrir- mynd, sem lifði lífinu af slíkri reisn, þrautseigju og kærleika. Hún mun lifa áfram í sögunum og minningunum sem ég mun segja dóttur minni. Hvíldu í friði elsku amma mín. Georg Kári Hilmarsson. Tíminn líður trú þú mér, Fjóla blessunin er dáin. Við vorum sex hjón búin að halda vinahópinn í yfir sextíu ár. Flest kynntust í upphafi í Dansskóla Hermanns Ragnars. Fljótlega tengdist þessi hópur vinaböndum og fór að hittast mánaðarlega hvert hjá öðru, þá með matarboðum, kát- ínu, söng og dansi. Agnar og Fjóla voru ein af þessum hjónum. Fjóla var ynd- isleg kona, fjölhæf, söngvin, kát og skemmtileg. Hún var handa- vinnukennari að mennt og bar allt hennar handbragð vott um listfengi. Síðar fór hún að mála á postulín og voru það sannkallaðir listmunir. Hún var einstaklega vandvirk í öllum sínum verkum. Í glettni okkar á milli fórum við að kalla hópinn D.S.A. Dansskóla Agnars Guðnasonar. Um tíma bjuggu þau í svo stóru húsi að þau gátu tekið eitt herbergi frá fyrir danspláss. Þangað fórum við oft að dansa undir harmón- ikkuleik Finnboga Eyjólfssonar heitins félaga okkar. Þar var ekkert slegið af jafnt í gömlu dönsunum sem suðrænum sveifludönsum. Eitt sinn fengu þau hjón danskennara til að segja okkur til í vestrænum sveitadönsum. Í annað sinn fengu þau þekktan danskennara til að kenna okkur að dansa lansje. Þetta voru ógleymanlegir tímar. Þetta var ekki síður ferða- klúbbur sem gekk undir nafninu „Klíkan“. Hópurinn fór vítt og breitt um landið en Fjóla og Agnar skipulögðu margar þess- ara ferða. Hvar sem við komum var sem allir þekktu Fjólu og Agnar og var tekið á móti okkur með gleði og vinskap. Einnig ferðuðumst við víða um Evrópu. Agnar stofnaði Ferðaþjónustu bænda og var öllum hnútum kunnugur og Fjóla sá um reikn- ingshaldið, sem var mikið og ná- kvæmt. Það fórst henni vel úr hendi, nákvæmri og glöggri. Fjóla var réttsýn og áreiðanleg í öllum samskiptum. Við fórum víðar um Evrópu, til Lúxem- borgar, Þýskalands, suður um Ítalíu, Feneyjar og alla leið til Rómar, til baka um Mónakó, Spán, upp allt Frakkland til Par- ísar, Rúðuborgar og víðar. Skipulagið var oftast í höndum þeirra hjóna. Þetta voru yndis- legar ævintýraferðir og bundu okkur sterkari vinaböndum. Þegar Fjóla og Agnar komu til okkar stuttu fyrir jól fór ekki á milli mála að farið var að daprast yfir hópnum. Nú erum við bara fimm eftir og minningarnar sækja á. Ekki er rými fyrir þær í lítilli minning- argrein en mikið erum við þakk- lát fyrir öll þessi ár sem við höf- um átt með þessum frábæra vinahópi. Fjóla var yndisleg, traustur hlekkur í hópnum. Hennar verður sárt saknað. Við vottum Agnari og öllum strákun- um þeirra ásamt öðrum aðstand- endum okkar dýpstu samúð, við fráfall Fjólu. Ljósið magnar mynd um mæta konu. Helga og Hörður Pétursson. Fjóla H. Guðjónsdóttir ✝ GuðmundurKort Krist- jánsson fæddist 27. maí 1954 á Flat- eyri. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 13. jan- úar 2021. Foreldrar hans voru Kristján Guð- mundsson, fæddur 1918, dáinn 1988 og Árelía Jóhannes- dóttir, fædd 1923, dáin 2014. Guðmundur var 5. í röð 12 systkina. Átta af þeim eru á lífi en einn drengur lést í fæðingu, einn bróðir, Magnús, lést árs- gamall og Elísabet Alda systir hans lést 47 ára gömul. Guðmundur ólst upp á jörð- inni Brekku á Ingjaldssandi í Önundarfirði. Hann átti góða æsku í sveitinni. Hann gekk í barnaskóla á Ingjaldssandi og var aðeins í Héraðsskólanum á Núpi í Dýrafirði. Síðar stundaði hann nám við Bændaskólann á Hvanneyri. Þaðan útskrifaðist hann upp úr 1980 sem búfræð- ingur. Hann flutti aftur heim að Brekku og starfaði við búið með föður sínum og síðar móður. Kona Guð- mundar var Elín Gylfadóttir. Leiðir þeirra skildi. Eign- uðust þau tvo drengi. Gylfa Frey árið 1985. Maki hans er Gunnhildur Gunnarsdóttir og eiga þau eitt barn saman. Fyrir á Gylfi tvo drengi. Yngri sonur þeirra er Kristján. Maki hans er Krist- ín Rún Sævarsdóttir, eiga þau eitt barn saman, fyrir á Kristján tvö börn. Árið 1988 tóku Guðmundur og Elín við búinu eftir að faðir hans lést og bjuggu þar til haustsins 1991 er þau fluttu til Keflavíkur. Í Keflavík starfaði hann hjá áhaldahúsinu um tíma auk þess sem hann sinnti ýmsum öðrum störfum gegnum árin, einkum tengd vélum og þess háttar. Útförin fer fram 22. janúar 2020 í Keflavíkurkirkju, kl. 11. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu ættingjar viðstaddir at- höfnina. Hann stóð úti í garði sunnan við húsið 27. maí, þá 13 ára. Var í nýprjónaðri peysu með munstri sem Dóra hafði gefið honum í af- mælisgjöf. Hann miðaði upp í loftið og sagði: „Ég gæti hæft hrafn“, um leið og hann sleppti strengnum. Örin sveif hátt upp í loftið, í fallegum boga, tók svo að falla og lenti síðan niður við Brunnhús. Ég var bara átta ára. Mér fannst Mummi vera hetja, þarna frjáls maður, geta gert hvað sem er og farið hvert sem er. Hann hætti í gagnfræðaskóla, þrátt fyrir að vera einn besti nemandinn. Skrifaði góða stíla og hafði fallega rithönd. Foreldrar okkar botnuðu ekkert í þessari ákvörðun hans en hann hafði bet- ur í þessari glímu. Seinna fór mamma á miðilsfund og þar kom afi fram og sagði „að Mummi væri mun þroskaðari en jafnaldr- ar hans“. Engin úrræði voru um greiningu eins og nú. Þessi var því látin duga. Eitt af hans áhugamálum var að fara að veiða, silung. Hann fékk mig oft með sér. Þetta var þolinmæðisverk. Fara fram í Hraunshyl, niður í Brúarhyl, þaðan niður í Nes og síðan í Sæ- bólsfljót. Allan daginn í súld og í rigningu. Við gleymdum stað og stund. Hann var oft svangur og veðr- ið var svakalegt. Mig verkjaði í handlegginn að halda á stönginni fram hjá Steinholtinu á leiðinni heim, yfir Brúarholtið, ána og upp Árdalsbrekkuna og heim. Hann bar aflann. Þegar Mummi var sextán ára og sjálfráða fékk hann Magnum- haglabyssu. Þetta vopn var ætlað á refaveiðar. Hann ætlaði að verða tófuskytta eins og afi. Til að verða klár skytta þurfti útsjónarsemi og nákvæmni. Mummi var ein besta skytta sem ég man eftir á þessum árum. Hann hafði alltaf betur í skotfimi en aðrir. Skaut fugla á flugi og hlaupatófur á mörg hundruð metrum. Mér fannst það mjög merkilegt þegar hann byggði hænsnakofa úr torfi og grjóti, enda laghentur. Oft var ég með við byggingarvinnuna. Þannig unnum við saman þegjandi. Við voru saman í stjórn Ung- mennafélagsins Vorblóms. Hann samdi mjög góðar fundargerðir, vel skrifaðar og með fallega rit- hönd. Ég var meira út á við, enda formaður en hann var meira inn á við. Hann var ekki gefinn fyrir mikil mannamót. Hann fór að nota áfengi nokkuð snemma. Þá varð hann allsgáður. Ég ók hon- um á böll, á Þingeyri, Flateyri og í Hnífsdal. Var hann tregur að fara heim eftir böll, því að það sogaðist að honum kvenfólk, enda myndarmaður og mikil týpa. Hann fór og lærði búfræði og var því að heiman í nær tvö ár. Ég tók þátt í búrekstri með pabba, eins og Mummi. Hann átti því hluta í búinu eins og ég. Þeg- ar hann kom frá Hvanneyri vildi hann taka búið yfir en ég fór suð- ur í nám. Pabbi sagði að ég ætti að vinna með fólki og í viðskiptum en hann í búskap. Seinna sagði Mummi mér að hann væri haldinn kvíða og þung- lyndi. Hann lýsti því sem köfn- unartilfinningu að koma meðal fólks. Hann undi sér því frekar inni á bókasafni að grúska í horfinni menningu. Lífið er ris og hnignun eins og píla í boganum hans. Hann undi sér meira einn síðustu árin en þjáðist oft innra með sér. Honum þótti mjög vænt um mig. Finnbogi Kristjánsson. Guðmundur Kort Kristjánsson Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, sonar og bróður, ÁGÚSTAR H. GUÐMUNDSSONAR, Skógartröð 5, Eyjafjarðarsveit. Minning hans er ljós í lífi okkar. Guðrún Gísladóttir Ásgerður Jana, Júlíus Orri og Berglind Eva Ásgerður Ágústsdóttir Guðmundur J. Bergsveinsson og aðrir aðstandendur Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VALTÝR EYJÓLFSSON frá Lambavatni, Rauðasandi, lést á Hrafnistu Hafnarfirði 14. janúar. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 29. janúar klukkan 11. Eyjólfur V. Valtýsson Ludene Valtýsson Sigurður H. Valtýsson Siv E. Sæmundsdóttir Bylgja Valtýsdóttir Jóhann Sigurþórsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir minn og afi, SIGURÐUR GREIPSSON örverufræðingur, Birkehegnet 51, Greve, Danmörku, lést á heimili sínu að morgni miðvikudagsins 20. janúar. Útförin fer fram í Danmörku. Greipur Gísli Sigurðsson Anton Hrafn Greipsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.