Morgunblaðið - 25.01.2021, Page 1
M Á N U D A G U R 2 5. J A N Ú A R 2 0 2 1
Stofnað 1913 20. tölublað 109. árgangur
NÖFN FRAMBJÓÐ-
ENDA TIL ÞINGS
AÐ KOMA Í LJÓS
ÝMIST FRESTAÐ
EÐA SLEGNAR AF
SVEKKJANDI MÓT
EN ÖÐLUÐUST
DÝRMÆTA REYNSLU
EKKERT Í GLASTONBURY 28 HM Í HANDKNATTLEIK 27FRAMBOÐ OG EFTIRSPURN 10
Esjan var tilkomumikil að sjá þar sem dagskíman féll á klakabrynjaðar
hlíðar hennar, en þar gætti nokkurrar snjókomu þó höfuðborgarsvæðið
hafi að mestu verið laust við hana.
Aðra sögu er að segja norðar á landinu, þar sem hrina snjóflóða féll um
helgina bæði á Norðurlandi og Vestfjörðum. Rýmingu í húsum á Flateyri
var þó aflétt í gær, en enn var óvissustig í gildi vegna snjóflóðahættu á
Norðurlandi.
Eins og sjá má á myndinni frá Ísafirði hér til hægri hefur snjó kyngt þar
niður síðustu daga, en ekki á það þó síður við á Norðurlandi. Hins vegar
háttar svo til vestra að þar þarf minni snjó til þess að skapa hættu. Að sögn
Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings hafa veðuraðstæður verið sér-
stakar undanfarna daga, þó ekki sé hægt að segja þær óvenjulegar. Þar
hafi muggað jafnt, þétt og linnulítið dögum saman. »2
Snjóflóðahætta enn
fyrir hendi nyrðra
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
„Að sýni úr
leghálsstroku
séu nú send til
útlanda í grein-
ingu finnst okk-
ur óskiljan-
legt,“ segir
Halla Þorvalds-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
Krabbameins-
félagsins. Vísar
hún þar til breytinga sem verða
til þess að sýni verða send úr
landi til rannsóknar þrátt fyrir
að til sé þekking, kunnátta og
tækjabúnaður til greininga hér á
landi.
Skimanir fyrir krabbameinum í
brjóstum voru um áramót fluttar
frá Leitarstöð Krabbameins-
félags Íslands til Landspítala. Þá
verður framvegis sá háttur hafð-
ur á að leghálssýni fara úr landi
til rannsóknar, en skimanir í leg-
hálsi voru færðar frá Leitarstöð-
inni til heilsugæslunnar. Halla
segist lítið botna í ráðstöfuninni.
„Í desember fékk Landspítali
tæki til veirugreininga sem gerir
greiningarnar enn skilvirkari en
hingað til. Hvers vegna ekki á að
nýta þann búnað skiljum við
ekki. Raunar hafa orðið ýmsar
tafir á greiningum. Sýni sem
voru tekin á leitarstöðinni og hjá
sérfræðingum á stofum í nóv-
ember fóru til heilsgæslunnar og
hafa ekki verið rannsökuð enn.
Þar ræður að samningar við
rannsóknarstofu í Danmörku sem
annast á verkefnið eru ekki í
höfn. Þó lá fyrir í október að um
tvö þúsund sýni biðu nýrrar
rannsóknarstofu þegar hún tæki
við.“ » 11
Undrast
tilfærslu
skimana
Tækni og kunnátta
til staðar hér á landi
Halla
Þorvaldsdóttir
Áætlun um dreifingu bóluefna
Moderna og Pfizer, sem gildir fram
í mars, liggur fyrir hjá Distica og
er von á 1.200 skömmum frá Mod-
erna í lok þessarar viku. Einnig
eiga 2.000 til 3.000 skammtar frá
Pfizer að koma til landsins á mið-
vikudag og mun sama magn berast
vikulega frá framleiðandanum upp
frá því.
Ekki er útlit fyrir að bólusetning
forgangshópa náist á fyrsta árs-
fjórðungi, að sögn Sigríðar Dóru
Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra
lækninga hjá Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins.
Um 15.500 skammtar af efnunum
eiga nú að berast mánaðarlega til
landsins fram í mars. Beðið er eftir
markaðsleyfi fyrir bóluefni Astra-
Zeneca. »2
Dreifingaráætlun
bóluefna liggur fyrir Bókhald byggt á skáldskap
Fjárhagsstaða Kampa miklu verri en talið var Munar hundruðum milljóna
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Endurskoðandinn er að fara yfir
málið til að reyna að fá botn í þetta.
Þetta kemur vonandi betur í ljós á
næstunni,“ segir Jón Guðbjartsson,
stjórnarformaður rækjuverksmiðj-
unnar Kampa á Ísafirði. Fyrirtækið
fékk á dögunum greiðslustöðvun til
þriggja vikna vegna aðsteðjandi fjár-
hagsvanda. Var brugðið á það ráð
eftir að í ljós kom að staða Kampa
var umtalsvert verri en áður hafði
verið talið.
Að sögn Jóns var staðan allt önnur
en fram hafði komið í bókhaldi og
ársreikningum félagsins. Nú er unn-
ið að því hörðum höndum að komast
að því hvað veldur. Að því er heim-
ildir Morgunblaðsins herma er fjár-
hagsstaðan miklum mun verri en
upphaflega var talið. Hlaupa þær
fjárhæðir sem vantar á hundruðum
milljóna króna og miklum skuldum
hefur verið safnað.
Vinna við að bjarga fyrirtækinu
Aðspurður segist Jón ekki vilja tjá
sig frekar um það. Hann geti þó
staðfest að ársreikningar fyrirtækis-
ins gefi ekki rétta mynd af stöðunni.
Þar sé um að kenna ákveðnum
stjórnanda hjá Kampa.
„Annar verklegra stjórnenda
fyrirtækisins gerði skandal sem við
vissum ekki um. Ég ætla ekki nánar
út í það. Nú er farin af stað vinna við
það að bjarga fyrirtækinu,“ segir
Jón. Hjá fyrirtækinu starfa 42
starfsmenn.
Að hans sögn hafa viðbrögð lánar-
drottna verið jákvæð. Þá muni
endurskoðendur hjálpa fyrirtækinu
að leiðrétta bókhaldið, sem hefur
verið rangt um nokkurra ára skeið.
„Það hefur eitthvað verið bogið við
bókhaldið hjá okkur í áravís. Bók-
haldið hjá okkur hefur byggst á
skáldskap í allt of langan tíma. Nú
verður það skoðað nánar til að fá
endanlega botn í þetta mál.“
Kampi Bókhald rækjuverksmiðj-
unnar hefur verið rangt um árabil.