Morgunblaðið - 25.01.2021, Síða 16

Morgunblaðið - 25.01.2021, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2021 Undanfarnar vikur hef ég í nokkrum grein- um rakið fyrir áhuga- sama lesendur Morg- unblaðsins, hvernig saga Biblíunnar og hins forna Egyptalands tvinnast saman. Og hvernig egypsk forn- asaga skýtur stoðum undir og styður heim- ildagildi hins Gamla testamentis. Sem ýmsir hafa talið lítils virði. Er nú komið að fjórðu og síðustu greininni. Árið 1353 fyrir Krist varð bylting í Egypta- landi hinu forna sem átti eftir að breyta sögunni um alla framtíð. Þá tók við veldissprotanum í hinu mikla ríki Amenho- tep IV faraó. Faðir hans, Amenhotep III, hafði verið sigursæll hershöfð- ingi sem treysti landa- mæri ríkisins í austri og efldi hinn forna átrúnað Egypta. Enn í dag má finna stórkostleg minnismerki sem hann lét gera og sem segja frægð- arsögu hans. Sonur hans sem hér segir frá var aftur á móti óþekktur með öllu þar til fyrir einum 200 árum. Öll ummerki um hann höfðu nefnilega verið fjar- lægð af síðari tíma valdhöfum. Amenhotep IV var öllum gleymdur þar til er hinn breski fornleifafræð- ingur John Gardner Wilkinson fyrir tilviljun gróf upp höfuðborg hans árið 1824. Þá kom í ljós merkileg saga. Á fimmta stjórnarári Amenhotep IV hafði hann látið banna átrúnað á alla guði Egyptalands. Í stað þess skyldu Egyptar tilbiðja aðeins einn guð, sólina, eða Aton eins og sólarguð- inn hét. Og ekki nóg með það. Aðrir guðir voru hreinlega ekki til, sagði Amenhotep IV. Þetta var með öðrum orðum ströng eingyðistrú sem hann boðaði, – eins og gyðingdómur, kristni og íslam síðar áttu eftir að verða. Musterum guða um allt Egyptaland var lokað í kjölfarið. Prestum var sagt upp. Og sjálfur breytti faraóinn nafni sínu úr Amenhotep IV, sem þýðir „Amon er ánægður“, í Akhenaton, sem merkir „Aton til dýrðar“. Auk þess lét hann byggja sér og Aton nýja höfuðborg. Borgin fékk nafnið Ak- hetaton, „Sjóndeildarhringur Atons“. Vegna alls þessa hefur Akhenaton stundum verið kallaður fyrsti spámað- ur eingyðistrúarinnar. Slíkt hafði aldr- ei áður heyrst, að bara einn guð væri til. Enginn veit hvers vegna Akhenaton hóf þessa byltingu. Eða hvaðan hug- myndin kom. Eitt er víst að eftir að hann féll frá var allt algerlega afmáð sem hann hafði boðað. Aton gleymdist. Sonur Akhenatons, Tutankaton, er tók við sem barn af föður sínum, var algerlega á valdi presta gömlu guð- anna og dó ungur. Stuttu eftir að hann settist að völdum breyttu prestarnir nafni hans í „Tutankhamon“. Og hann endurreisti tilbeiðslu gömlu guðanna að kröfu presta og yfirstéttarinnar. En Akhenaton IV og trúboð hans gleymdist og grófst í sandinn í 3000 ár. En hvað kemur allt þetta Biblíunni við? Um svipað leyti og Akhenaton féll frá, hélt annar spámaður með Ísr- aelsþjóðina út úr Egyptalandi undir merkjum hins eina guðs, ef marka má sögur Gamla testamentisins. Hann bar egypskt nafn og hét Móse. Til- viljun? Eitt er víst að margt er líkt með eingyðistrú Akhenatons og Móse. Og aðeins um 150 árum eftir að Ak- henaton hvarf úr sögunni er sagt frá Ísrael á úthöggnum steini í Egypta- landi. En þannig tekst okkur að stað- festa sögur Gamla testamentisins út frá egypskum fornleifum allt aftur til aldamótanna 1200 fyrir Krist. Öll þessi saga samskipta Egypta og hinna fornu Ísraela er dregin saman í riti Manetho um sögu Egyptalands, sem ritað var í Alexandríu um 200 ár- um fyrir Krist. Frá Manetho segi ég í fyrri greinum mínum um þessa sögu. Saga Manetho er enn helsta upp- spretta heimilda um þessa löngu liðnu atburði alla og alla faraóa Egypta- lands frá upphafi. Þetta rit Manetho er löngu glatað en geymt í endursögn annarra höfunda. Manetho skrifar að frá árinu 1700 fyrir Krist hafi kynþátt- ur „að austan“ ríkt yfir Egyptum í 511 ár. Að þeim árum liðnum voru þeir hraktir úr Egyptalandi með öllum eig- um sínum, fjölskyldum og hjörðum og héldu yfir eyðimörkina. Þeir reistu sér borg í fjöllunum víggirta til að stand- ast árásir. Kölluðu þeir borgina Jerú- salem. Við skulum kveðja Manetho þarna en frásögn hans er ákaflega áhuga- verð og tengir saman frásagnir Gamla testamentisins og sögu Egyptalands um 1700 árum fyrir Krist. Enn er stærsti hluti sögu Forn-Egyptalands hulinn sandi. Og sandurinn geymir heimildir og leyndardóma sem ekkert okkar órar fyrir. Stöðugt bætist þó við í gagnabankann eftir því sem rann- sóknum fleygir fram og nýjar minjar koma upp á yfirborðið sem varpa ljósi á sögu fornalda Miðausturlanda. Og styðja frásagnir og sögur Biblíunnar. Egypskar heimildir Biblíunnar Eftir Þórhall Heimisson Þórhallur Heimisson » „Þeir reistu sér borg í fjöllunum víggirta til að standast árásir. Kölluðu þeir borgina Jerúsalem.“ Höfundur er prestur og rithöfundur. thorhallur33@gmail.com Ljósmynd/Þórhallur Heimisson Minjar Lágmynd úr gulli af Tut- ankhamon í egypska safninu í Kaíró. Þann 19. júlí 2019 tóku gildi breytt lög um fiskeldi nr. 71/2008 og þar var m.a. áhættumat erfðablöndunar lögfest. Hafrannsóknastofnun hannaði áhættumatið og í skýrslu starfshóps sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi sem gefin var út árið 2017 var lagt til að lög- festa áhættumatið. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að stefna stjórnvalda sé að gæta ýtrustu var- úðar þar sem „sjálfbær þróun og vernd lífríkis er höfð að leiðarljósi“ og í því samhengi mikilvægt að lögfesta áhættumat erfðablöndunar. En er í raun gætt ýtrustu varúðar? Álit Skipulagsstofnunar og vísindanefndar Í nýlegu áliti Skipulagsstofnunar kemur fram að m.v. fyrirliggjandi áform verði samlegðaráhrifin við önn- ur laxeldisfyrirtæki óveruleg á þær ár sem áhættumatið tekur til á Vest- fjörðum. „Sé hins vegar horft til allra laxastofna á Vestfjörðum telur Skipu- lagsstofnun að óvissu gæti um sam- legðaráhrifin, þau geti orðið talsvert eða veru- lega neikvæð ef við- brögðum við slysaslepp- ingum er ábótavant.“ Skipulagsstofnun bend- ir einnig á að „almennt eru ár með litla stofna taldar viðkvæmari fyrir erfðablöndun en ár með stærri stofna“. Ýmsir aðilar hafa varað við áhættumati erfðablönd- unar og einnig bent á að áhættumatið geri ráð fyrir að fórna litlu laxa- stofnunum með sínum athugasemd- um við meðferð málsins á Alþingi. Nú tekur Skipulagsstofnun undir þessar athugasemdir og það gerir einnig vís- indanefnd í skýrslu sinni en nefndinni var falið að rýna áhættumatið skv. lögum um fiskeldi frá 2019. Nú er spurning hvort málinu verði sópað undir teppi eða Alþingi taki málið til efnislegrar umfjöllunar og geri við- eigandi breytingar. Litlu laxastofnunum fórnað til fjárhagslegs ávinnings Breytingar á lögum um fiskeldi byggja að mestu á tillögum starfs- hóps um fiskeldi frá 2017. Í þeim hópi voru fulltrúar laxeldisfyrirtækja í meirihlutaeigu erlendra aðila í nafni Landssambands fiskeldisstöðva og einnig frá Landssambandi veiðifélaga sem réðu för í vinnu stefnumót- unarhópsins. Í stefnumótunarskýrsl- unni er verið að verja hagsmuni lax- eldisfyrirtækja í meirihlutaeigu erlendra aðila til að tryggja þeim sem mest af framleiðsluheimildum og fjár- hagslegum ávinningi. Í skýrslunni var aðeins hugað að stærri veiðiám sem tilheyra félögum í Lands- sambandi veiðifélaga, Laugardalsá, Langadalsá, Hvannadalsá og Ísa- fjarðará en horft fram hjá þeim minni, en skv. rannsóknum Hafrann- sóknastofnunar eru tæplega 25 veiði- ár með laxi á Vestfjörðum. Sagt á annan hátt heldur áhættumatið því fram að í tilfelli báts með um 25 göt á skrokknum renni aðeins inn sjór um fjögur þeirra. Hér er því um að ræða meiri háttar staðreyndavillu í áhættu- matinu. Úthlutun framleiðsluheimilda Áhættumat erfðablöndunar er not- að til að úthluta framleiðsluheim- ildum til eldis á frjóum laxi og hefur nú verið úthlutað tvisvar sinnum og spáð er í framhaldi úthlutana:  Fyrsta úthlutun: Strax á árinu 2017 lagði Hafrannsóknastofnun til 50.000 tonna eldi á frjóum laxi fyrir Vestfirði og byggðu þeir útreikningar að stórum hluta á röngum forsendum í reiknilíkaninu, sem fyrst og fremst byggist á því að gengið er út frá of fáum veiðiám með laxalykt og of mik- illi dreifingu á eldislaxi í veiðiár. Með því að horfa fram hjá litlu laxastofn- unum var hægt að uppfylla allar væntingar stjórnarformanns Arn- arlax um framleiðsluheimildir á vest- anverðum Vestfjörðum.  Önnur úthlutun: Mikill þrýst- ingur hefur verið á að auka fram- leiðsluheimildirnar. Það kemur síðan á óvart að framleiðsluheimildir á frjó- um laxi eru auknar strax um vorið 2020 og áfram er stuðst við rangar forsendur í reiknilíkani áhættumats erfðablöndunar. Framleiðsluheim- ildir voru auknar upp í 64.500 tonn á Vestfjörðum eða um 14.500 tonn.  Þriðja úthlutun: Áfram verður haldið með að þrýsta á að auka fram- leiðsluheimildir og þegar farin verður sú leið að grípa strax til aðgerða við stærri slysasleppingar eins og gert er ráð fyrir í uppfærðu áhættumati frá 2020 skapast svigrúm til að auka heimildir enn frekar.  Fjórða úthlutun: Þegar komið er að þeim tímapunkti að norsku leiðinni verður fylgt, þ.e.a.s. að fjarlægja all- an sjáanlegan eldislax úr veiðiám fyr- ir hrygningu, verður hægt að auka framleiðsluheimildir mikið og þá jafn- framt er áhættumat erfðablöndunar búið að missa tilgang sinn. Hluti af íslensku leiðinni Þegar að fjórðu úthlutun kemur er engin þörf á áhættumati erfðablönd- unar og niðurstaðan að það verður fyrst og fremst notað til að úthluta framleiðsluheimildum til laxeldisfyr- irtækja í meirihlutaeigu erlendra að- ila. Áhættumat erfðablöndunar hefur lítið sem ekkert með umverfisvernd að gera og Ísland er sennilega eina landið í heimi þar sem erfðablöndun á laxi er heimiluð skv. lögum. Áhættu- matið er verkfæri íslensku leið- arinnar þar sem sterkir hags- munaaðilar taka auðlindina, semja leikreglurnar til að setja leyfisveiting- arferlið í hagstæðan farveg, fanga ríkisvaldið og fara með tillögurnar í gegnum alla stjórnsýsluna sjálfum sér og sínum til fjárhagslegs ávinn- ings. Áhættumat erfðablöndunar verkfæri íslensku leiðarinnar Eftir Valdimar Inga Gunnarsson » Ísland er sennilega eina landið í heimi þar sem erfðablöndun á laxi er heimiluð skv. lögum Valdimar Ingi Gunnarsson Höfundur er sjávarútvegsfræðingur og hefur m.a. unnið við ýmis mál tengd fiskeldi í rúm þrjátíu ár. valdimar@sjavarutvegur.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.