Morgunblaðið - 25.01.2021, Síða 26

Morgunblaðið - 25.01.2021, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2021 England Aston Villa – Newcastle........................... 2:0 Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit: Southampton – Arsenal .......................... 1:0  Rúnar Alex Rúnarsson var á vara- mannabekk Arsenal. Brighton – Blackpool .............................. 2:1  Daníel Leó Grétarsson var ekki með Blackpool vegna meiðsla. Millwall – Bristol City ............................. 0:3  Jón Daði Böðvarsson var á varamanna- bekk Millwall. Fulham – Burnley.................................... 0:3  Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn með Burnley. Everton – Sheffield Wednesday ............ 3:0  Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn með Everton. Sheffield United – Plymouth................... 2:1 West Ham – Doncaster............................ 4:0 Swansea – Nottingham Forest ............... 5:1 Barnsley – Norwich ................................. 1:0 Cheltenham – Manchester City.............. 1:3 Chelsea – Luton........................................ 3:1 Brentford – Leicester .............................. 1:3 Manchester United – Liverpool.............. 3:2 Þýskaland Augsburg – Union Berlín ....................... 2:1  Alfreð Finnbogason kom inn á sem vara- maður hjá Augsburg á 82. mínútu. Staða efstu liða: Bayern München 18 13 3 2 53:25 42 RB Leipzig 18 10 5 3 31:17 35 Leverkusen 18 9 5 4 32:18 32 Wolfsburg 18 8 8 2 27:19 32 Mönchengladbach18 8 7 3 35:28 31 Eintr.Frankfurt 18 7 9 2 35:27 30 Dortmund 18 9 2 7 35:26 29 B-deild: Darmstadt – Holstein Kiel...................... 0:2  Guðlaugur Victor Pálsson var ekki í leik- mannahópi Darmstadt. Spánn B-deild: Logrones – Real Oviedo.......................... 0:0  Diego Jóhannesson var á varamanna- bekk Real Oviedo. Ítalía Juventus – Bologna ................................. 2:0  Andri Fannar Baldursson var á vara- mannabekk Bologna. Napoli – Bari ............................................ 1:0  Guðný Árnadóttir lék allan leikinn með Napoli. B-deild: Venezia – Cittadella ................................ 1:0  Bjarki Steinn Bjarkason var ekki með Venezia og Óttar Magnús Karlsson er meiddur. C-deild: Imolese – Padova..................................... 1:1  Emil Hallfreðsson var ekki með Padova vegna meiðsla. Frakkland Bordeaux – Reims ................................... 7:1  Svava Rós Guðmundsdóttir kom inn á sem varamaður hjá Bordeaux á 62. mínútu. Le Havre – Issy ........................................ 0:0  Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir og Andrea Rán Hauksdóttir léku allar þrjár allan leikinn með Le Havre. Holland Feyenoord – AZ Alkmaar....................... 2:3  Albert Guðmundsson lék allan leikinn með AZ Alkmaar og lagði upp mark. B-deild: Oss – Excelsior......................................... 1:3  Elías Már Ómarsson lék allan leikinn með Excelsior og skoraði eitt mark. Belgía Antwerpen – Oostende ........................... 1:2  Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með Oostende og lagði upp sigurmarkið. B-deild: Lommel – Molenbeek .............................. 3:2  Kolbeinn Þórðarson lék allan leikinn með Lommel. Deinze – Royal Union St. Gilloise.......... 2:4  Aron Sigurðarson var á varamannabekk Royal Union. Grikkland PAOK – AEK Aþena ............................... 2:2  Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK. Atromitos – Olympiacos ......................... 0:1  Ögmundur Kristinsson var ekki í leik- mannahópi Olympiacos. Panetolikos – Lamia................................ 0:0  Theódór Elmar Bjarnason kom inn á sem varamaður hjá Lamia á 68. mínútu. Portúgal Albergaria – SL Benfica......................... 0:4  Cloé Lacasse lék fyrstu 64 mínúturnar fyrir SL Benfica.  KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: IG-höllin: Þór Þ. – ÍR ........................... 18.15 MVA-höllin: Höttur – Tindastóll ........ 18.30 Höllin: Þór Akureyri – KR .................. 19.15 Blue-höllin: Keflavík – Grindavík ....... 20.15 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Hlíðarendi: Valur – Þór ....................... 18.30 Í KVÖLD! KÖRFUBOLTINN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Antonio Hester átti stórleik fyrir Njarðvík þegar liðið heimsótti Vals- menn á Hlíðarenda í 5. umferð úr- valsdeildar karla í körfuknattleik, Dominos-deildarinnar, í gær. Leiknum lauk með níu stiga sigri Njarðvíkur, 85:76, en Hester skor- aði 26 stig og tók fimmtán fráköst fyrir Njarðvík. Njarðvíkingar voru sterkari að- ilinn í fyrri hálfleik og leiddu með 12 stigum í hálfleik, 47:35. Valsmenn náðu ekki að minnka forskot Njarðvíkinga í þriðja leik- hluta og þrátt fyrir heiðarlega til- raun Valsmanna í fjórða leikhluta tókst þeim ekki að ógna forskoti Njarðvíkur. Rodney Glasgow Jr. átti góðan leik fyrir Njarðvík og skoraði 24 stig en Sinisa Bilic var stigahæstur Valsmanna með 21 stig. Þá átti Kristófer Acox mjög góðan leik fyr- ir Val, skoraði 20 stig og tók tólf fráköst. Bæði lið hefur skort ákveðinn stöðugleika í fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni en Njarðvíkingar, sem eru í fimmta sæti deildarinnar með 6 stig, hafa unnið þrjá leiki og tapað tveimur. Valsmenn, sem eru í áttunda sæti deildarinnar, hafa tapað þremur leikjum í deildinni til þessa og unnið tvo. Báðum liðum hefur mistekist að tengja saman tvo sigra í röð en þau eru bæði með nokkuð breytt lið frá síðustu leiktíð og þurfa því tíma til þess að slípa sig saman. Þá er Stjarnan komin aftur á sigurbraut eftir 92:86-sigur gegn Haukum á Ásvöllum í Hafnarfirði. Garðbæingar byrjuðu leikinn bet- ur og leiddu með níu stigum í hálf- leik, 61:53. Stjarnan vann þriðja leikhluta með fimm stiga mun en Haukum tókst að minnka forskot Stjörnunnar í fjögur stig þegar þrjár mínútur voru til leiksloka, 82:86. Stjarnan skoraði hins vegar næstu fjögur stig leiksins og fagnaði nokkuð þægilegum sigri í leikslok. Gunnar Ólafsson var stigahæstur Stjörnunnar með 19 stig en Hlynur Bæringsson skoraði 16 stig og tók átta fráköst. Hjá Haukum var Hansel Atencia stigahæstur með 25 stigog Brian Fitzpatrick skoraði 17 stig og tók þrettán fráköst. Garðbæingar töpuðu óvænt á heimavelli fyrir Þór frá Þorlákshöfn í síðustu umferð en það var fyrsta tap Stjörnunnar sem er með átta stig, líkt og Keflavík og Grindavík, í efsta sæti deildarinnar eftir fimm leiki. Haukar bíða ennþá eftir sínum öðrum sigri í deildinni en eftir sigur gegn Njarðvík í annarri umferð deildarinnar, 14. janúar, er liðið nú án sigurs í síðustu þremur leikjum sínum. Njarðvík lagði óstöðuga Valsmenn  Garðbæingar aftur á sigurbraut Morgunblaðið Íris Jóhannsdóttir Umkringdur Valsmenn réðu ekkert við Antonio Hester á Hlíðarenda. Arsenal og Real Madríd hafa náð samkomulagi um að norski knatt- spyrnumaðurinn Martin Ödegaard fari að láni til Lundúnaliðsins frá spænska stórveldinu út þetta keppnistímabil. Sky Sports sagði frá þessu í gær en miðjumaðurinn, 22 ára, er væntanlegur til Englands í dag þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun á æfingasvæði Arsenal. Ödegaard hefur verið í röðum Real Madrid í sex ár en verið í láni annars staðar mestallan tím- ann og vill hann nú fara til Arsenal til að spila meira. Norðmaðurinn á leið til Arsenal AFP Liðsstyrkur Arsenal er að fá norska miðjumanninn frá Real Madríd. Írski bardagakappinn Conor McGregor sneri aftur í búrið í UFC-keppninni í blönduðum bar- dagalistum þegar hann mætti Bandaríkjamanninum Dustin Poi- rier í léttvigt aðfaranótt sunnu- dags. Poirier hafði betur með tæknilegu rothöggi í annarri lotu og er þetta í fyrsta sinn sem McGregor er rotaður í UFC. Poirier átti harma að hefna gegn McGregor í nótt en þeir mættust fyrst í UFC í september árið 2014, þegar Írinn rotaði Poi- rier. McGregor rot- aður í fyrsta sinn AFP Rotaður Bardagakappinn Conor McGregor tapaði óvænt um helgina. ÍBV tyllti sér á toppinn í úrvals- deild karla í handknattleik, Olís- deildinni, þegar liðið vann tveggja marka sigur gegn Fram í Vest- mannaeyjum í fimmtu umferð deildarinnar í gær. Þetta var fyrsti leikur deild- arinnar síðan í byrjun október þeg- ar hlé var gert á keppni vegna kór- ónuveirufaraldursins og þá dróst endurkoma deildarkeppninnar vegna heimsmeistaramótsins í Egyptalandi sem hófst 13. janúar. Lárus Helgi Ólafsson, markvörð- ur Framara, átti stórleik í markinu og varði 27 skot. Hann var með 59% markvörslu en því miður dugði það ekki til fyrir Framara. FH vann níu marka sigur gegn nýliðum Gróttu í Kaplakrika en Hafnfirðingar leiddu með sex mörkum í hálfleik, 17:11. Ásbjörn Friðriksson var marka- hæstur FH-inga með átta mörk. Þá var leik Vals og Þórs frá Akureyri, sem fara átti fram í gær, frestað til dagsins í dag vegna veð- urs. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Varsla Markvörðurinn Lárus Helgi Ólafsson lokaði markinu í Eyjum. Eyjamenn sneru aftur með látum Keflavík er með fullt hús stiga á toppi úrvalsdeildar kvenna í körfu- knattleik, Dominos-deildarinnar, eftir 87:83-sigur gegn Val í sjöundu umferð deildarinnar í Blue-höllinni í Keflavík á laugardaginn. Keflavík byrjaði leikinn af mikl- um krafti og leiddi með 16 stigum eftir fyrsta leikhluta, 33:17. Vals- konum tókst að minnka forskot Keflvíkinga í tíu stig í hálfleik en Keflvíkingar voru sterkari í síðari hálfleik og innbyrtu sinn fimmta sigur á tímabilinu í jafn mörgum leikjum. Daniela Wallen átti stórleik fyrir Keflavík og skoraði 37 stig, og þá tók hún einnig sjö fráköst. Anna Ingunn Svansdóttir átti einnig mjög góðan leik fyrir Keflavík og skoraði 19 stig. Hjá Val vou landsliðskonurnar Helena Sverrisdóttir og Hildur Börg Kjartansdóttir atkvæðamest- ar en Helena skoraði 26 stig og tók ellefu fráköst. Hildur Björg skoraði 22 stig. Keflavík er eina taplausa liðið í deildinni en önnur lið hafa öll tapað tveimur leikjum eða meira. Haukar eru komnir í fjórða sæti deildarinnar eftir 79:65-sigur gegn KR í Vesturbæ en Alyesha Lovett var stigahæst Hauka með 20 stig. Í Stykkishólmi vann Snæfell níu stiga sigur gegn Breiðabliki, 68:61, en Haiden Palmer var atkvæðamest í liði Snæfells með 23 stig og ellefu fráköst. Nýliðar Fjölnis gerðu svo góða ferð í Borgarnes og lögðu bikar- meistara Skallagríms, 76:74, en Ar- iel Hearn átti stórleik fyrir Fjölni, skoraði 26 stig og gaf þrettán stoð- sendingar. Keflvíkingar með fullt hús stiga Morgunblaðið Íris Jóhannsdóttir Vesturbær Lovísa Henningsdóttir og Gunnhildur Atladóttir takast á.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.