Morgunblaðið - 25.01.2021, Page 27

Morgunblaðið - 25.01.2021, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2021 Dominos-deild karla Haukar – Stjarnan ............................... 86:92 Valur – Njarðvík................................... 76:85 Staðan: Keflavík 4 4 0 382:314 8 Stjarnan 5 4 1 466:436 8 Grindavík 4 4 0 396:366 8 Valur 5 3 2 415:408 6 ÍR 4 3 1 387:356 6 Njarðvík 5 2 3 438:449 4 Þór Þ. 4 2 2 395:406 4 KR 4 2 2 374:375 4 Tindastóll 4 1 3 365:373 2 Haukar 5 1 4 421:447 2 Þór Ak. 4 0 4 352:404 0 Höttur 4 0 4 359:416 0 Dominos-deild kvenna KR – Haukar......................................... 65:79 Snæfell – Breiðablik............................. 68:61 Skallagrímur – Fjölnir......................... 74:76 Keflavík – Valur.................................... 87:83 Staðan: Keflavík 5 5 0 406:328 10 Fjölnir 7 5 2 501:475 10 Valur 6 4 2 408:348 8 Haukar 7 4 3 451:424 8 Skallagrímur 6 3 3 410:440 6 Snæfell 6 2 4 422:459 4 Breiðablik 7 2 5 383:413 4 KR 6 0 6 409:503 0 Spánn Bilbao – Zaragoza ............................... 73:96  Tryggvi Snær Hlinason skoraði 10 stig fyrir Zaragoza, tók sex fráköst og gaf eina stoðsendingu. Valencia – Baskonia............................ 83:61  Martin Hermannsson skoraði 5 stig fyrir Valencia og tók eitt frákast. Þýskaland Hamburg – Fraport Skyliners........... 98:70  Jón Axel Guðmundsson skoraði 15 stig fyrir Fraport Skyliners, tók þrjú fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Litháen Siaulai – Rytas ..................................... 78:86  Elvar Már Friðriksson skoraði 16 stig fyrir Siaulai, tók sex fráköst og gaf sex stoðsendingar.  HM karla í Egyptalandi MILLIRIÐILL 1: Úrúgvæ – Spánn................................... 23:38 Pólland – Ungverjaland....................... 26:30 Þýskaland – Brasilía ........................... 31:24  Alfreð Gíslason þjálfar Þýskaland. Staðan: Ungverjaland 4 4 0 0 132:95 8 Spánn 4 3 1 0 126:106 7 Þýskaland 4 2 0 2 130:99 4 Pólland 4 2 0 2 115:96 4 Brasilía 4 0 1 3 99:122 1 Úrúgvæ 4 0 0 4 71:155 0 MILLIRIÐILL 2: Katar – Barein ..................................... 28:23  Halldór J. Sigfússon þjálfar Barein. Argentína – Króatía ............................. 23:19 Japan – Danmörk ................................ 27:34  Dagur Sigurðsson þjálfar Japan. Staðan: Danmörk 4 4 0 0 131:90 8 Argentína 4 3 0 1 95:95 6 Króatía 4 2 1 1 102:94 5 Katar 4 2 0 2 106:110 4 Japan 4 0 1 3 109:122 1 Barein 4 0 0 4 82:114 0 MILLIRIÐILL 3: Alsír – Sviss........................................... 24:27 Ísland – Noregur .................................. 33:35 Portúgal – Frakkland .......................... 23:32 Lokastaðan: Frakkland 5 5 0 0 142:123 10 Noregur 5 4 0 1 155:137 8 Portúgal 5 3 0 2 135:132 6 Sviss 5 2 0 3 125:131 4 Ísland 5 1 0 4 139:132 2 Alsír 5 0 0 5 116:157 0 MILLIRIÐILL 4: Hvíta-Rússland – N-Makedónía ......... 30:26 Slóvenía – Egyptaland......................... 25:25 Rússland – Svíþjóð ............................... 20:34 Lokastaðan: Svíþjóð 5 3 2 0 144:117 8 Egyptaland 5 3 1 1 149:117 7 Slóvenía 5 2 2 1 138:130 6 Rússland 5 2 1 2 138:139 5 Hvíta-Rússland 5 1 2 2 139:148 4 N-Makedónía 5 0 0 5 106:163 0 Keppnin um Forsetabikarinn: Túnis – Kongó....................................... 38:22 Grænhöfðaeyjar – Angóla ..................... 0:10 Marokkó – Síle...................................... 17:28 Suður-Kórea – Austurríki ................... 29:36 Leikir í dag: 14.30 Brasilía – Úrúgvæ.......................... M1 14.30 Barein – Japan ............................... M2 17.00 Spánn – Ungverjaland................... M1 17.00 Argentína – Katar.......................... M2 17.00 Túnis – Angóla ................................ F1 19.30 Pólland – Þýskaland ...................... M1 19.30 Danmörk – Króatía........................ M2 Olísdeild karla ÍBV – Fram........................................... 19:17 FH – Grótta .......................................... 31:22 Olísdeild kvenna Fram – FH............................................ 41:20 ÍBV – Stjarnan ..................................... 29:30 Haukar – HK ........................................ 27:21  HM 2021 Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í handknatt- leik lauk keppni á heimsmeistara- mótinu í Egyptalandi þegar liðið mætti Noregi í milliriðli þrjú í borg- inni 6. október í gær. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 18:18 en Norðmenn reyndust sterk- ari aðilinn í síðari hálfleik og inn- byrtu að lokum tveggja marka sigur, 35:33. Íslenska liðið lék mjög vel í leikn- um og skoraði átján mörk í fyrri hálf- leik en það er jafn mikið og liðið skor- aði gegn Sviss í fyrsta leik sínum í milliriðli keppninnar. Jafnræði var með liðunum til að byrja með en Norðmenn náðu þriggja marka forskoti, 11:8, þegar tíu mínútur voru eftir af fyrri hálf- leik. Íslenska liðið neitaði að gefast upp og Arnar Freyr Arnarsson jafn- aði metin fyrir Ísland með lokaskoti fyrri hálfleiks. Norðmenn byrjuðu seinni hálfleik- inn af krafti og náðu fjögurra marka forskoti þegar fimmtán mínútur voru til leiksloka, 27:23. Magnus Jöndal kom þeim fimm mörkum yfir þegar tíu mínútur voru til leiksloka en þá kom frábær kafli hjá íslenska liðinu. Bjarki Már Elísson fékk frábært tækifæri til þess að jafna metin í 32:32 þegar þrjár mínútur voru til leiksloka en Kristian Sæverås varði vel í marki Norðmanna og þar við sat. Ekki er hægt að fyllyrða í hvaða sæti Ísland lendir á mótinu fyrr en keppni í milliriðlum lýkur en það er ljóst að liðið mun enda í 18.-20. sæti sem er versti árangur íslenska lands- liðsins á HM frá upphafi. Fyrir HM 2021 í Egyptalandi var versti árangur Ísland á HM 15. sætið í Túnis 2005. Vissulega var liðið án fyrirliðans Arons Pálmarssonar í ár en HM í Egyptalandi hefur ekki ver- ið mót íslenska liðsins. Þrátt fyrir naum tveggja marka töp í öllum tapleikjum sínum á mótinu var liðið einfaldlega ekki nægilega sannfærandi í leikjum sín- um gegn bæði Portúgal og Sviss. Þessir tveir leikir voru algjörir úr- slitaleikir fyrir íslenska liðið og liðið náði sér aldrei á strik sóknarlega gegn þessum andstæðingum. Einu sigurleikir Íslands á mótinu komu gegn Alsír og Marokkó en Ís- land tapaði öllum leikjum sínum í milliriðli heimsmeistaramótsins. Íslenska liðið lék pressulaust í síðustu tveimur leikjum sínum á mótinu og gaf Frökkum og Norð- mönnum hörkuleiki en það dugði ekki til. HM í Egyptalandi var svekkjandi á margan hátt en margir framtíðarleikmenn liðsins öðluðust dýrmæta reynslu sem mun vonandi fleyta þeim langt á komandi stór- mótum með landsliðinu. Svekkjandi í Egyptalandi  Ísland tapaði með tveggja marka mun gegn Noregi í lokaleik sínum á HM  Versti árangur íslensks liðs á heimsmeistaramótinu í handbolta frá upphafi AFP Mark Kári Kristján Kristánsson, Ágúst Elí Björgvinsson og Guðmudur Þ. Guðmundsson fagna á hliðarlínunni. Höll Hassan Moustafa, 6. október, milliriðill 3 á HM, sunnudaginn 24. janúar 2021. Gangur leiksins: 3:2, 5:5, 7:9, 16:17, 13:15, 18:18, 19:20, 21:24, 24:27, 26:31, 30:31, 33:35. Mörk Ísland: Bjarki Már Elísson 6/3, Ólafur Guðmundsson 5, Gísli Þorgeir Kristjánsson 4, Elliði Snær Viðarsson 4, Ómar Ingi Magnússon 4/2, Arnar Freyr Arnarsson 3, Sig- valdi Björn Guðjónsson 3, Kristján Örn Kristjánsson 1, Oddur Gret- arsson 1, Ýmir Örn Gíslason 1, Magnús Óli Magnússon 1. Varin skot: Viktor Gísli Hall- ÍSLAND - NOREGUR 33:35 grímsson 8/1, Ágúst Elí Björg- vinsson 4. Utan vallar: 18 mínútur. Mörk Noregs: Sander Sagosen 8/5, Harald Reinkind 6, Göran Jo- hannessen 5, Petter Överby 4, Magnus Jöndal 3, Kristian Björnsen 2, Christian O’Sullivan 2, Bjarte My- rol 2, Kent Robin Tönnesen 2, Kevin Gulliksen 1. Varin skot: Kristian Sæverås 10/2, Torbjörn Bergerud 7. Utan vallar: 14 mínútur. Dómarar: Slave Nikolov og Gjorgji Nachevski, Norður-Makedóníu. Áhorfendur: Ekki leyfðir. Lena Margrét Valdimarsdóttir átti sannkallaðan stórleik fyrir Fram þegar liðið fékk botnlið FH í heim- sókn í úrvalsdeild kvenna í hand- knattleik, Olísdeildinni, í Framhús í Safamýri í sjöttu umferð deild- arinnar á laugardaginn. Lena Margrét skoraði tólf mörk úr tólf skotum en leiknum lauk með 41:20-stórsigri Fram sem leiddi með átta mörkum í hálfleik. Framarar jöfnuðu Val að stigum í efsta sæti deildarinnar en bæði lið eru með 8 stig eftir fimm leiki. Í Vestmannaeyjum vann Stjarnan dramatískan 30:29-sigur þar sem Hildur Öder varði lokaskot Eyja- kvenna þegar nokkrar sekúndur voru til leiksloka. Eyjakonum hefur fatast flugið að undanförnu og hafa nú tapað síðustu tveimur deildarleikjum sínum í röð, báðum með eins marks mun. Þá skoraði Sara Odden sjö mörk fyrir Hauka sem áttu ekki í miklum vandræðum með HK í Hafnarfirði en leiknum lauk með 27:21-sigri Hauka. Leik Vals og KA/Þórs, sem átti að fara fram á laugardaginn, var frestað vegna veðurs. Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir Vörn Britney Cots, FH, reynir skot að marki Framara í Safamýrinni. Reykjavíkurliðin jöfn á toppi deildarinnar Bruno Fernandes reyndist hetja Manchester United þegar liðið tók á móti Liverpool í 4. umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu á Old Trafford í Manchester í gær. Leiknum lauk með 3:2-sigri United en Fernandes skoraði sig- urmark United á 78. mínútu eftir að hafa komið inn á sem varamað- ur á 66. mínútu. Mohamed Salah kom Liverpool yfir á 18. mínútu en Mason Greenwood jafnaði metin átta mínútum síðar. Marcus Ras- hford kom United svo yfir á 48. mínútu en Salah jafnaði metin fyr- ir Liverpool, tíu mínútum síðar. Það var svo Fernandes sem tryggði United sigur með marki úr aukaspyrnu, rétt utan teigs. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var að heimsækja Old Trafford í sjötta sinn síðan hann tók við enska félaginu í október 2015 en hann hefur aldrei stýrt liði sínu til sigurs á Old Trafford. Fjórum sinnum hafa liðin gert jafntefli og United hefur tvívegis farið með sigur af hólmi. „Það er draumur að spila fyrir þetta félag, hvort sem það er í enska bikarnum eða ensku úrvalsdeildinni,“ sagði hetjan Bruno Fernandes í samtali við BBC í leikslok. „Þessi úrslit gefa okkur mikið og ég veit að stuðningsmennirnir fara sáttir inn í vikuna,“ bætti Fernandes við. United, sem hefur unnið ensku bikarkeppnina tólf sinnum, tekur á móti West Ham í sextán liða úrslit- um keppninnar. Þá lék Gylfi Þór Sigurðsson all- an leikinn með Everton þegar liðið vann 3:0-heimasigur gegn B- deildarliði Sheffield Wednesday og Jóhann Berg Guðmundsson lék all- an leikinn með Burnley sem vann 3:0-útisigur gegn Fulham. United sló Liverpool úr leik í bikarnum AFP Sigurmark Bruno Fernandes fagn- ar marki sínu á Old Trafford.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.