Morgunblaðið - 30.01.2021, Side 2

Morgunblaðið - 30.01.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021 STYRKUR -HAGKVÆMNI -HÖNNUN LANDSHÚSLandshús - Sími 553 1550 - landshus.is KLETTARHEILSÁRSHÚS Klettareru sterkbyggðhús – sérhönnuðaf Efluverkfræðistofu. Húsineruhefðbundin timburgrindarhús semeru Íslandi aðgóðukunn. Húsinafhendastósamsett, aðhluta í forsmíðuðumeiningumogaðhluta semforsniðiðefni.Hentug lausnviðþröngaraðstæður. Uppsetninghúsannaerafarfljótleg. Klettar erumeðrúmgóðusvefnlofti (hæð2,1m) semeykurnotagildi hússinsumtalsvert. Klettar 80 –Grunnverðkr. 10.807.000,- Ítarlegar upplýsingar og afhendingar- lýsingumáfinna á vefsíðu okkar. Húsið ámyndinni er af gerðinniKlettar 80 sem reist var 2019 á Vesturlandi – Klæðning er síberískt lerki og gluggar og hurðir eru ál/tré. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Gert er ráð fyrir að tvær af fimm Boeing 737 MAX-þotum Icelandair sem hafa verið í geymslu á flugvell- inum í Lledia á Spáni undanfarin misseri verði ferjaðar heim í næstu viku. Sem kunnugt er voru vélar þessarar gerðar kyrrsettar fyrir um tveimur árum í kjölfar tveggja mannskæðra flugslysa, þar sem alls 346 fórust. Hið fyrra var 2018 þegar vél Lion Air hrapaði til jarðar í Indónesíu og árið eftir fórst vél Ethiopian Airlines sem var á leiðinni til Nairóbí í Keníu. Stýrikerfi MAX-vélanna hefur verið endurhannað og aðrar ráðstaf- anir gerðar og Flugöryggisstofnun Evrópu hefur aflétt kyrrsetningu vélanna. Nokkuð er liðið síðan flug- málayfirvöld í Bandaríkjunum gáfu Boeing MAX græna ljósið og í ferð- um að undanförnu hefur allt gengið vel og ekkert óvænt komið upp. Fara yfir gögn og þjálfun í flughermi Samkvæmt kröfum flugmála- yfirvalda verða ákveðin viðhalds- verk framkvæmd áður en vélunum verður flogið heim. Þegar til Íslands er komið taka við áframhaldandi uppfærslur á vélunum og þjálfun flugmanna. Ráðgert er svo að taka vélarnar aftur í rekstur á vormán- uðum. Fjórir flugmenn Icelandair hafa að undanförnu farið í gegnum umfangsmikla þjálfun, bæði bóklega og í flughermi, og eru tilbúnir í þetta verkefni, segir Ásdís Ýr Pét- ursdóttir upplýsingafulltrúi Ice- landair. „Mjög öruggar“ „Að undanförnu höfum við farið vel yfir öll gögn varðandi MAX- vélarnar og viðhaldið þjálfun okkar með æfingum í flughermi,“ segir Þórarinn Hjálmarsson þjálfunar- flugstjóri hjá Icelandair í samtali við Morgunblaðið. „Búið er að yfirfara vélarnar mjög nákvæmlega þannig að flugslys sambærileg þeim sem áttu sér stað eru útilokuð. Þetta eru mjög öruggar flugvélar og þegar við sækjum þær verða tæknimenn bún- ir að endurforrita stjórnbúnaðinn.“ Þegar heim kemur verða MAX- vélarnar teknar inn í skýli Ice- landair á Keflavíkurflugvelli þar sem þær verða gerðar endanlega klárar. „Ég reikna með að MAX fari svo aftur í áætlunarflug í mars eða apríl; slíkt bara ræðst af bókunar- stöðu og hvert fljúga þarf á hverjum tíma,“ segir Þórarinn. Sækja MAX-vélarnar í næstu viku  Boeing-vélarnar bíða í Lledia á Spáni  Græna ljósið fengið  Endurhönnun og öryggi  Flug- menn í þjálfun eru tilbúnir  Vélarnar fara í áætlunarflugið væntanlega í mars- eða aprílmánuði Morgunblaðið/Hari Þota Max-vélarnar voru fyrstu mánuðina eftir kyrrsetningu á Keflavíkur- flugvelli en hafa nú í rúmt ár verið í geymslu suður á Spáni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Flugstjórar Þórarinn Hjálmarsson, til vinstri, og Haraldur Baldursson hafa verið mikið á Max-vélum Icelandair og eru hér í stjórnklefa vélarinnar. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er alveg hægt að reka svona verslun ef þú ert nógu duglegur. Þetta er erfiður bissness og það þarf að gera mikið sjálfur,“ segir Axel Sigurðsson, nýr eigandi Péturs- búðar í Vesturbæ Reykjavíkur. Axel er 29 ára og keypti versl- unina ásamt fjölskyldu sinni fyrir skemmstu. Hann hefur unnið í Pét- ursbúð síðustu tvö ár og þekkir því vel til rekstursins. Axel á að baki tólf ára feril í verslunarstörfum og starf- aði til að mynda lengi í Bónus. Verslunarrekstur frá 1928 Fyrri eigendur höfðu rekið Pét- ursbúð frá árinu 2006 en auglýstu verslunina til sölu vegna óviðráðan- legra aðstæðna. Verslun hefur verið rekin á neðri hæð hússins á Ránar- götu 15 frá því það var byggt árið 1928. Upphaflega var rýminu skipt í kjörbúð og mjólkurbúð, síðan var einnig fiskbúð í áföstu rými og svo lítil verslun en með tímanum varð úr ein heil kjörbúð. Nafnið Pétursbúð mun hafa fylgt búðinni síðustu þrjá áratugina og nýtur hún mikilla vin- sælda meðal fólks í miðbænum og Vesturbænum. Þekkir flesta kúnnana En hvað rekur ungan mann til að kaupa sér hverfisverslun árið 2021? „Þetta er bara rómantískt. Manni finnst sem fólkið hérna í hverfinu vilji hafa svona búð, kaup- mann á horninu sem hægt er að treysta. Ég þekki orðið flesta kúnn- ana en hingað kemur líka fólk lengra að til að sækja sér ódýrar sígar- ettur,“ segir Axel. Aðspurður kveðst hann vera bjartsýnn á rekstur Pétursbúðar. Vissulega hafi verið dýrt að kaupa verslunina enda sé hátt fermetra- verð í hverfinu. Engu verði breytt í Pétursbúð til að byrja með en hann segist þó vonast til að geta endur- nýjað einhver tæki ef vel gengur á næstunni. Axel segir aðspurður að hann sé í sambúð en hyggst hlífa kærustunni við verslunarstörfum. Meðeigend- urnir munu þó standa vaktina með honum. „Mamma og pabbi búa að vísu fyrir vestan, mamma er kennari og pabbi sjómaður. Þau hjálpa kannski til um helgar enda öllu vön.“ Þarf að vera duglegur til þess að svona verslun dafni Morgunblaðið/Árni Sæberg Kaupmaður Axel Sigurðsson er nýr eigandi Pétursbúðar í Vesturbæ Reykjavíkur. Hann er bjartsýnn á framtíðina.  Axel keypti rekstur Pétursbúðar  29 ára kaupmaður Arturas Leimontas var í gærmorgun dæmdur í 16 ára fangelsi í Héraðs- dómi Reykjavíkur fyrir að hafa kast- að öðrum manni fram af svölum í Úlf- arsárdal í Reykjavík í desember 2019 með þeim afleiðingum að hann lést. Leimontas er 51 árs gamall og frá Litháen en hann er búsettur hér- lendis. Sá sem lést, Egidijus Buzleis, var einnig frá Litháen og búsettur hér á landi. Afar umfangsmikil rannsókn var gerð á málinu en lögregla sviðsetti til að mynda vettvanginn að viðstödd- um verkfræðiprófessor og fleirum og kastaði brúðu í mannslíki, sem líktist Buzleis að hæð og þyngd, úr sömu hæð og fram af jafn háu handriði. Atburðarásin var tekin upp með fjórum myndavélum samtímis. Nið- urstaða sérfræðinga var sú að Buz- leis hafi sennilega verið kastað eða hrint af afli fram af svölunum. Kolbrún Benediktsdóttir vararík- issaksóknari sagði í samtali við mbl.is í gær að niðurstaðan hefði ver- ið í samræmi við það sem lagt var upp með, en ákæruvaldið krafðist 16 ára fangelsis fyrir manndrápið og fékk. Dómnum verður áfrýjað að sögn verjanda Leimontas. Sagði Kolbrún að sönnunarbyrðin hefði einkum snúist um að sanna að Leimontas hefði með afli hent Buz- leis fram af svölum íbúðarinnar. Kom í ljós við endursköpun atviks- ins, að væri gínunni velt fram af svöl- unum kæmist hún ekki þá vegalengd sem um var að ræða, en við athug- unina hefði komið í ljós að hægt var að kasta manni þessa vegalengd og ná fram sambærilegri lendingu. Kastaði manni fram af svölum  Leimontas dæmdur í 16 ára fangelsi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.