Morgunblaðið - 30.01.2021, Side 4

Morgunblaðið - 30.01.2021, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021 Rekstraraðili hjúkrunarheimila Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) auglýsa hér með eftir viðræðum við aðila, fyrirtæki, félög eða stofnanir í þeim tilgangi að taka við rekstri hjúkrunarheimila sem hér segir: Hraunbúðir dvalarheimili aldraðra í Vestmannaeyjum frá og með 1. apríl 2021: Um er að ræða hjúkrunarheimili með 31 hjúkrunarrými, 4 dvalarrýmum ásamt 10 dagdvalarrýmum. Hjúkrunarþyngdarstuðull heimilisins fyrir árið 2021 er 1,10. Hulduhlíð heimili aldraðra á Eskifirði, frá og með 1. apríl 2021: Um er að ræða hjúkrunarheimili með 20 hjúkrunarrýmum. Hjúkrunarþyngdarstuðull heimilisins fyrir árið 2021 er 1,00. Uppsalir dvalarheimili aldraðra á Fáskrúðsfirði, frá og með 1. apríl 2021: Um er að ræða hjúkrunarheimili með 20 hjúkrunar- rýmum. Hjúkrunarþyngdarstuðull heimilisins fyrir árið 2021 er 0,97. Öldrunarheimili Akureyrar (Hlíð og Lögmannshlíð) frá og með 1. maí 2021: Um er að ræða hjúkrunarheimili með 173 hjúkrunar- rýmum, þar af 3 sérhæfðum rýmum, 8 dvalarrýmum, 20 almennum dagdvalarrýmum og 16 dagdvalarrýmum fyrir heilabilaða. Fjárveit- ing vegna 10 hjúkrunarrýma er nýtt í tilraunaverkefni um sveigjan- lega dagdvöl (10 af 173). Hjúkrunarþyngdarstuðull heimilisins fyrir árið 2021 er 1,21. Æskilegt er að rekstraraðilar séu reknir á grundvelli fyrirkomulags um sjálfseignarstofnanir eða þar sem hagnaður er endurfjárfestur í þágu starfseminnar. Greiðslur til nýs/nýrra rekstraraðila munu byggja á núgildandi samningum um þjónustuna. Nánari upplýsingar veitir samningadeild SÍ í gegnum netfangið innkaup@sjukra.is . Áhugasamir rekstraraðilar eru vinsamlega beðnir að tilkynna sig með tölvupósti á innkaup@sjukra.is fyrir 15. febrúar 2021. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Verið er að deiliskipuleggja jörðina Brúarhvamm sem er rétt austan við Geysi og er áformað að byggja þar allt að 100 herbergja hótel ásamt gistiheimili með 10 smáhýsum. Kvótasalan á jörðina Brúar- hvamm sem er við leiðina á milli Geysis og Gullfoss. Svavar Þor- steinsson framkvæmdastjóri segir að landið sér einstaklega vel staðsett og þaðan sé fallegt útsýni. Því sé upplagt að bjóða ferðamönnum að sækja staðinn heim. Í raun sé ekki hægt að sleppa þessu tækifæri. Byggt upp í áföngum Svavar segir að uppbyggingin sé langtímaverkefni, verði tekin fyrir í áföngum á næstu þremur til fimm árum. Hann er viss um að ferðaþjón- ustan í landinu verði komin aftur á skrið á þeim tíma. Fyrirhuguð uppbygging er sunn- an Biskupstungnabrautar og skammt austan við bakka Tungu- fljóts. Hótelið verður við leiðina á milli Geysis og Gullfoss og er Brúar- hvammur skammt frá Geysi. Á Geysi er stórt hótel og einnig er hót- el við Gullfoss. Telur Svavar að spurn sé eftir fleiri herbergjum á þessu svæði. Samkvæmt deiliskipulagstillögu sem enn er í vinnslu hjá sveitar- félaginu verður heimilt að byggja allt að 100 herbergja hótel, ásamt veitingastað, austan megin við gamla bæinn í Brúarhvammi. Hót- elið yrði á tveimur hæðum, allt að 3.000 fermetrar að stærð. Sunnan megin við gamla bæinn verður heim- ilt að byggja allt að 10 gistihús. Morgunblaðið/Ómar Strokkur Geysir hefur mikið aðdráttarafl og þangað mun fólk flykkjast á ný þegar löndin opnast aftur. Nýtt hótel austan við Geysi  Hótel og gistiheimili í deiliskipulagi fyrir Brúarhvamm Geislar sólarinnar hafa áhrif á alla hormónaframleiðslu og geta þannig haft áhrif á heilsu fólks. Konur sem gengið hafa í gegnum breyt- ingaskeiðið eru sérstaklega við- kvæmar fyrir sólargeislum og geta sólböð leitt til heilsufarsvandamála. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar rannsóknar sem kynnt var í erlendu vísindariti nýverið. Vísindamað- urinn Kai Triebner við Háskólann í Bergen leiddi rannsóknina en meðal höfunda greinarinnar er Bryndís Benediktsdóttir, prófessor emeritus við Háskóla Íslands. Umrædd rannsókn er hluti af hinni víðtæku Evrópurannsókn Lungu og heilsa sem gerð hefur verið í þrígang. Í henni er ítarlega spurt um áhættuþætti astma, of- næmis og lang- vinnrar lungna- teppu, svefn, hreyfingu, þætti sem snúa að tíða- hvörfum, lífsgæði og fæðuvenjur. Að sögn Bryndís- ar voru ríflega 500 manns rann- sakaðir hér á landi og víða um Evrópu fyrir umrædda rannsókn á áhrifum sólarljóss. Fólkið var vigtað og mælt í bak og fyrir, blóðprufur teknar, samsetning fitu og vöðva könnuð, þvagprufur teknar, svefn- mælingar framkvæmdar og svo mætti áfram telja. Triebner hefur um árabil rann- sakað hormónastarfsemi kvenna í kringum tíðahvörf, hver áhrifin verða á heilsu og vellíðan kvenna og hver áhrif utanaðkomandi þátta séu. Niðurstöður umræddrar rann- sóknar sýna að þeir þátttakendur sem hafa komist í mikla snertingu við sólarljós höfðu minna af estró- geni en meira af gónadótrópíni en þeir sem höfðu komist í mikla snert- ingu við sólarljós. Þetta getur aukið hættu á beinþynningu, hjartasjúk- dómum og hrörnunarsjúkdómum, svo sem Alzheimers. Vísindamennirnir segja að eftir tíðahvörf þurfi konur að gæta sín á geislum sólarinnar. Ekki er mælt með meiru en 10-15 mínútum í sól- inni dag hvern án þess að nota sól- arvörn. hdm@mbl.is Sólböð geta verið varasöm  Konur geta verið viðkvæmar fyrir geislum sólarinnar eftir tíðahvörf  Sólbruni getur aukið hættu á sjúkdómum Bryndís Benediktsdóttir Forsætisnefnd borgarráðs sam- þykkti í gær sameiginlega bókun allra flokka í borgarstjórn þar sem árásir á höfuðstöðvar stjórnmála- flokka og bifreið borgarstjóra voru fordæmd. Var Pawel Bartoszek, for- seta borgarstjórnar, þar falið að ræða við borgarritara og lögreglu- yfirvöld og grípa til nauðsynlegra ráðstafanna til að tryggja öryggi kjörinna fulltrúa. Ólafur Guðmundsson, varaborg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokks, mun víkja úr nefndarsætum sínum á næsta borgarstjórnarfundi á þriðju- dag. Þetta var ákveðið í samstarfi við aðra fulltrúa Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn í gær, eftir að Ólafur lét ummæli falla við frétt um skot- árás sem gerð var á bíl Dags B. Egg- ertssonar, þar sem hann gerði því skóna að skotárásin á bíl Dags væri afleiðing hegðunarmynsturs sem hefði hafist í hruninu. Vilja axla ábyrgð Ummælin vöktu reiði margra, meðal annars samflokksmanna Ólafs í borgarstjórn. Sagði Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins, í sam- tali við mbl.is í gær að flokkurinn vildi með þessu axla ábyrgð og að ummæli Ólafs hefðu verið algjörlega óviðeigandi. „Stjórnmálaumræða hefur verið á lágu plani í heiminum undanfarið. Þegar við sjáum skot- árásir líkt og gerðar eru á flokks- skrifstofur ítrekað og nú síðast á fjölskyldubíl borgarstjóra, þá er ástandið orðið rafmagnað. Við viljum auðvitað standa vörð um tjáningar- frelsi en öllum má vera ljóst að svona verði ekki liðið,“ sagði Eyþór. Ólafur sendi í gær afsökunar- beiðni á Dag B. Eggertsson vegna færslunnar og sagði Ólafur við mbl.is að hann sæi mjög eftir færslunni. Hefði hann skrifað hana undir mið- nætti í fyrrakvöld, en séð svo í gær- morgun að hún væri ekki við hæfi og því eytt henni. »24 Fordæma árásirnar  Forseti borgarstjórnar ræði við lögregluyfirvöld um að tryggja öryggi  Ólafur víkur úr nefndum vegna færslu Morgunblaðið/Ómar Ráðhúsið Forsætisnefnd borg- arráðs fordæmir árásirnar. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ferðafélagið Útivist leggur til að Þórsmörk og Goðaland verði utan fyrirhugaðs hálendisþjóðgarðs. Þetta kemur fram í umsögn félagsins við frumvarp umhverfis- og auðlindaráð- herra um hálendisþjóðgarð. Alls voru í gær komnar 63 umsagn- ir við frumvarpið sem er til umfjöll- unar í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Í umsögn Útivistar er bent á að skv. ákvæði frumvarpsins verði ráð- herra bundinn af því að allt svæði sem er innan þjóðlendumarka og inn- an miðhálendislínu verði innan þjóð- garðs. Undir þetta falli meðal annars Þórsmörk og Goðaland. Um 100 ár séu nú liðin frá því að Þórsmörk og Goðaland voru friðuð fyrir beit og fljótlega eftir það hafi Skógrækt rík- isins tekið við umsjón svæðisins. Stjórnun og umsjón svæðisins hafi tekist vel í alla staði. Margvíslegar aðgerðir hafi verið gerðar til að tryggja að svæðið þoli þann ferða- mannafjölda sem þangað sækir og m.a. stórfellt átak verið gert í viðhaldi göngustíga og settir hafi verið upp varnargarðar. Útivist rekur skála og tjaldsvæði í Básum. „Að okkar mati er með öllu ástæðulaust að hrófla við því ágæta fyrirkomulagi sem verið hefur í Þórs- mörk og Goðalandi og teljum best fara á því að Skógræktin hafi áfram umjón með þessu svæði. Núverandi fyrirkomulag hefur gefið góða raun og skilað miklum og góðum árangri í náttúruvernd þar sem náttúrulegur íslenskur birkiskógur hefur fengið að þróast á sama tíma og svæðið þjónar vel hlutverki sínu sem einn vinsælasti ferðamannastaður landsins. Það væri einkennileg ráðstöfun að taka svæðið úr umsjón Skógræktarinnar núna þegar við fögnum 100 ára friðun Þórsmerkur og Goða- lands,“ segir í umsögn Útivistar. Mikilvægt að tryggja áframhaldandi skálarekstur Ferðafélag Íslands telur frum- varpið jákvætt framlag til náttúru- verndar og útivistar en segir mikil- vægt að skálarekstur FÍ verði tryggður. „Taka þarf skýrt fram í lagatexta um þjóðgarðinn að aðilar eins og FÍ, sem eiga og reka skála eða aðrar sambærilega fasteignir á fyrirhuguðu þjóðgarðssvæði, haldi áfram réttindum sínum innan hins fyrirhugaða þjóðgarðssvæðis,“ segir í umsögn ferðafélagsins. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þórsmörk Náttúruperla sem fjölmargir heimsækja á hverju ári. Goðaland og Þórs- mörk verði fyrir utan  63 umsagnir við hálendisfrumvarpið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.