Morgunblaðið - 30.01.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 30.01.2021, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2021 Reykjavíkurborg auglýsir hér með eftir óprentuðu handriti að ljóðabók, frumsömdu á íslensku, til að keppa um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar sem verða til úthlutunar á síðari hluta árs 2021. Verðlaun að upphæð ein milljón krónur verða veitt fyrir eitt handrit. Þriggja manna dómnefnd metur verkin. Útgáfuréttur verðlaunahandrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður að starfa með. Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka sem borist hafa fullnægi þeim kröfum sem hún telur að gera verði til verðlaunaverka má fella verðlaunin niður þetta árið. Handritum sem keppa til verðlaunanna þarf að skila í þríriti merktum dulnefni, en nafn, heimilisfang og símanúmer höfundar fylgi með í lokuðu umslagi. Handrit berist í síðasta lagi þriðjudaginn 1. júní 2021. Utanáskrift: Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar b.t. Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu 11, 101 Reykjavík Ragnheiður Lárusdóttir hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2020 fyrir handrit að ljóðabókinni 1900 og eitthvað. Aðeins var opnað umslag með nafni verðlaunahafa og verður öðrum handritum eytt sé þeirra ekki vitjað fyrir 16. febrúar 2021. Senda þarf póst á bokmenntaborgin@reykjavik.is áður en handrit eru sótt. Gunnlaugur Snær Ólafsson Sigurður Bogi Sævarsson Grænlenska uppsjávarskipið Polar Amaroq hefur þegar hafið loðnu- veiðar en landar í dag, segir Gunn- þór Ingason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Löndunin mun marka upphaf loðnu- vertíðar hjá fyrirtækinu en hún verður nokkuð minni í ár en venja er enda aðeins heimilað að veiða 61 þúsund tonn af loðnu eins og stend- ur. Síðastliðin tvö ár hefur ekkert orðið af vertíð. Ein umfangsmesta loðnuleit sem farið hefur fram stendur nú yfir og eru átta skip á miðunum að leita allt frá suðaustur af landinu norður fyrir land og norðvestur af Vestfjörðum. Meðal skipa sem taka þátt í leitinni eru Hákon EA, Jóna Eðvalds SF og rannsóknarskipin Árni Friðriksson RE og Bjarni Sæmundsson RE. „Það eru allir að bíða með öndina í hálsinum,“ segir Gunnþór um loðnu- leitina og framvindu hennar. Miklir fjármunir koma inn í samfélagið Lítill loðnukvóti var gefinn út að þessu sinni og þó svo hann gefi hrá- efni inn í reksturinn er ljóst að um- svif fyrirtækja verða mun minni á þessari vertíð en í hefðbundinni ver- tíð ef ekki finnst meiri loðna. „Starfsmönnum hjá öllum fyrirtækj- um hér fjölgar þegar kemur loðna. Miklir fjármunir koma inn í sam- félagið sem munar auðvitað miklu,“ segir Gunnþór. Spurður hvort öll von er úti ef leitin nú skilar ekki til- ætluðum árangri svarar hann: „Já, ég myndi segja að það sé minnka vonin ef þetta skilar ekki árangri. Það er nú deginum ljósara. Við bíð- um og vonum það besta. Allir horfa á skjáinn og fylgjast með hvar skip- in eru og bíða bara.“ Nú í vikunni undirritaði Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra reglugerð um veiðar á loðnu sem heimilar veiði á 61.000 tonnum á yf- irstandandi vertíð. Hugsanlega verða veiðiheimildir svo auknar ef meiri kvóti finnst. „Það eru mjög já- kvæðar fréttir að búið sé að gefa út kvóta í ár eftir tveggja ára loðnu- brest. Loðnubrestur hefur gríða- lega mikil áhrif á samfélag eins og Vestmannaeyjar þar sem um þriðj- ungur aflaheimilda er á hendi fyr- irtækja hér í bæ,“ sagði Íris Ró- bertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, í samtali við Morgunblaðið í gær. Skiptir þjóðarbúið miklu „Útgefinn kvóti í ár er lítill, 61.000 tonn, og aðeins um 20.000 tonn koma í hlut okkar Íslendinga. En ég er bjartsýn á að bætt verði í eftir þá umfangsmiklu loðnuleit sem er í gangi núna, þannig að við fáum alvöruloðnuvertíð 2021 sem mun skapa mikli verðmæti fyrir okkur í Vestmannaeyjum og landið allt. Tal- ið er að ein vertíð geti skilað um það bil 20 – 30 milljörðum. Slíkt skiptir þjóðarbúið miklu,“ segir Íris. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sjávarútvegur Jóna Eðvalds SF frá Hornafirði er meðal þeirra átta skipa sem eru á miðunum fyrir vestan, norðan og austan landið í leit að loðnunni. Allir að bíða með öndina í hálsinum  Líf á ströndinni litast af leit að loðnu Íris Róbertsdóttir Gunnþór Ingason Baldur Arnarson baldura@mbl.is Lillja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra segir tíð- inda að vænta af undirbúningi nýs þjóðarleikvangs í knattspyrnu. Hún hafi fundað í vikunni með fulltrúum borgarinnar um framhaldið en stefnt sé að því að drög að helstu niðurstöðum liggi fyrir um miðjan febrúar. „Viðræður helstu haghafa – stjórnvalda, Reykjavíkurborgar og KSÍ – snúast meðal annars um eign- arhald og fjármögnun. Það er ljóst að við viljum fara í innviðauppbygg- ingu, enda þurfum við á því að halda í miðri efnahagslægð,“ segir Lilja. Þjóðarhöll líka í skoðun „Það er mikill vilji innan ríkis- stjórnarflokkanna að fara í þetta verkefni og það er auðvitað komið býsna langt. Það er búið að vinna mikla grunnvinnu og við erum líka að huga að þjóðarhöll um inniíþrótt- ir,“ segir Lilja sem horfir til Laugar- dalsins fyrir mannvirkin tvö. Spurð um fjármögnunina rifjar Lilja upp að í síðustu ríkisfjár- málaáætlun sé gert ráð fyrir verk- efninu. Ekki sé miðað við tiltekna fjárhæð á þessu stigi. Metinn allt að 15,8 milljarðar Til upprifjunar áætlaði breska arkitektastofan AFL, sem vann val- kostagreiningu fyrir Þjóðarleikvang ehf., félag ríkis, borgar og KSÍ, að kosta myndi 8,6 til 15,8 milljarða að byggja 15.000-17.500 völl. Munurinn skýrist einkum af því hvort eldri mannvirki verði notuð áfram og hvort völlurinn hafi færanlegt þak. Lilja segir mikilvægt að fyrir liggi greining á því hvernig rekstrinum verður háttað en hann þurfi að vera sjálfbær. Sú greining verði unnin í samvinnu við Reykjavíkurborg. „Ríkissjóður var að fara í erlenda útgáfu og við höfum aldrei fengið betri fjármögnun,“ segir Lilja en ríkissjóður gaf út skuldabréf að fjár- hæð 750 milljónir evra á 0% vöxtum. En lægri vextir hafa áhrif á arðsemisútreikninga verkefna. Spurð hvaða útfærslu af nýjum leikvangi hún telji raunhæfa segir Lilja að þar til viðræðum við borgina lýkur, fyrir liggur hvernig rekstri leikvangsins verður háttað og þar til niðurstöður markaðskönnunar liggja fyrir sé ótímabært að ræða hvernig leikvang beri að reisa. Viljinn til framkvæmda sé skýr. „Við ætlum að tryggja fjár- mögnun og innviðauppbyggingu. Við þurfum að horfa til framtíðar en við höfum aldrei verið jafn langt komin í þessu verkefni,“ segir Lilja. Sömuleiðis sé ótímabært að ræða hvert menningarlegt hlutverk slíks leikvangs gæti orðið fyrr en niður- staða könnunarinnar liggur fyrir. En Guðni Bergsson, formaður KSÍ, sagði við ViðskiptaMoggann að leikvangur með færanlegu þaki yrði mikil lyftistöng fyrir tónleikahald. Verði fjölnota leikvangur Lilja segir aðspurð það hafa verið sína skoðun að reisa beri fjölnota leikvang svo tryggja megi sem besta notkun mannvirkisins. Tryggja þurfi að fjárfestingin skili sér sem best til samfélagsins og sé sjálfbær. Á það beri að líta að framkvæmd sem þessari fylgi margvíslegur óbeinn ávinningur fyrir samfélagið. Teikning/Zaha Hadid arkitektar Drög að þjóðarleikvangi Hin heimsþekkta arkitektastofa Zaha Hadid teiknaði þennan völl fyrir Laugardalinn. Vilji til að reisa þjóðar- leikvang og þjóðarhöll  Ráðherra bendir á afar hagstæða fjármögnun ríkisins Lilja Alfreðsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.