Morgunblaðið - 30.01.2021, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021
O p i n n n e t f u n d u r m e ð
B j a r n a B e n e d i k t s s y n i
O p i n n n e t f u n d u r e f n
o g v i ð s k i p t a n e f n d a r
S j á l f s t æ ð i s f l o k k s i n s
B j a r n a v e r ð u r m á n u
1 . f e b r ú a r k l . 1 2 : 0 0 .
F y r i r h u g u ð s a l a á h l
r í k i s i n s í Í s l a n d s b a n k
e f n i f u n d a r i n s .
H l e k k u r á f u n d i n n
b i r t i s t s a m d æ g u r s
á x d . i s
a h a g s -
m e ð
d a g i n n
u t a e i g n a r
a v e r ð u r
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Sem betur fer gengur bara vel þrátt
fyrir kórónuveiruástandið. Við seld-
um tvö úr í nótt á netinu, annað til
Bandaríkjanna. Það var fínt að vakna
við það að hafa selt tvö úr á meðan
maður svaf,“ sagði Gilbert úrsmiður
á Laugavegi 62 í Reykjavík. „Fólk
hefur samband við okkur á netinu og
vill fá sín úr. Þetta eru mikið úrasafn-
arar og margir sem ætluðu að vera
komnir til okkar í heimsókn en hafa
ekki komist.“
Gilbert og samstarfsmenn hans
hjá JS Watch Company og ARC-
•TIC voru að markaðssetja nýtt úr
sem er tileinkað flugvélinni sem
nauðlenti á Sólheimasandi og hefur
öðlast heimsfrægð. Úrið heitir
DAKOTA C-117 og ber einkenn-
isstafi flugvélarinnar. Á heimasíð-
unni gilbert.is eru tenglar á heima-
síður vörumerkjanna og þar má sjá
úrvalið af íslensku úrunum.
Úrin þykja spennandi
„Það þykir svolítið spennandi að
það sé einhver að framleiða úr í pínu-
lítilli úraverksmiðju á Íslandi. Úrin
eru aðeins seld í einni búð í heim-
inum, sem gerir þetta svo áhugavert
fyrir úrasafnara og menn sem hafa
gaman af að eignast fallega hluti,“
sagði Gilbert. „J“ í vörumerkinu JS
Watch Company stendur fyrir Júlíus
Heiðarsson flugstjóra sem er mikill
úraáhugamaður og „S“ stendur fyrir
Sigurð Gilbertsson úrsmið. „Þeir eru
arkitektarnir á bak við úrin í upphafi.
Svo vinnur Grímkell Sigurþórsson
margmiðlunarfræðingur einnig með
okkur í þessu. Sigurður og Grímkell
eru mikið í því að hanna nýju úrin,“
sagði Gilbert. Hann sagði að úrin
væru vinsæl til gjafa á meðal Íslend-
inga auk þess sem margir vildu eign-
ast íslenskt úr.
„Menn verða fimmtugir, sextugir
og sjötugir þótt ekki sé hægt að
halda upp á nein afmæli. Fólk hefur
samband og segist hafa ætlað að
halda veislu eða fara til útlanda í til-
efni afmælisins en ekkert orðið af
því. Í staðinn ætli það að gefa afmæl-
isbarninu fallegt úr. Þetta hefur
hjálpað okkur mikið og við þurfum
ekkert að kvarta,“ sagði Gilbert.
Hönnun og samsetning hér
Úrin eru hönnuð og teiknuð hér.
Svo er fundinn samstarfsaðili sem
getur framleitt eftir teikningunum.
Úraverksmiðjan er í samstarfi við
níu úraverksmiðjur í Sviss og Þýska-
landi sem smíða gangverkin. Íhlut-
irnir eru sendir hingað og úrin sett
saman í litla úraverkstæðinu við
Laugaveg. „Þetta er eflaust eitt
minnsta úraframleiðslufyrirtæki í
heiminum. Ég sýni oft útlendingum
hér á bak við og segi að ef þeir geti
fundið minna framleiðslufyrirtæki í
úragerð þá sendi þeir vinsamlegast
mynd af því,“ sagði Gilbert.
Hann segir að það sé gaman að
hitta mikla úrasafnara og úra-
áhugamenn. Til hans hafa komið
menn sem eiga allt því 500 úr í safni
sínu. Þeim þykir mikið varið í að
heimsækja þessa litlu úraverksmiðju.
Frægðin hefur borist víða
Frægð úraverksmiðjunnar hefur
borist víða og margir fjallað um hana.
„Richard Quest fréttamaður hjá
CNN kom í heimsókn og tók viðtal
við mig og Sigurð son minn. Það var
sýnt að minnsta kosti 40 sinnum um
allan heim hjá CNN. Svo hringdi í
mig kona og kvaðst vinna hjá New
York Times og vilja fá að koma og
taka viðtal við okkur. Ég spurði
hvernig hún vissi af mér. Hún sagðist
hafa séð mig á CNN og sýnt yf-
irmanni sínum viðtalið. Hann sagði
við hana að hún væri á leið til Íslands
að tala við þessa gaura. Svo kom
greinin í New York Times. Það er
mjög skemmtilegt að fá svona við-
brögð,“ sagði Gilbert. Hann segir að
oft komi menn, taki myndir og
fræðist um úrin og spyrji svo hvort
þetta megi birtast í hinu eða þessu
blaðinu. Þessar kynningar eru mikils
virði og bera hróður úranna víða.
Margir þekktir hafa komið inn af
götunni eða verið komið með þá í búð-
ina. Sjá má myndir af sumum þeirra
á heimasíðunni jswatch.com. Þeirra á
meðal eru sjónvarpskokkurinn Gord-
on Ramsey, leikararnir Ben Stiller og
Tom Cruise og söngvarinn Ed Sheer-
an sem allir skarta úri frá JS Watch
Company.
Úrin seljast úti um allan heim
Gilbert úrsmiður og samstarfsmenn hans reka eina minnstu úraverksmiðju í heimi Úrin seljast vel
á netinu Vekja athygli úrasafnara og áhugamanna Nýtt úr tileinkað flugvélarflaki á Sólheimasandi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Úrsmíði Gilbert úrsmiður með nýjasta úrið í höndunum. Fyrir aftan eru Grímkell P. Sigurþórsson (t.v.) og Sigurður
Gilbertsson. Þeir reka litla úraverksmiðju við Laugaveginn og eru úrin seld úti um allan heim, ekki síst á netinu.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta gerðist bara, var ekkert út-
pælt. En bjórinn er drullugóður.
Þetta er nefnilega sexí lager, það er
smá töggur í hon-
um,“ segir Helgi
Björnsson tón-
listarmaður.
Á þriðjudaginn
hefst sala á nýj-
um bjór í Vínbúð-
unum sem ber
ásjónu Helga og
nafnið vísar til
hans, Holy Beer
Sexy Lager.
Helgi segir að frumkvæðið að gerð
bjórsins hafi komið frá Ísólfi Har-
aldssyni, félaga sínum. Sá er veit-
ingamaður á Akranesi og hefur
fengist við bjórgerð. „Hann vildi
prófa að brugga einhvern lager sem
myndi henta mér og væri í mínum
anda. Svo duttum við niður á þessa
töfraformúlu. Ég vissi reyndar ekk-
ert að þetta væri komið á það stig að
fara í sölu. Það er allt komið á fleygi-
ferð og maður ræður ekki við neitt,“
segir Helgi í léttum tón.
Hann segir aðspurður að hug-
myndin hafi kviknað síðasta sumar
þegar þættirnir Heima með Helga
höfðu notið mikilla vinsælda. Búið
var að aflétta samkomutakmörk-
unum og stemningin í þjóðfélaginu
eftir því. „Þetta áttu bara að vera
einhver skemmtilegheit og miðinn á
bjórnum er flottur.“
Bjórinn er framleiddur í Ægis-
garði, brugghúsi úti á Granda. Ólaf-
ur S.K. Þorvaldz, yfirbruggari þar á
bæ, er ánægður með samstarfið við
Helga og félaga hans. „Þetta er lag-
erbjór sem lýsir anda Helga Björns
algjörlega í gegn. Nú ætlum við að
reyna að koma þessu í alla lands-
menn, svo allir geti verið sexí eins og
Helgi. Þarna ertu með kynþokka
Helga tappaðan á dós.“
Helgi Björns verður með kvöld-
vöku heima í stofu ásamt Reiðmönn-
um vindanna í kvöld, laugardags-
kvöld, kl. 20.
Eins og alþjóð orðið veit er þar
boðið upp á einlæga og heimilislega
stemningu þar sem Helgi syngur sín
þekktustu lög og þekkt tökulög í
bland auk þess að taka á móti góðum
gestum. Þátturinn er á Sjónvarpi
Símans og í beinni útsendingu á
mbl.is og K100.
Kynþokka Helga
tappað á bjórdós
Helga Björns-bjórinn á markað
Tímamót Það er kominn bjór, nánar
til tekið Holy Beer Sexy Lager.
Helgi Björnsson