Morgunblaðið - 30.01.2021, Síða 11

Morgunblaðið - 30.01.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021 Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is ÚTSALA ENNMEIRI VERÐLÆKKUN 50-70% Úlpa Líka til í svörtu Áður: 39.980 Nú: 19.990 Skipholti 29b • S. 551 4422 Fylgdu okkur á facebook 50-70% ENN MEIRI AFSLÁTTUR Ósk um tilboð í leigu á veiðirétti í Ytri Rangá og vesturhluta Hólsár Veiðifélag Ytri Rangár óskar eftir tilboðum í leigu á öllum veiðirétti félagsins í Ytri Rangá og vesturhluta Hólsár fyrir veiðitímabil áranna frá og með árinu 2022 til að lágmarki þriggja ára með almennu útboði. Útboðsgögnin fást afhent með rafrænum hætti hjá Gunnari Jóhanni Gunnarssyni, stjórnarmanni veiðifélagsins. Vinsamlegast hafið samband á netfangið gunnarjohann@gmail.com. Tilboðsfrestur er til 16. febrúar. Áskilinn er allur réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Hönnunarfyrirtækið 66° Norður hlaut í gær viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönn- unarverðlaunum Íslands 2020. Bjarney Harðardóttir annar eig- enda segist í samtali við Morg- unblaðið vera þakklát fyrir við- urkenninguna. „Þetta er viðurkenning fyrir alla starfsmenn fyrirtækisins og þá sérstaklega þá sem sinna skapandi hlutanum. Þetta er mikill heiður fyrir fyrirtæki eins og okkar sem býr að eitt hundrað ára sögu í fataframleiðslu,“ segir Bjarney. Eins og fram kemur á heimasíðu Hönnunarverðlaunanna er við- urkenningin veitt fyrirtækjum sem hafa hönnun og arkitekúr að leið- arljósi frá upphafi verka til að auka verðmætasköpun og samkeppn- ishæfni. Einnig segir að við val á verðlaunahafa sé haft í huga að leit- að sé að framúrskarandi verki, eða safni verka, sem standa eigi sem fulltrúi þess besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs. „Verkið/ verkin þurfa að vera einstök, fela í sér frjóa hugsun, snjalla lausn, vand- aða útfærslu og fagmennsku í vinnu- brögðum,“ segir á heimasíðunni. Mótast með Íslendingum Bjarney segir að 66° Norður hafi alla tíð mótast með Íslendingum bæði í starfi og leik og skjólfatnaður fyrirtækisins hafi tekið mið af þörf- um landans, hvort sem er í sjósókn, við björgunarstörf á hálendinu, eða við aðrar krefjandi aðstæður. „Ísland er kröfuharður markaður, og öll hönnunin tekur mið af því. Við framleiðum 60% af okkar vörulínu sjálf og erum með okkar eigin verk- smiðjur úti í Lettlandi. Það skiptir mjög miklu máli að framleiða sjálf vörurnar upp á þróun þeirra að gera. Mörg efnanna eru hátæknileg, vönduð og endingargóð.“ Árið 2018 keypti fjárfesting- arsjóðurinn Mousse Partners, sem stýrt er af fjölskyldunni sem á tísku- húsið Chanel, tæplega helmingshlut í 66° Norður fyrir fimm milljarða ís- lenskra króna. Bjarney segir að féð hafi nýst m.a. til að ráða inn nýtt fólk og styrkja undirstöðurnar. Hún seg- ir að fjárfestingin sé til vitnis um trú þessara aðila á íslensku hugviti og hönnun. Fjárfesting Mousse Partners kom einnig að góðum notum til að takast á við faraldurinn, að sögn Bjarn- eyjar, en 66°Norður hefur haldið framleiðslunni óbreyttri frá því veir- an kom. Um 450 starfa hjá 66° Norð- ur, þar af 250 á Íslandi. Netsalan margfaldaðist Fyrirtækið rekur tíu búðir á Ís- landi og tvær í Danmörku. Bjarney segir að sala á vef fyrir- tækisins hafi margfaldast á síðasta ári. „Við fjárfestum 100 milljónum króna í nýjum vef sem var settur í loftið í september sl.“ Rekstrarniðurstaða ársins 2020 er betri en Bjarney þorði að vona, þó að tekjurnar hafi minnkað eitthvað frá árinu á undan. Áður en veirufarald- urinn hófst komu 20% tekna fyrir- tækisins af sölu til ferðamanna. Þeg- ar þeir hurfu á brott vegna veirunnar bætti sala til Íslendinga og netsala upp þann samdrátt. „Við erum mjög þakklát fyrir það hvað Íslendingar eru tryggir vörumerk- inu.“ Mikill heiður fyrir fyrirtæki með 100 ára sögu í fataframleiðslu  66° Norður fær viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir Verðlaun Eigendur 66°Norður ásamt hönnunarteymi fyrirtækisins. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er gott upphaf á tímabilinu. Gefur manni gott sjálfstraust fyrir framhaldið. Það hlýtur að verða skemmtilegt þegar maður er kom- inn á þennan stað í janúar,“ segir Ragnhildur Haraldsdóttir á Sel- fossi sem sigraði í fjórgangi á hest- inum Vák frá Vatnsenda, í fyrstu keppni vetrarins í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum. Mótið fór fram í TM-höllinni í Víðidal í fyrra- kvöld. Ragnhildur, sem keppir fyrir Ganghesta/Margrétarhof, var efst inn í úrslit í fjórganginum og sigr- aði örugglega í úrslitakeppninni. Með því skákaði hún sigurveg- aranum frá síðasta ári, Jakobi Svavari Sigurðssyni á hestinum Hálfmána frá Steinsholti. Sigur Jakobs í þessari keppni í fyrra var upphafið að sigurgöngu hans sem endaði með því að hann sigraði í heildarstigakeppni Meistaradeildar, annað árið í röð. Stefnir á Heimsleika í sumar Ragnhildur mætti með Vák í fjórgangskeppni Meistaradeildar á síðasta ári og var nálægt því að komast í úrslit. „Við áttum fínt mót síðast, það vantaði bara herslumun- inn. Við vorum aðeins of sein að koma okkur í gírinn fyrir keppnina. Nú keyrðum við okkur heldur fyrr í gang,“ segir Ragnhildur. Hún átti gott ár í fyrra. Þau Vákur sigruðu í fjórgangi á Reykjavíkurmeistaramótinu og gerðu það líka gott í tölti í keppn- um. Vegna frestunar Landsmóts hestamannafélaga sem átti að vera á Hellu síðastliðið sumar varð Reykjavíkurmeistaramótið stærsta keppni sumarsins. Ragnhildur var valinn í landslið Íslands og hún stefnir að því að komast á Heimsleika íslenska hestsins sem halda á í Herning í Danmörku 1. til 8. ágúst. Eigandi hestsins er tilbúinn að láta hann fara, ef þau vinna sér keppnisrétt. Mikill karakter Ragnhildur segir að Vákur sé einstakur hestur. Mikill karakter sem gefi sig allan í verkefnin með knapanum. Þá sé hann með sterkar og jafnar gangtegundir sem sé mikilvægt í fjórgangskeppni. „Ég hef ekki kynnst svona hesti áður,“ segir Ragnhildur. Hún rekur tamningastöð á Sel- fossi með kærasta sínum, Helga Þór Guðjónssyni, tekur þar hross í þjálfun og kennir einnig töluvert. Gott sjálfstraust fyrir framhaldið  Ragnhildur Haraldsdóttir skákaði reyndari knöpum í fyrstu keppni Meistaradeildar í vetur Ljósmynd/Louisa Hackl Sigurvegarar Ragnhildur Haraldsdóttir og Vákur frá Vatnsenda gerðu gott mót í fjórgangskeppni Meistaradeildar í hestaíþróttum. Heilsugæslan á höfuðborgar- svæðinu mun nk. þriðjudag bjóða öllum íbúum á svæðinu, 90 ára og eldri, bólu- setningu á Suð- urlandsbraut 34. Boð um bólu- setninguna verða send með SMS- skilaboðum og fólk beðið að fylgja tímasetningu sem þar kemur fram. Nær bólusetningin til þeirra eldri borgara sem búa í eigin hús- næði. Almannavarnir tilkynntu í gær að síðasta sólarhring hefðu engin kórónuveirusmit greinst hér á landi. Alls eru 43 í einangrun, aðeins 28 eru í sóttkví og 798 manns í skimunarsóttkví. Enginn sem hef- ur greinst með Covid-19 frá 20. janúar hefur verið utan sóttkvíar. 90 ára og eldri boðið í bólusetningu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.