Morgunblaðið - 30.01.2021, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Yfirskattanefnd hefur í tveimur
kærumálum snúið við ákvörðun
skattsins um að synja umsóknum
rekstraraðila um lokunarstyrki.
Nefndin komst að þeirri niðurstöðu
að kona sem er ljósmyndari og hef-
ur með höndum ljósmyndun nýbura
uppfylli skilyrði fyrir greiðslu lok-
unarstyrks og í öðru kærumáli úr-
skurðaði yfirskattanefnd að rekstr-
araðili sem hefur með höndum
jeppaferðir með leiðsögn fyrir minni
hópa eigi einnig rétt á lokunarstyrk.
Skatturinn hafði hafnað báðum um-
sóknunum.
Í þriðja málinu sem kært var til
nefndarinnar staðfesti hún hins veg-
ar ákvörðun skattsins um að fyrir-
tæki sem rak veitingasölu og mötu-
neyti í húsnæði safns eigi ekki rétt á
lokunarstyrk.
Ljósmyndarinn rekur ljósmynda-
stúdíó og hefur sérhæft sig í ljós-
myndun eins til tveggja vikna gam-
alla barna. Kemur fram að slíkar
myndatökur krefjist mikillar ná-
lægðar við börnin og ekki sé undir
neinum kringumstæðum hægt að
virða tveggja metra fjarlægðarregl-
una við myndatökurnar. Konan hafi
því neyðst til að loka fyrirtækinu á
meðan faraldurinn gekk yfir og öll
starfsemi legið niðri í sjö vikur.
Skatturinn hafnaði hins vegar
umsókn hennar um lokunarstyrk
þar sem ekki hafi verið skylt að láta
af starfseminni á ljósmyndastof-
unni. Hægt hefði verið að viðhalda
henni í einhverri mynd og aðlaga
hertum sóttvörnum. Þá sé fjöldi við-
staddra við myndatökur ávallt undir
fjöldatakmörkunum. Heilbrigð-
isráðuneytið sendi nefndinni einnig
umsögn og kemst að sömu nið-
urstöðu og skatturinn að ljósmynd-
arinn hafi ekki uppfyllt skilyrði laga
um að henni bæri að láta af starf-
seminni. Starfsemin sé í eðli sínu
ekki með þeim hætti að hún krefjist
snertingar eða feli í sér hættu á
snertingu milli fólks. Ljósmynd-
arinn taldi afstöðu ráðuneytisins og
skattsins lýsa óbilgirni og vanþekk-
ingu á störfum við sérhæfða ljós-
myndun.
Yfirskattanefnd féllst hvorki á
röksemdir skattsins né ráðuneyt-
isins. Óumdeilt sé að ljósmynd-
aranum hafi verið óheimilt að veita
þessa þjónustu við nýbura-
ljósmyndun á gildistíma auglýsingar
um samkomutakmarkanir vegna
farsóttarinnar. Tekjur hennar af út-
seldri þjónustu við ljósmyndun hafi
að verulegu leyti verið vegna ný-
buraljósmyndunar og vandséð sé að
hún hafi átt þess kost að aðlaga
þessa starfsemi hertum sóttvörnum
með einhverjum hætti.
Ekki frekar en rakari
setji greiðu á kústskaft
Fyrirtækið sem býður upp á
jeppaferðir krafðist þess að ákvörð-
un skattsins að hafna umsókn þess
um lokunarstyrk verði felld úr gildi.
Féllst yfirskattanefnd á að skilyrði
fyrir greiðslu lokunarstyrks væru
uppfyllt enda krefðist starfsemin
slíkrar nálægðar vegna takmarkaðs
rýmis í bifreiðum kæranda að hún
yrði lögð að jöfnu við aðra starfsemi
sem fæli í sér sérstaka smithættu.
Benti fyrirtækið á að í jeppaferð-
unum væri engin leið að halda
tveggja metra fjarlægð milli ein-
staklinga og fyrirtækinu hafi því
verið óheimilt að halda starfseminni
áfram á gildistíma auglýsingarinnar
um samkomutakmarkanir. Smit-
hættan sé ekki minni þegar allt að
fjórir einstaklingar sitji saman í
jeppa en þegar setið sé á rakara-
stofu, í skíðalyftu eða æfingar
stundaðar í líkamsræktarstöð.
Fyrirtækinu hafi ekki verið kleift að
laga starfsemina að nálægð-
artakmörkunum, „ekki frekar en
rakara hafi verið unnt að halda
stofu sinni opinni með því að setja
greiðu á kústskaft og greiða við-
skiptavinum úr tilskilinni fjarlægð“.
Heilbrigðisráðuneytið sendi
nefndinni umsögn vegna málsins og
tekur í sama streng og skatturinn.
Starfsemi jeppafyrirtækisins verði
vart talin fela í sér hættu á snert-
ingu milli fólks. Fyrirtækið hefði
m.a. átt að geta haldið áfram ferð-
um á sérútbúnum bílum, fækkað
viðskiptavinum í hverri ferð og gætt
að takmörkunum og nálægð. Ef
ráðuneytinu hefði borist erindi frá
fyrirtækinu í gildistíð auglýsing-
arinnar hefði það ekki talið að loka
bæri starfsemi þess.
Yfirskattanefnd taldi hins vegar
að þjónusta fyrirtækisins krefðist
slíkrar nálægðar vegna takmarkaðs
rýmis í bifreiðum þess og starfsem-
in geti talist sambærileg þeirri
starfsemi sem tiltekin er í dæma-
skyni í auglýsingu ráðuneytisins um
samkomutakmarkanir. Fram kemur
að skatturinn sendi nefndinni um-
sögn 24. nóvember og hafði þá
breytt um afstöðu og segir þar að í
ljósi rökstuðnings kæranda megi
fallast á umsókn hans um lokunar-
styrk. Því beri að vísa kærunni aftur
til embættisins til nýrrar ákvörð-
unar, sem yfirskattanefnd hefur nú
gert.
Ómögulegt eða illmögulegt að
starfrækja kaffiteríuna
Yfirskattanefnd komst hins vegar
að annarri niðurstöðu í kærumáli
fyrirtækis sem rekur veitingasölu
innan veggja safns og staðfesti úr-
skurð skattsins um að það ætti ekki
rétt á lokunarstyrk. Fram kemur að
safninu var lokað í faraldrinum sl.
vor og viðskipti voru því engin hjá
fyrirtækinu meðan á því stóð, enda
hafi engir viðskiptavinir komist inn í
húsnæðið. Þetta hafi verið mikið
högg og fyrirtækið ekki haft nein
úrræði til að aðlaga reksturinn
breyttum aðstæðum.
Í umsögn heilbrigðisráðuneyt-
isins er tekið í sama streng og skatt-
urinn, veitingastaðnum hafi ekki
verið skylt að loka starfseminni og
hefði t.d. að mati ráðuneytisins get-
að útfært opnun staðarins í samráði
við leigusala eða lagað reksturinn að
breyttum aðstæðum. „Safninu sjálfu
hafi borið að loka, en ekki hafi verið
útilokað að húsnæði þess væri opið
til að unnt væri að komast á kaffi-
teríu kæranda þrátt fyrir að safn-
hluti hússins væri lokaður.“
Í úrskurði yfirskattanefndar segir
að fyrirtækinu hafi ekki verið skylt
að loka starfseminni en það sé af-
dráttarlaust skilyrði fyrir greiðslu
lokunarstyrks. Þótt fallist yrði á að í
reynd hefði verið ómögulegt eða ill-
gerlegt að starfrækja kaffiteríuna
innan veggja safnsins meðan lokun
þess stóð yfir „yrði ekki litið fram
hjá því að sú aðstaða hafi komið til
vegna lokunar safnsins sjálfs og
ekki verið afleiðing þess að kæranda
hefði verið skylt að láta af starfsem-
inni eftir ákvæðum 5. gr. auglýs-
ingar nr. 243/2020, um takmörkun á
samkomum vegna farsóttar“.
Höfnun umsókna snúið við
Ljósmyndari og fyrirtæki í jeppaferðum áttu rétt á lokunarstyrkjum þrátt
fyrir neitun skattsins skv. yfirskattanefnd Kaffihús í lokuðu safni fékk synjun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jeppaferð Fyrirtæki sem býður ferðamönnum upp á ferðir á jeppum með
leiðsögn er meðal þeirra sem kærðu synjun á umsókn um lokunarstyrk.
Hugsum áður en við hendum!
www.gamafelagid.is 577 5757
Ekki er hægt að útiloka hættu á
hryðjuverkum í nafni herskárrar
öfgahyggju á Íslandi við núverandi
aðstæður. Stafar hætta á slíku voða-
verki fyrst og fremst frá einstakl-
ingum sem aðhyllast herskáa öfga-
hyggju. Þetta kemur fram í skýrslu
greiningardeildar ríkislögreglu-
stjóra um hættumat vegna hryðju-
verkaógnar.
Fari svo að hryðjuverk raungerist
hér á landi má ætla að notast verði
við heimatilbúin vopn og einföld
vopn á borð við farartæki. Líklegast
er að einn eða tveir einstaklingar
standi að því, en afar ósennilegt er
að hryðjuverkahópar fremji hryðju-
verk á Íslandi við núverandi að-
stæður.
Í skýrslunni er komið inn á úrræði
lögreglunnar til að bregðast við
hryðjuverkaógn. Þau virðast vera af
skornum skammti ef marka má
greiningardeildina. „Möguleikar
lögreglunnar eru takmarkaðir til að
bregðast með fullnægjandi hætti við
tilvikum um ógnvekjandi hegðun og
hótanir,“ segir m.a. í skýrslunni.
Það er mat ríkislögreglustjóra að
veikleikar í hryðjuverkavörnum séu
talsverðir hér á landi. Skortur á
frumkvæðislöggæslu og þekkingar-
brestur á stóran þátt í því. Af þeim
sökum er ekki hægt að útiloka hættu
á hryðjuverkum vegna ástands inn-
anlands eða í heimsmálum.
Morgunblaðið/Eggert
Lögreglan Raunveruleg hætta
er á hryðjuverkum á Íslandi.
Hætta á
hryðju-
verkum
Úrræði lögreglu
af skornum skammti
Framkvæmdir við endurbætur á
gatnamótum Hafnarfjarðarvegar,
Vífilsstaðavegar og Lyngáss eru í
gangi og munu standa yfir fram á
sumar. Markmiðið með fram-
kvæmdunum er að auka öryggi
vegfarenda og bæta umferðarflæði
á Hafnarfjarðarvegi. Þannig mun
jafnframt myndast betri tenging
inn á Hafnarfjarðarveg og milli
hverfa í Garðabæ.
Fyrsta áfanga verksins er lokið,
en það var gerð hringbrautar til
móts við Flataskóla, á Vífilsstaða-
vegi. Þá er endurbótum á stígakerf-
um á svæðinu að mestu lokið auk
þess sem unnið er hörðum höndum
að því að ljúka við stígagerð.
Nú stendur yfir vinna við að út-
búa undirgöng fyrir gangandi og
hjólandi umferð. Göngin verða sett
undir Hafnarfjarðarveg við Hraun-
holtslæk. Stígar verða í framhald-
inu lagðir að þeim, en meðan á
framkvæmdum stendur verður um-
ferð veitt um hjáleið. Til viðbótar
við framangreindar framkvæmdir
verður ráðist í minni endurbætur á
borð við beygjuakreinar og endur-
bætur á gatnamótum.
Vonir eru bundnar við að fram-
kvæmdum ljúki í sumar. Unnið hef-
ur verið að þeim verkþáttum sem
hægt er að framkvæma að vetri, til
að flýta fyrir framkvæmdalokum í
sumar.
Ljósmynd/Garðabær
Framkvæmdir Á myndinni má sjá stöðu framkvæmda við hringtorgið.
Endurbætur standa
yfir fram á sumar