Morgunblaðið - 30.01.2021, Page 20

Morgunblaðið - 30.01.2021, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021 Fallegar vörur fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Luna stólar Á snúning, í 3 litum Verð 39.000 kr. ÚR BÆJARLÍFINU Björn Björnsson Sauðárkróki Þó að margir spái grannt í það hvar nýtt tungl kviknar, og hvað þá þorratunglið, áttu fæstir von á hálfr- ar viku norðanhávaða með mikilli of- ankomu. Vissulega var veðurhæðin það mikil að ekki festi verulega snjó á flatlendi, en því verra varð þar sem náði að safnast í hengjur í gilbörmun. Hefur sjálfsagt ekki miklu mátt muna að illa færi við gamla kaup- félagshúsið á Hofsósi, en fyrir ár- vekni ungs drengs og heppni fór allt vel.    Auðvitað finnst mörgum þessi árstíð nánast ónýt þar sem ekki má koma saman og blóta þorra sem venja er. En þó má nú ætla að allir lifi þrengingarnar af, enda allar versl- anir vel settar með það hnossgæti sem þorramaturinn er svo vart þarf nokkur að missa sig yfir þessu. Verslunarstjórinn í Skagfirðingabúð sagðist fyrir síðustu helgi aldrei hafa selt önnur eins ókjör af þorramat og taldi að heimablót hlytu að verða nánast í hverju húsi um helgina í kringum bóndadaginn.    Svo sem aðrir fá íþróttaunn- endur ekki að fjölmenna á íþrótta- kappleiki, og má til sanns vegar færa að hér lifi það allir af, að fá ekki að horfa á körfuna, þótt okkar mönnum hafi verið svolítið mislögð skotin eftir að tímabilið hófst á nýjan leik. Þó að Þórsarar hafi unnið í fyrrakvöld þá eru margir leikir eftir og Tindastóls- menn hafa fyrr lent í brekkum.    Á svonefndum Freyjugötureit eru nú jarðvegsframkvæmdir hafnar. Þar samdi sveitarfélagið við Íbúðar- félagið Bæjartún um skipulagningu og uppbyggingu íbúða sem skipta einhverjum tugum. Þá var boðin út í lok síðasta árs jarðvinna vegna síð- asta áfanga við stækkun sundlaug- arinnar, en þar er um að ræða vað- laug og vatnsrennibraut og frekari aðstaða fyrir börn. Á næstunni verð- ur þessi byggingaráfangi síðan boð- inn út. Á skrifstofu Stéttarfélagsins Öldunnar fengust þær upplýsingar að vart væri merkjanlegt atvinnu- leysi í Skagafirði. Vissulega væri ein- hver samdráttur meðal ferðaþjón- ustuaðila, en aðeins eitt fyrirtæki, Ferðaþjónustan á Deplum, væri lok- uð. En það færi að sjálfsögðu á fullt þegar landið opnaðist á ný, enda gestir þeirra ekki hinn almenni ferðamaður. Töldu Öldumenn að atvinnulífið hér væri almennt mjög öflugt, enda hefðu iðgjöld til þeirra, sem eru hlut- fall af greiddum launum, hækkað nokkuð frá síðasta ári.    Nýverið var haldinn fyrsti bygg- ingarnefndarfundur vegna nýs íþróttahúss á Hofsósi og er stefnt að hönnunarvinnu og að undirbúningi framkvæmda verði lokið á þessu ári. Einnig er gert ráð fyrir að unnt verði, síðsumars eða í haust, að taka nýjan leikskóla í notkun, sem verið hefur í byggingu síðan í fyrra.    Þá er í undirbúningi að flytja Leikskólann í Varmahlíð í húsnæði grunnskólans og er það mál á hönn- unarstigi. Á síðasta ári var opnuð í Varmahlíð sorpmóttökustöð og að sögn sveitarstjórnarmanna hefur rekstur hennar gengið vel til þessa.    Allmörg einbýlis- og raðhús eru á framkvæmdastigi, og verður til að mynda sú gata sem síðast var skipulögð, Melatún, fullbyggð í sum- ar. Nú er stefnt að því að hanna nýja götu, Nestún, sem liggja mun vestar og ofan Laugatúns.    Á vegum Skagafjarðarveitna verður á árinu boruð ný hola til heita- vatnsöflunar í eða við Reykjarhól við Varmahlíð. Er þetta gert til að styrkja veitukerfið, enda er nú svo komið að nánast allur Skagafjörður er tengdur hitaveitu. Aðeins eru eftir svæði þar sem byggð er strjálli og fá- ir notendur og því erfitt að koma nægilega heitu vatni á þá staði. Má þar nefna Skagann og Reykjaströnd. Lagningu er nánast lokið í dreif- býli, og nú er unnið að lokum lagn- ingarinnar í Hegranesi og á Sauð- árkróki.    Áformað er að ljúka á árinu verulegri styrkingu grjótvarnar við Hofsósshöfn og þessa dagana er að ljúka endurgerð og hækkun sjó- varnargarðs á Eyrinni, sem fór veru- lega illa í stórviðrum síðasta vetrar og orsakaði flóð og allmikið tjón í fyr- irtækjum sem þar eru.    Að framantöldu sögðu er ástandið almennt gott í Skagafirði og vonast menn nú bara eftir sæmilega snjóléttum vetri og góðu vori þegar daginn fer frekar að lengja og sól hækkar á lofti. Morgunblaðið/Eggert Ofankoma í viku í norðanhávaða Hofsós Snjóflóðahætta skapaðist víða í Skagafirði austanverðum í vikunni, með- al annars við Vesturfarasetrið á Hofsósi. Umhverfis- og skipulagsráð Vest- mannaeyja samþykkti umsókn Björgunarfélags Vestmannaeyja um að setja upp minnisvarða um þá sem fórust þegar belgíski togarinn Pela- gus O 202 strandaði á Prestafjöru á Heimaey 21. janúar 1982. Fjórir fórust í slysinu, Hannes K. Óskarsson, sveitarforingi í Hjálp- arsveit skáta í Vestmannaeyjum, fæddur 1957, Kristján Víkingsson læknir, fæddur 1949, Gilbert Stevel- inck skipverji, fæddur 1965, og Pat- rick Maes skipverji, fæddur 1962. Sex skipverjum var bjargað. Þeir Hannes og Kristján fóru um borð í togarann til að freista þess að bjarga skipverja frá borði. Þeir fest- ust í veiðarfærum í sjóganginum og fórust báðir. Fjöldi björgunarsveit- armanna og annarra fylgdist með slysinu hörmulega án þess að fá nokkuð að gert. Hugmyndin er að setja minnis- varðann upp á nýja hrauninu við út- sýnispall sem þar er. Minnisvarðinn verður stór steinn með minningar- skildi og umhverfis hann verður hlaðinn lágur stallur. gudni@mbl.is Morgunblaðið/RAX Strandið Pelagus rak upp í grýtta fjöru og lá undir 12-15 metra háum hamravegg. Fjórir fórust, þar af voru tveir íslenskir björgunarmenn. Reisa minnisvarða  Togarinn Pelagus strandaði við Heimaey 1982  Þar fórust fjórir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.