Morgunblaðið - 30.01.2021, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 30.01.2021, Qupperneq 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Ágúst Ásgeirsson Stefán Gunnar Sveinsson Deila Evrópusambandsins (ESB) og lyfjafyrirtækisins AstraZeneca harðnaði í gær eftir að Þjóðverjar neituðu að mæla með bóluefni fyrir- tækisins fyrir fólk eldra en 65 ára. Þá samþykkti framkvæmdastjórn Evr- ópusambandsins um kvöldmatarleyt- ið að takmarka útflutning á bóluefn- um og hráefni til bóluefnagerðar til nokkurra ríkja, þar á meðal Bret- lands. Afstaða Þjóðverja var rökstudd með því að ekki hefðu nægilega marg- ir úr þeim aldurshópi tekið þátt í próf- unum fyrirtækisins, en talsmenn fyrirtækisins segja gögn sín ekki benda til annars en að bóluefnið hafi sömu virkni hjá þeim aldurshópi og öðrum. Þrátt fyrir yfirlýsingu Þjóðverja ákvað lyfjastofnun Evrópu, EMA, að veita bóluefni Oxford og AstraZeneca markaðsleyfi án nokkurra takmark- anna í gær. Breskir fjölmiðlar settu afstöðu Þjóðverja í samhengi við deil- ur Evrópusambandsins og Astra- Zeneca, en bólusetningaráætlun ESB beið hnekki í fyrradag er Astra- Zeneca tilkynnti að það gæti aðeins afhent fjórðung skammta bóluefnisins sem það hefði heitið á fyrsta fjórðungi nýhafins árs, 2021, vegna vandamála í verksmiðju þess í Belgíu. Brást fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins við með því að fyrirskipa lögregluleit í verksmiðjunni í fyrradag. Vilja sækja bóluefni til Breta Evrópusambandið hefur krafist þess af fyrirtækinu að það standi við skuldbindingar sínar með því að sækja bóluefni í lyfjasmiðjur sínar í Bretlandi. Það er ekki svo einfalt því Bretar krefjast alls þess bóluefnis sem þeir höfðu pantað, og segja samn- inga sína við fyrirtækið skýra, en þeir voru undirritaður þremur mán- uðum áður en ESB samdi við fyrir- tækið. ESB birti í gær ritskoðaða útgáfu af samningi þess og AstraZeneca í þeirri von að geta sannað að fyrir- tækið hefði brotið gegn skuldbinding- um sínum varðandi afhendingu bólu- efnis gegn kórónuveirunni. Talsmaður ESB sagði skjalið sýna að samningurinn næði einnig til bóluefn- is sem framleitt væri í lyfjaverksmiðj- um AstraZeneca í Bretlandi. Á sama tíma stendur einnig skýrt í skjalinu að fyrirtækið skuldbindur sig til þess að veita ESB umsaminn fjölda skammta, „eftir bestu getu“, og þykir hann renna stoðum undir fullyrðingar Pascals Soriot, framkvæmdastjóra AstraZeneca um að ekki séu kvaðir um tímaramma á afhendingu bóluefn- isins. Hömlur á útflutning til Breta Þá samþykkti framkvæmdastjórn ESB um kvöldmatarleytið að íslensk- um tíma að setja á útflutningsbann á bóluefni til ríkja utan sambandsins, nema þau hafi fengið heimild til þess frá framkvæmdastjórninni að flytja bóluefnin úr landi. Gæti tekið allt að tvo sólarhringa að fá þá heimild eftir umsókn. Um 100 ríki eru á undanþágu frá banninu, þar á meðal öll EFTA-ríkin, en Bandaríkin, Bretland og Japan munu öll þurfa að sæta því. Deilan um bóluefni harðnar enn  ESB setur útflutningsbann á bóluefni sem nær m.a. til Bretlands  EMA samþykkir bóluefni Oxford- AstraZeneca þrátt fyrir efasemdir Þjóðverja  Evrópusambandið birtir samninginn við AstraZeneca AFP Bóluefni Slökkviliðsmenn bera bóluefni úr þyrlu sem ætlað var til bólusetn- inga á lítilli eyju, Hoedic, undan strönd Bretaníuskaga í Frakklandi. Marin le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar frönsku, hefur aldrei notið meira fylgis en nú og hefur sótt á Emmanuel Macron forseta. Væri kosið í dag segir ný könnun hana fá 48% at- kvæða og Macron 52%. „Þetta sýnir að mögu- leikar mínir á sigri eru tækir,“ sagði hún á blaðamannafundi í gær. Þar boðaði hún m.a. bann við höfuðklútum múslima sem hún sagði ekki klæðnað heldur trúartákn. Boðaði hún lög um bann við „íslömskum kenningakerfum“ sem boðuðu alræði og væru grimmdarleg. Forseta- kosningar fara fram í Frakklandi í maí 2022. Stjórnmálaskýrendur segja um fylgi Le Pen, að hún hafi hagnast á þreytu og óþolinmæði vegna kórónuveirufaraldursins. agas@mbl.is AFP Boðar bann við höfuðklútum Austurríkismaður sem flýði með fjölskylduna undan innrásarherjum nasista og faldist í Frakklandi í seinna stríðinu lét eftir sig mikinn auð sem hann ánafnaði þorpinu að hluta. Eric Schwam, sem lést níræður að aldri 25. desember sl., tiltók þessa einstöku gjöf í erðaskrá sinni til handa hinu afskekkta fjallaþorpi Chambon-sur-Lignon, í suðaust- urhluta Frakklands á slóðum þar sem íbúar eru þekktir fyrir að bjóða nauðstöddum skjólshús. „Þetta er mikið fé fyrir þorpið,“ sagði bæjarstjórinn Jean-Michel Ey- raud við AFP-fréttaveituna. Hann vildi ekki tiltaka upphæðina þar sem ólokið væri að gera erfðaskrána upp. Forveri bæjarstjórans sagði hins vegar að þorpið fengi um tvær millj- ónir evra í sinn hlut. Hún hafði hitt Schwam og konur hans tvisvar til að ræða um gjöfina. Eyraud sagði að hann hefði óskað eftir því að arf- urinn yrði brúkaður til verkefna í þágu menntunar og æskulýðsmála, fyrst og fremst sem námsstyrkir. Schwam og fjölskylda komu til Chambon-sur-Lignon árið 1943 og földust stríðsárin út í gegn í skóla- húsi. Bjuggu þau áfram í þorpinu til 1950. Hann nam lyfsölu og settist að í Lyon. agas@mbl.is Fjallaþorp hlýtur auð- æfi í arf Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hittist á óformlegum fundi eftir helgi til að ræða mál rússneska stjórnar- andstæðingsins Alexeis Navalnís. Þykir mál hans líklegt til að valda spennu í samskiptum Rússa og ein- stakra Vesturlandaþjóða. Fundurinn er áætlaður á miðviku- dag eftir mánaðarlegan fund um stríðsátökin í Sýrlandi, en þar munu aðildarríki ráðsins eiga skoðana- skipti um eiturbyrlun Navalnís í ágúst í fyrra, að sögn ótilgreinds stjórnarerindreka. Hann sagði einhverja fulltrúa í ráðinu myndu taka upp núverandi stöðu Navalnís sem handtekinn var við heimkomuna til Rússlands í síð- ustu viku og dæmdur í varðhald í ör- yggisfangelsi í Moskvu. Honum var byrlað hættulegt taugaeitur í fyrra- sumar, var nær dauða en lífi um sinn en komst aftur á fætur eftir læknis- meðferð í Þýskalandi. Segja málið innanríkismál Þess hefur verið krafist í mót- mælaaðgerðum um allt Rússland, í Evrópu og Bandaríkjunum að Na- valní verði leystur úr varðhaldi. Rússar geta ekki komið í veg fyrir fundinn þar sem hann er skilgreind- ur sem óformlegur og fer fram á bak við luktar dyr. Fyrir vikið geta ráða- menn borið upp hvaða mál sem er. Búist er engu að síður við að Moskvustjórnin kvarti undan fund- arhaldinu og standi hörð á því að málefni Navalní komi öryggisráðinu ekkert við þar sem það ógni hvorki heimsfriðnum né öryggi. „Þetta er pólitískt innanríkismál. Þess vegna látum við fundinn ekki viðgangast, við munum ekki líða útlenda af- skiptasemi af því,“ sagði Dmítrí Polj- anskí aðstoðarsendiherra Rússlands hjá SÞ. Margir nánustu samverkamenn Navalnís hafa verið settir í stofu- fangelsi á heimilum sínum. Voru handtökurnar liður í tilraunum Moskvustjórnarinnar til að spilla mótmælagöngum sem áætlaðar eru um allt Rússland um helgina. Sögðu yfirvöld í gær að mótmælendur gætu búist við að verða ákærðir fyrir þátt- töku í „múgsókyrrð“. Bróðir Navalnís, Oleg, og við- burðastjóri skrifstofu í Moskvu, Oleg Stepanov, voru dæmdir í stofu- fangelsi til 23. mars nk. eftir að Nav- alní hvatti stuðningsmenn sína í fyrradag til að rísa upp á sunnudag gegn Vladimír Pútín sem setið hefur í 20 ár á valdastóli í Kreml. agas@mbl.is Mál Navalnís í öryggisráðinu  Mótmælagöngur áætlaðar um allt Rússland um helgina

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.