Morgunblaðið - 30.01.2021, Page 24
FRÉTTASKÝRING
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Heilbrigðiseftirlit Reykja-víkur (HER) vill þrengjaað starfsemi SkotfélagsReykjavíkur sem rekur
skotíþróttavelli í Álfsnesi. Þetta
kemur fram í tillögu að starfsleyfi og
fylgigögnum sem HER hefur aug-
lýst. Lagt er til að um starfsemina
gildi almenn starfsleyfisskilyrði heil-
brigðisnefndar borgarinnar fyrir
mengandi starfsemi ásamt sértæk-
um skilyrðum fyrir SR.Hægt er að
senda skriflegar athugasemdir og
ábendingar vegna tillögunnar til 15.
febrúar 2021.
HER leggur til að starfsleyfið
verði veitt til ársins 2023. Notkun
blýhagla verður bönnuð og bannað
að nota leirdúfur með tjörubindiefni.
Þá má hávaði frá svæðinu ekki fara
yfir 50 dB(A) við íbúðarhúsnæði.
Nota á hljóðdeyfa þegar því verður
við komið. Rekstraraðili á að gera
allt sem hann getur til að koma í veg
fyrir heilsuspillandi hávaða og getur
HER takmarkað afgreiðslutíma eða
gert ítarlegar kröfur um hávaða-
varnir ef starfsemin veldur ónæði.
Afgreiðslutími svæðisins verður
takmarkaður. Þannig má vera opið
kl. 10-19 mánudaga til fimmtudaga
og kl. 10-16 á laugardögum. Fjórum
sinnum á ári má halda skotkeppnir
með rýmri skottíma. Auk þess á SR
að halda m.a. skrár um fjölda leir-
dúfa sem notaðar eru og tegund
þeirra og fjölda riffilskota sem inni-
halda blý og er skotið á hverju ári.
Elsta íþróttafélag landsins
SR, sem er elsta íþróttafélag
landsins og verður 144 ára á þessu
ári, birti grein á heimasíðu sinni um
málið. Það kveðst hafa óskað eftir
framlengingu starfsleyfis til næstu
ára og að svæðið komist inn á fram-
tíðarskipulag borgarinnar.
Félagið bendir á að á Álfsnesi sé
útiaðstaða félagsins þar sem æfingar
og innlendar og alþjóðlegar keppnir
eru haldnar, auk þess sem svæðið
hefur verið notað til verklegra skot-
prófa Umhverfisstofnunar vegna
hreindýraveiða og skotvopn-
anámskeiða ríkislögreglustjóra.
Mikill fjöldi félagsmanna auk utan-
félagsmanna notar svæðið að stað-
aldri og eru félagsmenn SR í fremsta
flokki afreksíþróttafólks í skotfimi á
landinu og hafa keppt á Ólympíu-
leikum, heimsmeistara-, heimsbikar-
og Evrópumeistaramótum síðustu ár-
in. SR bendir á að í Álfsnesi sé stund-
uð íþróttaskotfimi og því mikilvægt að
iðkendur geti æft sig í frítíma sínum.
Rakin er saga svæðisins í Álfs-
nesi og sagt að reiknað hafi verið með
því sem varanlegu skotsvæði fyrir
Reykvíkinga. Lengi var leitað að
svæði þar til þetta varð fyrir valinu og
var hundruðum milljóna eytt í að
byggja þar upp aðstöðu.
SR segir að notkun á blýhöglum
verði alfarið bönnuð á svæðinu eftir
áramótin. Þá bendir félagið á að hljóð-
mengunarmælingar norðan við Kolla-
fjörð hafi sýnt hæsta jafngild-
ishljóðstig 53dB við húsið
Skriðu/Stekk en lægsta við Móaberg,
44dB. Samkvæmt aðalskipulagi sé
svæðið norðan við Kollafjörð skil-
greint sem iðnaðarsvæði (landbún-
aðarsvæði) þar sem leyfilegt hámark
hljóðmengunar er 70 dB. Í skýrslu
HER sé svæðið hins vegar skil-
greint sem íbúðarsvæði þar
sem hávaðamörk eru við 45
dB. Samkvæmt reglugerð séu
hávaðamörk fyrir íbúðar-
húsnæði á verslunar-, þjón-
ustu- og miðsvæðum 55 dB og
mælingar HER norðan
Kollafjarðar séu
innan þeirra
marka.
Þrengja að iðkun
skotíþrótta í Álfsnesi
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Mörgum erskilj-anlega
brugðið vegna
frétta af skotárás
á bíl borgarstjóra.
Þegar þetta er
skrifað liggur ekki
fyrir hvers eðlis
skotvopnið var, en
alvarleiki sjálfrar
árásarinnar veltur
vitanlega nokkuð á
því. Eins hitt að skotmarkið
var mannlaus bíll, því hefði
borgarstjóri eða fjölskylda
hans verið í eða við bílinn væri
beinlínis um tilræði að ræða.
Það breytir hins vegar engu
um að slík árás er til þess fall-
in að vekja ógn og óhug hjá
kjörnum fulltrúa almanna-
valdsins. Hana þarf að taka al-
varlega og reyna að finna hina
seku, þó að líkur á því að það
takist kunni að vera litlar.
Þetta er ekki fyrsta árásin
af þessum toga, því fram hefur
komið að skotið hafi verið á
rúður á skrifstofur stjórn-
málaflokka undanfarna mán-
uði og misseri. Markmið
þeirra árása eru líklega ekki
aðeins eignaspjöll, heldur má
ætla að þau séu af sömu rót
runnin, til þess gerð að vekja
ógn. Slíkt á enginn að þurfa að
þola, en þegar
stjórnmálamenn
og stjórnmála-
flokkar eru sér-
stök skotmörk, þá
er okkar opna og
lýðræðislega þjóð-
félagi ógnað.
Ísland hefur
verið bless-
unarlega laust við
pólitískt ofbeldi,
en ekki þó alveg.
Vinstrimenn eru enn að hæl-
ast um af Gúttóslagnum og
árásin á Alþingi 1949 varð
ekki til að styrkja hið unga
lýðveldi. Ekki má heldur
gleyma árásum á Alþingi og
aðrar opinberar stofnanir í
„Búsáhaldabyltingunni“ 2009
eða ofsóknum sem stöku
stjórnmálamenn máttu þola
um svipað leyti og raunar
lengur. Síðasta dæmið um
skipulagðan aðsúg að heimili
stjórnmálamanns er frá 2016.
Allt er þetta ofbeldi af einu
tagi eða öðru, sem ekki má líða
í siðuðu samfélagi. Þeir ein-
staklingar sem til lýðræð-
islegrar forystu veljast – hvað
þá fjölskyldur þeirra – mega
ekki þurfa að sæta atlögu eða
ótta á heimilum sínum. Þar
höfum við sjálft lýðræðið að
verja.
Þeir einstaklingar
sem til lýðræðis-
legrar forystu velj-
ast – hvað þá fjöl-
skyldur þeirra –
mega ekki þurfa að
sæta atlögu eða
ótta á heimilum
sínum.}
Ólíðandi ofbeldi
Það er eðliborga að vera
í stöðugri mótun.
Þær þenjast út, ný
hverfi rísa og hið
gamla víkur. Með
því víkur oft
merkileg saga og
þá vaknar sú
spurning hvernig eigi að halda
henni til haga og minna á fyrri
tíð.
Um þessar mundir stendur
yfir niðurrif á húsi vestast í
Vesturbænum, sem ekki lætur
mikið yfir sér. Þar eiga að rísa
ný fjölbýlishús. Húsið var
kennt við Steindór Einarsson,
sem kallaður var bílakóngur
Íslands, og stendur gegnt JL-
húsinu.
Í Morgunblaðinu á fimmtu-
dag var saga hússins rifjuð
upp og sérstaklega rakinn
sögulegur viðburður, sem þar
átti sér stað á aðventunni 1939
þegar haldnir voru fyrstu stór-
tónleikarnir á Íslandi. Þá
stjórnaði Páll Ísólfsson kór-
verkinu Sköpuninni eftir
Haydn í húsinu. Ekki var ann-
að húsnæði í bænum að finna,
sem rúmaði slíka stórtónleika
með 70 manna kór og 35
manna hljómsveit.
Á lágreista húsinu, sem nú
er verið að rífa,
var skjöldur þar
sem þessa atburð-
ar var minnst. Þó
er víst að fæstir
þeir vegfarendur,
sem þarna eiga
leið fram hjá, hafa
hugmynd um að
þar voru þessir sögufrægu
tónleikar haldnir. Þegar nýtt
hús rís er hætt við að sögunið-
urinn af þessum viðburði
hverfi alveg, en það þarf þó
ekki að vera.
Í gamla iðnaðarhverfinu í
Rauðarárholti hafa risið
smekkleg íbúðarhús. Þar hef-
ur verið brugðið á það ráð að
vísa til fyrri byggðar með því
að setja texta og myndir á
glugga í anddyrum. Í Þverholti
17 voru til dæmis Harð-
fisksalan og Reykhús Reykja-
víkur, í Þverholti 19 trésmiðj-
an Eljan og Einholti 12
Ofnasmiðjan. Þarna hefur með
einföldum og látlausum hætti
tekist að smíða brú til fortíðar
og um leið gæða gönguferð um
þessar slóðir óvæntu lífi.
Víða um Reykjavík er hægt
að kallast á við fortíðina með
margvíslegum hætti og leitast
við að opna augu fólks fyrir
umhverfi sínu og sögu þess.
Víða um Reykjavík
er hægt að kallast á
við fortíðina og leit-
ast við að opna augu
fólks fyrir umhverfi
sínu og sögu þess}
Þegar sagan hverfur
Ó
lík svör berast við ofangreindri
spurningu eftir sjónarhorni svar-
andans. Sum lönd tróna jú neðar
á listanum og því virðast svör
stjórnmálafólks verða ólík eftir
því hvaða ríkjum þau vilja að Ísland skipi sér í
hóp með.
Alþjóðleg samtök gegn spillingu, Trans-
parency International, birtu í vikunni nið-
urstöður árlegrar mælingar á spillingu í flest-
um löndum heims. Samtökin mæla spillingu í
opinbera geiranum, stjórnmálum, stjórnsýslu
og viðskiptalífinu og byggist mælingin á áliti
sérfræðinga sem og aðila í viðskiptalífinu.
Samtökin eru með öllu óháð og ekki rekin í
hagnaðarskyni heldur til að berjast gegn spill-
ingu og óréttlæti til varnar almenningi um all-
an heim. Í þágu almannahagsmuna gegn sér-
hagsmunum.
Ísland sat á toppi listans yfir þau ríki hvar minnsta
spillingu var að finna fyrir fimmtán árum en nú er staðan
því miður önnur og verri. Við höfum hrapað niður listann
og sitjum nú í 17. sæti, langt fyrir neðan önnur ríki Norð-
urlanda og Norður-Evrópu. Þetta gerist þrátt fyrir auk-
ið regluverk og auknar skuldbindingar Íslands til varnar
spillingu en úttektir sýna því miður að íslensk stjórnvöld
virðast ekki taka á þessu af nægri alvöru.
Það kom líka berlega í ljós á Alþingi í vikunni þegar
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, spurði
Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokks, út í af-
stöðu hans til sífellt verri stöðu Íslands í þessum málum.
Því miður báru svör formanns Sjálfstæð-
isflokksins með sér að hann telur skýrslur
sem þessar, sem og niðurstöður GRECO,
samtaka ríkja Evrópuráðsins gegn spillingu,
ekkert til að hafa áhyggjur af. Segir þær ekki
byggja á raunverulegum dæmum heldur bara
„óljósri tilfinningu“. Svo virðist sem formað-
ur Sjálfstæðisflokksins telji það engin áhrif
hafa á íslenskt atvinnulíf og efnahag þjóðar
að hér aukist spilling jafnt og þétt á valda-
tíma hans, en þá er rétt að benda honum á að
við ákvörðun um fjárfestingar erlendra aðila
hér á landi er einmitt horft til stöðu ríkja er
varðar spillingu. Ef ætlunin er að standast
samanburð við nágrannaríki okkar þá er
óboðlegt með öllu að hunsa viðvaranir eins og
þær sem árlega berast okkur um síaukna
spillingu í opinberu kerfi. Stundarágóði sér-
hagsmunaafla mun þannig verða samfélaginu mjög dýr-
keyptur til lengri tíma því jafnvel þau öfl sem þannig
njóta ylsins um tíma munu á endanum tapa. Allt sam-
félagið tapar trúverðugleika á altari sérhagsmunagæslu
Sjálfstæðisflokksins. Rannsóknir sýna að spilling er ill-
víg meinsemd sem ógnar lýðræðinu, grundvallarmann-
réttindum og lífsgæðum almennings. Spilling grefur
undan trausti á stjórnvöldum og stofnunum og ber
stjórnvöldum allra landa að gera allt sem í þeirra valdi
stendur til að bregðast við af alvöru en ekki léttúð.
helgavala@althingi.is
Helga Vala
Helgadóttir
Pistill
Ríkir spilling á Íslandi?
Höfundur er þingman Samfylkingarinnar.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
„Skotveiðimenn á höfuðborgar-
svæðinu verða að hafa æfinga-
aðstöðu,“ segir Lúther Ólason,
formaður Skotveiðifélags
Reykjavíkur og nágrennis
(Skotreyn). Í því eru um 1.300
félagsmenn og er það með
æfingaaðstöðu austan við SR.
Lúther segir að starfsleyfi
Skotreynar sé enn í gildi en
vinna við endurnýjun þess sé
hafin. Hann segir að á þeirra
velli sé eingöngu skotið úr
haglabyssum og flestir félags-
menn löngu hættir að nota
skot með blýhöglum til æfinga.
Hann segir að óhjákvæmi-
lega heyrist hljóð frá skot-
æfingum. Erfitt hafi verið
að meta þau norðan
Kollafjarðar vegna um-
ferðarhávaða. Þá bendir
hann á að einnig berist
hávaði t.d. frá fjölmennum
fótboltaleikjum og engum
detti í hug að banna
þá.
Skyttur þurfa
að æfa sig
SKOTREYN
Lúther Ólason
Ljósmynd/SR
Álfsnes Skotíþróttavellir Skotfélags Reykjavíkur. Fremst eru brautir
fyrir riffilskotfimi og þar fyrir aftan eru vellir fyrir haglabyssugreinar.