Morgunblaðið - 30.01.2021, Síða 26

Morgunblaðið - 30.01.2021, Síða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021 Holtsgata 48, 260 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is 5 herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr. Búið að innrétta íbúðarherbergi í bílskúr. Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Verð 59.900.000 194 m2 Egill Skalla-Grímsson varósporlatur og fórmeðal annars tvisvar sinnum til Englands. Margir hafa spurt hvaða mál hann talaði þar. Í Egils sögu er gengið út frá því sem sjálf- sögðum hlut að hann hafi spjallað við þarlenda vand- ræðalaust. Væntanlega tal- aði hann þá íslensku en Englendingarnir fornensku. Ýmsum kann að þykja það ótrúlegt en sannleikurinn er sá að til forna svipaði íslensku og ensku mjög saman. Á Englandi flutti Egill dýrt kveðnar vísur en þrátt fyrir líkindi málanna er vafasamt að enskur ljóðaunnandi hefði treyst sér til að þýða þann flókna dróttkvæða skáldskap fyrirvaralaust. Öðru gegnir um vísuna alkunnu sem Egill orti þegar hann var sjö vetra: Það mælti mín móðir / að mér skyldi kaupa fley og fagrar árar, / fara á brott með víkingum, standa upp í stafni, / stýra dýrum knerri, halda svo til hafnar, / höggva mann og annan. Þessi vísa er einfaldari að formi en annar kveðskapur sem Agli er eignaður en engu að síður frábærlega vel ort. Hér birtist sjálfur vík- ingaandinn í hnotskurn! Nú er ekki loku skotið fyrir að Egill hafi rifjað upp bernsku- brek sín sjálfum sér og öðrum til gamans þegar hann stóð í stórræðum á enskri storð. Ef hagorður Engilsaxi hefði numið þessa auðskildu vísu hefði hann getað snarað henni nánast orðrétt á móðurmál sitt. Flest orðin eru sameiginlegur ger- manskur arfur eða norræn tökuorð í fornensku; það hefði því ekki reynst enskum mönnum torvelt að botna í þeim. Í grein sem ég skrifaði fyrir tveim áratugum giskaði ég á að fornensk þýðing hefði verið á þessa leið. Þæt mælede mín módor / þæt me scolde ceapian flæge and fægra ára, / faran aweg wið wícingum, standan úppe in stefnan, / stíeran deorne cnear, faran swá tó hæfene, / héawan man and óðerne. Auk nokkurra smáorða þarf bara að skipta um eitt orð til þess að merk- ingin komist til skila á allframbærilegri fornensku. Það er sögnin halda, sem er að vísu til í fornensku (healdan) en ekki í merkingunni ‘stefna’ eins og í ís- lensku. Hér er því notuð sögnin faran (fara) í staðinn og þar af leiðandi rask- ast stuðlasetningin á þessum stað í þýðingunni. Stuðlar og höfuðstafir tíðkuðust sem kunnugt er í germönskum málum til forna og því hefði glíman við formið naumast verið ljóðelskum Englendingi ofraun. Þegar norræn eddukvæði og dróttkvæði eru borin saman við forn- ensku og fornháþýsku blasir við að germanskar þjóðir áttu sér eitt sinn sam- eiginlegt skáldskaparmál. Það kom hins vegar í hlut Íslendinga að varðveita hið hefðbundna ljóðform allt fram á þennan dag. Pétur Knútsson, fyrrverandi dósent í ensku við Háskóla Íslands, sagði eitt sinn: „Fornenska og íslenska eru náfrænkur, en líkjast þó meir hvor annarri en margar alsystur.“ Þar hitti hann naglann á höfuðið og einföld tilraun eins og hér hefur verið gerð staðfestir það. Þæt mælede mín módor Tungutak Þórhallur Eyþórsson tolli@hi.is Egill Skalla-Grímsson í útrás á Englandi Fyrir rúmri viku var frumsýnt á stóra sviðiÞjóðleikhússins leikverkið Vertu úlfur, sembyggt er á samnefndri bók Héðins Unn-steinssonar, stefnumótunarsérfræðings í for- sætisráðuneytinu og formanns Geðhjálpar, en bókin kom út árið 2015. Unnur Ösp Stefánsdóttir vann hand- ritið upp úr bókinni og öðrum gögnum frá Héðni og leikstýrir jafnframt sýningunni. Einn leikari er í sýn- ingunni, Björn Thors. Í stuttu máli sagt er þetta bæði átakanleg og áhrifa- mikil leiksýning. Hún lýsir ákveðnu tímabili í lífi Héð- ins og ekki fer á milli mála, að Björn Thors vinnur mikinn leiksigur í þessari sýningu. Hún er á margan hátt einstök og þar kemur leikmyndin við sögu sem og tónlistin, ljósanotkun o.fl. Það sem greinarhöfundi þótti sérstakt við bók Héð- ins á sínum tíma var hæfileiki hans til að segja síðar frá því hvað gerist hið innra með ungum manni, sem er að takast á við geðhvörf. Nú birtist sá hæfileiki hans á leiksviði og þá var ein fyrsta hugsun þess vinar Héðins, sem hér skrifar, hver viðbrögð hans sjálfs yrðu, þegar hann sæi átakamikinn hluta lífs síns á leiksviði. Á svokölluðu „rennsli“ viku fyrir frumsýningu horfðist hann þannig í augu við sjálfan sig á sviði Þjóðleikhúss- ins og ekki að sjá, að honum brygði. En að vísu viður- kenndi hann í samtali við RÚV að í eitt skiptið hefði hann brostið í grát. Þeir, sem hafa verið svo heppnir að hafa engin kynni af geðröskunum, hvorki hjá sjálfum sér né nánum að- standendum, eiga af eðlilegum ástæðum erfitt með að skilja hvað hér er á ferð. En sýning Þjóðleikhússins mun gera þeim hinum sömu kleift að átta sig betur á því. Sýningin er þannig bæði upplýsandi fyrir þá, en jafnframt er hún augljóslega merkilegt framlag til samfélagsumræðna um þennan málaflokk. Og kemur að því leyti á réttum tíma, þegar margir kljást við margvíslegar heilsufarslegar afleiðingar veirufarald- ursins. Að opna líf sitt með þeim hætti, sem Héðinn Unn- steinsson gerði með bók sinni og síðar með að sam- þykkja, að hún yrði grunnur þessarar leiksýningar, var ekki og er ekki sjálfsagt mál. Til þess þarf mikinn kjark. Og sennilega hafa þessum vandamálum aldrei verið gerð skil hér á Íslandi með jafn áhrifaríkum hætti og í þessum einleik á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meðal þeirra snilldartakta, sem Björn Thors sýnir, er hvað hann varð ótrúlega líkur Héðni í hreyfingum og hátt- semi á sviðinu. Sú var tíðin, að geðraskanir voru feimnismál í fjöl- skyldum og um þær var ekki talað. Fyrir aldarfjórð- ungi eða svo hóf hópur ungs fólks, sem ýmist þekkti þessi mál af eigin raun eða starfaði við umönnun þeirra, sem á þurftu að halda, að skrifa opið um þessi málefni hér í Morgunblaðið og víðar. Framtak þeirra varð til þess, að nú fara fram feimnislausar umræður um þennan málaflokk og fleiri hafa bætzt í hóp þeirra, sem fjalla um þau eins og ekkert sé sjálfsagðara. Sýning Þjóðleikhússins nú á Vertu úlfur er jafn- framt skólabókardæmi um hvað leikhús getur skipt miklu máli í samfélagsumræðunni. Það er reyndar ekkert nýtt en hefði mátt sjást meira hér. Brúðuleikhús hafa leitt í ljós að sýningar þeirra geta haft mikil áhrif í þá átt að börn opni sig um vanda í þeirra lífi á unga aldri. Kannski er komið að því að leikhúsin vinni markvissar að því að gerast þátttak- endur í samfélagsumræðum um viðkvæm málefni með leiksýningum. Eitt af þeim vandamálum er ofbeldi á heimilum. Við lesum fréttir um slík ofbeldismál en eitt er að lesa slík- ar frásagnir, annað að sjá það á sviði. Ekki er ósenni- legt að leikverk um ofbeldisverk yrði til þess að fólk hrykki við og meiri samstaða skapaðist um að taka fastar á þeim en gert hefur verið. Annað dæmi eru deilur for- eldra um börn vegna skilnaðar. Þær deilur fara of oft út í öfgar og ljóst að hagsmunir barnsins gleymast. Þriðja dæmið má nefna sem eru þau viðkvæmu mál í samskiptum kynja, sem „metoo“-hreyfingin hefur orðið til í kringum og geta haft alls óskyldar afleiðingar. Og fjórða dæmið er spurningin um samskipti okkar sem hér búum við fólk, sem hefur flutt hingað frá öðr- um löndum eða sker sig úr sökum litarháttar eða af öðrum ástæðum. Það eru of margar vísbendingar um að við munum á næstu árum og áratugum standa frammi fyrir svipuðum vandamálum í þeim efnum og aðrar þjóðir hafa kynnzt í ríkum mæli. Reynslan af umræðum um geðraskanir sýnir, að opnar umræður um erfið mál geta valdið straum- hvörfum. Leikhúsið getur verið mjög sterkur vettvangur til að takast á við margvísleg erfið samskiptamál af þeirri ástæðu að sjón er sögu ríkari. Þessar hugleiðingar hafa vaknað við að sjá sýningu Þjóðleikhússins á Vertu úlfur. Sú sýning á eftir að vekja marga til umhugsunar. Þótt margt hafi áunnizt á sviði geðheilbrigðismála er fullur sigur ekki í höfn. Enn eimir eftir af fordómum. Söguhetjan í Vertu úlfur spyr sig hvort hann verði „stimplaður“ alla ævi. Þessi áhrifamikla sýning undirstrikar enn og aftur að leikhús á Íslandi búa yfir mjög hæfileikaríku starfs- fólki. Þau hafa í sinni þjónustu frábæra leikara. Það eitt og sér sýnir hvað mikið hefur áunnizt á þeim rúm- lega 120 árum, sem liðin eru frá því að Leikfélag Reykjavíkur var stofnað. Það er fullt tilefni til að hvetja leikhúsin til að hefja með virkum hætti þátt í samfélagsumræðunni á öllum sviðum hennar. Að vera „úlfur“ Sýning sem opnar nýja sýn á hlutverk leikhúss og leiklistar. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Í Morgunblaðinu 27. janúar 2021kennir Ólafur Sigurðsson, fyrr- verandi fréttamaður, nýfrjálshyggju um flest það, sem aflaga hefur farið í heiminum síðustu fimmtíu árin, og ber fyrir því tvo kunna vinstrimenn bandaríska, Joseph Stiglitz hag- fræðing og Robert Kuttner frétta- mann. En hvað er nýfrjálshyggja? Flestir geta verið sammála um, að hún sé sú skoðun, sem Friedrich von Hayek og Milton Friedman efldu að rökum og Margrét Thatcher og Ro- nald Reagan framkvæmdu upp úr 1975, að ríkið hefði vaxið um of og þrengt að frelsi og svigrúmi ein- staklinganna. Mál væri að flytja verkefni frá skriffinnum til frum- kvöðla og lækka skatta. Það studdi nýfrjálshyggjuna, að ríkisafskiptastefnan, sem fylgt hafði verið frá stríðslokum, hafði gefist illa, en samkvæmt henni átti að tryggja fulla atvinnu með pen- ingaþenslu. Þetta reyndist ekki ger- legt til langs tíma litið. Afleiðingin hafði orðið verðbólga með atvinnu- leysi, ekki án þess. Þau Thatcher og Reagan náðu góðum árangri, og leiðtogar annarra þjóða tóku upp stefnu þeirra, ekki síst stjórnmála- foringjar í hinum nýfrjálsu ríkjum, sem kommúnistar höfðu stjórnað í Mið- og Austur-Evrópu, Mart Laar, Václav Klaus og Leszek Balcero- wicz. Undir forystu þeirra breyttust hagkerfi þessara ríkja undrafljótt og án blóðsúthellinga úr komm- únisma í kapítalisma, og þjóðir land- anna tóku að lifa eðlilegu lífi. Þetta er eitt þögulla afreka mannkynssög- unnar. Frá hruni kommúnismans 1991 hefur verið ótrúlegt framfaraskeið á Vesturlöndum, eins og Matt Ridley og Johan Norberg rekja í bókum, sem komið hafa út á íslensku. Meg- inskýringin er auðsæ: aukin alþjóða- viðskipti, sem gera mönnum kleift að nýta sér kosti hinnar alþjóðlegu verkaskiptingar. Mörg hundruð milljón manna í Kína, Indlandi og öðrum suðrænum löndum hafa þrammað á sjömílnaskóm úr fátækt í bjargálnir, og á Vesturlöndum hafa almenn lífskjör batnað verulega í öllum tekjuhópum, þótt vitanlega hafi teygst á tekjukvarðanum upp á við, enda gerist það fyrirsjáanlega við aukið svigrúm einstaklinganna. Hinir ríku hafa orðið ríkari, og hinir fátæku hafa orðið ríkari. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Hvað er nýfrjálshyggja?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.