Morgunblaðið - 30.01.2021, Page 30

Morgunblaðið - 30.01.2021, Page 30
30 MINNINGAR Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021 ÁRBÆJARKIRKJA | Streymi frá helgistund á fésbókarsíðu og heima- síðu Árbæjarkirkju. Sr. Þór Hauksson með hugleiðingu. Krisztina Kalló Szklenár er organisti. ÁSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 9.30. Athugið breyttan tíma, því nú tökum við daginn snemma og verðum framvegis kl. 9.30, – klukkan hálftíu. Jóhanna María Eyjólfsdóttir djákni leiðir samverustundina. Bjartur Logi Guðnason organisti verður við píanó- ið. Fermingarbörn aðstoða. BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnudaga- skóli kl. 11 í umsjá sr. Magnúsar Björns Björnssonar, Stein- unnar Þorbergsdóttur og Steinunnar Leifsdóttur. Við fylgj- um sóttvarnareglum, hámark 20 full- orðnir. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf verð- ur á sunnudaginn kl. 11. Gætt verður allra sóttvarna. Aðeins 20 fullorðnir mega vera viðstaddir og bera grímu. Almennar messur verða enn um sinn áfram á netinu. DÓMKIRKJAN | Á sunnudaginn verður helgistund fyrir fermingarbörn Dómkirkjunnar og eftir hana verður fermingarfræðsla á kirkjuloftinu. Alla þriðjudaga eru bæna- og kyrrðar- stundir í hádeginu. Tíðasöngur á fimmtudögum kl. 17 með séra Sveini Valgeirssyni. Dómkirkjan er opin virka daga 10-14. Gott að koma í kirkjuna og njóta í íhugun og bæn. Virðum fjöldatakmarkanir og sótt- varnatilmæli. GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudag- inn 31. janúar verður helgistund í beinu streymi. Streymið hefst kl. 11. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Organisti er Hákon Leifsson. Barna- og unglingakór Grafarvogskirkju syng- ur. Kórstjóri er Sigríður Soffía Hafliða- dóttir. GRENSÁSKIRKJA | Sameiginlegur sunnudagaskóli Fossvogspresta- kalls, Grensáskirkju og Bústaðakirkju hefst að nýju 31. janúar kl. 11 í Bú- staðakirkju í umsjá Daníels djákna og Sóleyjar Öddu. Gætt verður allra sótt- varna. 20 fullorðnir mega vera við- staddir og bera grímu. Helgistundir eru áfram sendar út á fésbókarsíðum kirknanna og you- tuberásinni Fossvogsprestakall. Kyrrðarstund þriðjudaginn 2. febrúar kl. 12-12.20. Núvitund á kristnum grunni fimmtudaginn 4. febrúar kl. 18.15-18.45. KÓPAVOGSKIRKJA | Helgistund kl. 11. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir leiðir stundina og Lenka Mátéová kantor kirkjunnar annast tónlistarflutning. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum. NESKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og Ari Agnarsson. Gengið er inn um safnaðarheimilið. Helgistund í kirkjunni kl. 11 í umsjón sr. Skúla S. Ólafssonar. Steingrímur Þórhallsson leikur á orgel. Gengið er beint inn í kirkjuna um aðalinngang. Sóttvarnareglum fylgt. Spritt er á staðnum, fjarlægðarmörk haldin og hámark 20 fullorðnir á hvorri stund. SELTJARNARNESKIRKJA | Helgi- stund í streymi á facebooksíðu Sel- tjarnarneskirkju kl. 11. Sr. Bjarni Þór þjónar. Friðrik Vignir er organisti. Þor- steinn Þorsteinsson syngur. Erna Kol- beins og Anna Guðrún Hafsteinsdótt- ir lesa ritningarlestra. Grétar G. Guðmundsson les bænir. Tæknimað- ur er Sveinn Bjarki Tómasson. Upp- töku á guðsþjónustu útvarpað á Rás 1 á sama tíma. Sóknarprestur og org- anisti kirkjunnar ásamt safnaðar- fólki. Kammerkórinn syngur og Ragn- hildur Dóra Þórhallsdóttir syngur. Bænastund í streymi 3. febrúar kl. 12. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Sæbólskirkja á Ingjaldssandi ✝ Njáll Gunn-arsson fæddist á Njálsstöðum í Norðurfirði í Strandasýslu 22. maí 1930. Hann lést á Sjúkrahúsi Akra- ness 23. janúar 2021. Foreldrar hans voru hjónin Val- gerður Guðrún Val- geirsdóttir, f. 17. apríl 1899, d. 14. ágúst 1971, og Gunnar Njálsson, f. 2. febrúar 1901, d. 6. júlí 1985, bóndi á Njálsstöðum og síðar í Suður- Bár í Eyrarsveit í Grundarfirði. Systkini Njáls voru Súsanna Margrét, f. 1926, d. 2002, Sess- elja, f. 1928, d. 2013, Kjartan, f. 1934, Þórdís, f. 1934, d. 2015, og Tryggvi, f. 1937. Hinn 29. desember 1956 gekk Njáll að eiga Helgu Soffíu Gunn- arsdóttur frá Eiði í Eyrarsveit, f. 8. nóvember 1937. Foreldrar hennar voru hjónin Gunnar Jó- hann Stefánsson, f. 22. nóvem- ber 1903, d. 23. júlí 1980, og Lilja Elísdóttir, f. 24. júní 1907, d. 1. júní 1964. Helga lést 11. desember 1997. Sonur Helgu er Ísak Snorri, f. 1998. 4) Lilja, f. 23. feb. 1960, sonur hennar er Valtýr Njáll, f. 1983, faðir Birgir Ólafsson. Sonur Valtýs Njáls er Birgir Logi, f. 2001. 5) Valgeir, f. 18. júní 1962. 6) Rósa, f. 13. okt. 1963, gift Hannesi Karlssyni, f. 1959, og eiga þau þrjár dætur: Lísbetu, f. 1986, Helen, f. 1991 og Berg- lindi, f. 1993. Sonur Lísbetar og Friðgeirs B. Valdemarssonar er Adam, f. 2016, sonur Lísbetar er Hannes, f. 2011, og synir Frið- geirs eru Bjarmi, f. 2003, og Dofri, f. 2004. Börn Helenar og Guðmundar Arnar Magnússon- ar eru Hekla, f. 2018, og Gígur, f. 2020. 7) Anna, f. 19. jan. 1965, sonur hennar er Stefán, f. 1992, faðir Guðbrandur Baldursson. 8) Marteinn, f. 15. nóv. 1973, sonur hans er Jóhann Snorri, f. 2002, móðir Erna Guðný Jóns- dóttir. Útför Njáls fer fram frá Grundarfjarðarkirkju 30. jan- úar 2021 og hefst athöfnin kl. 13. Henni verður streymt af vef Grundarfjarðarkirkju: https://youtu.be/A6HHiSg1aCM Virkan hlekk á streymi má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat Njáll og Helga eignuðust átta börn: 1) Sunna, f. 18. sept. 1956, gift Gunnari Inga Jó- hannessyni, f. 1947, og eiga þau þrjú börn: Helgu Soffíu, f. 1978, Signýju, f. 1980, og Hákon, f. 1991. Börn Helgu Soffíu og Gunnars Arnar Hjartarsonar eru Tinna Katrín, f. 2003, Fanney Sara, f. 2007, og Tómas Ólíver, f. 2013. Sonur Gunnars Arnar er Krist- ófer, f. 1997. Sonur Hákonar og Sigrúnar Hrafnsdóttur er Hilm- ir, f. 2020. 2) Gunnar, f. 27. okt. 1957, kvæntur Kolbrúnu Rögnvalds- dóttur, f. 1964, og eiga þau fjög- ur börn: Njál, f. 1990, Sigurgeir Sturlu, f. 1992, Daníel, f. 1995, og Karen Líf, f. 1998. Sonur Gunnars er Kristján Birnir, f. 1986, móðir Sigurborg Krist- jánsdóttir. 3) Erna, f. 17. okt. 1958, gift Erni Ármanni Jónassyni, f. 1957. Dóttir Ernu er Helga, f. 1977, faðir Pétur Lúðvíksson. Elsku pabbi, tengdapabbi og afi. Öll við færum, elsku vinur, ástar þökk á kveðjustund. Gleði veitir grátnu hjarta. guðleg von um eftirfund. Drottinn Jesú, sólin sanna, sigrað hefur dauða og gröf. Að hafa átt þig ætíð verður, okkur dýrmæt lífsins gjöf. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Takk fyrir allt Guð geymi þig Gunnar, Kolbrún, Kristján Birnir, Njáll, Sigurgeir Sturla, Daníel og Karen Líf. Njáll Gunnarsson fæddist á Njálsstöðum í Norðurfirði 22. maí 1930. Hann ólst upp í fjöl- mennum og glaðværum frænd- systkinahópi í Norðurfirði og sótti barnaskóla á Finnbogastöð- um og framhaldsnám í tvo vetur á Héraðsskólanum á Reykjum í Hrútafirði. Frá Hólum í Hjalta- dal útskrifaðist Njáll síðan vorið 1950 sem búfræðingur og dvald- ist heima í Norðurfirði síðasta ár sitt í sveitinni sinni fögru sem hann alla tíð hélt upp á. Hann vann sem ungur maður ýmis verkamannastörf til lands og sjós. Var fjósamaður á Hólum eftir útskrift þaðan, vinnumaður á stórbýlinu Blikastöðum þaðan sem hann átti góðar minningar og var til sjós á ýmsum fiski- skipum. Árið 1952 tók fjölskyldan sig upp eins og svo margar aðrar fjölskyldur á þessum tíma og flutti búferlum vestur á Snæ- fellsnes. Settist hún að í Suður- Bár í Eyrarsveit þar sem Njáll bjó félagsbúi með foreldrum sín- um fyrstu árin en tók við bú- skapnum 1964 ásamt eiginkonu sinni, Helgu Soffíu Gunnarsdótt- ur frá Eiði í Eyrarsveit. Mikil uppbygging átti sér stað á jörð- inni fyrstu árin, húsakostur end- urnýjaður og tún ræktuð upp. Börnin urðu átta og smátt og smátt stækkaði búið og búskap- urinn vélvæddist. Njáll tók þátt í störfum sókn- arnefndar og sat í hreppsnefnd á sjöunda áratugnum en dró úr þeim störfum þegar umsvifin í búskapnum í Suður-Bár jukust. Njáll tók þátt í stofnun Mjólk- ursamlagsins í Grundarfirði sem var starfrækt frá 1964-1974 og var formaður þess öll árin. Að starfstíma þess loknum færðist þjónustan við kúabændur til Mjólkurbúsins í Búðardal sem smám saman jók starfssvæði sitt og nefndist eftir það Mjólkur- samlagið í Búðardal. Njáll vald- ist í stöðu ritara og var fulltrúi þess á aðalfundum Mjólkursam- sölunnar í Reykjavík í tæp tutt- ugu ár. Það var ánægja hans að taka þátt í stjórnum þessara fé- laga sem voru grunnurinn að þróun í framleiðslu mjólkuraf- urða á Vesturlandi. Það var með eftirsjá að hann varð að hætta vegna veikinda árið 1994. Á árunum fyrir 1990 var tekin ákvörðun um að minnka hefð- bundinn búskap og hefja ferða- þjónustu í Suður-Bár sem Njáll og Helga höfðu mikla ánægju af og jafnframt voru tún tekin und- ir golfvöll þar sem nú er starf- ræktur níu holu golfvöllur. Árið 1994 greindist Njáll með krabbamein í fæti og þurfti að fjarlægja hann. Helga féll frá 11. desember 1997 eftir hetjulega baráttu við krabbamein í þrjú ár. Komið var að kaflaskilum í lífi Njáls. Marteinn yngsti sonur hans tók við jörðinni og Njáll flutti í íbúð fyrir eldri borgara á Hrannarstíg 18 í Grundarfirði. Hann bjó sér gott heimili og fylgdist með lífinu í kringum sig, tók þátt í félagsskap Lions- klúbbsins, söng með bræðrum sínum þegar tilefni gafst og var í kór eldri borgara. Hann tókst á við breyttar aðstæður með æðruleysi og hélt góðri heilsu fram undir það síðasta. Njáll var fróðleiksfús og félagslyndur, minnugur með afbrigðum og ör- látur á að veita öðrum hlutdeild í sögum, ættrakningum og frá- sögnum af frændliði og sam- ferðafólki vítt og breitt um land- ið og þó sérstaklega af Ströndum. Pabbi. Takk fyrir góða sam- fylgd. Sunna Njálsdóttir. Pabbi minn, bóndinn í Bár, Strandamaður, sögumaður af Guðs náð, glettinn og með blik í auga. Nú ertu farinn og margs að minnast. Það var stór barnahópurinn í Suður-Bár og mörg verkefnin í sveitinni. Þið mamma unnuð vel saman, hún stjórnaði, kenndi okkur inniverkin og kom okkur út úr húsi þegar þess þurfti þar sem þú tókst við og komst okkur að verki, verklagni var þér í blóð borin og þú kenndir okkur vinnusemi. Myndarbú og mikil ræktun öll ykkar ár í Bár og síð- ar tók við ferðaþjónusta sem þið höfðuð mikla ánægju af. Pabbi var góður bóndi. Þú misstir mikið í janúar 1994 þegar fóturinn var tekinn af og enn meira í desember 1997 þeg- ar mamma fór. Þá var tími bóndans í Bár liðinn og nýr tími rann upp sem þú náðir að aðlag- ast á aðdáunarverðan hátt. Hjólastóllinn rykféll út í skemmu og með hjálp Össurar og hjálpartækja þá urðu flestir vegir þér færir. Aldrei kvartað, alltaf jákvæður. Og sagðar sög- ur. Þar sem ég hef ávallt búið fjarri heimahögum þá urðu sím- tölin mun fleiri en heimsóknir. Og alltaf fékk maður sögu: „Veistu hvað? Nú þarf ég að segja þér nokkuð…“ og svo kom sagan, fróðleikur, gamlar sagnir, hvernig lífið var hér áður, fólkið þitt norðan af Ströndum, ætt- artengsl og ættfræði. Ótal bæk- ur lesnar, sjónvarpið, samtöl við fólk og sótt í félagsskap því þú varst mjög félagslyndur maður. Nú hefur þú sagt þína síðustu sögu og þinni sögu hér á jörðu er lokið. En við börnin þín mun- um taka við boltanum og segja þína sögu. Af nægu er að taka. Þegar mamma kvaddi var það hennar ósk að engin erfidrykkja yrði, bara kaffi og með því fyrir nánasta fólk. Því miður hefur verið séð fyrir því að ekki verði annar háttur á að þessu sinni. Það er miður, því ég veit að þú hefðir viljað hafa alla saman- komna og mikið af tertum og brauði. En ég trúi því að borðin svigni undan kræsingum í Sum- arlandinu góða þar sem þú dans- ar nú og hleypur um á tveimur jafnfljótum með elsku mömmu þér við hlið. Takk fyrir allt pabbi minn, þín verður sárt saknað. Þín dóttir, Rósa. Elsku afi. Fyrsta minning mín um þig er að sjá þig í vinnugall- anum og stígvélunum á leiðinni út í fjós að mjólka kýrnar og sinna bústörfum. Margar fleiri fylgja í kjölfarið. Félagslyndur, glettinn, víðlesinn, stálminnug- ur, lást ekki á skoðunum þínum þó þú hafir mildast með árunum, fylgdist vel með fólkinu þínu, íþróttum og þjóðmálum er meðal annars það sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa til þín. Hörkuduglegur bóndi og lést fátt stoppa þig. Meira að segja eftir að þú misstir annan fótinn þá fannstu lausn á því hvernig þú gætir sinnt bústörfunum. Æðruleysið sem þú sýndir í gegnum veikindi þín og við frá- fall ömmu nokkrum árum eftir það er mér mjög minnisstætt, ómetanleg fyrirmynd. Eitt af því sem þú hafðir unun af var að segja sögur af uppvaxt- arárum þínum, mönnum og mál- efnum. Þó að mér hafi stundum þótt nóg um frásagnargleðina þá naut ég þess oftast að hlusta á þig. Þvílíkur viskubrunnur sem þú varst, afi minn. Þakklát er ég fyrir samveruna og tímann sem við áttum saman í viðtölum vegna ritgerðarinnar sem ég skrifaði um uppvaxtarárin þín norður á Ströndum, flutningana til Grundarfjarðar, byggingu Suður-Bár og hvernig þið amma kynntust. Einnig ferðalagið okk- ar frá Grundarfirði og á æsku- slóðir þínar. Alla bílferðina norð- ur sagðir þú frá stokkum og steinum, mönnum og málleys- ingjum, hver var hvað og hver var hvurs. Ekki var möguleiki á að koma inn orði eða setningu nema þá helst þegar þú dróst inn andann, slík var frásagnar- gleðin. Ekki man ég til þess að hafa heyrt sömu frásögnina tvisvar en með bros á vör spurð- ir þú alltaf til að vera viss: „Var ég búinn að segja þér þetta?“ Elsku afi, ástarþakkir fyrir alla elskuna þína, sögurnar þín- ar og samverustundirnar. Nú loksins ertu aftur kominn á tvo jafnfljóta, hlaupandi um brekk- urnar í Sumarlandinu með ömmu. Hvíldu í friði, ljúfi töffari. Þín, Helga P. Njáll Gunnarsson frá Suður- Bár verður borinn til grafar í dag. Við vorum systrasynir, móðir Njáls, Valgerður, var systir móður minna Laufeyjar Valgeirsdóttur, báðar af stórum systkinahóp, Valgeirsættinni í Norðurfirði á Ströndum. Faðir Njáls, Gunnar Njálsson, var bróðursonur föðurömmu minnar, Guðrúnar Guðmundsdóttir úr Kjós í Árneshreppi. Það voru sviptingar og bú- ferlaflutningar hjá fólki af Ströndum á þessum árum. Fisk- ur hvarf úr Húnaflóanum og einnig síldin, en reistar höfðu verið tvær nýjar síldarverk- smiðjur á Djúpavík og Ingólfs- firði sem hleyptu miklu lífi í byggðarlagið um tíma. Stórar fjölskyldur tóku sig upp og fluttu í nýja landshluta. Við frá Asparvík fluttum til Bjarnarhafnar á Snæfellsnesi 1951. Lárus Guðmundsson og Elín Bjarnadóttir frá Drangs- nesi í Ögur við Stykkishólm 1952. Fjölskylda Njáls flutti með sína stóru fjölskyldu frá Njáls- stöðum í Árneshreppi 1952 í Suður-Bár í Eyrarsveit. Ég minnist þess enn, átta ára gamall strákur í spenningnum að fá þennan myndarlega og hugumprúða frænda í heimsókn veturinn 1952. Njáll var í okkar augum mjög forframaður, búinn að vera í Bændaskólanum á Hól- um, verið þar fjósamaður, hirt 60-70 kýr sem og fjármaður yfir nokkur hundruð fjár. Njáll hafði einnig unnið á stórbýlinu Blika- stöðum við Reykjavík. Við hlökkuðum til að fá fjölskyldu Njáls í nábýli við okkur. Þessi mynd af ungum myndarmanni, djörfum og prúðum sem alltaf var reiðubúinn að spila við okk- ur krakkana, er mér enn ljóslif- andi. Og í Bár flutti fjölskylda Njáls sléttu ári eftir að við flutt- um í Bjarnarhöfn 22. júní 1952. „Ég ætla mér að verða bóndi,“ sagði Njáll ákveðið þeg- ar hann beið úrlausnar um jarð- arkaup fjölskyldunnar í Bjarn- arhöfn 1952. Og draumur Njáls rættist. Fátt gladdi foreldra mína meir á þessum árum en að fá nána fjöl- skyldu og vini í næsta nágrenni. Faðir minni Bjarni beitti sér sem hann gat til að þau mál gengju upp. Þótt húsakynni væru þá léleg í Bár og túnið lítið bauð jörðin upp á mikla möguleika og með ört vaxandi sjávarpláss við hlið- ina þar sem auðvelt var að sækja vinnu. Fjölskylda Njáls var ham- hleypa til verka og hagleiksfólk. Ný hús risu, túnið stækkað og gripum fjölgað. Og í höndum Njáls og Helgu, heimasætunnar af næsta bæ, reis í Suður-Bár eitt mesta myndarbú héraðsins. Njáll var ekki aðeins öflugur bóndi heldur mikill félagsmálamaður og góður liðsmaður sem naut mikillar virðingar í héraðinu sem allir treystu. Njáll var einstaklega hjálpsamur og með í öllu sem til hans var leitað. Fjölskyldan í Bár varð fljótlega ein af mátt- arstólpum ört vaxandi byggðar við Grundarfjörðinn. Strandafjölskyldurnar sem fluttu á Snæfellsnes á árunum 1951 til 1953 hafa svo sannarlega fest þar rætur og eiga þar nú stóran hóp afkomenda. Að leiðarlokum vil ég þakka Njáli fyrir samferðina, allar stundirnar og félagsskapinn meðan við bjuggum fyrir vestan í Bjarnarhöfn. Hún var drjúg smiðshöndin hans Njáls þegar hann lagði öðr- um lið. „Bóndi er bústólpi, bú er landstólpi – því skal hann virður vel“ sannaðist vel á Njáli. Við Ingibjörg þökkum Njáli samferðina og allar góðu stund- irnar. Blessuð veri minning höfð- ingjans Njáls Gunnarssonar. Fjölskyldu Njáls sendum við einlægar samúðarkveðjur. Jón Bjarnason Ingibjörg Kolka. Njáll Gunnarsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.